Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Blaðsíða 10
10
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR1986.
Utlönd
Utlönd
Útlönd
Utlönd
AUGLÝSA KAFFI í
LANDITFDRYKKJUNNAR
Á sunnudagskvöldi í febrúar
næstkomandi, rétt eftir aðalkvöld-
fréttatíma sjónvarpsins, er búist
við að yfir 300 milljónir íbúa Kín-
verska alþýðulýðveldisins, eða um
40 prósent landsmanna, setjist við
sjónvarp og fylgist með fyrsta þætti
í nýrri röð heimildarmynda um
veröldina í kring.
Heimildaröðin kallast á frum-
málinu „One World“, fyrsta sjón-
varpsefni framleitt á Vesturlöndum
og sérstaklega ætlað kínverskum
áhorfendum.
Yfirvöld í Kína og sérfræðingar
í málefnum landsins eru ekki í
neinum vafa um að allir, sem vettl-
ingi geta valdið og hafa möguleika
á að sjá sjónvarp, muni fylgjast
með þáttunum.
„Kínverjar eru hungraðir í svona
sjónvarpsefni," segir Kenneth
Liebertal, sérfræðingur í málefn-
um Kína við Michigan háskóla í
Bandaríkjunum, „ég efast ekki um
að þetta hittir í mark.“
Fjölþjóðafyrirtæki, flest þeirra
bandarísk, vilja um þessar mundir
ólm og uppvæg komast inn á
stærsta markað veraldar með vörur
sínar.
Nokkur þeirra hafa séð sér leik
á borði og stutt framleiðendur
myndaflokksins fjárhagslega
Stuðningurinn hefur aftur á móti
gefið fyrirtækjunum réttindi á
auglýsingatíma í kínversku sjón-
varpi kvöldið sem hinn nýi þáttur
verður sendur út.
Úrte í kaffi
General Foods fyrirtækið er einn
þessara aðila.
Markmið þeirra er að fá Kín-
verja, eina mestu tedrykkjuþjóð
heims, til að auka kaffineyslu sína
og hafa í því sambandi skipulagt
auglýsingaherferð fyrir Maxwell
House kaffið sitt fyrir kínverska
áhorfendur.
General Foods er ekki sér á báti.
Á kínverska auglýsingamark-
Yui Sai Kan, framleiðandi þátta-
raðarinnar um heiminn, getur
ekki kvartað yfir skorti á áhorf-
endum.
Boeing ætla sér að verða samheiti við orðið flug á meðal kínverskrar
alþýðu og hafa lagt í mikla auglýsingaherferð i Kínverska alþýðulýð-
veldinu.
aðnum eru fyrir risar eins og Coca-
Cola, IBM, Boeing, Kodak og Col-
gate-Palmolive, daglegir gestir í
auglýsingatímum kínverska ríkis-
sjónvarpsins og heimilisvinir á
kínverskum heimilum.
„Við ætlum okkur að gera nafnið
Boeing að samheiti yfir hugtakið
flug í kínversku," segir Edward S.
McLelan, auglýsingastjóri Boeing
flugvélaverksmiðjanna, „ef okkur
tekst það þá höfum við náð undir
okkur alvörumarkaði."
Nóg fjárráö, fáar vörur
„Kína er um þessar mundir gós-
enland fyrir sölumanninn," segir
Charles J. Diodosio, varaforseti
Beatrice fyrirtækisins, er rekið
hefur gosdrykkjaverksmiðjur í
Kínverska alþýðulýðveldinu síð-
astliðið ár og hefur í hyggju að
koma á laggimar ísverksmiðju og
sölu á þurrkuðu spaghetti.
„Fólk hefur peninga til eyðslu en
ekkert til að eyða þeim í,“ segir
Diodosio.
f Ameríku og Vestur-Evrópu
draga menn niður í auglýsingunum
í sjónvEirpi eða einfaldlega hætta
að fylgjast með.
í Kína er þessu öðruvísi farið.
Þar elska áhorfendur auglýsinga-
tímana.
„Þar fylgist fólk vel með auglýs-
ingunum því fólk er ekki orðið
gegnsýrt af þeim. Fólk fylgist með
auglýsingum af því að það vill frek-
ari upplýsingar," segir Scott D.
Seligman, fulltrúi auglýsingafyrir-
tækis eins er sérhæft hefur sig í
auglýsingum á Kínamarkað.
Á síðustu sjö árum hefur átt sér
stað ör þróun í þessu fjölmennasta
ríki heims hvað varðar viðskipta-
og efhahagsmál.
Stökkbreyting hefur átt sér stað
í erlendri fjárfestingu og fjölmörg
erlend fyrirtæki hafa reist verk-
smiðjur í Kína þar sem nýtt er nóg
og ódýrt vinnuafl.
Bandarísk fyrirtæki hafa lagt í
yfir einn milljarð dollara í beinni
fjárfestingu í Kína, mest á síðustu
tveim ánun.
Bandaríkjamenn hafa einnig
stöðugt aukið útflutning sinn til
landsins. I fyrra nam hann alls 3,6
milljörðum dollara, 20 prósent
aukning frá árinu á undan.
Og enn er búist við aukinni fjár-
festingu bandarískra fyrirtækja á
þessu ári.
Stærsti markaður heims virðist
rétt aðeins kominn á bragðið.
GONZALEZ LÆTUR /sPANlA^
SPÁNVERJA KJÓSA UM NATOAÐILDINA nat6?1 C/n
herra Spánar, lét sprengjuna falla
aðeins tveim mánuðum áður en
gengið verður til þjóðaratkvæða-
greiðslunnar um aðild Spánar að
NATO: „Ef meirihluti þjóðarinnar
snýst gegn aðild getur ríkisstjómin
ekki annað en virt þjóðarviljann."
Þetta sagði forsætisráðherrann á
einum af blaðamannafundunum
sem hann heldur tíðum í íbúð sinni
í Madrid. Sjálfur framkvæmda-
8tjóri NATO, Carrington lávarður,
sat við hlið Gonzalez þegar hinn
síðamefhdi flutti löndum sínum
þennan boðskap af sjónvarpsskján-
um.
Annars segir stjórnin af sér
Þar með gat enginn í Atlants-
hafsbandalaginu farið í neinar
grafgötur um hver alvara var í
málinu né heldur geta spænskir
hvað í húfi er þegar þeir ganga að
kjörkössunum í mars.
Nær samtímis þessu gaf Adolfo
Guerra, aðstoðarforsætisráðherra
og sá sem gengur Gonzalez næst
að áhrifum bæði í ríkisstjóminni
og innan jafnaðarmannaflokksins,
þá yfirlýsingu á leið heim úr orlofi
í Mexíkó að ríkisstjómin mundi
segja af sér og boða til nýrra þing-
kosninga ef kjósendur höfhuðu
áframhaldandi aðild að NATO.
Skýrara gat það varla orðið. Segi
þjóðin nei við NATO-aðild mun
ríkisstjómin draga Spán út úr
bandalaginu og sjálf segja af sér
og boða til nýrra kosninga. Eini
fyrirvarinn, sem Gonzalez setur,
eftir að hafa verið vægast sagt
loðinn í afstöðu til spumingarinn-
ar um NATO undanfama fimmtán
mánuði er sá að nægileg þátttaka
til þess að ríkisstjórnin telji sig
bundna af niðurstöðunni.
Aðili en ekki i
hernaðarsamstarfinu
Það hefur ekki enn verið opin-
berað hvert nákvæmlega verði
orðalag spumingarinnar sem lögð
verður undir þjóðaratkvæðið, en
það gerist sjálfsagt næstu daga.
Væntanlega verða kjósendur beðn-
ir um að taka afetöðu til tillögu
um það hvort Spánn skuli vera
áfram í NATO án þátttöku í hem-
aðarsamstarfinu, ef um leið verður
fækkað í bandaríska vamarliðinu
sem staðsett er á Spáni.
Reyndur diplómat eins og Carr-
ington lávarður varaðist eins og
heitan eldinn að blanda sér í um-
ræður heimamanna um NATO-
aðildina þessa þrjá daga sem hann
var í heimsókninni á Spáni. Hins
sérstaklega að Spánn gæti nánast
haft aðildina með þeim hætti sem
Spánverjar vilja sjálfir ef þeir kjósa
að vera áfram í bandalaginu. „Ef
við skoðum sögu NATO sjáum við
að fleiri löndum hefur fundist þau
hafa sérstöðu, pólitíska eða land-
fræðilega, og hin aðildarríkin hafa
sýnt slíku fullan skilning,“ sagði
framkvæmdastjórinn.
Eitt af því sem NATO-andstæð-
ingar á Spáni hafa helst haft á
móti aðild er að þeim þykir Banda-
ríkjamenn hafa öllu ráðið innan
bandalagsins. Á því þykir þó hafa
orðið breyting að undanfömu og
er nú ekki lengur hreyft svo mikl-
um athugasemdum í þá átt:
Málió í undarlegri flækju
Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur
lent í innanríkisflækju. Hin hægri-
sinna stjómarandstaða undir for-
ystu Manuel Fraga er að sjálfsögðu
meðmælt áframhaldandi aðild en
er hins vegar andvíg því að efnt sé
til þjóðaratkvæðis núna. Þeir vilja
helst ekki stuðla að því að Gonz-
alez fái sigur tæpu hálfu ári fyrir
næstu þingkosningar. Því hafa þeir
beðið kjósendur sína um að sitja
heldur heima og skila ekki at-
kvæði. Það er því kominn skrítinn
bragur á málið. Hægri- og miðju-
menn em beðnir um að greiða ekki
atkvæði og þó em það þeir sem
helst vilja áframhaldandi aðild.
Kjósendur sósíalistaflokksins, sem
helst hefur verið á móti NATO, eru
beðnir að kjósa með áframhaldandi
aðild til þess að bjarga ríkisstjóm-
inni frá því að þurfa að segja af sér.
Annars er svo sem enginn sem
efast um að Gonzalez verði endur-
kjörinn næsta haust. Sjálfur er
hann þess fullviss og hefur miklar
ástæður til þess.
Umsjón: Guðmundur Pétursson og Hames Heimisson