Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 35
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986.
35
GUÐMUNDUR
BJÖRNSSON
HÚSASMÍÐAMEIST ARI
honum var sleppt. Þá voru liðnar
þrjátíu klukkustundir frá því hann
tók inn töflur við höfuðveiki, í
millitíðinni fóru fram yfirheyrslur
og piltur það illa á sig kominn
vegna höfuðveiki og skaða sem
hann hafði veitt sér að læknir var
sóttur til að líta á piltinn og úr-
skurðaði hann að röntgenmynda
yrði höfuð piltsins. Nú er spuming-
in hvort það var nauðsynlegt vegna
rannsóknar málsins að hafa piltinn
þjáðan af höfuðverk ofan á þann
skaða sem hann hafði veitt sér
sjálfur, töflur piltsins voru í vörslu
rannsóknarmanna í sex klukku-
stundir.
Nú skal skýrt mál lögreglu og
fjölmiðla vegna þessa máls.
Daginn eftir atburðinn komu á
útsíðum dagblaðanna ramma-
greinar þar sem greint er frá þess-
um „hroðalega“ atburði og látið
fylgja að pilturinn sé viðriðinn
fíkniefnamál og með langan af-
brotaferil að baki. í viðtali við
fréttastjóra á Morgunblaðinu tjáði
hann mér að þessar röngu upplýs-
ingar kæmu beint frá lögreglunni.
í viðtali við blaðamann á Dag-
blaðinu Vísi kemur fram að í við-
tali hans við lögreglumanninn full-
yrði hann að pilturinn sé viðriðinn
fíkniefnamál. Þessar vísvitandi
röngu upplýsingar, sem hér em
veittar í nafni lögreglustjóraemb-
ættisins, eru svo siðlausar að ekki
verður með nokkru móti þolað
annað en að rannsókn fari fram og
þeim sem stóðu fyrir þessari árás á
mannorð og æru þessa pilts verði
refsað. Því verður ekki ennþá trúað
að þeir einir fái uppreisn æru sem
meira mega sín í okkar þjóðfélagi.
Þetta mál sýnir að sannleikurinn
á stundum erfitt uppdráttar þegar
lögregla og fjölmiðlar eiga í hlut.
Hver fremur hrottalegri árás,
pilturinn, sem ver hendur sínar
íyrir lögreglumanni og er svo
„óheppinn" að leggja hann undir
og setjast ofan á hann klofvega, eða
lögreglustjóraembættið, sem sendir
út til fjölmiðla lognar upplýsingar
sem rífa niður mannorð og æru
viðkomandi, svari hver fyrir sig.
Guðmundur Björnsson
a ,,Muna ekki menn eftir því litla tilefni
^ er maður nokkur vildi ná í yfirhöfn
sína sem varð að miklu blaðamáli og
málaferlum við lögreglumenn.“
GEIR R.
ANDERSEN
AUGLÝSINGASTJÓRI
slætti efnahagslífsins en eru með
bundnar hendur sakir ofurvalds
alþingismanna, nefnda og ráða sem
þeir skipa í krafti ímyndaðs sam-
þykkis kjósenda.
Það er óþarfa viðkvæmni hjá
Morgunblaðinu að líkja tungu
okkar við tæki á borð við gjald-
miðilinn. Það er flestum þjóðum
kleift að komast inn á heimsmark-
aðinn þótt þær tali ekki allar sama
málið. Hins vegar vegnar þar engri
þjóð vel með vanþróaðan gjald-
miðil.
Og það er nú einu sinni svo að
saga okkar byggist aðallega á efna-
hágslegri afkomu og svo hefur
ávallt iverið. Mest varð niðurlæg-
ingin við skert verslunarfrelsi. -
Við getum hvorki selt eða etið
söguna.
í sjálfheldu sérhagsmuna
Allar íslenskar, opinberar stofn-
anir, sem fást við útreikning og
samanburð verðmæta hvers konar,
skila niðurstöðum í dollurum en
ekki í íslenskum krónum. Hvað
segir þetta okkur um stöðu gjald-
miðilsins, krónunnar?
Sterkur dollari hefur verið og er
okkar bjargvættur. Til eru þeir sem
halda að ef dollarinn falli nógu
mikið geti það orðið okkur íslend-
ingum að liði! í þennan hóp má
flokka þá sem eru í sjálfheldu sér-
hagsmuna.
Þessir menn sjá fyrst og fremst
skuldabaggann sem bundinn er við
afborganir í dollurum. Þeir sjá
heldur ekki fram á annað en að það
verði okkar ær og kýr í framtíðinni
að greiða af lánum, nýjum og end-
urnýjuðum.
Hátt gengi dollarans á stóran
þátt í því að auðvelda evrópskum
vörum, þ.á.m. íslenskum, aðgang
að bandaríska markaðnum. Það er
í raun lífsspursmál fyrir útflutning
okkar- ekki skuldir.
Enn hagkvæmara væri að við
íslendingar tækjum upp notkun
dollara í nánum tengslum við
Bandaríkjadollar. Það myndi
bjarga okkur út úr öllum okkar
efnahagslegu ógöngum. Það er
nokkuð sama hve mikið við fáum
fyrir afurðir okkar ef þeim gjald-
eyri er breytt í íslenskar krónur,
ónýtan, verðlausan gjaldmiðil.
GeirR. Andersen
FLUcmom /mr
DANSKA SVEITIN
SIGRAÐIGLÆSILEGA
Á FLUGLEIDAMÓHNU
Eins og kunnugt er af fréttum sigraði
danska sveitin glæsilega á opna
Flugleiðamótinu í sveitakeppni sem
lauk á mánudagskvöldið.
Sveitina skipuðu auk fyrirliðans,
Steen Schou, Sævar Þorbjömsson,
Lars Blasket og Knut Blasket.
Silfurverðlaunin hlaut sveit Jóns
Hjaltasonar en auk hans spiluðu
Hörður Amþórsson, Símon Símonar-
son og Stefán Guðjohnsen.
Og bronsið hlaut sveit Samvinnu-
ferða/Landsýnar sem sigraði Banda-
ríkjamennina í síðustu umferð. í
henni spiluðu Jón Baldursson, Sig-
urður Sverrisson, Einar Guðjohnsen
og Valur Sigurðsson.
Röð og stig efstu sveitanna var
annars þannig:
1. Steen Schou, Danmörk, 151
2. Jón Hjaltason 131
3. Samvinnuferðir/Landsýn 124
4. Zia Mahmood, England/
Svíþjóð, 124
5. Eric Rodwell, USA, 122
6. Úrval 122
7. Delta 119
8. Sigurjón Tryggvason 117
9. Michael Massimilla,
USA/ísland, 117
10. Ragnar Magnússon 117
Fyrir síðustu umferð var staða
dönsku sveitarinnar mjög góð og
raunar komu aðeins fjórar sveitir til
greina í sigursætið. Það var Steen
Schou með 128, Delta með 112, en
þær áttu að spila saman. Síðan var
sveit Jóns Hjaltasonar með;112 og
sveit Rodwells með 111.
Leikur Delta og Schoa var hins
vegar einstefna þess síðamefnda sem
sigraði með 23-7.
Hér er spil frá leiknum sem var
viðkvæmt bæði í sókn og vörn.
Vestur gefur/n-s á hættu.
í lokaða salnum sátu n-s Þorlákur
Jónsson og Þórarinn Sigþórsson en
a-v Blaksetbræður. Þar gengu sagnir
þannig:
Vestur Norður Austur Suður
ÍG pass 2L dobl
2S pass pass pass Noríiuh A 2 V 9653 0 G962 * A652
Vestik Austur
a AG105 ♦ D764
V AD10 V G872
ö D3 0 K875
* D984 + 3 Suður
* K983
K4
0 A104
* KG107
Þorlákur hitti á besta útspilið fyrir
vörnina, spaðatvist. Lars drap heima,
spilaði laufi, Þórarinn drap og spil-
aði hjartakóng. Lars drap með ás,
trompaði lauf, spilaði tígli á drottn-
ingu og trompaði lauf. Síðan kom
meiri tígull og Þórarinn átti slaginn
á tíuna. Hann spilaði nú spaðakóng
og fékk síðan laufslag og trompslag,
þrír unnir.
í opna salnum, á sýningartjaldinu,
sátu n-s Schou og Sævar, en a-v
Guðmundur Sv. Hermannsson og
Björn Eysteinsson.
Nú voru sagnir í harðara lagi:
Vestur Norður Austur Suður
ÍG pass 2L pass
2S pass 3S pass
4S pass pass pass
Schou hitti ekki á tromp út en spil-
aði þess í stað hjarta. Sævar lét lítið
og Björn drap með drottningu. Hann
spilaði nú laufadrottningu, norður
drap á ásinn og spilaði meira hjarta.
Björn átti slaginn á ásinn og spilaði
laufi og trompaði. Síðan kom tígull
Bridge
Stefán Guðjohnsen
á drottninguna, lauf trompað og
meiri tígull. Schou yfirtók tíu Sævars
og spilaði hjarta sem Sævar tromp-
aði. Sævar fékk síðan að lokum
annan trompslag og spilið var einn
niður.
Það leynist hins vegar vinningur í
spilinu. Fyrstu fimm slagimir ganga
eins en þá er best að spila tígli.
Segjum að suður eigi slaginn á tíuna
og trompi út. Slagurinn er tekinn
heima, tígull trompaður og lauf
trompað heim. Síðan er tígulkóng
spilað og spilið er unnið.
Hin leiðin er jafnvel fallegri. Segj-
um að norður fái slaginn á tígulgos-
ann. Hann spilar nú hjarta og suður
trompar. Suður trompar síðan út,
sagnhafi drepur á tíuna, trompar
lauf, trompar tígul, spilar laufi og
trompar með síðasta trompinu. Ás
og gosi í blindum sér svo um afgang-
inn.