Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Side 27
DV. LAUGARDAGURI. FEBRÚAR1986.
27
„Jú, ætli ég verði ekki að gefa
mér tíma í þetta. Annars er ég
svona í þann veginn að fara að sofa.
Maður verður að hvílast vel fyrir
stórátök eins og þau sem eru fram-
undan,“ sagði Þorbjörn Jensson,
fyrirliði íslenska landsliðsins í
handknattleik, þegar við slógum á
þráðinn til hans á fimmtudags-
kvöldið um klukkan tíu. Þrátt fyrir
að kvöldi væri tekið að halla varð
Þorbjöm við ósk okkar. Þorbjörn
stendur í ströngu þessa dagana í
undirbúningi íslenska landsliðsins
fyrir heimsmeistarakeppnina í
Sviss sem hefst þann 25. þessa
mánaðar og hann verður í eldlín-
unni ásamt félögum sínum í lands-
liðinu um helgina á Flugleiðamót-
inu í Laugardalshöll. En hér kemur
hin hliðin á Þorbirni Jenssyni:
FULLT NAFN: Þorbjörn Jón Jens-
son
FÆÐIN G ARST AÐUR: Reykjavík.
EIGINKONA: Guðrún Kristins-
dóttir.
STARF: Rafvirki á Landspítalan-
um.
HÆÐ OG ÞYNGD: 194,4 cm og %,2
Bf)RN: Kristin Hrönn, 13 ára, og
FannarÖrn,5ára.
BIFREIÐ: Scout Traweler jeppi
árgerð 1978.
LAUN: Svo lág að það tekur því
ekki að nefna það.
ÁHUGAMÁL: Handbolti og jeppar.
BESTIVINUR: Eiginkonan.
HELSTI VEIKLEIKI ÞINN: Get
ekki sagt nei við neinu sem ég er
beðinn um.
HELSTI KOSTUR ÞINN: Gefst
aldrei upp við það sem ég fæst við
hveiju sinni.
HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF ÞÚ
YRÐIR ÓSÝNILEGUR í EINN
• Þorbjörn Jensson, fyrirliði landsliðsins i handknattleik, er með ólækn-
andijeppadellu.
„Kynntist kon-
unni á dansleik
á Dalvík”
—Þorbjöm Jensson fy rirliöi landsliösins
í handknattleik sínir á sér hina hliðina
DAG? Fara í bankana og redda öll-
um skuldunum í hvelli.
HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF ÞÚ
YNNIR MILLJÓN f HAPP-
DRÆTTI? Svala jeppadellunni.
HVAÐ FER MESTITAUGARNAR
Á ÞÉR? Menn sem þarf að ganga
mikið á eftir.
UPPÁHALDSMATUR: Góðurham-
borgarhryggur og kjúklingar.
UPPÁHALDSDRYKKUR: ísköld
mjólk.
HVAÐA PERSÓNU LANGAR ÞIG
MEST TIL AÐ HITTA? Bob Geldof
HVAÐA DAGAR ERU LEIÐIN-
LEGASTIR? Mánudagar.
UPPÁHALDSLEIKARI ÍSLENSK-
UR: Sigurður Siguijónsson.
UPPÁHALDSLEIKARI ERLEND-
UR: Jack Lemmon.
UPPÁHALDSHLJÓMSVEIT: Daire
Straits.
UPPÁHALDSSTJÓRNMÁLA-
MAÐUR: Albert Guðmundsson en
Þorsteinn Pálsson sígur á.
VIÐ HVAÐ ERT ÞÚ MEST
HRÆDDUR? Ég óttast ekkert.
HVER VAR FYRSTI BfLLINN SEM
ÞÚ EIGNAÐIST OG HVAÐ KOST-
AÐI HANN? Það var Ford Corsair
GT og hann kostaði 35 þúsund
gamlar krónur.
UPPÁHALDSLITUR: Rautt.
HLYNNTUR EÐA ANDVÍGUR
RÍKISSTJÓRNINNI? Tiltölulega
hlynntur henni en ekki alveg sáttur
við hana.
HVAR KYNNTIST ÞÚ EIGINKON-
UNNI? Á dansleik á Dalvík.
HVAÐ VILDIR ÞÚ HELST GETA
GERT í ELLINNI? Verið heilsu-
hraustur og stundað jeppana af
krsfti.
UPPÁHALDSSJÓNV ARPSÞÁTT-
UR: Veðrið.
UPPÁHALDSSJÓNVARPSMAÐ-
UR: Ómar Ragnarsson.
HEFUR ÞÉR EINHVERN TÍMA
VERIÐ LfKT VIÐ AÐRA PER-
SÓNU? Nei, aldrei.
UPPÁHALDSFÉLAG f ÍÞRÓTT-
UM: Valur.
EF ÞÚ STARFAÐIR EKKI SEM
RAFVIRKI, HVAÐ MYNDIR ÞÚ
HELST VILJA GERA? Starfa sem
tannlæknir vegna þess að þeir hafa
svo gífurlega mikið kaup.
UPPÁHALDSBLAÐ: DV.
UPPÁHALDSTÍMARIT: Mannlif.
EF ÞÚ YRÐIR HELSTI RÁÐA-
MAÐUR ÞJÓÐARINNAR Á
MORGUN HVERT YRÐI ÞITT
FYRSTA VERK? Hjálpa fólkinu
sem er með íbúðir sínar á nauðung-
aruppboðum.
ANNAÐ VERK: Bíða með það þar
til ég sæi hvernig fyrsta verkinu
reiddi af.
EF ÞÚ ÆTTIR EKKI HEIMA Á
ÍSLANDI HVAR VILDIR ÞÚ ÞÁ
BÚA? í Noregi.
VASKAR ÞÚ UPP FYRIR KON-
UNA ÞÍNA? Já, alltaf þegar ég get.
MYNDIR ÞÚ TELJA ÞIG GOÐAN
EIGINMANN? Já, þegar ég er
heima er ég ágætur.
FALLEGASTI STAÐUR Á ÍS-
LANDI: Þórsmörk.
FALLEGASTIKVENMAÐUR SEM
ÞÚ HEFUR SÉÐ: Eiginkonan
(hafðu Hófi í öðru sæti).
HVAÐ LÍKAR ÞÉR VERST í FARI
KVENFÓLKS? Of mikil afskipta-
semi.
EF ÞÚ YRÐIR RÁÐHERRA Á
MORGUN HVAÐA EMBÆTTI
MYNDIR ÞÚ VELJA ÞÉR? Fjár-
málaráðherrann.
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA Á
MORGUN? Vakna klukkan tíu um
morguninn og fá mér góðan morg-
unverð. Síðan fer ég út á Hótel
Loftleiðir og borða þar klukkan
eitt. Loks fer ég heim og hvíli mig
vel fyrir landsleikinn gegn Pólveij-
um.
Umsjón:
Stefán
Kristjánsson
1
'~~wGarðyrkja - plöntukaup
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í sumarblóm og
grænmetisplöntur.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 18.
febrúar kl. 1 1 .00. Bæjarverkfræðingur.
UNGTFÓLK
Tryggjum ungum manni
öruggt sæti í prófkjöri Al-
þýðuflokksins í Reykjavík
dagana 1. og 2. febrúar
næstkomandi.
Kjósum
ViðarJ.
Scheving
Stuðningsmenn.
Kosningaskrifstofan er i Glæsibæ (uppi). simi 688272.
Daihatsu Charade XTE ðrg. 1982,
ekinn 69.000 km, grásans, sjálf-
skiptur.Verðkr. 260.000,-
VW LS 4ra dyra. ðrg. 1981, ekinn
73.000 km, Ijósgrænn. Verð kr.
330.000,-
MMC Pajero disil árg. 1983, ekinn
44.000 km, rauður. Verð kr.
670.000,-
VW Double Cab áig. 1984, ekinn
26.000 km. hvitur, bensin. Verð kr.
550.000,-
MMC L300 sendiferða-, árg. 1984,
ekinn 44.000 km, beis. Verð kr.
370.000,-
Gott úrval notaðra MMC Pajero-bíla á
staðnum.
RÚMGÓÐUR SÝNINGARSALUR
— REYNDIR SÖLUMENN —
OPIÐ:
Mánud.—föstud.kl. 9.00—19.00.
Laugard. kl. 10.00—19.00.
BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 6212 40