Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986.
11
I came in wirfi Hilky’i Comet I
i in 1835. It ii axnng agrái ncxtl
lycar, and I cxpcct to go out wit{i|
it. It will bcl
thc grcatcst dia-1
appointmcnt ofl
nty life if I don'tl
go out with Hai-S
ky’iComo.M
Hin frægu orð Mark Twain um
halastjörnuna og sinn eigin
dauða.
Mark
Twain og
hala-
stjarnan
Halleys halastjarnan mun
vera á sveimi einhvers stað-
ar ofar höfðum vorum. Og
sumir búnir að fá sér kíki til
að sjá ósköpin. Og þar eð
Halleys halastjarnan á sér
sinn trygga stað í heims-
bókmenntunum gégnum
órofa tengsl sín við Mark
Twain, finnst okkur ekki úr
vegi að benda á að um leið
og halastjaman flengist nú
framhjá okkur, þá á Mark
Twain 150 ára afmæli - 150
ár síðan hann fæddist.
Húrra! Og það sem meira er
- það eru 100 ár síðan Stik-
ilsbeija-Finnur var fyrst
gefinn út. Aftur húrra! og
meira húrra!
í Sambandi við halastjöm-
una: Mönnum kann að
finnast það undarleg tilvilj-
un, en Mark Twain fæddist
sama ár og halastjarnan sást
- 1835. Og ekki nóg með
það. Mark Twain skrifaði
einusinni eftirfarandi:
- Ég kom í heiminn með
Halleys halastjörnunni árið
1835. Þegar hún kemur
hingað næst, þá reikna ég
með að hverfa með henni.
Þá verður mesta reiknings-
skekkjan í mínu lífi - hverfi
ég ekki á braut með stjöm-
unni.
Og hann reiknaði rétt.
Hann dó 1910, sama ár og
Halleys kom og fór síðast.
Þann fjórða desember í
fyrra gaf póstþjónustan f
Bandaríkjum N-Ameríku út
sérdeilis óvenjulegt flug-
merki að verðgildi 36 sent.
Merkið var gefið út til minn-
ingar um halastjörnuna,
Mark Twain og Stikils-
berja-Finn.
Sama dag og merkið kom
út gekkst bandaríska póst-
þjónustan fyrir minningar-
athöfn í borginni Hannibal
í Missouri, en þar bjó Mark
Twain hjá foreldrum sínum
frá því árið 1839 og nokkur
ár síðan.
Mark Twain skrifaði Æv-
intýri Tuma Sawyer árið
1876 og Stikilsberja-Finn
1885. Og hann sótti margan
innblásturinn einmitt til
Hannibal, þar sem hann ólst
upp.
Eins og menn væntanlega
vita, þá hét Mark Twain í
rauninni Samuel Clements.
Hann tók sér skáldaheiti
þegar hann starfaði sem
blaðamaður við dagblað eitt.
Um ævina lagði hann gjörva
hönd á margt, vann á fljóta-
bátum um hríð, var gullgraf-
ari og reyndi fyrir sér við
uppfinningar. Skáldaheitið
Mark Twain mun merkja
„tveggja faðma dýpi“ á máli
sjóara á bandarískum fljóta-
bátum. Dýpið þurfti að vera
tveir faðmar til að báturinn
kæmist áfram.
Vió framleióum
KEÐJUR
SNJÓKEÐJU
markaðurinn
Smiöjuvegi 30 E-götu, Kópavogi. Sími 77066
20-40%
afsláttur af ýmsum húsgögnum þessa viku.
Notið þetta einstaka tækifæri.
Opið í dag kl. 10-16.
I / •• Hreyfilshúsinu á horni
oUKUri K nusqoqn 6°œ
XT 4WD TURBO
Fjórhjóladrifinn sportbíll,
sem vakið hefur heimsathygli
7/7 sýnis laugardag og sunnudag kl. 14-17
XT 4WD TURBO er sennilega eini sportbíllinn,
sem hentað getur við íslenskar aðstæður. Hann er
fjórhjóladrifinnþegar þess þarf með og meðstillanlega hæð
frá jörðu. Vélin er með afgasforþjöppu og er 136 hestöfl.
XT TURBO 4WD er bókstaflega hlaðinn tækninýjungum.
Komið og skoðið einnig úrval
nissan bíla á frábæru verði
al INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.