Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Síða 13
DV. FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986. 13 Hálfopið bréf til menntamálaráðherra íslendingar hafa gjarnan stært sig af því að vera menntuð þjóð og bókmenntahneigð og vissulega má færa fyrir því margvísleg rök. En þó við séum menntuð þjóð í dag er ekki sjálfgefið að við verðum það á morgun. Það er ekki sjálfgefið að íslenska þjóðin standi alltaf í fremstu röð hvað varðar menntun þjóðanna. En, íhugum nú aðeins hvað er menntuð þjóð. Er hægt að einskorða skilgreininguna við það að ólæsi sé í lágmarki og allir þegnarnir hafi samlagningu og frádrátt nokkurn veginn á taktein- um? Eða er það menntuð þjóð sem hefur tileinkað sér viðsýni og hefur skilning á því að menntun þjóðar- innarí heild er afl til framfara? Sá hugmyndaheimur, sem hver þjóð og einstaklingur lifir í, er nátengdur menntunarstigi þeirra. Þannig er t.d. sá hugmyndaheimur sem skilaði íslensku þjóðinni frá kotungsskap inn í iðnvæðingu ekki alveg gjaldgengur á tölvuöld. Við lifum nú í flóknari heimi sem krefst nýrra viðhorfa ætli menn að ná því að fylgjast með. Þau eru t.d. varla mörg nútímafyrirtækin sem myndu ráða Sverri Hermannsson mennta- málaráðherra í vinnu með þá menntun sem hann lýsti yfir í sjón- varpi að hann hefði. Þar er ráð- herrann ekkert einsdæmi, svo er með fjölda fólks i þjóðfélaginu. Menntunarstefna I íslenska lýðveldinu hefur aldrei verið neinn aðall eða aðalsstétt. Sú hugmynd hefur því ekki náð að skjóta rótum hér að einhver ein stétt sé hæfari en önnur og eigi að njóta forréttinda, t.d. til náms. Á þessum grundvelli var Lánasjóður íslenskra námsmanna stofnaður á sínum tíma, í þeim tilgangi að stuðla að jafnrétti til náms, til þess að hinir efnaminni hefðu jöfn tækifæri á við hina efnameiri til að verða sér úti um menntun. Á tímum óðaverðbólgu og óverð- tryggðra lána hét sú fjárhæð, sem námsmenn fengu, lán, þó þau hafi að mestu leyti brunnið upp í verð- bólgubálinu. Nú, þegar lánin eru orðin verðtryggð, heita þau aftur á móti aðstoð við námsmenn. Þessi nafnbreyting átti sér stað í tíð þessarar ríkisstjórnar og lýsir þeim hverja upp á móti annarri. Mál- flutningur ráðherrans varðandi námsmenn hefur allur verið í þá átt að námsmenn hafi það of gott og njóti réttinda fram yfir aðrar stéttir hvað varðar ráðstöfunarfé. Þessi málflutningur hefur stuðlað að óvild verkalýðsstéttarinnar út í námsmenn og sú hugmynd verður Kjallarinn a „Ef menntamálaráðherra framkvæm- ^ ir þessar miðaldahugmyndir sínar þá er hann að hrinda í framkvæmd algerlega nýrri stefnu í menntamálum, nefnilega að skapa forréttindastétt eða aðal sem einn hafi möguleika á háskólamenntun í krafti efnahags síns.“ HEIMIR MÁR PÉTURSSON NÁMSMAÐUR hugmyndaheimi sem meðlimir hennar lifa í. Lánasjóðurinn hefur frá stofnun hans vafalítið auðveldað hinum efnaminni að verða sér úti um menntun og þar af leiðandi gegnt mikilvægu hlutverki. Hann hefur hjálpað einstaklingum úr efha- minni fjölskyldum og þá ekki síst þeim sem koma utan af landi. Því eins og allir vita sem vilja vita þá hýsir heimavist Háskóla íslands ekki nema örlítið brot af þeim einstaklingum sem koma utan af landi. Þeir hafa því þurft að leigja sér húsnæði á hinum almenna markaði og verðlagið á þeim mark- aði þekkja einnig allir sem vilja þekkjaþað. Menntamálaráðherra úr flokki með slagorðið: stétt með stétt og jafnrétti til náms, í stjórn með flokki sem hefur sagst bera hags- muni landsbyggðarinnar sérstak- lega fyrir brjósti, hefur nú verið duglegur við að egna stéttirnar æ algengari að menntamenn séu að mergsjúga þjóðfélagið. Þetta er náttúrlega alrangt í ljósi þeirrar verðtryggingar á námslán- um sem áður er nefnd og vegna hennar er því ekki óeðlilegt að sú upphæð, sem námsmenn fá, sé vísi- tölutryggð. Námsmenn hafa líka enga möguleika á að auka tekjur sínar með yfirvinnu. Þeir verða að skila ákveðnum einingum í námi sem eru lágmark 10. Sú vinna, sem liggur að baki þessum 10 einingum, er breytileg eftir námsgreinum, ég hygg þó að ekki sé vanáætlað að vinnuvika námsmannsins sé á bil- inu 50-70 klukkustundir. Kjósi námsmaður að vinna með skólan- um þá lækkar lánið hans að sama skapi. Þeim námsmönnum, sem komast i þokkalega launaða sum- arvinnu, er svo refsað fyrir að vinna með því að lækka til þeirra lánin. Það er því alveg Ijóst að nemandi, sem kemur úr fjölskyldu sem getur ekki veitt honum neina fjárhagslega aðstoð og kemur í þokkabót utan af landi, veður ekki í peningum og hefur varla meira fé á milli handanna en rétt til að skrimta. Hugmyndir menntamála- ráðherra um að lækka lán til námsmanna um 30% á komandi hausti er því svívirðileg árás á efnaminni fjölskyldurí landinu. Gegn þeim efnaminni Það er rangt hjá ráðherra að með því að lækka lánin til námsmanna sé verið að láta jafnt yfir alla ganga i þjóðfélaginu, námsmenn verði að taka út kjaraskerðinguna eins og aðrir í þjóðfélaginu. Námsmenn, sem þurfa á þessum lánum að halda, hafa þegar tekið út þessa skerðingu í formi skerðingar sum- arlauna og fátækari foreldra. Þess- ar hugmyndir um lækkun eru því grófleg árás á fátækari fjölskyldur í landinu, sérstaklega þær sem búa úti á landsbyggðinni. Verði þessar hugmyndir framkvæmdar verða !þær enn frekari kjaraskerðing fyrir hina efnaminni en skipta engu máli fyrir þá efnameiri og minna máli fyrir þá nemendur sem eru svo heppnir að geta búið hjá foreldrum sínum í Reykjavík frítt. Ef mennta- málaráðherra framkvæmir þessar miðaldahugmyndir sínar þá er hann að hrinda í framkvæmd alger- lega nýrri stefnu í menntamálum, nefnilega að skapa forréttindastétt eða aðal sem einn hafi möguleika á háskólamenntun í krafti efna- hags síns. Þá býr ekki lengur menntuð þjóð í þessu landi heldur aðeins menntað þjóðarbrot. Með þessu er ég ekki að segja að há- skólamenntun ein sé menntun, heldur að þegar sú hugmynd verð- ur ríkjandi í þjóðfélaginu að aðeins hluti þjóðarinnar eigi rétt á mennt- un þá ber það ekki vitni um víðsýni heldur ákaflega mikla þröngsýni. Hvert sá hugmyndaheimur leiðir íslensku þjóðina er svo hryllilegra um að hugsa en að maður komi því á prent. Ég vil enda þetta spjall mitt á tilvitnun í einn mesta menntaskör- ung Islendinga, Guðmund Finn- bogason: „Hinn skynsami er eins og hljóðfæri með ótal strengjum, er endurkveða alla hljóma. Hinn skynsljói er sem bumba, er berja verður með hörðum hömrum og gefur þó frá sér aðeins fáa og dimma tóna“ (Lýðmenntun, G.F.). Ég skora á menntamálaráðherra að endurskoða hug sinn varðandi Lánasjóð íslenskra námsmanna og vona að hann vilji frekar telja sig til hljóðfæris með ótal strengjum en bumbunnar. Því með bumbu í sæti menntamálaráðherra er ekki von á góðu í hugmyndaheimi ís- lensku þjóðarinnar. Hafðu þetta sem góðlátlega áminningu, Sverrir, frá Vestfirðingi til Vestfirðings. Heimir Már Pétursson. Manngildishugsjónir stjórnmálamanna Kjallarinn Menningarleg fjölhæfni Nýlega var reist stytta af Gunn- ari Thoroddsen og einnig var viðtal í sjónvarpinu við Gylfa Þ. Gíslason, en þessir menn voru báðir leiðandi í íslenskum stjórnmálum á síðustu áratuguin. Þessir menn eru í mín- um huga mikil glæsimenni, af teg- und sem nú er að hverfa af sjónar- sviðinu, fyrir það að þeir náðu langt á fleiri en einu sviði; báðir urðu þeir doktorar og ráðherrar og að auki gátu þeir sér orð í listun- um, annar í ræðumennsku, hinn í tónsmíðum. Þeir spönnuðu sem sagt þrjú ólík svið: fræðimennsku, stjórnmál og listir. Nefna mætti fleiri slíka úr fortíðinni, svo sem þingmanninn, skáldið og bókmenntafræðinginn dr. Grím Thomsen, og ennþá sjást dæmi um háskólakennara á Al- þingi. Var dr. Ólafur Jóhannesson, prófessor og ráðherra, nýlegt dæmi. Það sem mér finnst fjölhæfni Gunnars og Gylfa bera vott um er sú húmaníska hugsjón að „láta sér ekkert mannlegtóviðkomandi". En slíkt á rætur að rekja til þess tíma er vísindin voru svo skammt á leið komin að einn maður gat enn til- einkað sér það helsta i þeim öllum. Fóm-Grikkinn Aristóteles er hvað fyrsta dæmið um þetta og 18. aldar skáldið, rithöfundurinn, náttúru- menntun, embætti og listiðkun væru í höndum fárra ætta. Þegar kemur fram á 20. öld er slíkt orðið almennara, en þó ekki meira en svo að sumir á fyrri hluta aldarinnar áttu varla fyrir mat, hvað þá a „Ekki get ég ímyndað mér hvers ^ vegna sterku leiðtogarnir virðast vera á útleið, get aðeins bent á að það sé í samræmi við þá aukningu almenns jafn- ræðis og lýðræðis sem nú er í þjóðfélaginu, og að sérfræðingar alls konar mega sín meira.“ fræðingurinn og stjórnmálamaður- inn Wolfgang von Goethe eitt hið síðasta (dó um 1830). Slík fjölhæfni þótti löngum manngöfgandi og skyldi það vera keppikefli hins upplýsta, vel þroskaða manns. Á Islandi var það löngum eðlilegt vegna fámennis og fátæktar að menntun, og allt framhaldsnám þótti munaður eða forréttindi. Á slíkum tímum hafa ótvíræðir hæfi- leikamenn eins og Gunnar og Gylfi borið enn meira af, þegar sældar- eða menningarheimili voru ekki á hverju strái, hvað þá stúdentar eða doktorar. Nú er fjölmenntahugsjónin orðin útbreidd með auknu framhalds- skólanámi, en æ erfiðar gerist vegna samkeppni og sérhæfingar að ná langt á fleiri en einu sviði. Því fer eflaust fækkandi mönnum sem verða bæði prófessorar og ráðherrar, um leið og háskóla- gengnum þingmönnum fer fjölg- andi. Því hljóta menn eins og Gunnar og Gylfi að lifa í huga okkar seinni tíma manna sem af- reksmenn hinnar almennu mann- gildishugsjónar. En enn keppast Islendingar við að „vera margt til lista lagt“ og að „leggja gjörva hönd á margt", ef dæma má af minningargreinum. Sterku leiötogarnir að hverfa? Ólafur Ragnar Grímsson velti fyrir sér í einni stjórnmálafræði- grein sinni hvort þeim færi fækk- andi stjórnmálaleiðtogunum sem væru svo aðsópsmiklir persónu- leikar að þeir væru ótvíræðir for- ingjar meðal sinna nánari starfs- manna. Sem dæmi um slíka sterka Tryggvi V. Líndal skrifstofumaður leiðtoga nefndi hann Ólaf Thors og Bjarna Benediktsson. Honum virtist að það færi í vöxt að valdir væru til flokksforystu menn sem væru öllu heldur málamiðlarar og sáttasemjarar, fremstir í hópi jafn- ingja. Ekki get ég ímyndað mér hvers vegna sterku leiðtogamir virðast vera á útleið, get aðeins bent á að það sé í samræmi við þá aukningu almenns jafnræðis og lýðræðis sem nú er í þjóðfélaginu og að sérfræð- ingar alls konar mega sín meira. Og ekki get ég bent á neina virki- lega aðsópsmikla leiðtoga í is- lensku stjórnmálalífi nú, en hins vegar eru þeir margir sem haga sér eins og þeir eigi sér slíka menn að fyrirmynd. Afburðamennirnir eru þó vænt- anlega enn á meðal okkar. Þeir munu hins vegar orðnir svo margir og fjölbreyttir að erfitt er að koma auga á þá. Tryggvi V. Líndal ■HHF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.