Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR1986. 3 Breytaþarf99ára gömlum veðlögum fyrir f iskeldisfyrirtækin: Syndandi lax settur að veði Breyting á 99 ára gömlum veðlögum er eitt af þeixn verkefn- um sem óhjákvæmilegt er að Alþingi afgreiði á næstunni til þess að fiskeldisfyrirtækin geti lagt fram nægilegar tryggingar fyrir lánum. Eins og er þykir vafasamt að veðlögin heimili veðsetningu á lifandi fiski, jafn- vel þótt hann sé tryggður. Fiskeldisneíhdin svokallaða hefur þegar lagt fram tillögur um úrbætur í þessu efni og drög að frumvarpi til breytinga á veðlög- Unum. Fiskeldisfyrirtækin munu nú öll tryggja þann fisk, sem í eldi er. Reykvísk endurtrygging hf. hefur forystu í þessum trygg- ingum hér á landi. Félagið hefur samvinnu við tvö erlend félög um baktryggingar, annað sem trygg- ir megnið af norska fiskeldinu. önnur tryggingafélög eru einnig að fara á stjá. Þessar tryggingar eru dýrar til að byrja með að minnsta kosti. lðgjaldið mun vera 6% af sölu- verði aíúrða. Þá ná bætur ekki nema til 75% af hverju tjóni. Áhöld munu vera um það, hvað telja beri afmarkað tjón. Þetta hefur þýðingu, því stundum verða skakkaföll af einni og sömu ástæðunni, þótt þau komi ekki öll fram í einu. Fiskeldis- neíndin er meðal annars að fjalla umþettamál. Tillögur fiskeldisnefndarinnar um lánastefnu fela í sér að upp- fylli fyrirtækin tiltekin skilyrði fái þau að láni 75% af fjárfesting- arkostnaði og áætluðum rekstr- arhalla fyrstu 2-3 árin, þar til fyrsta framleiðsla kemur til sölu, Séu útlendingar eignaraðilar skerðist lánastofninn um þeirra hlut. HERB Menningartiátíð Volvoforstjóra: Með styrk f rá Flug- leiðum — ogvernd Vigdísar Finnbogadóttur Stefht er að því að halda um- fangsmikla menningarhátíð í Gautaborg sumarið 1989. Hátíðin er haldin að frumkvæði P.G. Gyllenhammars, forstjóra Volvo. Styrk hlýtur hann frá norrænum jámbrautafyrirtækjum, Gauta- borg, og Flugleiðum af íslands hálfu. Vemdari hátíðarinnar verður Vigdís Finnbogadóttir. Á hátíðinni verður boðið upp á efhi frá öllum helstu listgreinum sem stundaðar em á Norðurlönd- unum. Kostnaður er talinn verða 25 til 30 milljónir sænskra króna. Sæmundur Guðvinsson, blaða- fulltrúi Flugleiða, sagði að miðað við núverandi verðlag væri reiknað með að kostnaður Flug- leiða vegna hátíðarinnar næmi ríflega 800 þúsund krónum. -GK Stjórnarmenn NT í persónulegum ábyrgðum vegna NT-skulda: Adeins 10 milljóna veð í fíokkshúsinu —verður byggð ný hæð ofan á Rauðarárstíg 18? Hús framsóknarmanna við Rauðarárstíg. Verður hæð byggð ofan á húsið? Framsóknarmenn hafa sótt um leyfi til að bæta einni hæð ofan á húseign sína við Rauðarárstíg 18 í Reykjavík. Barst beiðni um það til Byggingamefhdar Reykjavíkur í síðustu viku. Að sögn Hilmars Guðlaugssonar, formanns byggingamefndar, er verið að kynna málið þessa daga, en endanleg niðurstaða um hvort leyfið fæst ætti að liggja fyrir um miðjan febrúar. Orðrómur er uppi um að fram- sóknarmenn ætli sér að selja húsið til að eiga fyrir skuldum NT, jafn- vel byggja fyrst hæð ofan á og selja svo til að fá meira fyrir það. Eins og kunnugt er tók Framsóknar- flokkurinn yfir skuldir NT þegar blaðið var lagt niður um áramótin. DV ræddi við Kristin Finnboga- son, Alfreð Þorsteinsson og Hauk Ingibergsson um þetta mál. Enginn þeirra kannaðist við að til stæði að selja húsið, „enda eiga fram- sóknarmenn næga sjóði til að borga þessar skuldir," eins og Haukur orðaði það. Húseignin Rauðarárstígur 18 er í eigu Framsóknarflokksins og Framsóknarfélaganna í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum DV er fasteignamat hússins nú nálægt 35 milljónum króna og bmnabótamat rúmar 60 milljónir. Síðarnefnda talan er talið raunverulegt verð- mæti hússins ef kæmi til sölu. Þá má geta þess að skuldir NT eru um 90 milljónir króna. Á Rauð- arárstíg 18 er veð upp á 10 milljónir sem NT fékk fyrir um ári. -En er til veð fyrir afganginum af skuldunum? Haukur Ingibergsson sagði, að verið væri að ganga frá ársreikn- ingi NT. Þá kæmi í ljós, hve miklir peningar væru til á þeim bæ. Þá hefðu stjórnarmenn NT, eins og hann sjálfur, Hákon Sigurgríms- son, Einar Birnir og fleiri gengið í persónulegar ábyrgðir fyrir skuld- um. „Hver einasta króna sem við skuldum er í ábyrgð á einn eða annan hátt,“ sagði Haukur Ingi- bergsson. . KÞ Artemis ÚTSÖLUSTAÐUR: m Glæsibæ Álfheimum 74 s: 33355 10 gerðir af ör- bylgjuofnum. Verð við allra hæfi. Frá kr. 13.990,- stgr. Úrvalið af ofnum er hvergi meira og verðið gerist ekki betra Kjör sem þú sleppir ekki: 5.000 5- kr.útborgun á ódýrustu ofnunum og eftirstöövar á 6 mán. Láttu ekki þessi kjör fara fram hjá þér. EtNAR FARESTVEIT & CO. HF BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995 Þjónusta sem þér býðst ekki annars staðar. * íslenskar leiðbeiningar fylgja ásamt uppskrift. * Stór matreiðslubók fylgir. * Matreiðslukvöldnámskeiðið fyrir bæði hjónin fylgir án endurgjalds. * TOSHIBA uppskriftaklúbburinn stendur þér opinn með spennandi uppskriftum. * Símaþjónusta hússtjómarkennara er þér til reiðu. SETTU TRAUST ÞITT Á T0SHIBA JANÚAEEIÖR TOSHIBA Örbylgjuofninn sem gefur þér arð. Þú sparar 60-70% af rafmagnsnotkun við matreiðsluna, notar rniklu minna hráefni, maturinn rýmar minna. - Þú sparar geysilegan tíma við matreiðslima og TOSHIBA örbylgjuofninn tryggir þér jafnan og góðan árangur. Það er þetta sem setur TOSHEBA skör framar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.