Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1986, Síða 37
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986.
37
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Andrew er hinn hressasti en ef
treysta má breskum fjölmiðlum
er það einungis leikaraskapur -
sviðsett til að dylja blendnar til-
finningar og mikla togstreitu.
Drauma-
• •
pnnsrnn
fundinn!
„Minn draumaprins er háleggjaður,
stóreygur, snögghærður og einstak-
lega kvikur í hreyfingum!" Þriggja ára
ástralíumærin Monica Crauss með
sinn heittelskaða í fanginu.
Þau eru óía ævintýrin sem greina
frá því er froskur á fömum vegi sníkir
koss af nærstaddri kvenvem og breyt-
ist umsvifalaust í prinsinn eina. Fram-
undan er svo eilif sæla í sérdeilis far-
sælli sambúð. Yngri sagnir herma þó
oftar að eftir kossinn umhverfist
draumaprinsinn í frosk af ferlegasta
tagi sem reynist óalandi og ófeijandi
áflestavegu.
Monica Crauss í Ástraliu er þama
með draumafroskinn í fanginu og
spumingin er bara þessi - er myndin
tekin fyrir eða eftir kossinn eina?
Þegar björgunarmennirnir komu til þess að taka enn eitt fórnarlambið úr eldgosinu reis „líkið“ upp oghljóðaði: „Mamma, mamma ...!“
Úr leðjunni tíl lífsins
Náttúruhamfarirnar sem fylgdu í
kjölfar eldgossins í kólombíska
bænum Armero kostuðu fjölda
manns lífið og þegar bamslíkami
kom í ljós í leðjunni tveimur dögum
eftir slysið kom ekki nokkrum
manni til hugar að þar leyndist
eitthvert lífsmark. En hinn fjög-
urra ára gamli Guillermo Paez reis
upp grátandi þegar hann varð
mannaferða var og með aðstoð
þyrlu tókst að ná honum upp úr
moldarfljótinu. Daginn eftir af-
hentu svo starfsmenn Rauða kross-
ins móður Guillermo soninn sem
hún hafði gefið upp alla von um
að sjá framar í þessu lífi. Hann
hefur varla verið bráðfeigur, sá
stutti!
Tveimur dögum eftir hamfarirnar - hreyfingarlaus barnslíkami finnst i leðj unni.
Drengurinn var dreginn á þurrt af fjölda hjálparhanda - kraftaverkið vakti einlæga
gleði björgunarsveitarfólksins.
Guillermo Paez var fengin gulrót að naga til þess
að! koma einhverri fæðu í líkamann.
Orlagaríknr atburður
Bifreið Kennedys dregin upp við
Chappaquiddickbrúna árið 1969.
Voru þetta endalokin fyrir Ted
Kennedy - óyfirstíganleg hindrun á
leiðinni í Hvíta húsið?
Slysið við Chappaquiddick árið
1969, þar sem einkaritarinn Mary Jo
lét lífið en Edward Kennedy slapp
með skrekkinn, er af mörgum talið
aðalhindnmin á leið þessa þriðja
Kennedybróður-í forsetastólinn í
Bandaríkjunum. Enn einu sinni hef-
ur Ted lýst því yfir eftir mikla um-
hugsun að hann gefi ekki kost á sér
til embættis í næstu kosningum.
Meðfylgjandi mynd birtist í blaði þar
vestra eftir að orðrómur um að Ted
myndi freista þess að hljóta útnefii-
ingu fékk byr undir báða vængi og
sýnir hún þegar bifreiðin er dregin
upp við Chappaquiddick. Lík ungu
stúlkunnar fannst í aftursæti bifreið-
arinnnar og ýmislegt í framburði
öldungadeildarþingmannsins þótti
síst traustvekjandi. Óþægilegt mál
sem dregið er fram í dagsljósið af
andstæðingum í hvert skipti sem
þessi yngsti Kennedybóðir gerir sig
líklegan til að samþykkja framboð
sitt til forseta Bandaríkjanna.