Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Síða 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986. 31 Peningamarkaður Sandkorn Sandkorn Flugleiðir hafa líka flutt minka og sjálfsagt átt viö sömu lykt- arvandamál aö glíma og þeir fyrir vestan. Fýluferðir hf. Flugfélagið Ernir hf. á tsafírði flutti nokkuð óvenjulega farþega fyrir nokkru. í þremur ferðum flutti það 480 minka frá Sauðárkróki til fsafjarðar. Þetta er ekki í frásögur færandi nema vegna þess að minkar hafa þann eigin- leika að þeir eru ákaflega illa lyktandi. í hvert sinn sem vélamar lentu með þessa illa þefjandi farþega opnuöu flugmennirair allar gáttir, grænir í framan, og sugu í sig ómengað vest- firskt fjallaloft. Eftir þessa flutninga þyk- ir gárungum fyrir vestan rétt að nefna félagið Fýlu- feröir hf. Hraðaksturá ísafirði Og fyrst við erum komin vestur á firði er ekki úr vegi að glugga nánar í Vestfirska fréttablaðiö. í siöasta tölublaöi er greint frá því að ökumenn á fsafirði séu ekki teknir fyrir of hraðan akstur fyrr en eftir klukkan fimm á dag- inn. Skýringin á þessu er sögö vera sú aö fyrir klukk- an fimm hafi lögreglan ekki nægilega mikinn mannafla til að eltast við ökufanta og sektaþá! Nú mun ástandiö þar í bæ vera þannig aö allt er á fieygiferð fyrir klukkan fimm og síðan sett í lággir eftirþann tima. Sparisjóós- stjóri í Hafnar- firöi Starf sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Hafnaiflarðar er nú laust til umsóknar. Það losnaöi eftir fráfall Guð- mundar Guðmundssonar. Ýmsir munu líta þetta starf hýru auga um þessar mundir. Sandkorn getur Árni Grétar Finnsson hæsta- réttarlögmaöur. upplýst að sá sem líklega hreppir hnossið er Árai Grétar Finnsson hæstarétt- arlögmaður. Ristuð mús Og Vestfirska fréttablað- ið heldur áfram að skýra lesendum frá hinni dæma- lausu veröld. Rafvirkjar í Pólnum á fsafiröi fengu fyrir nokkru brauðrist til viðgerðar. Þeir undruðust að frá brauðristinni lagði slæman þef. Þegar nánar var að gáð kom i ljós að dauð mús hafði hafnað i brauðristinni. Hún var vel ristuð og eftir þvi illa farin. Rafvirkjarair komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri ráölegt að koma þess- ari vél í gagnið aftur og hafnaði hún á ruslahaug- unum. Raunirsjón- varpsstjömu Sjónvarpsáhorfendur fengu nýverið að kynnast verðandi sjónvarpsstjörn- um i þættinum á Líöandi stundu. Þar voru á ferðinni þau Agnes Bragadóttir og Sigmundur Ernir Rúna- rsson. Bæði eru þau þekkt af blaðamannastörfum og hafa litið átt við sjónvarps- störf fram til þessa. Sigmundur Ernir, blaöamaöur og verðandi sjónvarpsstjarna, í „axjón‘*. Dagblaöið Dagur ræddi við Sigmund Erni eftir þennan þátt enda mun hann vera Akureyringur. Við grípum niður í viðtalið þar sem hann lýsir liðan sinni fyrir fyrstu útsend- inguna. „Ég var nú svolítið ótta- sleginn framan af miðviku- deginum af þvi að mér fannst ég ekki vera nægi- lega stressaöur. En þegar áhorfendur voru komnir i salinn fann ég aö það voru óþarfa áhyggjur. Þá fann ég að alvaran var að nálg- ast, munnurinn gat þornað upp á augabragði og mag- inn var sérstaklega slæm- ur. Þegar þátturinn byijaði svo vorum við send allt of snemma inn, á meðan upp- hafsstefið var i gangi. Ómar var byijaður aö kynna en þá vorum við send til baka og látin byrja upp á nýtt. Ég signdi mig bara og hugs- aði: nú þetta byijar þá svona, því mér datt ekki annað í hug en klúöriö heföi allt farið i loftiö. En fall er fararhcill því þáttur- inn gekk áfallalitið i út- sendingu eftir þetta. Þetta atvik varð til þess að maður var sveittarí í upphafinu en annars hefði orðið en það lagaðist." Af þessu má heyra að það er ekki bara leikur einn að standa frammi fyrír alþjóð i beinni útsendingu í fyrsta Umsjón: Amar Póll Hauksson. Kvikmyndir Kvikmyndir Austurbæjarbíó — Lögregluskólinn 2 Einu sinni er nóg Einn hinna nýútskrifuðu lögreglumanna þarf hér að komast á klósettið sem fyrst eins og sjá má. Innlán með sérkjjörum Alþýöubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stœður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir veröa fulira 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stœður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjömu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafiivöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stœður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Viö fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaöarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Tvisvar á ári má taka út án þessa frá- dráttar. 18 mánaða reikningur er með innstseðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% áreávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iönaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% áreávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hveiju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 39,2% áreávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyret 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eflir 6 mánuði 37% og eftir 12 mánuði 37%. Áreávöxtun á óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningmn reyn- ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtuh óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árelok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. öndvegisreikningur er bundinn til 18 mánaðar, verðtryggður og með 7% nafnvöxtr um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá árefjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er áreávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess árefjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila árefjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% áreávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annare almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir 7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið- um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð- stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð- bætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta- auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum reikningum bankanna og með 50% álagi. Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis- tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9% vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn- lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu SDR. Almenn veröbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og áreávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarejóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 áre. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. árefjórðungi 1985: Til kaupa í fyreta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annare mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annare mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyretu kaupa, annare mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyretu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóöa Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfetíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuöstól oftar á ári verða til vaxtavextir og áreávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og áreávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyret 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og áreávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dróttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,125%. Vísitölur Lánskjaravisitala f janúar 1986 er 1364 stig en var 1337 stig í des. 1985. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 &4 janúar 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. Lögregluskóllnn 2 (Police Aca- demy 2). Leikstjóri: Jerry Parfs. Handrlt: Barry Blaustein og David Shetfleld. Kvikmyndun: James Crabbe. Aðalhlutverk: Steve Guttenberg, Bubba Smlth, David Graf og Mic- hael Wlmslow. Lögregluskólinn 1 var með frísk- ari gamanmyndum á síðasta ári. Það er nokkuð snjöll hugmynd að gera gamanmynd úr þeim efniviði sem lögregluskóli er. Enda voru vinsældir myndarinnar miklar. Sjálfsagt hefúr þótt að gera fram- hald myndarinnar sem fyrst. Og svo fljótt sé farið yfir sögu hefði mátt bíða með framhald eða, það sem betra hefði verið, að sleppa fram- haldsmynd alveg. í myndinni Lög- regluskólinn 2 fáum við að sjá aftur nákvæmlega sömu uppákomur og voru í fyrri myndinni og þessar uppákomur eru ekki það frumlegar að þær þoli það að vera gerðar í tvígang. í þetta skiptið er lögregluskólinn ekki sögusviðið - enda útskrifuðust nemendumir í síðustu mynd - held- ur borgarhluti þar sem glæpir hafa aukist svo mjög að yfirlögreglu- þjónninn er orðinn hræddur um stöðu sína. Þar sem það vill svo til að skólastjóri lögregluskólans er bróðir hans leitar hann hjálpar hjá honum um mannskap. Og mann- skapurinn sem hann fær eru kunn- ingjar okkar úr fyrri myndinni. Eins og vænta má gengur nú ekki allt sem skyldi hjá þessu skraut- lega liði og er ekki hægt að neita því að sumar uppákomumar em nokkuð sniðugar, en þau atriði em fleiri þar sem fíflagangurinn er of yfirgengilegur til að hægt sé að hlæja að. Sérstaklega á þetta við um viðskipti lögreglunnar við óaldarflokk sem hertekur hverfið. Allar senur í kringum þennan óald- arflokk, sem stjómað er af einstak- lega leiðinlegri persónu, em mis- lukkaðar. Betur lukkuð eru atriði þar sem hinir ungu lögreglumeun reyna að verjast ásókn varðstjóra eins, Mauser, sem ætlar sér að taka við af yfirmanninum og beitir til þess ýmsum ráðum sem er svarað í sömu mynt af hinum ungu vörðum lag- 1 heild aftur á móti er Lögreglu- skólinn 2 misheppnuð gamanmynd og erilla farið með góðar týpur sem urðu til í fyrri myndinni. Frést hefur að nú sé verið að gera Lögreluskólann 3 vestur í Bandaríkjunum. Ekki get ég ímyndað mér að það séu margir sem bíða þeirrar myndar með til- hlökkun. Allavega þarf hún að vera mun betri en þessi til að ein- hverjir komi og sjái framhald ævin- týra nýútskrifúðu lögreglumann- VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 21.-31.01. 1986 innlAnmeðsérkjúrum ■8 | jLe í E Éj f sjA SéRLISTA 11 í! II II íl il H II II H innlAn óverðtryggð SPARISJðOSBÆ KU R Úbundin innstiaAa 22.0 22.0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3j. mán. uppsógn 25,0 28,1 25.0 25.0 23.0 23,0 25.0 23.0 25.0 25.0 fimán.uppsögn 31,0 33,4 30,0 28,0 26.5 30.0 29,0 31,0 29.0 12mán.uppsögn 32,0 34,6 32,0 31.0 33.3 SPARNAÐUR - LANSRtTTUR Sp.r.ð 3 5 mán 25.0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0 INNLANSSKlRTEINI Sp.lmán. ogm. Til 6 mánafts 29.0 29.0 30.0 28.0 26.0 23.0 29.0 29.0 29.0 tEkkareikningar Avissnsraikningar 17.0 17,0 1.0 8.0 10.0 10.0 1.0 10.0 10.0 HUupsrsikningar 10.0 10.0 1.0 8.0 10.0 10.0 1.0 10.0 10.0 innlAn verðtryggð sparireikningar 3). mán. uppsögn 2.0 3.5 1.5 3.6 1.0 3.5 1.0 3.0 1.0 3.5 1.0 3.5 1.0 3.0 2.0 3.5 1.0 3.0 innlAn gengistkvggð gjaldeyrisreikningar Bandirikjsöollir.r Starlingspund Vastur-^ýsk mörit Oanskar krónur 9,0 11,5 5,0 10.0 1.0 11.5 4.5 «.5 7.5 11.0 4.25 1.0 7* 11.0 4.0 0.0 7.5 11.6 4.5 I.D 7.5 11.0 4.5 0.0 7.5 11.0 4.5 0.0 7.5 11.5 5.0 10.0 1.0 11.5 4.5 1.0 útlAn úverðtryggd ALMENNIR VlXLAR (tonraxtir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 VIDSKIPTAVlXLAR (forvaxtir) 34.02) kf 34.0 kga 32.5 kga kga 34.0 ALMENN SKULOABRÉF 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 VI0SKIPTASKUL0ABRÉF 35,02) lp 35.0 kf 33.5 kf 3M HIAUPAREIKNINGAR útlAnverðtryggo YFIItÐIUnUR 31.5 31.6 31.5 31.5 31.5 31.5 31.6 SÁ 31.5 skuldabrEf AA21/2ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Langrian21/2ár 5.8 6.0 5.0 5.0 5.0 6.0 €.0 5.0 6.0 UTLAN TIL FRAMLEIOSLU sjAnhmnmáisi) 1) Lén til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10%, í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafriarfiröi, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabiéf til uppgjörs vanskÚalána er 2% á ári, hæði á verðtryggð og óverðtiyggð lán, nema í Alþýðubankanum og Veralunaibankanum. anna. anna. - Hilmar Karlsson. kkkk Frábær irtrk Góð kk Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.