Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Qupperneq 20
20
D V. MIÐVIKUD AGUR 22. JANÚAR1986.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþró
Skyttan brást
á örlagastundu
Danski handknattleiksmaðurinn
Keld Nielsen vakti mikla athygli á
Baltic Cup keppninni í handknattleik
sem fram fór í Danmörku i siðustu
viku. Nielsen þessi tekur jafnan öl!
vítaköst sem danska landsliðið fær i
leikjum sínum og hefur hann sýnt
feiknalegt öryggi á vitalínunni eins
og islenskir handknattleiksunnend-
ur muna eflaust eftir frá landsleikj-
unum hér heima gegn Dönum rétt
fyriráramótin.
En svo bregðast krosstré sem önn-
ur tré. í síðasta Ieik Dana á Baltic
Cup, gegn A-Þjóðverjum var Nielsen
búinn að skora úr fjórum vítaköstum
þegar hann loks klikkaði og skaut
langt framhjá. Næsta viti Dana tók
Erik Veje Rasmusen og skoraði
hann. Enn fengu Danir víti á loka-
mínútunum og Leif Mikkelsen sagði
Nielsen að reyna á ný. Skemmst er
frá því að segja að Wieland Schmidt
varði skot hans. Að undanförnu hef-
ur Nielsen tekið 56 viti fyrir Dani og
skorað úr 46 þeirra sem verður að
teljastmjöggott. -SK.
Enginn ísl.
dómari
£ LIU
atiM
— í Mexíkó í sumar
FIFA, alþjóðaknattspyrnusam-
bandið, tilkynnti í gær nöfn 36 dóm-
ara, sem munu dæma leikina í úr-
slitakeppni HM í knattspyrnu í Mex-
íkó í sumar. 19 þeirra eru frá Evrópu,
6 frá Suður-Ameríku, 4 frá Mið-
Ameríku og eyjum i Karíbahafinu, 3
frá Afríku og aðrir þrír frá Asíu. Einn
frá Eyjaálfu.
Enginn islenskur dómari dæmir á
HM. Þeir 19, sem valdir voru frá
Evrópu, skiptast á 19 lönd. Aðeins
einn frá Norðurlöndunum, Sviinn
Erik Fredriksson. Þrír eru frá Bret-
landseyjum. George Courtney, Eng-
landi, Alan Snoddy, Norður-írlandi,
og Brian McGinlay, Skotlandi. Með-
al þekktra dómara má nefna Bogdan
Dotschev, Búlgaríu, Vojtech
Christov, Tékkóslóvakiu, Volker
Roth, Vestur-Þýskalandi, Jan Keis-
er, Hollandi, Lajos Nenieth, Ungverj-
alandi, og Valery Butenko, Sovétríkj-
unum. -hsím
16 konur
valdarí
körfulandslið
— semtekurþáttí
NMíSvíþjóð
Landslið kvenna i körfuknattleik
mun taka þátt í Norðurlandamótinu
í ár sem fram fer í Uppsölum i Svíþjóð
í aprílmánuði nk. Sextán körfuknatt-
leikskonur hafa verið valdar til æf-
inga fyrir mótið og munu æfingar
hefjast að afloknum úrslitaleikjum i
bikarkeppninni um miðjan mars.
Eftirtaldar stúlkur hafa verið valdar
ilandsliðshópinn:
Anna Björk Bjarnadóttir....ÍS
Anna María Sveinsdóttir...ÍBK
Björg Hafsteinsdóttir.....ÍBK
FríöaTorfadóttir...........ÍR
Guðlaug Sveinsdóttir......í BK
Guðrun Gunnarsdóttir.......ÍR
Hafdís Helgadóttir.........ÍS
Helga Friðriksdóttir.......ÍS
Hrafnhildur Pálsdóttir.Haukum
Kolbrún Leifsdóttir
María Jóhannsdóttir.... UMFN
Sóley Indriðadóttir..........Haukum
Sólveig Pálsdóttir.....Haukum
Vala Ulfljótsdóttir........í R
Þóra Gunnarsdóttir.........ÍR
Þórunn Magnúsdóttir.....UMFN
Eins og komið hefur fram i fréttum
hafa körfuboltakonur úr KR ekki
gefið kost á sér í landsliðið vegna
ágreinings við stjóm KKÍ. Landsliðs-
þjálfari er Kolbrún Jónsdóttir.
-SK.
Ekkert vandamál
hjá Valsmönnum
Nú sigruðu þeir Framara örugglega með 92 stigum gegn 79
og eru komnir í undanúrslitin í bikamum í körf u
Valsmenn áttu ekki í umtalsverð-
um vandræðum með að tryggja sér
réttinn til að lejka í undanúrslitum
bikarkeppni KKÍ er þeir mættu Fram
í síðari leik liðanna í 8-Iiða úrslitun-
um í Hagaskóla i gærkvöldi. Vals-
menn sigruðu með 92 stigum gegn 79
eftir að staðan í leikhléi hafði verið
Eins og við var búist unnu Haukar
mjög öruggan sigur í gærkvöldi ó
Stúdentum í fyrri leik liðanna í 8-liða
úrslitum bikarkeppni KKÍ er liðin
mættust í íþróttahúsi Hagaskóla.
Haukunum tókst þó ekki að skora
100 stig. Lokatölur urðu 98-51 en
staðan í leikhléi var 50-20 Haukum í
vil.
Það var aldrei spurning um hvort
liðið væri betra og greinilegur
klassamunur á úrvalsdeildarliðinu
39-35 Val í vil. Valur vann fyrri leik
liðanna með tveggja stiga mun.
Framarar byrjuðu vel og komust í
5-0 og höfðu frumkvæðið lengi fram-
an af fyrri hálfleik og þegar fyrri
hálfleikur var um það bil hálfnaður
var staðan 20-14 Fram í vil. Þeir
bláklæddu gáfu síðan eilítið eftir á
og 1. deildar liðinu. Leikurinn var
aldrei spennandi en engu að síður
var spennandi í síðari hálfleik að sjá
hvort Stúdentum tækist að skora 50
stig eða meira. Ástæðan var sú að
þjálfari Haukanna, Einar Bollason,
sagði við sína menn í leikhléi að ef
þeir fengju á sig 50 stig yrðu þeir
látnir gjalda þess með auka þrekæf-
ingu í kvöld (hlaupa 5 Síberíur). Og
það verða leikmenn Hauka að gera
í kvöld. -SK.
lokamínútum hálfleiksins og Vals-
menn höfðu fjögurra stiga forskot í
leikhléi eins og áður sagði. Síðan
jókst munurinn jafnt og þétt eftir að
staðan hafði verið 56-53 Val í vil og
Valsmenn komust í 76-59 og leiknum
lauk síðan með öruggum sigri þeirra,
92-79.
STIG VALS: Kristján Ágústsson 18,
Leifur Gústafsson 18, Tómas Holton
18, Einar Ólafsson 14, Jón Stein-
grímsson 10, Torfi Magnússon 7,
Sigurður Bjarnason 4 og Sturla Ör-
lygsson 2.
STIG FRAM: Símon Ólafsson 21,
Þorvaldur Geirsson 20, Ómar Þrá-
insson 11, Lárus Thorlacius 7, Auð-
unn Elísson 8, Bjöm Magnússon 4,
Guðbrandur Lárusson 4 og Jóhann
Bjarnason 4. Leikinn dæmdu Ómar
Schewing og Kristbjöm Albertsson.
___________________^SK.
Innanhússmót
ífrjálsum
• Fró leik ÍS og bikarmeistara Hauka sem lyktaöi meö öruggum sigri Hauka,
98-51.
Innanhússmeistaramót Islands í
frjálsum íþróttum í flokkum drengja,
sveina, stúlkna og meyja verður
haldið 1. og 2. febrúar nk. Laugardag-
inn 1. febrúar hefst mótið í Baldurs-
haga kl. 13.00 og verður síðan fram
haldið í Ármannsheimilinu kl. 17.00.
Sunnudaginn 2. febrúar hefst mótið
kl. 11.30 í Ármannsheimilinu en verð-
ur síðan fram haldið í Baldurshaga
kl. 14.00.
Á mótinu verður keppt í eftirtöld-
um greinum:
DRENGIR: 50 m hlaup, 50 m grinda-
hlaup, langstökk, hástökk, stangar-
stökk, kúluvarp, langstökk án at-
rennu, þrístökk án atrennu og há-
stökk án atrennu.
SVEINAR: 50 m hlaup, 50 m grinda-
hlaup, langstökk, hástökk, Iang-
stökk án atrennu, þrístökk án at-
rennu og hástökki án atrennu.
STÚLKUR: 50 m hlaup, 50 m grinda-
hlaup, langstökk, hástökk og lang-
stökk án atrennu.
MEYJAR: 50 m hlaup, 50 m grinda-
hlaup, langstökk, hástökk og lang-
stökk án atrennu.
Þátttökutilkynningum skal skila á
þar til gerðum þátttökuspjöldum til
Stefáns Jóhannssonar fyrir mánu-
daginn 27. janúar. Þátttökugjald er
kr. 100 fyrir hverja grein.
• Sigurjón Kristjánsson er hér iw
klæðast næsta sumar.
— segir Helgi Bentsso
„Það er 100 % öruggt að ég mun
spila með Víði frá Garði næsta sumar
ef ég á annað borð kem heim frá
Þýskalandi," sagði Helgi Bentsson
knattspyrnumaður i samtali við DV
í gærkvöldi. Helgi Bentsson hélt í
morgun til Þýskalands þar sem hann
mun leika með 4. deildar liði fram á
vorið að minnsta kosti.
„Ef vel gengur er aldrei að vita
hvað maður gerir. En ef ég kem héim
til Islands aftur þá er það alveg
öruggt að ég leik með Víði frá Garði
í 1. deildinni næsta sumar,“ sagði
Helgi ennfremur.
Vítaskot Jóns á lokasek-
úndunni komu ÍBK áf ram
—liðið vann tólf stiga sigur á ÍR, 91-79, og komst í undanúrslit í bikarkeppni KKÍ|
Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttaritara
DV á Suðurnesjum:
Þegar ein mínúta og sautjón sek-
úndur voru eftir af leik ÍBK og
Hauka í seinni viðureign liðanna í
8-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ var
staðan 82-77 og allt leit út fyrir að
ÍR væri öruggt um sæti í undanúr-
slitum. Liðið hafði sigrað fyrri leik-
inn méð tólf stigum, 93-81. En heima-
menn voru öllu taugasterkari á loka-
mínútunum og liðið náði að vinna
tólf stiga sigur, 91-79, og komast
áfram á fleiri stigum skoruðum á
útivelli. Það var Jón Kr. Gíslason
sem tryggði Keflvíkingum saman-
lagðan sigur með tveimur vítaskot-
um er fóru rétta boðleið á lokasek-
úndunni. Staðan í hálfleik var
49-46.
Lengi vel leit út fyrir að ÍR-liðinu
yrði ekki skotaskuld úr því að halda
forskoti sínu frá fyrri leiknum. Fyrri
hálfleikurinn var yfirleitt hnífjafn,
ÍR-ingar náðu reyndar fjögurra stiga
forskoti, 36-32. Þá varð liðið fyrir
því óláni að missa sinn langbesta
mann út af, Ragnar Torfason, eftir
að hann hafði slasast á enni eftir
samstuð við Jón Kr. Gislason. Það
virtist virka hvetjandi á Keflvíkinga
en letjandi á ÍR-inga sem ekki skor-
uðu næstu fjórar mínútumar á eftir.
Á meðan skoruðu Keflvíkingar
þrettán stig og breyttu stöðunni í
45-36. ÍRringar minnkuðu muninn
fyrirhléí þijústig.
I seinni hálfleiknum leit lengst af
út fyrir að nesti ÍR myndi duga. Að
vísu munaði tólf stigum á liðunum,
67-55, er átta mínútur voru búnar
af seinni hálfleiknum en ÍR náði að
minnka forskotið aftur. Það var síð-
an ekki fyrr en á lokasekúndu leiks-
ins að úrslitin réðust eins og áður
sagði.
Guðjón Skúlason og Jón Kr. Gísla-
son voru bestu leikmenn Keflvík-
inga. Sérstaklega vakti góður leikur
Guðjóns athygli en þetta er líklega
besti leikur hans með liðinu.
Lið ÍR sem hvílir í neðsta sæti
úrvalsdeildarinnar lék oft á tíðum
mjög vel. Liðið var mjög hreyfanlegt
og leikur þeirra var mjög hraður.
Ragnar Torfason stóð upp úr hjá
liðinu. Geysilega sterkur bæði í vörn
og sókn. Auk hans léku þeir Karl
Guðlaugsson, Bjöm Steflfensen og
Jón öm Guðmundsson vel en allir
hafa þó sýnt betri frammistöðu en í
gærkvöldi.
Leikinn dæmdu þeir Jón Otti og
Jóhann Ðagur. Langt er síðan Jón
Otti skipaði sér í röð úrvalsdómara
en Jóhann Dagur virðist á góðri leið
með það líka. Hann hefur verið rojög
vaxandi og tekur framförum með
hverjum leik. - Dómgæsla þeirra var
afbragð.
Stig ÍBK: Guðjón 29, Jón Kr. 16,
Hreinn Þorkelsson og Sigurður Ingi-
mundarson 13, ólafur Gottskálksson
9, Hrannar Hólm 7, Ingólfur Har-
aldsson og Þorsteinn Bjamason 2.
Stig IR: Ragnar 29, Jón öm 18,
Karl 12, Bjöm S. 11, Vignir Hilmis-
son 4, Jóhannes Sveinsson 3, Bjöm
Leósson 2.
-fros