Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 22
22 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Fyrsta svig vetraríns áAkureyrí Frá Jóni Haukssyni, fréttamanni DV Kristjánsson, KA, á 82,64 sek. Anna á Akureyri: M. Malmquist, Þór, sigraði í kvenna- Þórs-mótið í svigi, fyrsta skíða- flokki á 87,64 sek. I stúlknaflokki mótið á Akureyri á keppnistímabil- sigraði Kristín Jóhannsdóttir, Þór, á inu, var háð í Hlíðarfjalli um helg- 94,69 sek. og í drengjaflokki sigraði ina. Keppt í karla- og kvennaflokki Kristinn Svanbergsson, KA, á 86,78 og í 15-16 ára flokki drengja og sek. Myndin að neðan er frá keppn- stúlkna. inni í karlaflokki. f karlaflokki sigraði Rúnar I. hsím Fjórír sigrar Þórs-liðanna —á Akurey rarmóti í handknattleik Frá Jóni G. Haukssyni, frétta- manni DV á Akureyri. Fyrri umferðin á Akureyrarmótinu í handknattleik - yngri flokkamir - var háð um helgina. Keppendur voru frá tveimur félögum, KA og Þór, og tókst Þórsliðunum betur upp á mót- inu. Það var aðeins í 6. flokki sem KA sigraði, 9-6. í 4. flokki sigraði Þór KA, 17-15, en fimmti flokkur var þrískiptur. í 5. flokki C vann Þór KA, 8-6. f fimmta flokki B vann Þór, 19-6, og hafði einnig yfirburði í 5. flokki A, þarsigraði Þór, 23-11. hsím Frá leik Akureyrarliðanna Þórs og KA í 4. flokki á Akur- eyrarmótinu í handknattleik um síðustu helgi. DV-mynd Jón G. Hauksson. Staðan í Frakklandi Sigurvegarar ajudomoti Fyrri hluti afmælismóts Júdósam- bandsins fór fram um síðustu helgi og urðu sigurvegarar þessir í eftir- töldum flokkum.: Eiríkur Ingi Kristj- ánsson Ármanni í -60 kílóa þyngdar- flokki, Karl Erlingsson Ármanni í -65 kg flokki, Halldór Guðbjörnsson JR vann sigur í -71 kg flokki, Ómar Sig- urðsson UMFK í -78 kg flokki, Rögn- valdur Guðmundsson Gerplu í -86 kg flokki og í þyngsta flokknum, yfir 95 kg, vann Bjarni Friðriksson Ármanni sigur. Alls kepptu þrjátíu keppendur frá fjór- um félögum. Ármanni, Júdófélagi Reykjavikur, UMFK og Gerplu. Seinni hluti mótsins fer síðan fram 1. febrúar næstkomandi. Þá verður keppt í opnum flokki karla, þyngdarflokkum karla yngri en 21 árs og þyngdarflokkum kvenna. Staðan í 1. deild er nú þannig: Paris S-G 26 18 8 0 55-20 44 Nantes 27 14 8 5 38-21 36 Bordeaux 27 14 8 5 38-31 36 Mónakó 27 8 14 5 40-29 30 Lens 27 11 8 8 41-34 30 Auxerre 26 11 7 8 31-26 29 Metz 26 9 9 8 36-24 27 Nice 27 9 9 9 29-34 27 Toulouse 26 11 4 11 42-37 26 Laval 27 8 10 9 30-34 26 Le Havre 27 9 7 11 36-36 25 Nancy 26 10 4 12 34-38 24 Rennes 27 9 6 12 27-33 24 Toulon 27 6 11 10 33-35 23 Marseilles 27 8 7 12 30-31 23 Lille 26 9 5 12 23-38 23 Sochaux 26 7 8 11 32-40 22 Brest 26 7 7 12 30-43 21 Bastia 26 5 8 13 22-43 18 Strasbovu-g 26 4 8 14 17-42 16 -hsím. Peter Beardsley. Steve Hodge. Robson valdi Rob- son í stað Robson Enski landsliðseinvaldurinn, Bobby Robson, hefur valið landsliðs- hóp sinn fyrir keppnisferðina til Egyptalands í næstu viku. Nokkrir frægir kappar eiga við meiðsli að striða og til dæmis valdi Robson Stewart Sobson, Arsenal, í stað Bry- an Robson, Man.Utd, fyrirliða enska landsliðsins. Arsenal-leikmaðurinn er nýliði í enska landsliðshópnum en hefur verið fyrirliði enska landsliðs- ins, leikmenn 21 árs eða yngri. Tveir aðrir nýliðar eru í hópnum, Steve Hodge, Aston Villa, og Peter Beards- ley, Newcastle. Þeir eru valdir í stað Trevor Francis, Sampdoria, og Peter Reid, Everton, sem eiga við slæm meiðsli að stríða eins og Bryan Rob- son. Terry Butcher, miðvörðurinn há- vaxni hjá Ipswich, er á ný valinn en hann hefur verið lengi frá vegna uppskurðar á hné. Aðrir miðverðir eru Alvin Martin, West Ham, Terry Fenwick, QPR, og Mark Wright, Southampton. Markverðir í hópnum eru Peter Shilton, Southampton, Gary Bailey, Man.Utd, og Chris Wood, Norwich. Meðal bakvarða eru Arsenal-leikmennimir Kenny San- som og Viv Anderson og Gary Ste- vens, Everton. Nokkra athygli vakti að Bobby Robson valdi Tony Woodcock, Ars- enal, þó hann leiki aðeins í varaliði félags síns, og Glenn Hoddle, Totten- ham, þó hann eigi við meiðsli að stríða. Þeir Ray Wilkins og Mark Hateley, sem leika með AC Milano á Ítalíu, em í landsliðshópnum, svo og Gary Lineker, Everton, Kerry Dixon, Chelsea, og John Barnes, Watford. Landsliðsþjálfari Skotlands, Alex Ferguson, hefur valið landsliðshóp í landsleik gegn ísrael í næstu vikú. Charlie Nicholas, Arsenal, er í landsliðshópnum á ný eftir tíu mánaða fjarvem. Rétt að geta þess að skosku landsliðsmennimir hjá Liverpool geta ekki tekið þátt í leiknum, heldur ekki fyrirliðinn Graeme Souness, Sampdoria, Ítalíu. hsím , Evrópumót unglinga í badminton: Islendingar íriðli með Wales og íriandi Á morgun heldur unglingalandslið Islands í badminton utan til Búdapest í Ungveijalandi til að taka þátt í landsliðskeppni unglinga undir 18 ára aldri. Þetta er svokallað Evrópumót B-þjóða í badminton því 6 bestu þjóðir í Evrópu fá ekki að vera með. Þátttökuþjóðirnar að þessu sinni em 12 og skiptast í eftirtalda riðla: A: Finnland, Ungverjaland, Spánn. B: Noregur, Pólland, Belgía. C: Sovétríkin, Austurríki, Sviss. D: Wales, írland, ísland. Við ramman reip verður að draga hjá íslensku unglingunum því Wales og írland em nr. 8 og 9 á styrkleika- lista unglingaliða í Evrópu en ísland nr. 15. Sigurvegarar hvers riðils fyrir sig spila um 1.-4. sæti, nr. 2 úr riðlunum spila um 5.-8. sæti og nr. 3 um 9.-12. sæti. Föstudaginn 24. jan., kl. 12, spila ísland og Irland og sama dag, kl. 15, ísland og Wales. Laugardag og sunnudag verður spilað um sætin. í hverjum landsleik verða spilaðir 2 einliðaleikir pilta og stúlkna, 1 tvíliðaleikur pilta og stúlkna og 1 tvenndarleikur, samtals 7 leikir. Þau sem skipa unglingalandsliðið að þessu sinni em: Ása Pálsdóttir, ÍA Guðrún Gísladóttir, ÍA Guðrún Júlíusdóttir, TBR Helga Þórisdóttir, TBR Snorri Ingvarsson, TBR Ámi Þór Hallgrimsson, TBR Ármann Þorvaldsson, TBR Haukur P. Finnsson, TBR Með í för verða einnig Jóhann Kjartansson, þjálfari landsliðsins, og Sigfús Ægir Ámason fararstjóri. Heim verður komið 27. janúar. Efri röð frá v.: Sigfús Ægir Árnason, Ármann Þorvaldsson, Árni Þór Hallgrímsson, Haukur P. Finnsson, Snorri Ingvarsson og Jóhann Kjartansson. Neðri röð frá v.: Ása Pálsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Helga Þórisdóttir og Guðrún Júlíusdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.