Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Qupperneq 14
14
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986.
Opnum í dag
nýtt hjólbarðaverkstæði
í Borgartúni 36 (á bak við Klúbbinn).
ÖLL ÞJÓNUSTA ÓKEYPIS í DAG
Verið velkomin.
Gúmmíkaríamír hf.
Borgartúni 36, 104 Reykjavík. Sími 688220.
Þingeyingamótið 1986
Þingeyingamótið verður haldið í Þórscafé laugar-
daginn 8. febrúar nk.
Húsið verður opnað kl. 19.00 og borðhald hefst kl.
19.30.
Skemmtiatriði verða með þjóðlegum hætti, meðal
annars úr heimahéraði.
Forsala aðgöngumiða verður í Þórscafé miðviku-
daginn 5. og fimmtudaginn 6. febrúar kl. 17.00 til
19.00. Miðar á skemmtiatriði og dans eftir borðhald
verða seldir á sama tíma og sama stað.
Stjórn Þingeyingafélagsins.
Nauðungaruppboð
annað og síðara sem auglýst var í 20., 31. og 33. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1985 á eigninni Furugrund 66, hluta, þingl. eign Eggerts Berg-
sveinssonar og Önnu Högnadóttur, fer fram að kröfu Búnaðarbanka Is-
lands, Iðnaðarbanka Islands, Steingríms Eiríkssonar hdl., Veðdeildar
Landsbanka Islands, Bæjarsjóðs Kópavogs og Landsbanka Islands á
eigninni sjálfri þriðjudaginn 4. febrúar 1986 kl. 11.15.
________________Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Ótrúlegt en satt; svona er Ugly Bugly drukkinn í Kaupmannahöfn; Snaps, bananlíkjör, fjólublár Bols, salt,
laukur og tabasco. Svo klýfur pískurinn loftið í þrigang.
- eins og reykt síld með súkku-
laðihjúp og rassskellum I ábót
Veitingahúsið Tannhauser í Hol-
bergsgötu í Kaupmannahöfn á ekki
sinn líka. Inni er rökkur, hús-
gögnin eru þung með grænu, þykku
plussáklæði og gluggatjöld eru úr
sama efni. Inn í Tannhauser slepp-
ur aldrei dagsbirta enda er staður-
inn lokaður á meðan sólin skín.
Tannhauser opnar þegar aðrir veit-
ingastaðir loka og lokar þegar
hinir opna aftur. Þama er margt
öfugsnúið.
BLANDAÐ Á STAÐNUM
Veitingamaðurinn í Tannhauser,
Sömod að nafni, hefur nú verið
dæmdur í 1000 króna sekt fyrir að
selja vínblöndu er hann kallar
Ugly Bugly. Hugmyndina að
drykknum fékk hann vorið 1984
þegar einn af viðskiptavinunum
pantaði drykk sem átti að minna á
reykta síld með súkkulaðihjúp.
Veitingamaðurinn hugsaði sig um
drjúga stund og fór svo að týna
flöskur niður úr hillum sínum.
Blöndun hófst á staðnum:
Rauður Álaborgar-snaps
Bananalíkjör
Fjólublár Bols-líkjör
Salt
Laukur
Tabasco
RICHARD WAGNER
Þetta var svo hrist saman og úr
varð Ugly Bugly. Hann kostaði
álíka mikið og fjórir góðir bjórar á
veitingahúsi. Bjór er hins vegar
ekki seldur á Tannhauser og þeir
sem skjótast inn til að fá sér einn
slíkan eru vinssimlega beðnir um
að drífa sig eitthvað annað. Tann-
hauser selur aðeins dýra drykki og
þá helst hanastél alls konar. Úr
hljómflutningstækjum staðarins
drynur ekki dægurtónlist heldur
hreinn og ómengaður Wagner eins
og hann gerist háværastur.
PÍSKURINN
Ugly Bugly hefur aldrei verið
seldur einn og sér, honum fylgja
nefnilega þrjú högg og það með
píski á beran bossann. Um leið og
einhver pantar sér Ugly Bugly er
honum - eða henni - gert ljóst að
drykknum fylgja þrjú högg sem
þjónustustúlka reiðir af hendi.
Viðskiptavinurinn verður að gyrða
niður um sig við barinn og svo
klýfur pískurinn loftið í þrígang. Á
meðan á því stendur er Inn-
göngumars skylmingaþrælanna
leikinn af plötu. Þetta kostar 60
krónur danskar.
Allir sem hafa keypt sér Ugly
Bugly hjá veitingamanninum í
Holbergsgade skrá nafn sitt í sér-
staka bók sem liggur frammi á
staðnum. Á hálfu öðru ári hafa 60
manns notið drykkjarins og fleng-
ingarinnar, þar af 6 prósent konur.
Allt er þetta skjalfest.
BANNAÐ AÐ BERJA
Danskir dómstólar hafa nú kveð-
ið upp úrskurð sinn. Ugly Bugly
stríðir gegn lögum um almennt
velsæmi. Veitingamaðurinn má að
vísu halda áfram að blanda drykk-
inn og selja þeim sem áhuga hafa
en pískhöggin mega ekki fylgja
með.
Fréttir herma að enginn hafi
pantað sér Ugly Bugly í Tann-
hauser eftir að dómur féll.
-EIR