Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Blaðsíða 6
6 DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986. Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fvrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Eeikningam- ir em verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29"/n og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum,- Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings rcynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Tvisvar á ári má taka út án þessa frá- dráttar. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar em annaðhvort með 28% nafnvöxtum og <30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5‘y„ vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eftir 6 mánuði 37% og eftir 12 mánuði 37%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reyn- ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári. Utvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samánburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. öndvegisreikningur er bundinn til 18 mánaðar, verðtryggður og með 7% nafnvöxt- um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðh vort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknastalmennirspari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæöu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an- mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársíjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fýrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánúðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. lÁn eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxltunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,125%. v Vísitölur Lánskjaravisitala í janúar 1986 er 1364 stig en var 1337 stig í desember og verður 1396 í febrúar. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 21 -31.01. 1986 INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM ,fi s ± F 11 a.e lí ,t! sjAsérusta ll II II 1 í 11 11 II 11 11 Ai innlAn óverðtryggð SPARISJÖÐSBÆKUR Úbundin irrrtstaa&a 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mén. uppsögn 25,0 26.6 25.0 25,0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 6 mán. uppsogn 31.0 33.4 30.0 28.0 26.5 30.0 29.0 31,0 28.0 12 mán. uppsogn 32,0 34,6 32,0 31.0 33,3 SPARNAÐUR - UNSRÉTTUR Sparað 3 5 min 25.0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0 Sp.6mán.ogm. 29,0 26.0 23.0 29.0 28.0 innlAnsskírteini Til 6 mánafia 28,0 30,0 28.0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Aviunareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 innlAnverðtryggð SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán. uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 innlAn gengistryggd GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 1.0 Starimgspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 Vesturþýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krónur 10,0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIR VlXLAR (forvcxtir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 VlÐSKIPTAVlXLAR (bnraxtir) 34.0 2) kg. 34.0 k* 32.5 kg> kg. kg. 34.0 ALMENN SKU LDABRÉF 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.02) kgc 35.0 kgt 33.5 kg« kg. kg. 35.0 HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 31.5 31.5 31.5 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 31,5 útlAn verðtryggð SKULDABRÉF Að 21 /2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Langri an 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLAN TIL FRAMLEIÐSLU sjAnœanmAisi) l)Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10%, í Bandarflcjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) '7ið kaup á viðskiptavíxlum og viðekipteskuldabréfum er miðað við sérstekt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum setn þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafnarfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavflcur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum. Bretland: BÍÓ aðsóknin eykst í Bretlandi streymir almenningur nú aftur í kvikmyndahúsin eftir að hafa hangsað yfir myndböndum síðustu árin. Fyrir nokkrum árum voru bíóeigendur og kvikmynda- framleiðendur áhyggjufullir yfir minnkandi aðsókn, - hófu sam- ræmda áróðursherferð fyrir því að fólk horfði á kvikmyndir í bíóhús- um - og nú er árangurinn heldur betur að skila sér. Þar til í fyrra voru menn í kvik- hressa upp á hús sín - margir hafa málað upp á nýtt, skipt um húsgögn - staðið fyrir löngu tímabærri andlitslyftingu. I sambandi við herferðina var farið í alla skóla í 23 borgum í Bretlandi og nemendur fræddir um þýðingu kvikmynda- iðnaðarins fyrir þjóðfélagið og fyrir breska menningu. Og fólki bent á síðustu stórafrek breskra kvik- myndaframleiðenda: Chariots of Fire, Educating Rita, Gandhi, A myndahús. Og sjónvarpið, sem svo margir kvikmyndahúsaeigendur hafa bölvað síðustu árin - einnig það verður nú til hjálpar því aukin umfjöllun og sýning vandaðra mynda hefur kveikt áhuga á kvik- myndagerð og nýjum myndum. „Að lyfta sér upp“ í bíó í könnunum, sem gerðar voru í fyrra, kom berlega fram að flestir Michael Caine og Julie Walters í Educating Rita sem margir sáu í Stjörnubíói. Sú mynd varð m.a. til að stór- auka aðsókn að kvikmyndahúsum i Bretlandi. myndaiðnaðinum á því að mynd- böndin myndu gera út af við bíó- húsin og það þrátt fyrir endurreisn í gerð kvikmynda. Nú er ástandið gjörbreytt. í fyrra seldust 34% fleiri að- göngumiðar í Bretlandi en árið á undan. f fyrsta sinn um árabil gerðist það að fleiri kvikmyndahús tóku til starfa en lögðu niður starf- semi. Og á kvikmvndahátíð, sem nýlega var haldin í London, komu fleiri en þeir bjartsýnustu höfðu þorað að vona. Keith Howes, talsmaður breskra kvikmyndaframleiðenda, sagði að nú væru menn bjartsýnir: „Við sjáum framtíðina í rósrauðum bjEirma - ástandið hefur gerbreyst frá því fyrir ári.“ Áróðursherferð kvikmyndafram- leiðenda og bíóeigenda stendur fram í mars. Þessi herferð hefur hrist „videó-glýjuna“ frá augum margra og fólk hefur í stórum stíl „horfið aftur til náttúrunnar" - farið í bíó; breska ríkisstjómin sem og samband kvikmyndaframleið- enda lögðu saman 1,4 milljónir dollara (560 millj. kr.) í þessa áróð- ursherferð. Herferðin hefur m.a. haft það í för með sér að eigendur kvik- myndahúsa hafa fengist til að Passage to India og The Killing Fields. Veðrið hafði sín áhrif Fram undir síðasta ár var allt útlit fyrir að myndböndin myndu gera út af við bíóhúsin og fjölmarga kvikmyndaframleiðendur. Áður en myndböndin komu á markað streymdu 30 milljónir Breta í bíó á viku. 1984 fóru ekki nema 51 millj- ón þeirra í bfó allt árið. Hvert kvikmyndahúsið á fætur öðru lokaði eða var breytt í bingó- sal. Um eitt skeið vom yfir 5000 kvikmyndahús í Bretlandi en í lok 1984 voru þau ekki nema 700. Það sem virtist ætla að verða rothöggið var afnám ríkisstyrkja til kvikmyndaframleiðslu með skattlagningu bíómiða. En nú er öldin önnur, segja kvik- myndaframleiðendur - þökk sé áróðursherferðinni - og auðvitað dapurlegu veðri allt síðastliðið sumar. í könnun, sem nýlega var gerð, kom það fram að þessi aukni áhugi á kvikmyndum og heimsóknum í bíóhús er ekki bara skammtíma- bóla sem bráðum hjaðnar, því þeir sem hafa legið í myndböndum um nokkur undanfarin ár - eru einmitt risnir á fætur og stefha í kvik- vilja að heimsókn í kvikmyndahús sé „eitthvað sérstakt" - tilbreyting í hversdagsleikanum sem hægt er að minnast. Eigendur kvikmynda- húsa höfðu hins vegar látið hús sín falla í niðumíðslu. Bíóin voru orðin lítt aðlaðandi og veittu enga „þjónustu" sem eftirtekt vakti. Nú hafa eigendurnir snúið við blaðinu. Breska sjónvarpið hefur gengið til samstarfs við kvikmyndafram- leiðendur um gerð nokkura „ódýrra“ mynda. Má í því sam- bandi nefna myndir eins og The Draughtsman s Contract, The Plo- ughman s Lunch og þá nýjustu: My Beautiful Laundrette. Hið bandEiríska bíófyrirtæki, AMC, sem á kvikmyndahús með mörgum sölum („Multi-Cinema“ á ensku, kannski fjöl-híó á ís- lensku?), hefur sett upp bíósam- stæðu í smábæ norðan við Lond- on, Nilton Keynes, og eru í því fjöl-bíói 10 litlir salir, veitingahús og heilsuræktarstöðvar. AMC ætlar sér að byggja 30 þannig fjöl-bíó til viðbótar næstu 15 eða 20 árin. Og fleiri fyrirtæki feta í fótsporin. Sem stendur eru 1200 bíódúkar í breskum kvik- myndahúsum. Og mun fjölga stór- um á næstunni. -David Lewis/ Reuter.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.