Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Síða 10
10
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986.
- Hvaða boltaíþrótt er vinsælust
í nektarnýlendum Ameríku?
Leo Munro hristir hausinn eins
og hann sé akki alveg viss um
svarið. Er átt við Norður- Ameríku
eða Suður-Ameríku? Eða alla
Ameríku? Spurningin er ekki nógu
nákvæm en svarið hinum megin á
spjaldinu erákveðið: Blak!
„Get orðið vondur“
Leo Munro er mikill áhugamaður
um Trivial Pursuit, spilið sem farið
hefur sigurför um heiminn eftir að
það kom fyrst út fyrir 6 árum. Is-
lendingar fengu sína eigin útgáfu
um síðustu jól og Leo Munro er
þegar búinn að finna rúmlega 60
spjöld með villum. Það er reyndar
ekkert meira en gerist og gengur í
erlendum útgáfum af spilinu en
rétt er rétt. Eða eins og Leo segir:
„Ég get orðið vondur þegar ég tapa
en á ekki að tapa.“
Leo Munro hefur verið búsettur
hér á landi frá árinu 1958, rak lengi
enskuskóla í Reykjavík en starfar
nú á Keflavíkurflugvelli við að
fræða börn bandarískra hermanna
um ísland. Hann hefur mikinn
áhuga á spurningaleikjum, stendur
meðal annars fyrir einum slíkum
meðal Bandaríkjamanna í Keíla-
vík. Trivial Pursuit hefur hann
leikið lengur en flestir aðrir hér-
lendis og á spilið í mismunandi
útgáfum. Bandaríska útgáfan er
full af villum og það sama má segja
um þá ensku. Þá erú til sérstakar
barnaútgáfur af spilinu, táningaút-
gáfur og jafnvel útgáfur þar sem
eingöngu er spurt um íþróttir eða
kvikmyndir eða önnur sérhæfð
efni.
Æfing fyrir heilann
„Annars þykir mér Trivial Pur-u-
it ákaflega gott og skemmtilegt
spil. Þetta er ágæt æfing fyrir fróð-
leiksfúsa og heldur heilasellunum
í æfingu," segir Leo og leggur á það
áherslu að hann sé ekki að leita
Leo Munro með spjaldabunkann
sem er meira eða minna vitlaus: -
Er ekki að ieita að villum til að ergja
útgefendur. Ég vil bara að rétt sé
rétt. Ofureinfalt mál.
DV-mynd GVA.
Leo Munro: - Hundrað ára stríð-
ið stóð frá 1337-1453 eða í 116 ár.
Á korti nr. 636 er spurt: Hve
margir gíslar fórust í árásinni á
Entebbeflugvöll? Svar: Þrír.
Leo Munro: - Það fórst aðeins
einn gísl, frú Dora Bloch, en ekki
þrír.
Á korti nr. 356 er spurt: Hver
skrifaði skáldsöguna Gulleyjuna?
Svar: Robert Louis Stevenson.
Leo Munro: - Einar Kárason
hefur einnig skrifað skáldsögu er
heitir Gulleyjan.
Á korti nr. 95 er spurt: Hvar bjó
fólk síðast í helli á íslandi? Svar:
Hjá Laugardalsvöllum.
Leo Munro: Vellirnir heita Laug-
aryatnsvellir.
Á korti nr. 291 er spurt: Hver var
fyrsti negrinn sem vann Óskars-
verðlaun? Svar: Sidney Poitier.
Leo Munro: - Hattie MacDaniel
hét fyrsti svertinginn sem fékk
Óskarsverðlaunin.
Á korti nr. 313 er spurt: Hvaða
alþjóðasamtök stofnaði Clara Bar-
ton? Svar: Rauða krossinn.
Leo Munro: - Henry Dunant
stofnaði Rauða krossinn. Clara
Barton stofnaði hins vegar banda-
rísku deild samtakanna.
Á korti nr. 3 er spurt: Hver skrif-
aði leikritið Nashyrningarnir?
Svar: UNESCO.
Leo Munro: - Það var Ionesco
sem skrifaði Nashyrningana.
Unesco er stofnun innan Samein-
uðu þjóðanna.
Jón Baldvin og Indira Gandhi
Þá er ekki úr vegi að geta nokk-
urra korta þar sem spurningar og
svör hafa ruglast. Leo Munro hefur
þegar fundið þrjú slík og dæmi um
þetta er kort nr. 964:
Spurning: Hvað heitir Abessinía
nú á dögum?
Svar: Quitó.
Spurning: Hvað hét fyrsta íslenska
grafíska kvikmyndin?
Svar: Sean Connery.
RETT 0G RANGT
- DV spilar Trivial Pursuit með Leo Munro
eftir villum í spilinu til að ergja
útgefendur. Hann vill bara að rétt
sé rétt. Ofureinfalt mál.
Reyndar hafa ýmsir aðilar fengið
bréf frá Leo Munro þar sem þeir
eru leiðréttir vegna staðreynda-
rugls á prenti. Flestir vilja þjóna
sannleikanum og hafa það sem
sannara reynist og svara því bréf-
um Leos og lofa bót og betrun í'
framtíðinni. Þama er um að ræða
aðila eins og Readers Digest og
ýmsa almanaksútgefendur. Leo á
heila möppu með bréfum sem hann
hefur sent vegna þessa.
„Nei, ég er ekki að leita uppi
villur til þess eins að geta leiðrétt
aðra. Ég les mikið og það er ótrú-
lega margt sem ber fyrir augu sem
einfaldlega stenst ekki. Það er allt
og sumt.“
Hlátur sem breytist í rifrildi
Þegar fólk er að kynnast Trivial
Pursuit er tilhneigingin sú að
hlæja góðlátlega að villunum og
halda áfram eins og ekkert hafi í
skorist. Er fram líða stundir geta
hins vegar upphafist heiftarleg rifr-
ildi um hvað er rétt og þá fer
gamanið að kárna.
í bandarísku útgáfunni er til
dæmis spurt á einu kortanna: -
Hver sagði: Ég gleymdi að beygja
mig?
Ronald Reagan, stendur hinum
megin á kortinu. Það er rétt svo
langt sem það nær. Reagan við-
hafði þessi ummæli við eiginkonu
sína er honum var ekið á sjúkra-
börum inn á skurðstofu eftir banat-
ilræði sem frægt varð. En annað
svar gæti verið eins rétt, ef ekki
réttara. Reagan var nefnilega að
vitna í Jack Dempsey, fyrrum
heimsmeistara í hnefaleikum, en
hann sagði þessa sömu setningu
við seinni konu sína, Estelle Tayl-
or, eftir að hafa tapað í keppni við
Gene Tunney í Fíladelfíu árið
1926. Og þá er spurningin; hvort
svarið á að gilda.?
En höldum okkur við íslensku
útgáfuna og lítum nánar á spjalda-
bunkann hans Leo Munro sem
hann staðhæfir að sé meira eða
minna vitlaus. Víða er aðeins um
prentvillur að ræða en oftar er
staðreyndum ruglað.
Villur í íslensku útgáfunni
Á korti nr. 903 er spurt hvaða
land hafi til forna verið nefnt Terra
Australis Incongnita. Hinum meg-
in á kortinu segir að það sé Austur-
ríki.
Leo Munro:- Rétt svar er Ástral-
ía.
Á korti nr. 823 er spurt um dýpsta
gljúfur í heimi. Grand Canyon í
Arizona er uppgefið rétt svar.
Leo Munro: - Grand Canyon er
5700 fet en Hells Canyon í Idaho
er 7900 fet að dýpt.
Á korti nr. 794 er spurt: Hver lék
frú Robinson í samnefndri kvik-
mynd? Svar: Anne Bancroft.
Leo Munro: - Kvikmyndin hét
ekki frú Robinson heldur The
Graduate.
Á korti nr. 718 er spurt: Hvað
heitir næsta þyrilvetrarbraut við
okkar eigin? Svar: Andrómeda.
Leo Munro: - Næsta þyrilvetrar-
braut við okkar eigin heitir Macel-
lenic Clouds en ekki Andrómeda.
Á korti nr. 328 er spurt: Hvað
heitir lengsta stöðuvatn á Bret-
landi? Svar: Loch Ness.
Leo Munro: - Loch Awe er 41 km
en Loch Ness 36 km að lengd.
Á korti nr. 31 er spurt: í hvaða
landi var Lenín í útlegð þegar hann
skrifaði Aprílgreinar sínar árið
1917? Svar: Finnlandi.
Leo Munro: - Lenín skrifaði
Aprílgreinar sínar í Sviss en ekki
Finnlandi.
Á korti nr. 5 er spurt: Hver tók
við af Kurt Waldheim sem aðalrit-
ari Sameinuðu þjóðanna? Svar: U
Thant.
Leo Munro: - Hann hét Perez de
Cuellar. Waldheim tók hins vegar
við af U Thant.
Á korti nr. 702.er spurt: Hvað
stóð hundrað ára stríðið lengi?
Svar: Hundrað og fimmtán ár.
Spurning: Hver lenti í öðru sæti
þegar Jón Baldvin Hannibalsson
varð formaður Alþýðuflokksins?
Svar: Indira Gandhi.
Spurning: Hverjir smíðuðu fundar-
hamrana tvo sem Islendingar gáfu
Sameinuðu þjóðunum?
Svar: Ingibjörg Guðjónsdóttir.
Spurning: Hver eftirtalinna lengd-
areininga er lengst; ljósár, parsek
eða stjarnfræðieining?
Svar: Skjaldbökur.
Spurning: Hver stofnaði íþrótta-
skólann í Haukadal og var skóla-
stjóri þar til ársins 1970?
Svar: Johann Cryuff.
En hvað á að gera við kortin með
vitlausu svörunum?
„Ég kasta þeim ekki, heldur
breyti með blýanti," segir Leo
Munro. „Reyndar hefði ég gaman
af að heyra frá fólki sem hefði
fundið fleiri villur þannig að hægt
væri að lagfæra spilið á einu
bretti.“
-EIR