Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 21
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986. 21 ttir Iþróttir______ Iþróttir íþróttir íþróttir eð Valsbúninginn sem hann mun DV-mynd: EJ. n knattspyrnumaður Eins og fram kom í DV í gær hafa hingað til verið taldar nokkrar líkur á því að Helgi gengi til liðs við Víðismenn en nú hefúr það sem sagt fengist staðfest og um leið að hann mun ekki leika með Keflavík næsta sumar. -SK. SIGURJÓN FERÍVAL hef ur gengið f rá f élagaskiptum úr Kef lavík í Val „Það er 100 % öruggt að ég spila með Val næsta sumar. Ég tilkynnti félagaskipti úr ÍBK i Val á mánudag- inn,“ sagði knattspyrnumaðurinn Siguijón Kristjánsson í samtali við DV í gær. Greint var frá því í gær að Sigurjón hefði mætt á æfingu hjá ÍBK og ennfremur að hann hefði beðið Hólmbert Friðjónsson, þjálfara ÍBK, afsökunar á ummælum sem höfð voru eftir honum fyrr í haust varð- andi leikskipulag og fleira hjá ÍBK. Þessar fréttir afSigurjóni voru hafð- ar eftir aðilum í Keflavík og þessir sömu aðilar virðast hafa í meira lagi skrítinn húmor. Samkvæmt heimild- um DV í gær hafa ákveðnir aðilar verið að reyna að gera Sigurjóni óleik og notað til þess þá aðferð að gefa blaðamanni DV falskar upplýs- ingar sem komið gætu sér illa fyrir hann. Siguijón sagði m.a.í gær: „Ég hef aldrei mætt á æfingu hjá Keflavík eftir að ég ákvað að hætta að leika með ÍBK. Það er heldur ekki rétt að ég hafi beðið Hólmbert afsökunar. Ég stend við allt _það sem ég hef sagt um Hólmbert og IBK í DV.“ - Nú varst þú ákveðinn í að ganga yfirí VíðiíGarði? „Já, það er rétt. Það má segja að ég hafi verið of fljótur á mér þegar ég ákvað félagaskiptin yfir í Víði. Ég settist síðan niður og hugsaði málið og að því búnu fannst mér skynsam- legast að skipta yfir í Val og þaö gerði ég á mánudaginn. -SK. Víkingar hefja bikar- vörn sína gegn IR — í handboltanum. Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar sitja yfir í 1. umf erð íslandsmeistarar Víkings hefia tit- ilvörn sína i bikarkeppni HSÍ gegn ÍR en dregið var um helgina. 29 lið til- kynntu þátttöku í keppninni og munu þijú þeirra sitja hjá i þessari umferð. Það eru Hafnarfiarðarliðin FH og Haukar auk Reynis. Ekki hefur verið unnt að velja leik- daga vegna þeirrar mismunandi aðstöðu er félögin eru í. Þau sem skipuð eru landsliðsmönnum munu ekki geta leikið fyrr en eftir heims- meistarakeppnina sem lýkur í mars en lítið ætti að vera í veginum fyrir því að önnur lið geti keppt mun fyrr. Drátturinn varð þessi: Týr-KA Fylkir-FH b Ármann-Grótta KR-Valur b IH-ÍA ÍBK-Fram Þróttur-Ármann b Leiftur-Valur iR-Víkingur Selfoss-Njarðvík HK-Þór, Vestm. Stj aman-Aftur elding Breiðablik-HBÍ Þau þrjú lið er sita hjá munu síðan bætast í hóp þeirra þrettán liða er vinna sér áframhaldandi þátttöku- rétt og keppa í sextán liða úrslitum. -fros Óeirðaseggir Millwall komnir með naf nspjöld Fró Sigurbirni Aðalsteinssyni, fréttaritara DV í Englandi: Slagsmál urðu á milli aðdáenda Millwall og Sunderland er þeir mættust á laugardaginn eftir deild- arleiki þessara liða. f slagsmálunum var einn Sunderland-áhangandinn skorinn á háls og þurfti að sauma ellefu spor. Þegar lögreglan kom á staðinn voru stuðningsmenn Mill- wall á bak og burt en höfðu skilið eftir sig nafnspjald sem á stóð:- Til hamingju. Þú hefur hitt Millwallað- dáendur. 1 lokin má geta þess að aðdáendur flestra liða eru að íhuga að meina að- dáendum Millwall aðgang að heimaleikj- um sinum. Eitt lið hefur þó þegar sett bann á hyskið, það er Middlesbrough. -fros • lanRush. Rushíformiá Anfield Road — lagði upp tvö mörk og skoraði eitt sjátfur í sigrí Uverpool á Ipswich í mjólkurbikarnum vS&-\ í- Frá Sigurbimi Aðalsteinssyni, fréttaritara DV í Englandi: Liverpool tryggði sér réttinn til að leika i undanúrslitum enska mjólk- urbikarsins er liðið sigraði Ipswich örugglega á heimavelli sínum, 3-0. Þrátt fyrir að Liverpool væri lengst af betra liðið í leiknum þá voru það varnarmistök enska landsliðsmið- varðarins Terry Butcher er réðu hvað mestu um úrslit. Tvö slæm mistök hans gáfu Liverpool tvö mörk. Ipswich hafði í fiillu tré við Liv- erpool fyrstu mínúturnar en á þeirri 20. tókst heimaliðinu að brjóta ísinn. Butcher átti þá misheppnaða send- ingu aftur til Paul Cooper markvarð- ar. Ian Rush komst inn i sendinguna og gaf til Paul Walsh sem skoraði sitt átjánda mark á keppnistímabil- inu. Tíu mínútum síðar skeði það sama. Rush komst inn í sendingu Butchers og gaf á Ronnie Whelan sem lyfbi boltaniun yfir Cooper. Rush gulltryggði síðan sigur Liverpool er hann skoraði mark eftir góðan und- irbúning Walsh. Liverpol mætir annaðhvort Chelsea eða QPR í und- anúrslitunum. -fros •é „Glaður fyrir hönd Frakka” — sagði Ingemar Stenmark eftir að Frakkinn Bouvet sigraði í svigi heimsbikarsins í gær. Stenmark annar og er nú í þriðja sæti samanlagt í stigakeppninni „Eg er ánægður með þessi úrslit em ég var ekki nógu ákafur í fyrri um- ferðinni. Frakkinn Bouvet átti stór- kostlegan dag. Ég er glaður fyrir i hans hönd og franska liðsins. Það var kominn tími til að Frakki sigraði í ! keppni heimsbikarsins,“ sagði Svíinn frægi, Ingemar Stenmark, eftir að hann varð í öðru sæti í svigi heims- bikarsins í Parpan í Sviss í gær. Frakkinn Didier Bouvet sigraði í ' keppninni. Fyrsti sigur Frakka í keppninni frá 1973, þegar Jean Noel Augert sigraðií svigi -jiaðer að segja fyrsti sigur fransks karlmanns. Frönsku stúlkurnar eiga marga sigra undanfarin ár. Didier Bouvet varð í þriðja sæti í svigi á ólympiuleikunum í Sarajevo 1984. 25 ára og hafði náð best áður fimmta sæti í keppni heimsbikarsins. Lengi vel í gær stefndi þó í sigur Paul Frommelt, Lichtenstein. Hann var með besta tima i fyrri umferðinni og besta millitíma í miðri braut i þeirri siöari. Þá hlekktist honum á og varð aðhætta. Tími Frakkans var 1:33,03 mín. Stenmark annar á 1:33,54 mín. Thom- as Burgler, Sviss, þriðji á 1:33,71 mín. í fiórða sæti var Joze Kuralt, Júgó- slaviu, á 1:34,21 min. og fimmti Sviinn Jonas Nilsson á 1:34,22 mín. Jónas hefur nú forustu i stigakeppninni i svigi. Hefur hlotið 68 stig. Stenmark, Frommelt og Bojan Krizaj, Júgóslav- íu, koma skammt á eftir. Allir með 60 stig. Í fimmta sæti er svo Rok Petrovic, Júgóslavíu, með 50 stig. Brunmaðurinn Peter Wirnsberger, Austurriki, er stigahæstur saman- lagt í keppni heimsbikarsins. Hefur hlotið 130 stig eftir tvo sigra í brun- keppninni fyrir helgi. Handhafi heimsbikarsins, Marc Girardelli, Luxemburg, er annar með 109 stig og kempan Stenmark er nú komin í þriðja sætið með 102 stig. Brun- maðurinn Peter Miiller, Sviss, fiórði með 99 stig. í fimmta sæti er Pirmin Zurbriggen, Sviss, sem slasaðist i upphafi keppnistímabilsins, með 84 stig. Jonas Nilsson er í sjöunda sæti með 68 stig. Hefur aðeins hlotiö stig í sviginu. Krizaj er næstur á undan honum með 75 stig. -hsim —BSBBBBBM UR w ALI UnK TIL VERNDAR GÓLFEFNUM Þú getur á auðveldan máta margfaldað slitþol gólfefnis á stigaþrepum með því að nota DON stigaefnakerfið sem hefur margsanna sin. Listarnir eru einfaldlega límdir framan a þrepin og/eða í sumum tilfellum eru þeir festir með skrúfum. öll vinna við DON stiganefakerfið er mjög ein- föld. Þannig að hver og einn getur átt við það. Engin þörf er á sérfræðingum. Listana á DON stiganefakerfinu er hægt að fá í fjölmörgum Ht- um, lengdum og breiddum eftir þörfum hvers og elns. Líttu við hjá okkur og fáðu nánari upplýsingar. Fyrirliggjandi á lager - vinsamleg- ast spyrjið um Kristján. r? Þorsteinsson ohnson hf. £1 ARMULI 1 105 REYKJAVIK SIMI 91-685533

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.