Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Side 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986. 9 Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Stödugt verdnrun áolíu Ekkert lát er enn eygjanlegt á hruni olíuverðs á heimsmarkaðnum að sögn sérfræðinga í New York en þeir boða að þar hljóti að koma að olíuframleiðendur taki til íhugunar hvort framleiðslan borgi sig við svo óhagstætt verð. Olíuverð féll enn í gær þriðja dag- inn í röð. Hráolían lækkaði um 60 til 75 sent tunnan á spotmarkaðnum í New York. Lægsta olíuverð, sem skráð var þar í gær, var 24,50 dollarar tunnan. Meðalverð á öðrum sportmörkuð- Verðhrunið á olíunni er þegar farið að segja til sín á mörkuð- um erlendis. um í heiminum var þá komið niður i 20,30 dollara tunnan. Norðursjáv- arolían komst í gær í fyrsta sinn í sex ár niður fyrir 20 dollara tunnan. Menn eru teknir að velta því fyrir sér að framleiðendur hljóti áð draga saman framleiðsluna vegna offram- boðs til þess að stöðva verðhrunið, en ekkert bólar þó á því enn. OPEC- ríkin koma ekki saman til fundar fyrr en í febrúarbyrjun til þess að ákveða hvernig þau hyggjast tryggja sér stærri hlut í heimsmarkaðnum fyrir framleiðsu sína. Er ekki búist við neinum olíuverðhækkunum aftur fyrr en í fyrsta lagi eftir þann fund ef þá yrðu einhver þau tíðindi boðuð sem mundu leiða slíkt af sér. Fólk af slóðum ís- lendinga flutt í dag Stöðugur flótti útlendinga frá lemen Svo virðist sem ekkert dragi úr átökum í Suður-Jemen. Áreiðanlegar heimildir í Sanaa, höfuðborg Norður-Jemen, herma að átök milli fylkinga marxista, er berj- ast um völdin í landinu, hafi ekki dvínað þrátt fyrir fréttir í útvarpinu í Aden, höfuðborg Suður-Jemen, er skæruliðar ráða yfir segi að daglegt líf sé að færast í eðlilegt horf í landinu. Erlendir ríkisborgarar, er skip frá Bretlandi, Frakklandi og Sovétríkj- unum hafa bjargað frá landinu, lýsa líkum liggjandi á götum sem hráviði í Aden. Nýjustu tölur um fjölda fall- inna hljóða upp á yfir níu þúsund manns. Yfir fjögur þúsund útlendingar hafa nú verið fluttir á brott ffá Suður-Jemen og fleiri verða fluttir á brott um leið og tækifæri gefst. Fluttir frá Mukalla í dag Fregnir í gær sem hermdu að breska flutningaskipið Diamond Princess hefði flutt á fjórða hundrað útlendinga frá hafnarborginni Mu- kalla reyndust á misskilningi byggð- ar. „Flutningaskipið er í viðbragðs- stöðu og við vonumst til að það geti tekið eitthvað af fólki á næstunni. En það byggist á árangri viðræðna er eiga sér stað á þessari stundu við yfirvöld í Aden“ var haft eftir full- trúa í breska varnarmálaráðuneyt- inu í gærkvöldi. Um tíu Islendingar eru í Mukalla í verkefnum á vegum íslenskra og danskra fyrirtækja. k Ali Khamenei, forseti frans, sem nú er í opinberri heimsókn í Zimbab- ve, neitaði að taka þátt í opinberri veislu honum til heiðurs í gærkvöldi af þeirri ástæðu að í samkvæminu var til staðar kvenfólk og ótakmark- að magn af áfengi. I yfirlýsingu er Mangwende, utan- ríkisráðherra Zimbabve, gaf út eftir að ljóst var að forsetinn mundi hundsa veisluhöld sagði að ekki hefði verið hægt að koma á neinni málamiðlan gesta og gestgjafa hvað varðaði mismunandi veislusiði og því hefði forsetinn ekki séð sér fært að koma. „Það sem sérstaklega fór fyrir brjóstið á írönunum var áætluð sætaskipan kvenna við veisluborðið og vínveitingar," sagði utanríkisráð- herrann. Þrátt fyrir fjarveru hins íranska tignarfólks fór veislan fram á glæsi- legasta og nýjasta hótelinu í Harare, höfuðborg Zimbabve, að viðstöddum Mugabe, forseta landsins, og skemmtu innfæddir sér konunglega. Sluppu meira að segja við allar hátíðarræður. Finn Bergstrand, sænski sendiherrann í Suður-Jemen, lengst til hægri, tekur á móti erlendum flóttamönnum í Djibouti er komu þangað með bresku Qutningaskipi í fyrradag. Vín og vífí veisl- unni og forsetinn mætti ekki Ali Khamenei, forseti íran, til vinstri, boðinn velkominn af Samora Machel, forseta Mozambique, í Afríkuför sinni. Síðar hélt Khamenei til Zimbabve. Bflsprengja grandar 27 öflug bílasprengja varð 27 manns að bana og særði yfir 100 í kristnum borgarhluta Beirút í Líbanon í gær. Sprakk sprengjan steinsnar frá skrifstofu Falangistaflokks Amins Gemayel í Austur-Beirút. Bílasprengjan skildi eftir sig stóran fjögurra metra djúpan gíg og þrjá metra í þvermál og fljúgandi gler flaug allt að 400 metra. Sprengingin kemur í kjölfar mik- illa bardaga sveita kristinna og múhameðstrúarmanna undanfama viku. Talið er að yfir 400 manns hafi fallið í þeim og að minnsta kosti 800 særst. Norsktvidskipta- bannáS-Afnku Norska ríkisstjórnin lýsti því yfir í gær að hún hygðist banna allan innflutning ferskra ávaxta og grænmetis frá Suður-- Afríku sem hluta af yfirlýstri andstöðu stjómarinnar við kyn- láttaaðskilnaðarstefnu stjóm- valda. Tekur hannið gildi í næstu viku. Norska viðskiptaráðuneytið gaf á sama tíma út upplýsingar um viðskipti Noregs við Suður-- Afríku og kemur þar fram að viðskipti landanna drógust sam- an um þriðjung á síðasta ári. Á næsta ári er búist við að samdrátturinn verði allt að 80 prósent. Dauðadómar í Kína Yfir 20 manns hafa verið dæmdir til dauða í kínversku borgunum Peking og Shanghai fyrir morð, rán, nauðganir og svindl, samkvæmt fréttum í kín- verskum blöðum í morgun. Dagblað í Shanghai sagði að hin svokallaða „Peninga Búdda“, þekktur svindlari af kvenkyni er talinn er hafa grætt yfir hundrað þúsund dollara á ólöglegri sölu á bifreiðum, hefði verið dæmd til dauða ásamt samstarfsmanni hennar af karl- kyni. Það vora 18 sakborningar er fengu dauðadóma sína upplesna á opinberri samkomu yfir 13 þúsund verkamanna á leikvangi einum í Peking. Fylgdi fréttinni að tveir sak- borninga hefðu þegar verið tekn- ir af lífi eftir uppkvaðningu dómsins. Endurbætt útgáfa Concorde Frönsku Aerospatiale flugvéla- verksmiðjurnar, framleiðendur Concorde farþegaþotnanna í samvinnu við Breta, hafa lýst því yfir að þær hyggi á framleiðslu á annarri hljóðfrárri farþegaþotu. Nýja vélin á að bera á milli tvö og þrjú hundruð farþega í saman- burði við aðeins 100 farþega Concorde. Flughraðinn verður 2,5 sinnum hraði hljóðsins, en Concorde flýgur á tvöföldum hraða hljóðs- ins, auk þess sem flugþol hinnar nýju vélar samrýmist vaxandi markaði við Kyrrahafið og mikl- um vegalengdum. EB breytingartil- lagan felld Það var naumur meirihluti danska þingsins er í gærkvöldi hafnaði tillögum ríkisstjórnar- innar um að samþykkja breyt- ingar á skipulagi Evrópubanda- lagsins. 80 þingmenn höfnuðu brey ting- unum en 75 þingmenn studdu þær. Poul Schlúter forsætisráðherra endurtók fyrri ummæli sín um að boða til þjóðaratkvæða- greiðslu í Danmörku um breyt- ingarnar á skipulagi bandalags- ins en enn er óljóst hvenær af slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu geturorðið. Uffe Ellemann-Jensen utan- ríkisráðherra heldur í dag í þriggja daga ferð til sex borga Evrópu þar sem afstaða Dana 'verður kynnt og skýrð viðkom- landi stjómvöldum. Að lokinni jþeiiri ferð verður málið að takast lupp á þinginu á nýjan leik. Umræðumar á danska þinginu í gær tóku næstum því níu tíma og var hluta þeirra sjónvarpað beint til danskra áhorfenda. Umsjón: Guðmundur Pétursson ogHannes Heimisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.