Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Síða 26
26
DV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986.
Erlend bóksjá
Erlend bóksjá
Tbe wvMOMtt ti»nlú4ci tntveí
wrttmi W >»» tttje
CAROUNE MOOREHEAD
FREYA STARK.
Höfundur: Caroline Moore-
head. Penguin Books, 1985.
Freya Stark, sem fæddist árið
1893, var afar sérstæður persónu-
leiki: sjálfstæð, vel menntuð,
ekki síst í tungumálum, og
óþreytandi ferðagarpur sem
ávallt ferðaðist einn síns liðs og
skrifaði um ferðalög sín vinsælar
bækur.
Hún ferðaðist mest um land-
svæði þar sem fágætt, ef ekki
einstætt, var að sjá evrópskar
konur einar á ferð: um Persíu,
sem nú heitir tran, um Arabíu-
skagann (þar sem nú er Sádí-
Arabía og Jemen) og um lönd
Mið-Asíu í fótspor Alexanders
mikla.
Um þessar ferðir sínar skrifaði
hún tíu bækur auk sjálfsævisögu
í mörgum bindum.
En líf hennar var enginn dans
á rósum. Hún átti við veikindi
að stríða og hjónaband hennar
fór út um þúfur. í persónulegu
mótlæti gat hún leitað á vit fram-
andi landa til að gefa lífi sínu
fyllingu.
Sú stutta ævisaga Freyu Stark,
sem hér birtist, gefur nokkurt
yfirlit um ævi hennar og störf.
Hér er hins vegar aðeins stiklað
á helstu atriðum eins og í öðrum'
bindum ritraðarinnar Lives of
Modem Women.
4t*ÖtCM..M«JNTrNr,. IHeSTOTF OF DKEAMS
ThE PENGUINCoMPt.ETE
FairyTÁles and Stories
of Hans Andersen
THE PENGUIN COMPLETE
FAIRY TALES AND STORIES
OF HANS ANDERSEN. 1985.
Sögur og ævintýri danska
skáldsins H. C. Andersens hafa
verið þýdd á fjölda tungumála
og njóta víða um lönd mikilla
vinsælda jafnt hjá bömum sem
fullorðnum. Heildarútgáfur á
ævintýrum hans hafa einnig birst
á nokkrum tungum.
Penguin hefur hér gefið út í
enskri þýðingu 156 ævintýri
Andersens, og er valið byggt á
dönsku heildarútgáfunni, sem
Andersen ritstýrði sjálfur, með
tveimur undantekningum. Þá
eru einnig birtir formálar, sem
Andersen skrifaði. Þar gerir
höfundurinn grein fyrir tilurð
ævintýranna.
Á íslensku hefur einungis birst
um þriðjungur ævintýra Ander-
sens. Hér gefst því tækifæri til
að kynnast þeim sögum danska
ævintýraskáldsins, sem ekki hafa
verið þýddar á íslensku, í ódýrri
og handhæeri útgáfu. _________
Tár bjarnarins
THE BEARS TEARS.
Höfundur: CraigThomas.
Sphere Books Limited, 1985.
Ýmsir vinsælustu spennubókahöf-
undar samtímans búa til æsilegan
söguþráð sem ofinn er saman við
fréttaatburði sem gert er ráð fyrir
að lesendum sé að nokkru kunnur
úr fjölmiðlum eða öðrum bókum.
Craig Thomas fer þessa leið í ný-
justu og lengstu spennusögu sinni,
Tárum bjamarins. Þetta er æsileg
njósnasaga þar sem örfáir einstakl-
ingar berjast ekki aðeins við svika-
myllu KGB heldur einnig við sové-
skar moldvörpur á æðstu stöðum í
bresku leyniþjónustunni.
Ekki er ráðlegt að ljóstra of miklu
upp um söguþráðinn. Þó skal þess
getið að sá grunur berst í upphafi
sögunnar að yfirmanni bresku leyni-
þjónustunnar, SIS, að hann sé so-
véskur njósnari og hafi verið það
áratugum saman. Þetta er svo sem í
samræmi við annað á þeim bæ, eins
og þeir sem gjörla hafa fylgst með
sífellt nýjum uppljóstrunum um hina
gatslitnu bresku leyniþjónustu
kannast vel við. f þessu tilviki telja
þó örfáir vinir njósnaforingjans að
hann sé saklaus af þessari ákæru.
Þeir eru sannfærðir um að hér sé á
ferðinni samsæri KGB gegn bresku
leyniþjónustunni.
Af þessu sprettur mikið kapphlaup
milli þeirra sem vilja sanna sakleysi
njósnaforingjans og hinna sem vilja
hann út í ystu myrkur. Sá leikur
berst um víðan völl svo sem gjarnan
gerist í slíkum sögum, m.a. til stríðs-
svæða í Afganistan.
Tár bjamarins hafa til að bera
ýmsa helstu kosti góðra spennu-
sagna: atburðarásin er hröð og
spennandi, söguhetjan á við mikið
ofurefli að etja þar sem eru vondir
kallar austan hafs sem vestan, ástin
er með í spilinu, og svo sigra auðvit-
að góðu gæjamir í lokin, á elleftu
stundu.
Sögur úr suðri
THE PENGUIN BOOK OF SOUT-
HERN AFRICAN STORIES.
Ritstjóri: Stephen Gray.
Penguin Books, 1985.
Þegar hugsað er til bókmennta
þeirra sem byggja suðurhluta Afriku
koma fáeinir rithöfundar ósjálfrátt í
hugann: Alan Paton, Nadine Gor-
dimer, Peter Abrahams, Laureen van
der Post, Doris Lessing, J. M. Coet-
zee.
Ritstjóri þessarar bókar, skáld-
sagnahöfundurinn og prófessorinn
Stephen Gray, hefur hins vegar haft
mun víðari sjóndeildarhring fyrir
augum er hann valdi sögur í þessa
bók.
Hér er blandað saman stuttum
frásögnum úr gjörólíkum áttum. Sú
ein forsenda er sameiginleg að höf-
undamir eiga allir rætur sínar í
mannfélögum suðurhluta Afríku.
Sumir þeirra em hvítir, aðrir svartir
eða „litaðir". Sumir skrifa á ensku,
aðrir á afrísku, máli afkomenda
BANDARÍKIN
1. Sidney Sheldon: IF TO-
MORROW COMES.
2. Alice Walker: THE COL-
ORPURPLE.
3. Mario Puzo: THE SCICIL-
IAN.
4. Tom Clancy: THE HUNT
FOR RED OCTOBER.
5. Stephen King og Peter
Straub: THE TALISMAN.
6. Stephen King: THE BACH-
MAN BOOKS.
7. Arthur Hailey: STRONG
MEDICINE.
8. Oana Fuller Ross: LOUIS-
IANA!
9. Jean M. Auel: THE CLAN
OFTHE CAVEBEAR.
10. John Jakes: LOVE AND
WAR.
Ritalmenns eðlis:
1. Isak Dinesen: OUT OF
AFRICA og SHADOWS
ONTHE GRASS.
2. M. Scott Peck: THE
ROAD LESS TRAVELED.
3. Arkady N. Shevchenko:
BREAKING WITH MOS-
COW.
Byggt á New York Times Book
Review.
SOUTHERN
AFRICAN
• sroRie®'
L
BXIED BV STEPHCN 6SWV
Búanna og ráðandi afla í Suður-
Afríku, og enn aðrir á ýmsum tungu-
málum svertingja.
Landfræðilega horfir ritstjórinn
einnig um víðari völl en venja er til.
Hann lítur ekki einungis til heima-
lands síns, sem við köllum gjaman
Suður-Afríku, heldur einnig til ná-
grannaríkja svo sem Lesotho, Bots-
wana, Svazilands, Namibiu, Zimbab-
we og Malawi. Stjómmálaleg landa-
mæri skipta hann ekki máli í þessu
sambandi. Honum er mest í mun að
sýna þá auðlegð og fjölbreytni í frá-
sagnarstíl og efni, sem íbúar þessa
víðáttumikla svæðis búa yfir. Um
leið kemur hann á framfæri skáld-
skap sem ella væri vestrænum les-
endum óaðgengilegur.
Hér má finna jafnt örstuttar dæmi-
sögur sem hefðbundnar smásögur að
vestrænni fyrirmynd og allt þar á
milli. óneitanlega gerir framandleik-
inn ýmsar frásögur afrískra manna
að áhugaverðasta efrii bókarinnar.
Gray skrifar stuttan formála þar
sem hann gerir nokkra grein fyrir
vali sínu. I bókarlok eru stuttlega
talin upp helstu æviatriði höfund-
anna sem eru 38 talsins.
METSÖLUBÆKUR
PAPPÍRSKILJUR
BRETLAND DANMÖRK
1. Judith Krantz: MISTR- 1. Herman Wouk: OP MOD
ALS DAUGHTER. (9). VINDEN (1).
2. Craig Thomas: THE BE- 2. Bjame Nielsen Brovst:
ARS TEARS.(6). KAJ MUNK. (2).
3. Doris Stokes: WHISPER- 3. Klaus Rifbjerg: DEN
ING VOICES. (7) KRONISKE USKYLD. (5).
4. Sue Townsend: THE 4. Kirsten Thorup: HIMMEL
GROWING PAINS OF OG HELVEDE. (4).
ADRIAN MOLE. (1). 5. Herman Wouk: PAMELA.
5. Arthur Hailey: STRONG (8).
MEDECiNE. (5). 6. POLITIKENS SLANGORD-
6. Sue Townsend: THE BOG. (3).
SECRET DIARY OF ADR- 7. Dorrit Willumsen:
IAN MOLE, AGED 13 3/4. MARIE. (10).
(2). 8. Rachel og Israel Rachlin:
7. Virginia Andrews: HEA- 16 AR1SIBIRIEN. (9).
VEN. (3). 9. Poul Behrendt: BISSEN
8. George Gipe: BACK TO OG DULLEN. (-).
THE FUTURE. (-). 10. C. G. Jung: DET
9. Len Deighton: MEXICO SET. (8). 10. Frederick Forsyth: FO- URTH PR0T0C0L. (10). UBEVIDSTE. (-).
Tölur innan sviga tákna röð Tölur innan sviga tákna röð
viðkomandi bókar vikuna á viðkomandi bókar á listanum
undan. Byggt á The Sunday vikuna á undan. Byggt á Pol-
Times. itiken Söndag.
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
UNDER THíVOLCANO.
Höfundur: Malcolm Lowry.
Penguin Books, 1985.
Sagan um drykkfellda konsúl-
inn í Mexíkó er ein af þekktari
skáldsögum aldarinnar. Sumir
telja hana jafnframt meðal hinna
merkustu.
Það er ekki ofsagt að þessi
skáldsaga hafi verið ævistarf
höfrindarins. Þótt hann skrifaði
aðrar skáldsögur, tók Under the
Volcano stærsta hlutann úr
starfsævi hans. Og í henni er að
finna afar mikið af þrautaþungri
persónulegri reynslu höfundar-
ins af fátækt og ofdrykkju.
En sögunni er ætlað annað og
meira en að vera hefðbundin
skáldsagnarfrásögn. Hún er
hugsuð sem dæmisaga um lífið
á þessari jörð. Uppbygging sög-
unnar er mjög flókin en jafnframt
skipulögð út í ystu æsar, eins og
greinilega kemur fram í bréfi sem
höfundurinn skrifaði útgefanda
sínum til að koma í veg fyrir að
sagan yrði stytt áður en hún var
gefin út í fyrsta sinn. Þetta bréf
fylgir hér skáldsögunni og auð-
veldar það lesandanum að átta
sig á markmiði höfundarins.
Hvort sem lesendur eru sam-
mála þeim sem telja söguna
meistaraverk eða ekki er hún
áhugaverð og stundum yfir-
þyrmandi lesning.
iMviTiöSaTvi
GEOFFREY HILL
COLÍEÍfÉÐ PÖEMS
L
Collected Poems.
Höfundur: Geoffrey Hill.
Penguin Books, 1985.
Fá nútímaljóðskáld á Englandi
hafa hlotið svo andstæða dóma
sem Geoffrey Hill sem nú er á
sextugsaldri. Hann á sér ákafa
aðdáendur sem telja hann til
bestu ljóðskálda á Bretlandseyj-
um: meistaralegt skáld segja þeir.
En aðrir telja ljóð hans tyrfin og
óaðgengileg.
Ljóðskáld, sem vekur slíkar
deilur og tilfinningarót hjá gagn-
rýnendum, hlýtur að vera þess
virði að kynnast verkum hans
nánar. Og hér gefst tækifæri til
þess í nýju safni ljóða hans.
Líklega munu flestir lesendur
komast á þá skoðun að ljóð Hills
séu misjöfn að gæðum. Hér er
bæði að finna perlur og grágrýti.
í safninu eru ljóð sem birst
hafa á tímabilinu frá 1959 til
ársins 1984, samtals 88 ljóð.