Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 14
14 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986. Menning___________Menning___________Menning___________Menning Hentug handbók fyrir hvern mann Gunnar G. Schram: UmhverfisréHur. Um verndun náttúru íslands. Úlfljótur 1985. Þess hefur oft verið getið, að ís- lenzkir lögfræðingar hafi verið iðnir við ritstörf, og það þótt ein- göngu sé miðað við hina akadem- isku lögfræðinga, ef svo má að orði komast. Það var árið 1736, sem sá guðhræddi konungur Kristján 6. gekkst fyrir stofnun sérstakrar lagadeildar við Kaupmannahafn- arháskóla. I greinargerð, sem kon- ungur birti í sambandi við þetta mál, lét hann í ljós eitthvað á þá leið, að með þessari ráðstöfun mætti líklega bæta úr þeirri hör- mungaraðbúð, sem réttlætið í landinu mætti búa við. Svo væri nú ástatt, að fáfróðir, ágjarnir og iligjarnir menn egndu fávísa ein- feldninga til málaferla til að hafa af þeim fé. I þessum málum héti svo, að dæmt væri, en þar væru að verki fáfróðir, illgjarnir, mútuþæg- ir vandræðamenn, sem sjaldnast kæmu nokkru i verk, en stuðluðu í ábataskyni að heimskulegu og kostnaðarsömu málaþrasi. Allt yrði þetta til að íþyngja konungs- ins hæstarétti sem verið væri að kaffæra með þessu háttalagi. Hér þyrfti úr að bæta, enda væri þetta skelfilega ástand bæði guði og konungi til stórrar hryggðar. Of lítið af lögfræðiritum Og það var fyrir tæplega 250 árum (í febrúar 1736), sem reynt var að hefja siðabótina. Meðal þeirra, sem innrituðust á fyrsta ári lagadeildar var einn íslendingur, Þorsteinn Magnússon, sem útskrif- aðist árið 1738 og var lengi sýslu- maðurRangvellinga. Þorsteinn var því fyrstur Islendinga til að ljúka þar prófi sem candidatus juris, en talið er, að 183 íslendingar hafi lokið slíku prófi. Ekki hef ég neina vitneskju, sem örugg geti talizt, um það, hversu margir Islendingar hafi lokið laga- prófi eftir að lagakennsla hófst hér 1908, en þeir skipta mörgum hundr- uðum. Eins og vænta má hafa allflestir þessara lögfræðinga fengizt við lögfræðistörf, embættisstörf, lög- mannsstörf og annað slíkt, aðrir hafa horfið til starfa í atvinnulíf- inu. Það hefur hins vegar iðulega verið reiknað lögfræðingum til ámælis, hve þeir hafa fram á síðari ár verið tómlátir við að koma á prent ritum í sínum fræðigreinum. Afreksmenn úr hópi þeirra hafa sumir rutt út úr sér miklum og merkum sagnfræðiritum, en minna hefur hjá flestum kveðið að lög- fræðiritunum, þótt vissulega megi nefna merk dæmi. Farið að morgna Þegar ég var í lagadeild fyrir löngu, voru helztu kennsluritin heldur ósjáleg, fjölrituð hefti, oft- ast þvæld og útkrotuð, með misjafnlega haldgóðum fróðleik. Flestar kennslubækumar voru á dönsku, ágæt rit, sem höfðu auk þess þann kost að með því að lesa þær, var maður nokkum veginn bænabókarfær til að geta haldið sambandi við hið norræna réttar- samfélag, sem okkur er svo mikils virði. Það var þó heldur til leið- inda, hve langan tima það tók að leiðrétta bækumar, þannig að hæfði íslenzkum rétti og ekki var frágangur þeirra leiðréttinga alltaf t.il fyrirmyndar. En nú er farið að morgna, þótt sitthvað sé notað af erlendum bókum, sem er að sumu leyti æski- legt. Nú eru t.d. með skömmu milli- bili komin út tvö nytsamleg fræði- rit, annað um hlutafélag eftir Stef- án Má Stefánsson og hitt um umhverfisrétt eftir Gunnar Schram. Hér verður minnzt lítillega á það síðamefnda. Þótt ég gjarna vildi gera hinu skil, er það mér ofraun sakir fákunnáttu, en lofsvert er framtak höfundar. Nýtt hugtak Hugtakið umhverfisréttur er nýtt hugtak í fslenzku máli. I hand- hægri lögfræðibók eftir Bjöm Þ. Guðmundsson fyrir almenning, sem út kom 1973, er orðið t.d. ekki að finna. Hér á landi hefur því engan veginn verið slegið föstu, hvað sé umhverfisréttur. „Þar er um að ræða réttarreglur, sem miða að því að vernda og bæta umhverfi mannsins," segir Gunnar Schram á bls. 15. Og-síðar segir hann: „Hér er um að ræða ýmis réttarsvið, sem ekki eru þó öll skýrt afmörkuð, svo sem náttúruvemd, mengunarvarn- ir, auðlindagæzlu, friðun lands og bygginga. Heildarlöggjöf um um- hverfismál skortir enn hér á landi og því almenna skilgreiningu umhverfisréttar." Við Gunnar þekkjum báðir nokk- uð vel, hversu erfiðlega gengið hefur að fá hér setta umhverfislög- gjöf. Flestir virðast í sjálfu sér hlynntir slíkri löggjöf, unz til stykkisins kemur. Það er nefnilega svo, að ef farið yrði í það, sem víða er gert í nálægum löndum, þar sem meira að segja hafa verið stofnuð sérstök umhverfisráðuneyti, hefur það að sjálfsögðu þýtt meðal ann- ars, að nauðsynlegt hefur reynzt að flytja ýmisleg verkefni milli ráðuneyta. Og þar hafa víst ekki allir hlutir legið á lausu. Sama sagan er víst hér. Eins og nú er komið er það hreint pólitískt mál, hvort hér verður komið á umhverf- islöggjöf um heildarstjóm um- hverfismála með afmörkuðu verk- sviði. Níu ráðuneyti Þessa getur Gunnar í riti sínu, og kemur þar meðal annars fram, að það, sem telja mætti umhverfis- mál með sæmilega gildum rökum, hevrir nú undir 9 ráðuneyti. Otal lög og reglugerðir hafa verið sett um þessi mál, og ekki er laust við, að stundum geti komið til ágreinings um valdmörk, hvort mál heyri undir þetta stjórnvald eða hitt - eða bæði vísi frá sér! Þá eru í bókinni rakin réttarúrræði á sviði þessara mála. Gunnar fylgir þetrri eðlilegu og hefðbundnu reglu nálægra landa að gera sérstaklega grein fyrir meginflokkum umhverfismálanna í nokkuð ýtarlegu máli. Þessir flokkar eru mengunarmál, skipu- lags- og byggingarmál, náttúru- verndarmál og vemdunarmál mannvirkja. Þama em greind gildandi laga- ákvæði fyrir hvern þátt um sig og mjög góðar skrár, bæði um einstök efnisatriði og lagaákvæði, fylgja. Ég nefni þetta greinarkom mitt eftir frægri lögfræðibók frá 1812, Hentug handbók fyrir hvem mann, er kannski nokkuð mikið sagt, en það er ekki ofmælt, að í bók þessari er að finna ákaflega margt, sem snertir daglegt líf manna, og það er hverjum manni hollt að kunna skil á umhverfi sínu. Ákvæði hunzuð Mér þykir það heldur galli við bókina, að ekki skuli rakinn að- dragandi að þeirri löggjöf, sem Gunnar ræðir í bók sinni. Þá þykir mér oft óþarflega mikið tekið upp af hreinum lagagreinum, sem hafa í raun heldur lítið gildi. Ég nefni einnig sem dæmi nokkuð langar hugleiðingar um skaðabótakröfur vegna friðunar; þjóðminjar, bygg- ingar og náttúmfyrirbrigði hafa verið friðuð í hundraðatali án þess að mér sé kunnugt um, að nokkrar skaðabótagreiðslur hafi farið fram. Málin hafi verið leyst með sam- komulagi sem öllum er fyrir beztu. Frekast þykir mér þó á skorta, Gunnar G. Schram. Bókmenntir Páll Líndal að gerð sé grein fyrir því hvernig tekizt hefur til um þá umhverfis- vernd, sem ráðizt hefur verið í. Og þá má einnig minna á, að í 2. gr. laga nr 64/1943 segir m.a., að birta skuli í B-deild Stjórnartíðinda „ákvarðanir og úrlausnir ráðu- neyta, sem almenna þýðingu hafa“. Þetta ákvæði hefur nú að miklu leyti verið hunzað áratugum sam- an. Áður fyrr var töluvert um birt- ingu slíks, og á almenningur heimt- ingu á að fá að kynna sér, hvernig að slíkum málum er staðið, t.d. í viðkvæmum byggingarmálum. Þetta fyndist mér að Gunnar ætti að kanna, þegar þetta rit hans verður næst gefið út. Sjálfur mundi ég fagna því, að meira yrði sagt frá erlendum kenn- ingum í þessum fræðum og stór- kostlegum málaferlum, sem hafa risið erlendis út af umhverfismál- um, eins og kunnugt er. En það er kannski varla „íslenzkur" um- hverfisréttur. En hvað sem þessum ábendingum líður, er full ástæða til að þakka höfundi fyrir þessa þörfu og hent- ugu bók, sem er brautryðjandarit. Frágangur bókarinnar er hinn prýðilegasti og leit að prentvillum bar ekki árangur. p.L. Svava Bernharðsdóttir í Norræna húsinu Tónleikar Svövu Bernharósdóttur i Norr- æna húsinu 10. janúar. Meóleikari: David Knowles. Efnisskrá: Johann Sebastian Bach: Gömbusónata nr. 1 í G-dúr; Niccolo Paganini: Sónata per la Grand Viola; Dimitri Schostakowitsch: Sónata, opus 147. Eitt af því sem eiga má von á í kringum hátíðar eru tónleikar þeirra ungu tónlistarmanna sem eru í framhaldsnámi erlendis. Eina slíka hélt Svava Bernharðsdóttir í Norræna húsinu og hafði píanó- leikarann David Knowles sér til fulltingis. Leikinn hófu þau með sónötu sém meistari Bach samdi fyrir gömbu og sembal. Ef brúka á nútímans hljóðfæri á annað borð þá er það ekki síðri hugmynd að ætla hlutverkið víólu en sellói, þótt vitaskuld fari það eftir flytj- andanum hversu til tekst. I Bach- sónötunni lék David Knowles á sembal. Feiknamjúkur og blíður víólu- tónn Svövu naut sín mjög vel í þessu verki, sem og öðrum verkefn- • um þessara tónleika. Skýr tón- mótun hennar kemur í veg fyrir að, mýktin verki loðin. Við stílinn hlaut maður að teljast sáttur að öðru leyti en því að fremur píanist- ískur ásláttur Davids Knowles skekkti heldur blæ heildarmyndar- innar. Hann lætur sér fæst hljóm- borðshljóðfæri óviðkomandi og | Svava Bernharðsdóttir - „heillandi mýkt og blæfegurð“. Tónlist EYJÓLFUR MELSTED yrði nýtur semballeikari ef hann fengi ráðrúm til að rækta betur með sér sembalskan hugsunarhátt og tilfinningu. leikur á orgel líka auk píanósins. Hins vegar held ég að David Know- les hafi taugar til sembalsins og Hefði mátt skiptast öðruvísi Tíðast líta menn aðeins til Pag- aninis sem fiðlusnillings og gera sér ekki einu sinni grein fyrir í hverju snilld hans lá. Hún lá ekki síst í þeim hyggindum hans að koma auga á möguleika nýja bog- ans, beina bogans, eins og við þekkjum hann í dag. Raunar telja margir hann uppfinningamann að „spiccato" og því beri alls ekki að grípa til þess leikmáta í verkum sem samin voru fyrir hans tíð. En Paganini kom víðar við. Hann var frábær gítarleikari og víólan fang- aði hug hans æ meir eftir því sem á leið. Reyndar samdi hann fleiri verk fyrir gítar en önnur hljóðfæri. Almennt telja menn nú að snilli- gáfan hefði betur skipst jafnar á milli tónsköpunar og leikhæfileika en hafa ber það í huga að Paganini var maður vinsældanna og þær hljóta menn sjaldnast fyrir að vera tiltakanlega frumlegir. Þau Svava og David áttu góða samvinnu um sléttan og misfellulausan flutning ó sónötu Paganinis, sem líkast til er eitt þeirra verka sem höfða meir til flytjenda en áheyrenda. Svanasöngur Víólusónata Schostakowitsch var hans síðasta verk. I útlöndum, þar sem svanirnir eru að jafnaði þöglir, er það trú manna að þeir syngi þó einu sinni, á banastund- inni, og því kalla menn oft síðasta afrek manns hans svanasöng. Þeg- ar Schostakowitsch samdi sitt síð- asta verk var hann bitur maður og kaldhæðinn og hafði enda ærna óstæðu til. Hann var einn þeirra manna sem fengið hafði að kynnast flestum neikvæðu þáttunum í stjómarfari síns heimalands. Lesi menn æviminningar hans skilst þeim svo margt betur í músík þessa mikla músíkjöfurs, en vissara er, rúmsins vegna, að hætta sér ekki út í hugleiðingar um þó mætu bók. Svava og David komu dapurleikan- um, treganum og sársaukanum, sem í svanasöng snillingsins liggur, vel til skila, án allra ýkja, sem er réttur kostur því nóg er af þessum þáttum í verkinu svo að ekki sé farið að skerpa þá um of. Kynnu þeir þá að snúast í andhverfu sína. Svava Bemharðsdóttir sýndi með þessum tónleikum að hún er í þann mund að skipa sér í raðir okkar fremstu víóluleikara. Tónn hennar er gæddur heillandi mýkt og blæ- fegurð sem hún undirstrikar í skarpri og skýrri tónmótun. Hins vegar reyndust þessir góðu eigin- leikar fótakefli eins og jafnan verð- ur þegar Norræna húsið fyllist óheyrendum. Þar nær enginn að láta eina blíða víólu og stillilega áslegið píanó hljóma við húsfylli nema með grimmdinni einni. David Knowles opinberaði enn sína góðu meðleikarahæfileika. Hann verkar þó stundum næstum of undirgefinn meðflytjandanum sem hér kom þó ekki að neinni sök. EM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.