Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Blaðsíða 4
4 DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986. Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál KRISTIN „Við undirritaðar fögnum ein- urð okkar nýkjöma varafor- manns...teljum hana góðan odd- vita fyrir Alþýðubandalagið í komandi kosningabaráttu og í næstu borgarstjóm....hvetjum flokksfélaga til að fylkja sér um varaformanninn...störf hennar sýna að hún er þess verðug." (Úr bréfinu „Ný sókn - kona í fyrsta sætið“ sem tíu konur sendu til flokksfélaga. Þær eru: Steinunn Jóhannesdóttir, Jófríð- ur Björnsdóttir, Helga Sigur- jónsdóttir, Guðmunda Helga- dóttir, Margrét S. Bjömsdóttir, Valgerður Eiríksdóttir, Bergþóra Gísladóttir, Guðbjörg Sigurðar- dóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Margrét Ásgeirsdóttir, G. Stella Hauksdóttir, Margrét Pála Ól- afsdóttir, Stefanía Traustadóttir og Ama Jónsdóttir.) ÖSSUR „Við verðum að taka upp miklu harðari og snarpari stjórnarand- stöðu...(það) þarf meiri baráttu- gleði í borgarstjómina, kraft- meira andóf...saman getum við, fólkið í flokknum, reist baráttuna úr þeirri lægð sem hún hefur verið í.“ (Úr bréfi Össurar Skarphéðins- sonar, ritstjóra Þjóðviljans.) TRYGGVIOG JÓHANNES „Við viljum vekja athygli þína á Tryggva Þór Aðalsteinssyni og Jóhannesi Gunnarssyni-.viljum við tryggja Tryggva 3. sæti list- ans og Jóhannesi 6. sætið.“ (Úr bréfi Baldurs Óskarssonar, Helga Guðmundssonar, Ingi- bjargar Haraldsfdóttur, Sölva Ólafssonar, Gils Guðmundsson- ar, Ingibjargar Jónsdóttur, Sig- urrósar M. Sigurjónsdóttur og Þorsteins Blöndals.) GUÐMUNDUR „Að höfðu samráði við nokkra félaga innan raða Alþýðubanda- lagsins hvetjum við þig til að setja Guðmund Þ. Jónsson, vara- formann Iðju, félags verksmiðju- fólks, og formann Landssam- bands iðnverkafólk, í 3. sæti.“ (Úr bréfi Ásmundar Stefáns- sonar, Guðmundar J. Guðmunds- sonar, Grétars Þorsteinssonar og Guðjóns Jónssonar.) SIGURJÓN „Framundan er hörð barátta við afturhaldsöflin...því aðeins geta frambjóðendur verið sókn- djarfir að þeir viti að þeir hafi verið valdir til verksins með víð- tækri þátttöku og þannig öflug- um stuðningi. Ég hvet þig því félagi til að ...leggja þitt af mörk- um til að framboðslisti flokksins verði sem sigurstranglegastur." (Úr bréfi Sigurjóns Pétursson- ar.) GUÐRÚN „í vor hætti ég í borgarstjóm eftir 20 ára veru þar...Mig langar til að láta þess getið að það mundi gleðja mig mjög að sjá Guðrúnu Ágústsdóttur taka við af mér í öðru sæti listans." (Úr bréfi Öddu Báru Sigfús- dóttur.) SKÚLI „Ég er þeirrar skoðunar að breytinga sé þörf á starfsstíl Alþýðubandalagsins...Eigi fólkið í borginni að geta litið á okkur sem raunverulega fulltrúa þess verðum við að starfa í samvinnu við það...Ég sækist eftir 3.-4. sæti listans." (Úr bréfi Skúla Thoroddsens.) ANNA HILDUR „Við teljum æskilegt fyrir hreyfinguna að ung kona skipi baráttusæti listans. Þess vegna beinum við þeirri áskomn til fé- laga okkar að velja Önnu Hildi í 4. sæti listans." (Úr dreifiriti Æskulýðsfylking- arfélaga.) Gifurleg smö/un og haröur áróður í prófkjöri Alþýóubandalagsins: Hörkulegustu átök frá Tónabíósfundi Gífurleg harka er hlaupin i forval Alþýðubandalagsins í Reykjavík, en því lýkur í kvöld. Slík átök um fram- boðslista hafa ekki þekkst í þeim flokki síðan á Tónabiósfundinum fræga þegar þáverandi „flokkseig- endafélag" Alþýðubandalagsins (áð- ur Sósíalistaflokksins) gekk milli bols og höfuðs á Hannibalistum við ákvörðun um framboð í Reykjavík. Ljóst virðist að úrslit forvalsins, en þau ættu að liggja fyrir í nótt eða fyrramálið, geta haft vemleg áhrif á þróun mála innan flokksins næstu misseri. Kosningaslagurinn hefur verið háður af miklum krafti, og stundum hreinum fjandskap, ekki síst síðustu dagana. Dreift hefur verið mörgum bréfum til stuðnings einstökum frambjóðendum í ákveðin sæti, eins og vitnað er til hér á síðunni. Helstu frambjóðendur hafa kosningastjóra og kosningasmala á þönum um bæ- inn. En mestur er þó áróðurinn í símanum, þar sem forystumenn jafnt sem hjálparkokkar reka stífan áróð- ur fyrir sínum mönnum og þá ekki síður gegn keppinautunum. Tvær fylkingar Alþýðubandalagið hefur nú fjóra borgarfulltrúa af 21. f kosningunum í sumar verður hins vegar aðeins kosið um 15. Af borgarfulltrúum Alþýðubanda- lagsins gefa þrír áfram kost á sér: Sigurjón Pétursson, Guðrún Ágústs- dóttir og Guðmundur Þ. Jónsson, en Adda Bára Sigfúsdóttir hefur dregið sig í hlé. Sú kynslóð í Alþýðubanda- laginu, sem kennir sig við lýðræðið og sem kom sínum fulltrúa, Kristínu Á. Ólafsdóttur, í embætti varafor- manns flokksins á landsfundi fyrir þremur mánuðum, freistar þess í forvalinu að skipta um frambjóðend- ur í efstu sætunum: hafna gömlu borgarfulltrúum flokksins og velja þess í stað nýtt fólk. Tveir frambjóðendur lýðræðiskyn- slóðarinnar, svo notað sé það orð sem þessi hópur hefur gjaman valið sér, lýstu því yfir opinberlega strax og framboð þeirra var tilkynnt að þeir stefndu á tiltekin sæti: Kristín á fyrsta sætið og Össur Skarphéðins- son, ritstjóri Þjóðviljans, á 2.-5. sætið. Þetta hefur ekki áður gerst í þess- um flokki og fór mjög fyrir brjóstið á borgarfulltrúunum og stuðnings- mönnum þeirra í forystu flokksins og verkalýðshreyfingarinnar - þeim hópi sem stundum er kallaður „flokkseigendafélagið“. Sigurjón Pétursson sagði þannig í blaðaviðtali að þetta væri eins og „annar listi" væri kominn fram. Á því stigi var það þó oftúlkun því t.d. Össur lagði á það áherslu að hann teldi sterkast fyrir Alþýðubandalagið að hafa blandaðan lista - bæði „gömul nöfn og ný“. Nú er hins vegar ljóst að slík harka hefur færst í leikinn að fylkingamar stefna á það hvor um sig að kjósa bara sína menn. Ásmundur Stefánsson lýsti því yfir opinberlega fyrir fáeinum dögum að hann myndi kjósa Sigurjón í fyrsta sætið, Guðrúnu í annað og Guðmund Þ. í þriðja. Það er sú lína, sem gamli kjaminn í flokknum fylgir, þótt sumir þar muni þó kjósa Tryggva Þór Aðalsteinsson i 3. sætið í stað Guðmundar. Þessi fylking stefnir síðan á að ung kona, Anna Hildur Hildibrandsdóttir, skipi fjórða sætið. Lýðræðiskynslóðin er nú sömuleið- is með óformlegan lista í gangi. Flestir þar munu kjósa Kristínu í fyrsta sæti, Össur í annað, Skúla Thoroddsen í þriðja, Helgu Sigur- jónsdóttur í fjórða og Guðna Jó- hannsson í fimmta. Frá þessu verða auðvitað í ýmsum tilvikum frávik, en þetta em megin- línumar í fylkingunum tveimur. 7-9 hundruð kjósendur Skilyrði fyrir þátttöku í forvalinu em einföld. Allir, sem em í Alþýðu- bandalaginu í Reykjavík, hafa þar búsetu og skulda ekki meira en eitt árgjald, fá að kjósa. Nýir félagar geta gengið í Alþýðubandalagið á meðan kjörfundur stendur, greitt 500 krónur upp í félagsgjald (léttlyndir flokksmenn kalla það „skemmtana- ' *■ >„*'****. V * ‘**wj>*r ML/ skattinn") og kosið. Aldurslágmark er 16 ár. í félaginu í Reykjavík er á skrá fjölmennur hópur sem tekur engan þátt í forvalinu og mætir ekki á kjörstað. Líklegt er að 4-5 hundmð „gömlu“ flokksfélaganna muni nú kjósa. Sú mikla smölun, sem verið hefur í gangi, hefur skilað miklum fjölda nýrra flokksmanna. Síðdegis í gær höfðu um 230-240 nýir félagar gengið í flokkinn. Ekki er ósennilegt að þeir verði um eða yfir 300 og flestir þeirra muni mæta á kjörstað. Samkvæmt þessu má áætla að kjósendur í forvalinu verði ekki færri Að tjaldabaki ELIAS SNÆLAND JÓNSSON AÐSTOÐARRITSTJÓRI en sjö hundmð, en geti orðið átta til níu hundmð. Nýja fólkið, sem gengið hefur í flokkinn, er af ólíku tagi. Helstu frambjóðendurnir hafa allir komið með nýja félaga, ýmist vini og vanda- menn eða þá aðra stuðningsmenn. Ýmsir, sem hafa verið óflokksbundn- ir en stutt Alþýðubandalagið í kosn- ingum, hafa nú gerst flokksmenn. Þar em t.d. róttækir listamenn nefndir til sögunnar. Þá hafa all- margar konur, sem fylgt hafa kvennaframboðinu, gengið til liðs við Kristínu í von um að kona nái fyrsta sætinu á borgarstjómarlista flokksins í fyrsta sinn. Talið er að meirihluti nýja fólksins sé hliðhollt frambjóðendum lýðræð- iskynslóðarinnar, enda telja stuðn- ingsmenn á þeim vængnum að það muni ráða úrslitum í forvalinu hversu margt nýtt fólk náist á kjör- stað. Sameinaðir foringjar Það hefur gerst í þessum slag, og reyndar í beinu framhaldi atburð- anna á landsfundi Alþýðubandalags- ins í fyrra, að forysta flokksins og æðsta forysta Alþýðusambandsins hefur náð saman. Sá ágreiningur, sem áður var milli Svavars Gestsson- ar og Ásmundar Stefánssonar, er ekki fyrir hendi í þeim átökum sem nú eiga sér stað. Þvert á móti eru þessir foringjar, og þeir sem þeim fylgja að málum, á fullri ferð fyrir gömlu borgarfulltrúana. Það þýðir að vísu ekki að verka- lýðsforystan sé alveg einhuga. Dags- brúnarforystan var þannig ekki reiðubúin að skrifa undir stuðning við Sigurjón í fyrsta sætið. Það mun hafa verið upphaflega hugmyndin að stuðningur við Sigurjón yrði í bréfi verkalýðsforingjanna fjögurra, sem vitnað er til á öðrum stað hér á síð- unni, en vegna andmæla Guðmundar J. Guðmundssonar var þar einungis tekin afstaða til þriðja sætisins. Það er svo athyglisvert að Guð- mundur J. mun vera einn af með- mælendum á framboðsbréfi Þjóð- viljaritstjórans. Þess ber einnig að geta að hluti áhrifaunanna í verkalýðshreyfing- unni styður eindregið Tryggva Þór í þriðja sætið í stað Guðmundar. Einn viðmælenda minna orðaði það svo að „kóngaliðið“ stæði með Guð- mundi en „hirðmennimir“ með Tryggva. En sú samstaða æðstu forystu- manna, sem þó kemur skýrt fram í forvalsslagnum, hlýtur að teljast til tíðinda með tilliti til þess sem á undan er gengið í samskiptum for- ingjanna. Afarhörð viðbrögð Það hefur ekki tíðkast í Alþýðu- bandalaginu að þingmönnum eða borgarfulltrúum sé steypt í forvali. Þegar Kristín og Össur buðu sig fram með þeim hætti að öllum var ljóst að fella ætti borgarfulltrúa úr sessi, vom viðbrögð gamla valdakjamans í flokknum hörð. Áhrifamenn í röðum lýðræðiskyn- slóðarinnar játa það hreinskilnings- lega að það hafi komið þeim gjörsam- tN<;r fölk íellir Davið '■í 1« * ;'*'**&' v**' / , ‘ *y <A V&P 4KX2í'iiít*/■ Pa.>.£ J cí ■ f- wf 1 Forystumenn og frambjóðendur hafa skrifað flokksmönnum bréf og leitað stuðnings i ákveðin sæti. Fulltrúar forystunnar: Sigurjón, Guörún, Guðmundur, Anna Hildur. Fulltrúar lýðræðiskynslóðarinnar: Kristfn, össur, Skúli, Helga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.