Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Qupperneq 18
PERSÓNU-
LEIKA-
PRÓF
DV. LAUGARDAGUR fí FEBRÚAR1986.
Guðfinna Eydal - sálfræðingar hafa um hríð haft meðalgöngu um
persónuleikapróf fyrir þá sem leita að vinnu eða þá sem vantar
vinnukraft.
fyrir atvinnulíf og einstaklinga
Ráðningarstjórar nokkura stórra fyrirtækja á ís-
landi tjáðu blaðamanni að nú færðist það mjög í
vöxt að þau sem sæktu um svokaUaðar ábyrgðar-
stöður hjá fyrirtækjum, stöður yfirmanna eða
önnur sjálfstæð störf, væru látin gangast undir
sérstök persónuleikapróf.
Persónuleikapróf hafa lengi viðgengist úti í hinum
stóra heimi. í Bandaríkjunum hafa þau einkum
þótt nauðsynleg - eða lengi verið í notkun. Og
sama mun óhætt að segja um flest lönd V-Evrópu. "
Einn ráðningarstjóranna, sem DV
ræddi við, sagði að sér vitanlega
væri það bandarískt persónuleika-
próf sem hvað lengst hefði verið
notað hér á landi - og þá af einum
ákveðnum sálfræðingi, en nú væri
annað slíkt próf komið í notkun,
norskrar ættar. Við sendum sérstakt
tilraunadýr í prófið í þeim tilgangi
að kanna hvort útkoman úr því kæmi
heim og saman við þær hugmyndir
sem við höfðum gert okkur um við-
komandi mann.
Prófið, sem okkar maður var látinn
taka, nefnist prófílprófið og er notað
við ráðningar í V-Evrópu, m.a. hjá
Elkem í Noregi.
„Margar persónur í einni“
Þær Álfheiður Steinþórsdóttir og
Guðfinna Eydal, báðar sálfræðingar
hjá Sálfræðistöðinni, sem hafa
einkaleyfi á prófinu á íslandi, tóku
að sér að setja okkar mann í persónu-
leikaprófið. Þær tóku fram að prófíl-
prófið væri ekki eingöngu ætlað
umsækjendum um ábyrgðarstöður,
heldur ætti það að þjóna „háum sem
lágum“. Einstaklingum býðst þannig
að taka prófið hjá Sálfræðistöðinni
- ef þeir vilja átta sig betur á hæfni
sinni. Slíkt próf gæti verið undir-
búningur að nýjum tækifærum í
atvinnulífinu. Guðfinna og Álfheiður
fullyrtu fyrirfram að erfitt myndi
reynast fyrir tilraunadýrið að leika
á prófdómarann, því að hann hefði
sjálfur búið til prófið. Og spurning-
amar allar, sem tilraunadýrið þyrfti
að svara, væru svo snilldarlega út-
hugsaðar að ekki væri hægt að
svindla.
Og rétt að taka það fram í þessu
samhengi að sá sem við sendum (vel
menntaður maður á besta aldri,
brennandi af ófullnægðri metorða-
gimd og löngun til að „vinna sig upp
á við í samfélaginu", eins og einn
starfsbræðra hans sagði um hann)
hafði fullan hug á að snúa niður-
stöðu þessa prófs sjálfum sér í hag -
og sagðist einskis skirrast - ljúga
þegar honum þætti svo henta og
segja því aðeins sannleikann að
hann kæmi honum til góða.
Þegar niðurstaða prófsins lá fyrir
gat útsendari vor ekki annað en
undrast útkomuna - hversu svipuð
hún var þeim hugmyndum sem hann
sjálfur hafði gert sér um sjálfan sig.
„Það er margt sem bendir til að
próftakinn hafi ekki verið alveg
sjálfum sér samkvæmur í prófinu,"
sagði dómarinn eftir að hafa farið
yfir úrlausnina. „Það er eins og hann
hafi látið óskhyggjuna stýra sér um
of...en það er ljóst að þessum manni
er ekki auðvelt að skáka á bás.
Trúlega er hann „margar persónur í
einni“.“
Orkan vel nýtt
Prófdómarinn þóttist komast að
raun um það að tilraunadýr DV væri
ekki „spriklandi" af ónotuðum krafti
eða orku - „en hann nýtir sér aftur
á móti vel þann kraft sem hann býr
yfir. Þegar viðfangsefnið nær tökum
á honum getur hann orðið mjög
ákveðinn og starfssamur. Maðurinn
er laginn við að koma sér hjá ónauð-
synlegum árekstrum - en sé um
þýðingarmikil málefni að ræða þá
hefur hann greinilega tilhneigingu
til að takast á við þau óþægindi sem
því fylgja að komast út úr stöðunni!"
- segir prófdómarinn.
Hugmyndaauðgi og hæfileiki til
að endurnýja sig
Hér er DV-maðurinn í essinu sínu,
segir dómarinn. Hann er stöðugt á
höttunum eftir nýrri reynslu og nýj-
um áhrifum. Hann hugsar meira
„frjálst og óháð“ (það fannst okkur
hér koma vel á vondan!) heldur en
rökrétt. „Hann vill mesta hugsan-
lega frelsi í starfi - og bjargar sér
Profíl — persónuleikapróf _____• DlQYu 19^5.
Tilraunadýrið, sem DV sendi í prófið, stóð sig bara vel eins og sjá má á meðfylgjandi linuriti. DV-maðurinn veröur án efa kominn í vel launaða ábyrgðarstööu áður
en langt líður - hafi hann áhuga.