Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 23
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986. 23 Hér sjést farþegar á Kastrup-flugvelli þar sem þeir eru aö taka farangur sinn afvagni. DV-mynd:SG. Leitað að brúnni tðsku í Kaupmannahöfn: „Við vorum beðin um að rýma flugvélina” — segir Sigurður Garðarsson, einn farþeganna sem komu frá Kaupmannahöfn á „sprengjudaginn” „Við héldum fyrst að verkamenn á Kastrup-flugvellinum væru komnir í verkfall. Farþegar voru búnir að bíða um borð í flugvélinni í 30 mín. þegar vögnunum með farangurstöskunum var ekið upp að hlið flugvélarinnar. Okkur var tilkynnt að rýma þyrfti flugvélina," sagði Sigurður Garðars- son, einn af farþegunum með Flug- leiðum frá Kaupmannahöfn sem þurftu að bíða á Kastrup-flugvellin- um í Kaupmannahöfn vegna sprengj- ugabbsins á Keflavíkurflugvelli. „Þegar við komum út úr flugvél- inni var okkur tjáð að það væri verið að leita að brúnni tösku. Farþegar voru beðnir að taka ferðatöskur sínar af vögnum og síðan voru þær settar á aðra vagna. Eftir það fórum við inn í flughöfnina þar sem okkur var sagt frá sprengjuhótuninni á Keflavíkurflugvelli. Það var mikil spenna á meðal farþega. Sérstaklega þegar ekki var vitað hvað um væri að vera. Um tíma var haldið að flugvélin yrði látin lenda á Reykjavíkurflug- velli en ekki á Keflavíkurflugvelli," sagði Sigurður. - SOS Selfoss: Eigendaskipti á Gjánni Frá Regínu Thorarensen, fréttarit- ara DV á Selfossi: Eigendaskipti urðu á veitinga- staðnum Gjánni á Selfossi um mán- aðamótin október-nóvember. Þá keypti Guðlaugur Þórarinsson stað- inn af hlutafélaginu Búkollu. Fyrri eigendur Gjárinnar voru allt ungt fólk sem var í fullu starfi en hugðist vinna þrjú kvöld í viku á 8taðnum í aukavinnu. Svona mis- reiknar unga fólkið sig oft því þetta gekk ekki. En hinn nýi eigandi, sem ég átti viðtal við nýlega, vill benda fólki á að hann ætlar að hafa opið alla daga vikunnar. Áður var Gjáin opin á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöldum. Þá verður einnig hægt að fá hús- næðið leigt til fundahalda og einkas- amkvæma. Hefúr lengi verið mikill skortur á slíku húsnæði. Úr honum var þó bætt að miklu leyti þegar hinn glæsilegi veitingastaður Inghóll tók til starfa. Hann uppfyllir þó hvergi þá þörf sem er fyrir húsnæði til fundahalda. Nafn:___ Heimili:. Staður:. lá Lakk! Vinsamlega sendið mér nýja FREEMANS pöntunarlistann í póstkröfu. Sendist til FREEMANS of London c/o BALCO hf. Reykjavíkurvegi 66,220 Hafnarfirði, simi 53900. * Selfossbíó veröurjafn- að vrð jörðu Frá Regínu Thorarensen, frétta- ritara DV á Selfossi: Selfossbíó verður jafnað við jörðu einhvem næstu daga. Þetta kom fram í viðtali fréttaritara við Helga Helgason, fulltrúa bæjarstjóra á Selfossi. Selfossbíó var byggt fyrir um það bil 40 árum. Þótti það þá flott samkomuhús. En því hefur lítið verið haldið við síðan byrjað var að reisa félagsheimilið sem nú er búið að vera í byggingu í einn og hálfan áratug. Það verður tekið í notkun í júní næstkomandi. Félagsheimili Selfoss er bæjar- prýði á fjórum hæðum, tignarlegt hús og vel hannað. Lóðin er 10-15.000 fermetrar að stærð. Þess má geta að margir Selfossbúar em óánægðir með hve félagsheimilið hefur verið lengi í byggingu. En Róm var ekki byggð á einum degi. íbúar Selfoss hafa verið heppnir með fjármálamenn. Þeir hafa aldrei lifað um efni fram. Hefur verið lögð mikil áhersla á að allar götur séu malbikaðar og bærinn þrifalegur. Glatt áhjalla hjá eldri borgurum Frá Regínu Thorarensen, frétta- ritaraDVáSelfossi: Eldri horgarar á Selfossi komu saman í Tryggvaskála 9. febrúar sl. Höfðu þeir þá ekki hist síðan 14. janúar sl. á litlu jólunum í Inghóli. Fjölmennt var á samkomunni. Heiðursgestur var fhi Ólöf Sig- valdadóttir, Borgamesi, sem er að vérða 80 ára, mikil gleðimann- eskja sem græddi mikið í spila- vistinni. Guðmundur Jónsson meistari, 87 ára, gerði vísu dagsins.Var klappað mikið og hrópað ferfalt húrra fyrir gamla manninum. Urval vid allra hœfi Þverholti 11 Síinirmer 27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.