Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Síða 32
32 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986. Stefán Þórhallur Stefánsson lést 14. janúar sl. Hann fæddist í Reykjavík 26. desember 1915, sonur hjónanna Vigdísar Sæmundsdóttur og Stefáns Guðnasonar. Stefán var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðlaug Gísla- dóttir og eignuðust þau þrjú böm. Seinni kona Stefáns er Unnur Torfa- dóttir Hjaltalín. Þau eignuðust tvær dætur. Síðustu tuttugu og fimm ár ævi sinnar starfaði Stefán sem verk- stjóri í blindravinnustofunni í Hamrahlíð. Hann lék í nokkur ár með Sinfóníuhljómsveit íslands en siðar með lúðrasveit Hafnaríjarðar og víðar. Útför hans verður gerð írá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl. 13.30. Andlát Helgi Guðmundsson lést 13. janúar sl. Hann fæddist á Núpi í Fljótshlíð 12. nóvember 1897. Foreldrar hans voru Þuríður Sigurðardóttir og Guðmundur Magnússon. Helgi var tvígiftur. Fyrri kona hans var Þór- anna Guðnadóttir. Þau áttu saman tvær dætur. Þóranna lést árið 1931. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigur- björg Lúðvíksdóttir. Helgi stundaði búskap framan af ævi en fluttist til Reykjavíkur árið 1946 og vann þar fyrst almenna byggingarvinnu en síðar starfaði hann hjá Reykjavíkur- borg og hafði þá umsjón með görðun- um í Laugardal. Gunnar Aðalsteinsson, fyrrverandi bifreiðastjóri, Bústaðavegi 109, Reykjavík, lést föstudaginn 17. jan- úar. Jarðarförin verður auglýst síð- ar. Gyða Halldórsdóttir, Melteigi 10, Akranesi, andaðist í sjúkrahúsi Akraness 28. desember. Útförin hefur farið fram. Ingibjörg Hannesdóttir, Bústaðavegi 75, sem lést 15. janúar sl., verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 23. janúar kl. 13.30. Útför Ólafs A. Pálssonar, fyrrverandi borgarfógeta, Framnesvegi 26b, sem andaðist 13. janúar sl., verður gerð frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 23. janúarkl. 15. Minningarathöfn um Jón Helgason, prófessor í Kaupmannahöfn, verður í Dómkirkjunni fimmtudaginn 23. janúar kl. 13.30. Útförin verður gerð í Danmörku. Jón Páll Friðmundssonmálarameist- ari, Suðurgötu 5, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 25. janúar kl. 14. Axel Ólafsson verkstjóri, Hlíðarvegi 1, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 23. janúarkl. 13.30. Ólafur A. Kristjánsson, Álfaskeiði 70, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fostudag- inn 24. janúar og hefst athöfnin kl. ; 15. Ferðalög Vináttufélag íslands og Kúbu Páskaferð til Kúbu Um páskana verður farið í fræðslu- ferð til Kúbu á vegum tveggja dan- skra félaga: Dansk Cubansk foren- ing og Mellemfolkeligt Samvirke. Þessir aðilar hafa áður staðið að slíkum ferðum, sem hafa heppnast mjög vel, og m.a. hafa nokkrir Islend- ingar tekið þátt í þeim. Ferðin í ár er einnig opin fslendingum. Lagt verður af stað frá Kaupmannahöfn 22. mars nk. og dvalist á Kúbu í tvær vikur. Megináhersla verður lögð á skóla og uppeldismál, en fleiri þætt- ir þjóðlífsins verða skoðaðir og ferð-' ast vítt og breitt um landið í því skyni. Danskur fararstjóri og túlkur verður með. Áætlað verð er 11.000 danskar krónur (frá Khöfn) fyrir ferðir, uppihald og dagskrá. Nánari upplýsingar fást hjá VIK í síma 20798. Væntanlegum umsækjendum er bent á að hafa hraðan á þvi fyrir- varinn er stuttur. Skemmtanir Skemmtun fyrir aldraða borg- ara Árleg skemmtun Kiwanisklúbbsins Eldborgar í Hafnarfirði fyrir aldraða Hafnfirðinga verður haldin sunnu- daginn þann 26. janúar nk. í félags- heimili íþróttahússins við Strand- götu. Skemmtunin hefst kl. 15 og verður hún með líku sniði og verið hefur undanfarin ár. Kaffi og með- læti verður framreitt af eiginkonum kiwanismanna. Slegið verður á létta strengi og dans stiginn. Það er von þeirra Eldborgarfélaga og eigin- kvenna þeirra að fá tækifæri til að sjá sem flesta við þetta tækifæri. Þeir sem þess óska að verða sóttir geta haft samband við gestgjafana í síma 651360. Árshátið Eskfirðinga og Reyð- firðingafélagsins verður haldin nk. laugardag, 25. janúar, í Fóstbræðraheimilinu v/Langholtsveg. Samkoman hefst með borðhaldi kl. 20. Húsið verður opið frá kl. 19.30. Aðgöngumiðasala í Fóstbræðraheimilinu fimmtudag og föstudag frá kl. 17-19. Guðný Guðmundsdóttir einleik- ari með Sinfóniuhljómsveit Is- lands Fimmtudaginn 23. janúar nk. verða síðustu fimmtudagstónleikar Sin- fóníuhljómsveitar Islands á fyrra misseri haldnir í Háskólabíói kl. 20.30. Stjórnandi verður Jean-Pierre Jacquillat og einleikari Guðný Guð- mundsdóttir konsertmeistari. Guðný er einleikari í fyrstu þremur verkun- um á efnisskránni, en þau voru valin í samráði við Jean-Pierre Jacquillat og eiga það sameiginlegt að vera rómantísk verk. Sinfóníuhljómsveit Islands vill vekja athygli á að end- urnýjun áskriftarskírteina stendur nú yfir í Háskólabíói alla virka daga kl. 14-18 til 31. janúar. Miðasala á tónleikana fimmtudaginn 23. janúar er í bókabúðum Sigfúsar Eymunds- sonar og Lárusar Blöndal og í ístóni. Tapað-Fundið Mina týnd Stálpuð læða, sem gengur undir nafninu Mína, er týnd. Hennar er saknað síðan um áramót. Hún er svört með gulbrúnum og hvítum blettum. Þeir sem hafa orðið hennar varir eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 46735. Eins og skepnan deyr íslenska hljómsveitin frumflytur kvikmyndatónlist Nú í lok mánaðarins mun íslenska hljómsveitin halda sína fimmtu áskriftartónleika á þessum vetri. Á tónleikum þessum, sem kenndir eru við hina germönsku rómantík, verða flutt þrjú verk, Siegfried Idyll eftir Wagner, Alt Rapsódía eftir Brahms og nýtt hljómsveitarverk, Eins og skepnan deyr, eftir Hróðmar Sigur- björnsson, sem samið er fyrir sam- nefnda kvikmynd. Flytjendur ásamt íslensku hljómsveitinni eru Karla- kórinn Fóstbræður og Jóhanna V. Þórhallsdóttir sem þreytir nú frum- raun sína með hljómsveit. Fyrstu tónleikarnir verða í Safnaðarheimil- inu á Akranesi laugardaginn 25. janúar kl. 15, en því næst í Selfoss- kirkju á þriðjudaginn 28. jan. kl. 20.30, miðvikudaginn 29. jan. í Fé- lagsbíó í Keflavík kl. 20.30 og í Langholtskirkju, Reykjavík, á fimmtudaginn hinn 30. jan. ki. 20.30. Stjórnandi er Ragnar Björnsson. Regnboginn frumsýnir Stiga- menn Stigamenn - Restless Natives er ensk gamanmynd, nokkuð óvenjuleg að efni. Hún fjallar um tvo unga Skota sem búa í Edinborg. Þeim gengur heldur illa að afla sér fjár og líta öfundaraugum hina fjölmörgu vel- búnu, og að því er virðist, auðugu ferðamenn sem flæða inn í borgina. Þeim félögum kemur saman um að eina ráðið sé að fara út í afbrot og velja þá gömlu þjóðfrægu leið að gerast stigamenn... Þeir fara upp í hálöndin, stoppa þar langferðabíla fulla af ferðafólki og ræna það. Þeir verða brátt landsfrægir og svo fer að enginn ferðamaður telur ferð sína vel heppnaða nema vera rændur af „sUgamönnum". En lögreglan er ekki eins hrifin og tekur að þrengja að félögunum. En gæfa þeirra er þó ekki alveg öll enn, og þeir komast brátt að raun um það hvort afbrot geti nokkru sinni borgað sig... Aðal- hlutverkin leika Vincent Friell, Joe Mullaney og Terry Lally. Tónlist er flutt af Big Country og leikstjóri er Michael Hoffinan. 70 ára verður á morgun, fimmtudag- inn 23. janúar, Fanney Sigtryggs- dóttir, sem lengi var kennari við Húsmæðraskólann á Laugum í Suð- ur-Þingeyjarsýslu, nú til heimilis á Húsavík. Eiginmaður hennar er Páll H. Jónsson rithöfundur frá Laugum. Taka þau hjónin á móti gestum annað kvöld, afmælisdaginn, í fé- lagsheimilinu Heiðarbæ í Reykja- hverfi sem er fæðingarsveit afmælis- bamsins. 60 ára er í dag, 22. janúar, Kristinn Daníelsson deildarstjóri í Þjóðleik- húsinu, Sogavegi 90 hér í Reykjavík. Hann og kona hans, Hólmfríður Ásmundsdóttir, ætla að taka á móti gestum í Oddfellow-húsinu, Vonar- strætismegin, milli kl. 17 og 19 í dag. Húsavík fær Kolbeinsey Stjórn Fiskveiðasjóðs samþykkti í gær að selja íshafi, hlutafélagi Hús- víkinga, togarann Kolbeinsey fyrir 178,8 milljónir króna. Er það um 19 milljónum króna hærra en Húsvík- ingar buðu. Kolbeinsey, sem annað hlutafélag Húsvíkinga, Höfði, átti áður, skuld- aði Fiskveiðasjóði 100 milljónum króna meira. Sú spuming er brenn- andi hvort Fiskveiðasjóður gangi að hinum togara Höfða hf., Júlíusi Havsteen, til að fá upp í 100 milljón- irnar. -KMU Veður hamlar innanlandsflugi Ekkert var flogið innanlands í morgun vegna veðurs. Víðs vegar um landið er mikill snjór og bylur . Á Hornafirði var allt á kafi í snjó í morgun og sömuleiðis á Akureyri.Á ísafirði er blindbylur og einnig á Egilsstöðum. Samkvæmt upplýsing- um frá Flugleiðum eru horfur á flugi ekki góðar í dag þó reynt verði að fljúga ef nokkur möguleiki gefst. Amarflug flýgur til Sauðárkróks þar sem ófært er til Siglufjarðar. Einnig á að reyna flug til Bíldudals. -KB Rafmagnslaust á bæjum við Hornaf jörð: „Við sitjum hér við kertaljós” — sagði Ingimar Bjarnason, bóndi á Jaðri „Ástandið er ekki sem best. Við sitjum hér við kertaljós, hlustandi á veðurkviðumar utan dyra,“ sagði Ingimar Bjarnason, bóndi á Jaðri við Hornafjörð í gærkvöldi. Ingimar sagði að rafinagnið hefði farið af nóttina áður og þar með væri einnig hitalaust. „Við vitum ekkert hvað er að gerast í umheiminum. Bíðum eftir því að rafmagnið komi á þannig að hægt sé að hlusta á útvarp og fá fréttir,“ sagði Ingimar. „Veðrið er mjög leiðinlegt og það er orðið þungfært vegna snjókomu," sagði Ingimar. Pétur Karlsson á Hofsnesi sagði að það hefðu verið þetta 8-9 vindstig. „Snjó hefur ekki náð að festa vegna vindsins. Raf- magnið fór af kl. 9.30 i morgun þann- ig að við þurftum að kveikja á kert- um,“ sagði Pétur. Pétur og Ingimar sögðu að menn héldu sig innan dyra. Fæm aðeins út til að gefa skepnum. -SOS Bókasalan í desember 1985: Sextán ára í sambúð söluhæst Samkvæmt könnunum sem fyrir- tækið Kaupþing hf. framkvæmdi vom eftirfarandi bækur söluhæstar á tímabilinu 4. til 31. desember. 1. Sextán ára í sambúð eftir Eðvarð Ingólfsson. 2. Njósnir á hafinu eftir Alistair MacLean. 3. Lífssaga baráttukonu eftir Ingu Huld Hákonardóttur. 4. Guðmundur Kjærnested eftir Svein Sæmundsson. 5. Löglegt en siðlaust eftir Jón Orm Halldórsson. 6. Bara stælar eftir Andrés Indriða- son. 7. Stúlkan á bláa hjólinu eftir Régine Deforges. 8. Olíubylgjan blakka eftir Hamm- ond Innes. 9. Ekki kjafta frá eftir Helgu Ágústsdóttur. 10. Stríð fyrir ströndum eftir Þór Whitehead Af bamabókum var Jólasveinabók Rolf Lidbergs söluhæst og í öðm sæti bók Auðar Haralds, Elías á fullri ferð. Lífssaga’baráttukonu seldist mest ævisagna og viðtalsbóka . Þórarinn Eldjám átti metið í flokki íslenskra höfunda með bók sinni Margsaga. Fast í kjölfarið fylgdi síðan Skiln- ingstré Sigurðar A. Magnússonar. Af öðrum bókum seldist bók Þór Whiteheads, Stríð fyrir ströndum, best og næst í Austurvegi eftir Halld- ór Laxness. Úrtakið í könnununum var 20 verslanir af 106 úr skrá útgefenda yfir útsöluaðila sína og við val þess var tekið tillit til búsetudreifingar í landinu. VT} Flugumferðarstjórar á sáttaf und með Pétri Félagsfundur flugumferðarstjóra hafði samþykkt harðorða van- traustsyfirlýsingu á Pétur Einarsson flugmálastjóra. Stefndi í að flugum- ferðarstjórar myndu með aðgerðum valda vemlegri röskun á flugi. Kjami deilunnar er stöðuhækkun tveggja ungra flugumferðarstjóra upp í vaktstjórastöður og tilfærsla yfirflugumferðarstjóra og tveggja varðstjóra yfir í skrifstofustörf. -KMU Fulltrúar flugumferðarstjóra hitta flugmálastjóra og nánustu sam- starfsmenn hans hjá Flugmálastjóm að máli í dag, miðvikudag. Sátta- fundinum stýrir Birgir Guðjónsson, deildarstjóri í samgönguráðuneyt- inu. Báðir deiluaðilar hafa lýst yfir bjartsýni um árangur af sáttaviðræð- irnum sem hófust eftir fund sam- gönguráðherra með flugumferðar- stjórum í lok síðustu viku. Deilan var þá föst í rembihnút.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.