Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Qupperneq 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986.
Spurningin
Finnst þér of mikið um knatt-
spyrnu í sjónvarpinu?
Birgir Ólafsson, á leið í nám: Nei,
mér finnst það nú ekki því ég er einn
af þeim sem hafa áhuga á knatt-
spymu. En mér finnst vanta aðrar
íþróttir, knattspyman einokar
íþróttaþáttinn.
Lára Skærings nemi: Já, það er
allt of mikið um knattspyrnu í sjón-
varpinu og allt of mikið um íþróttir
yfirhöfuð. Ég er t.d. alveg á móti
þessum beinu útsendingum.
Halldór Sveinbjörnsson verkamað-
ur: Já, mér finnst það og svo er of
lítið af bílaíþróttum.
Einar Lárus Pétursson verkamað-
ur: Nei, mér finnst gott að hafa fót-
bolta í íþróttum en ég hef mikið verið
í spretthlaupi. Ég fylgist nú alltaf vel
með fótbolta.
Drífa Björk nemi: Já, það er allt
of mikill fótbolti. Mér finnst fótbolti'
leiðinlegur. Reyndar vil ég bara hafa,
minna af íþróttum.
Rudiger Seidenfaden gleraugna-
sérfræðingur: Nei, alls ekki, ég er
nefiiilega frá V-Þýskalandi. En mér
fyndist að ætti að sýna minna frá
Énglandi og meira frá V-Þýskalandi
af því þar eru svo margir íslendingar
að leika en ekki í Englandi. Svo
fyndist mér líka að ætti að sýna
handbolta frá V-Þýskalandi því þar
eru líka f slendingar.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Góðar eldvarnir á Skólavörðustíg
Fyrrverandi fangi skrifar:
Halló lesendur! Ég er mjög undr-
andi á því að enginn reykskynjari
skuli hafa verið í Kópavogshæli því
þar sem ég hef lengi dvalið, á
Skólavörðustíg 9, er reykskynjari
í hverju einasta herbergi. Spurn-
ingin er nefnilega hvort vistmenn
Kópavogshælis séu ekki jafnmikils
metnir og við á Skólavörðustíg,
sem „notabene" erum ávallt mjög
fáir, að vísu einvalalið. Ég vildi
bara vekja athygli á þessu og varpa
hér með þeirri spurningu til ykkar
lesenda hvort ykkur þyki þetta
ekki alveg forkastanlega skrítið.
Þarna eru reykskynjarar í hveiju herbergi.
Tvenns konar
íþróttaþættir
Helgi skrifar:
Mig langar að koma með ábend-
ingu til sjónvarpsins út af óánægju
fólks með einokun knattspyrnunnar
í íþróttaþáttunum. Mín tillaga er sú
að tveir þættir verði, annar heiti
Boltaþáttur og þar verði aðeins
boltaíþróttir, hinn þátturinn verði
svo fyrir aðrar íþróttir og þeim þætti
myndi einhver annar en Bjarni Fel-
ixson stjóma. Þannig geta allir feng-
ið eitthvað fyrir sig og geta þá vænt-
anlega hætt að rífast.
Margir hafa látið í ljós óánægju með að fá ekki að sjá hinar ýmsu
íþróttagreinar í sjónvarpinu.
Gervihnettir eru mikið til umræðu þessa dagana og sýnist sitt hverj-
um.
Greitt fyrir það sem
á að vera ókeypis
Sjónvarpsnotandi skrifar:
Mikið þykir mér óforskammað að
Póstur og sími skuli selja okkur
sjónvarpsnotendum það sem þeir
eiga ekkert í. Ég er hér að tala um
sifnot af breskum sjónvarpshnetti
sem Bretar hafa nú samkvæmt frétt
í DV þegar veitt okkur afnot af án
greiðslukvaðar. Það væri gaman að
sjá einhver viðbrögð Pósts og síma
við þessari athugasemd ef þeir vilja
eitthvað svara fyrir sig. Reyndar efa
ég að þeir hafi nokkurt svar á tak-
teinum.
Lengi að fá línu
Óánægður símnotandi skrifar:
Ég vil koma með athugasemd
vegna lélegrar þjónustu Póst-’ og
símamálastofnunar. Hvers vegna
er næstum ófært að hringja úr
Breiðholtinu milli klukkan 19 og
20? Oft tekur milli 15 og 20 mínútur
að £á línu niður í bæ. Mér finnst
leiðinlegt að þurfa að borga fleiri
þúsundir í afiiotagjöld og þjónust-
an ekki betri’en þetta. Vinsamleg-
ast reynið að ráða bót á þessu!
Breiðholtsbúar eru ekki í nógu
góðu símsambandi viö bæinn
milli klukkan 19 og 20 að sögn
símnotanda.