Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Page 32
>»
FR ÉTTASKOTIÐ
(68) - (78) ■ (58)
Ritstjóm, auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022
Hafir þú ábendingu'
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá ij
síma 68-78-58. Fyrir j
hvert fréttaskot, i
sem birtist eða er j
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i j
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar j
er gætt. Við tökum j
við fréttaskotum j
allan sólarhringinn.
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1 986.
Okurmálið á
lokastigi
~ hjáRLR
„Þetta hefur verið mjög viðamik-
ið mál. Rannsóknin hefur gengið
vonum ffamar og ég sé ekki
annað en við getum sent.málið
til ríkissaksóknara nú um miðjan
mánuðinn,“ sagði Þórir Odds-
son, vararannsóknarlögreglu-
stjóri þegar hann var spurður um
okurmálið svokallaða.
Þórir sagði að málið hefði verið
mjög tímafrekt. „Margir menn
hafa unnið við málið í langan
tíma og margir hafa verið yfir-
heyrðir vegna málsins,“ sagði
Þórir. -SOS
* Öllum HM-
leikjum
íslands
íSviss
sjónvarpað
beint
Sjónvarpað verður beint frá öll-
um landsleikjum Islands í
HM-keppninni i handknattleik,
sem verður í Sviss í febrúar og
mars. „Við höfum nú pantað
afnot af gervihnetti fyrir beinar
sendingar frá fyrstu þremur
leikjum íslands, gegn S-Kóreu,
Tékkóslóvakíu og Rúmeníu, í
riðlakeppninni,“ sagði Bjami
Felixson, íþróttafréttamaður
sjónvarpsins.
fslenska landsliðið verður að
vinna sigur í einum leik í riðla-
jptv keppninni til að komast áfram í
milliriðil. „Þegar ljóst verður að
það takist munum við panta
afnot af gervihnetti fyrir beinar
sendingar úr milliriðli. Það
stefnir allt i að það verði sjö leik-
ir, sem við munum sýna beint,“
sagði Bjami Felixson. - SOS
íij'iii'iliHi_■íiiilVi'i'i'if
LOKl
Kannski kratarnir fresti
því iíka að bjóða fram!
Próf kjöri Alþýðuf lokksins frestað:
Of stuttur tími til
að fínna færa menn
Arni Gunnarsson hef ur neitað að fara í próf kjörið
Raddir eru nú uppi innan Al-
þýðuflokksins að fresta prófkjöri
innan flokksins til borgarstiórnar-
kosninga. Ástæður fyrir því eru
m.a. þær að prófkjörið er um sömu
helgi- og prófkjör Alþýðubanda-
lagsins. Einnig þykir mönnum of
skammur tími til stefnu til að finna
hæfa menn í prófkjörsslaginn.
Framboðsfrestur fyrir .prófkjörið
rennur út 14. janúar og prófkjörið
sjálft á að fara fram fyrstu helgina
í febrúar. Sigurður E. Guðmunds-
son er eini fulltrúi flokksins í borg-
arstjórn núna. Ljóst er að flokkur-
inn þarf að berjast hart til að koma
manni inn, ekki síst vegna þess að
nú fækkar borgarfulltrúum.
Þegar hefur verið skorað á
Bjarna P. Magnússon að taka þátt
í prófkjörinu. Hann var í þriðja
sæti flokksins í síðustu kosningum.
Þá hefur einnig verið gengið hart
að Árna Gunnarssyni, ritstjóra
Alþýðublaðsins, að taka þátt í
prófkjörinu. Hann segist hins veg-
ar hafa vísað þeim beiðnum frá sér
og sé ekki tilbúinn til að taka þátt
í slagnum.
Margir aðrir hafa verið orðaðir
við prófkjörið. Þeirra á meðal eru
Bryndís Schram, Helgi Skúli
Kjartansson, Halldór Halldórsson,
Maríanna Friðjónsdóttir og Jón
Baldur Lórens. Þá er einnig búist
við því að Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
sem var í öðru sæti í síðustu kosn-
ingum, taki þátt í prófkjörinu.
APH
Deilan í f lugtuminum harðnar enn:
„Vonska og heift”
Deila flugmálastjóra við undir-
menn sína, flugumferðarstjóra,
harðnar með degi hverjum.
„Vonska og heift er hlaupin í
mannskapinn. Deilan fer stöðugt
harðnandi,“ sagði Hjálmar Diego
Arnórsson, formaður Félags ís-
lenskra flugumferðarstjóra, í
morgun. Stefnt er að félagsfundi í
kvöld þar sem ræða á aðgerðir.
„Flugmálastjóri lýsti því yfir í
gærkvöldi að hann væri reiðubú-
inn til samninga. En þegar farið
var að ræða málin vildi hann í
engu breyta því sem flugumferðar-
stjórum þykir mestu skipta, það er
óréttlæti með stöðuveitingar þegar
tveir menn voru teknir fram yfir
20-30 reyndari í vaktstjórastöður
og þrír yfirmenn settir út af sakra-
mentinu," sagði Kári Guðbjörns-
son, talsmaður flugumferðarstjóra.
Þeir segja Pétur Einarsson hafa
ráðið tvo „gæðinga sína“ í vakt-
stjórastöðurnar, þá Leif Hákonar-
son og Hallgrím Sigurðsson,
flokksbróður Péturs.
„Það er álit mál manna að Pétur
sé að launa Hallgrími stóran greiða
þegar Pétur var ráðinn flugmála-
stjóri. Þegar Steingrímur Her-
mannsson var að afsaka ráðningu
Péturs nefndi hann að þáverandi
formaður Félags íslenskra flugum-
ferðarstjóra, Hallgrímur Sigurðs-
son, hefði mælt með Pétri. Það
gerði Hallgrímur í óþökk félags-
ins,“ sagði Jón Árni Þórisson flug-
umferðarstjóri. -KMU. ;
Vinnuslys varð við Ármúla 31 í gær. 39 ára maður féll niður á steingólf ofan af 2,40 m háum vinnu-
palli. Maðurinn hlaut áverka á höfði og var vankaður þegar lögreglan kom á staðinn. Hann var flutt-
ur á slysadeild Borgarspítalans. Meiðsli mannsins eru ekki talin alvarleg. Hér á myndinni sjást lög-
reglumenn við vinnu á slysstað. DV-mynd: S
Samúel
upptækur?
— þesserkrafist
vegna mynda af
sígarettupökum
„Við munum ekki verða við
þessum tilmælum,“ sagði Ólafur
Hauksson, ritstjóri Samúels, í
viðtali við DV í morgun. Ólafi
barst í fyrradag bréf frá heil-
brigðiseftirliti Reykjavikur-
svæðis. Þar er skorað á hann að
innkaila síðasta tölublað Samú-
els fyrir lokun verslana í gær.
„Þetta er ekki auglýsing heldur
ritstjórnarlegt efni, sem segir frá
nýrri sigarettutegund á mark-
aðnum,“ sagði ritstjórinn.
í bréfinu er bent á að grein í
viðkomandi tölublaði sé brot á
lögum um tóbaksvarnir frá 1984.
Samkvæmt sömu lögum er eft-
irlit með auglýsingabanni í
höndum heilbrigðisnefnda.
Ritstjórinn mun ekki innkalla
Samúehirverslunum. - ÞG
Kolbeinsey
seldídag?
Kaupsamningur milli Fisk-
veiðasjóðs og Otgerðarfélags
Norður-Þingeyinga um togarann
Kolbeinsey, sem Húsvíkingar
áttu áður, verður lagður fyrir
stjórnarfund Fiskveiðasjóðs
klukkan 14,30 ídag.
Fulltrúar ÚNÞ hafa undan-
farna tvo daga setið fundi með
ráðamönnum Fiskveiðasjóðs og
skýrt tilboð sitt og tryggingar.
Tilboð ÚNÞ, sem Þórshafnar- og
Raufarhafnarbúar standa að, var
það hæsta sem barst i Kolbein-
sey, um 180 milljónir króna.
Á bak við tjöldin hafa miklar
hræringar verið í málinu. Hús-
víkingar þrýsta á um að fá að
ganga inn í tilboð ÚNÞ. Innan
stjómar Fiskveiðasjóðs er and-
istaða gegn því að ÚNÞ fái togar-
ann. Allt gæti því gerst á stjóm-
arfundinum í dag.
-KMU.