Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Qupperneq 36
36
ÐV. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986.
Skákþing Reykjavíkur:
Þröstur Árnason
tvöfaldur meistari
-Sokolov sigraði Vaganjan
Þröstur Ámason og Hannes Hlíf-
ar Stefánsson háðu einvígi á tvenn-
um vígstöðvum á Skákþingi
Reykjavíkur sem lauk í vikunni. I
unglingaflokki vann Þröstur inn-
byrðis skák þeirra og þar með var
hann orðinn unglingameistari því
að alla aðra andstæðinga sína vann
hann einnig. Þröstur hlaut 9 v. en
Hannes 8 v. og varð í öðru sæti. I
opna flokknum leit um tíma út fyrir
að Hannes næði fram hefndum en
hann var efstur allt þar til í næst-
síðustú umferð er hann tapaði fyrir
Andra Áss Grétarssyni, sem þar
með komst upp að hlið hans ásamt
Þresti. I lokaumferðinni seig Þröst-
ur svo fram úr með því að leggja
Andra að velli en Hannes og Héð-
inn Steingrímsson skildu jafnir.
Þröstur Ámason var þar með orð-
inn tvöfaldur skákmeistari Reykja-
víkur á afmælisári og um leið
yngstur allra sem þann merka titil
hefur borið.
Lokastaðan á mótinu varð þessi:
1. Þröstur Árnason 9 v. (af 11
mögulegum)
2. -4. Hannes Hlífar Stefánsson,
Bjami Hjartarson og Arnaldur
Loftsson 81/2 v.
5.-8. Páll Þór Bergsson, Héðinn
Steingrímsson, Davíð Ólafsson og
Andri Áss Grétarsson 8 v.
9.-11. Tómas Bjömsson, Jóhannes
Ágústsson og Ragnar Valsson 7 1/2
v.
Skákþingið var svo sannarlega
mót ungu mannanna að þessu sinni
og er af sem áður var er undanþágu
þurfti svo að Friðrik Ólafsson fengi
að tefla 14 ára gamall í meistara-
flokki. Þröstur og Hannes em 13
ára gamlir og Héðinn Steingríms-
son, sem blandaði sér í baráttuna
um efstu sætin, varð 11 ára í miðju
móti. Aðrir í efstu sætum eiga
heldur ekki mörg ár að baki og em
í stöðugri ffamför. Engum blöðum
er um það að fletta að þessir piltar
em stórefhilegir og á meðan áhug-
ann og eldmóðinn skortir ekki er
allt á réttri leið.
Hitt er hins vegar áhyggjuefni
að skáklistin, sem þekkir ekkert
kynslóðabil, skuli hætt að höfða til
manna á besta aldri og þaðan af
eldri. Það er eðlilegt að þeir sem
hyggja á þátttöku í stórmótinu í
febrúar hafi sparað kraftana en
hvað með alla garpana sem létu sig
sjaldan vanta á mót fyrir nokkrum
árum? Svo virðist sem lífsbaráttan
sé svo hörð að hún leyfi ekki þátt-
töku í svo ströngu móti sem út-
heimtir bæði tíma og þrek. Eins
má ætla að fyrirkomulag mótsins,
að allir skuli tefla í einum flokki,
flæmi reyndari skákmenn brott.
En nú er ekki úr vegi að athuga
hvernig stórmeistarar framtíðar-
innar tefla. Hér er ein úrslitaskáka
mótsins, milli Þrastar og Andra
Áss. Reyndar hefur þeim báðum oft
tekist betur upp en í þessari skák
þar sem taugaspenna síðustu um-
ferðarinnar setur strik í reikning-
inn.
Hvítt: ÞrösturÁrnason
Svart: Andri Áss Grétarsson
Kóngsindversk vörn.
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rc3 Bg7 4. e4
0-0 5. Be3 d6 6. f3 Rc6 7. Rge2 a6. 8.
Dd2 Hb8 9.0-0-0 e5
Betra er 9. -b5 enda miðar upp-
bygging svarts að því að ná gagn-
færum á drottningarvæng.
10. d5 Re7
Og nú er 10. -Ra5 sterkara ásamt
11. -b5 í sama tilgangi.
11. g4 Re8 12. Bh6 Kh8 13. h4 Rg8 14.
Bxg7+ Rxg715. Rg3
Svartur hefur náð að hindra línu-
opnun á kóngsvæng, þar eð hann
getur svarað 15. h5 með 15. -g5, en
staða hans er þröng og hann á
óhægt með að ná gagnfærum.
15. -f8 16. Kbl De7 17. Bd3 Bd7 18.
Hcl c5 19. Rdl b5 20. Rf2 Hb7 21. Hh2
Hfb8 22. Rdl
Valdar b-peðið og leiðréttir mis-
tök sín. Nú ætti svartur að nota
tækifærið og leika 22. -bxc4 23.
Bxc4 Bb5 en í staðinn býður hann
upp á þráleik.
22. -Hf8(?) 23. Re3 Bc8 24. Hchl HÍ7
25. De2 b4 26. Rg2 Re8 27. f4 h6
Eftir fremur ómarkvissa tafl-
mennsku á báða bóga tekur hvítur
loks af skarið og nú ræðst hann
fram.
28. g5 fxg5 29. f5! gxf5 30. exf5 Rg7
31. hxg5 Dxg5 32. Re4
Jón L. Ámason
8
7
6
5
4
3
2
1
Og í þessari óyndislegu stöðu féll
svartur á tíma. Eftir 32. -Dxf5 33.
Rxd6 tapar hann skiptamun og
Bridgehátíð 1986:
Athyglisverð sagnvenja
skoraði gulltopp
Eins og mörgum mun í fersku
minni þá unnu Símon Símonarson
og Jón Ásbjömsson glæsilegan sigur
í tvímenningskeppni Stórmóts Flug-
leiða.
Þeir félagar spila Precisionkerfíð
með ýmsum breytingum og m.a.
tveggja opnun í hálitunum. Þessi
opnun mun uppfinning þeirra og
hefur hún náð nokkurri útbreiðslu
hérlendis.
Ekki skal farið ítarlega ofan í þessa
sagnvenju hér en aðeins skýrt frá
opnunarskilyrðum. Opnunin lofar
a.m.k. fimmlit í hálitnum og minnst
fjórlit í öðrum hvorum láglitnum
með 7-11 punktastyrk. Tvö grönd í
svari spyrja um láglitinn en ósögðu
litimir em krafa um geim.
Til þess að lýsa þessu vopni þeirra
félaga betur er hér spil frá tvímenn-
ingskeppninni sem passaði einkar
vel fyrir sagnvenjuna.
Suður gefur/a-v á hættu
Norour
* KG3
c? D2
O DG53
* K543
Au.tijr
A AD2
983
0 942
+ AG106
SUÐUR
+ 109876
<7 A105
0 AK87
+ 9
í sveitakeppni gæti þetta spil verið
passað út því í rauninni á enginn
spilaranna opnun. Hins vegar stillir
enginn norðurspilaranna sig um að
opna í þriðju hönd á norðurspilin í
tvímenningskeppni.
Hjá þeim félögum gengu sagnir
hins vegar stutt og laggott; tveir
spaðar hjá suðri og fjórir spaðar hjá
norðri.
Það er nokkuð einfalt fyrir norður
að hækka í fjóra. Hann styður jú
báða láglitina og ef suður á spaðaás-
inn í stað hjartaáss þá er geimið
þokkalegt. Það var hins vegar ekki
í þessu tilfelli og glöggir lesendur sjá
strax að spilið er vonlaust til vinn-
ings. En er það? Vestur á eftir að
spila út.
Og með upplýsingar um opnunina
í handraðanum spilaði hann náttúr-
lega út hjarta og þar með var Jón
ekki lengi að vinna spilið. Allur
galdurinn var að trompa eitt hjarta.
Heppni? Má vera en spaðadrottning-
in hefði líka getað legið rétt.
Þetta var gulltoppur og sigur fyrir
Simon & Garfunkle en svo nefha
gárungamir sagnvenju þeirra félaga.
Bridgedeild Húnvetninga
Hjá deildinni stendur yfir aðal-
sveitakeppni með þátttöku 14 sveita.
Staðan eftir 4 umferðir er nú þessi:
1. Sv. Jóns Oddssonar 87 st.
2. Sv. Halldóre Kolka 82 st.
3. Sv. Kára Sigurjónssonar 77 st.
4. Sv. Valdimars Jóhannssonar 76 st.
5. Sv. Bjöms Kjartanssonar 71 st.
6. Sv. Hjartar Cyrussonar 68 st.
7. Sv. Steins Sveinssonar 66 st.
Spilað er í húsi félagsins í Skeif-
unni 17 á miðvikudag. kl. 19.30.
Bridgedeild
Barðstrendingafélagsins
Staðan í aðalsveitakeppni félagsins
eftir6umferðir:
Stig
1. Þórarinn Ámason 123
2. Guðmundur Jóhannsson 109
3. Sigurður fsaksson 108
4. Gunnlaugur Þoreteinsson 107
5. Viðar Guðmundsson 98
6. Ágústa Jónsdóttir 93
7. Amór Ölafsson 83
8. Sigurður Kristjánsson 75
9. Þórir Bjamason 71
10. Jón Guðjónsson 71
11. Guðjón Bragason 68
12. Jóhann Guðbjartsson 62
13. Þorleifur Þórarinsson 59
Mánudaginn 3. febrúar verða spil-
aðar 7. og 8. umferð. Spilað er í
Síðumúla 25 og hefst spilamennska
stundvíslega kl. 19.30.
Bridgedeild Breiðholts
Að loknum 6 umferðum í aðal-
sveitakeppni félagsins er röð efstu
sveita þessi:
l.Sveit Helga Skúlasonar 107
2. Sveit Antons R. Gunnares.106
3.-4. Sveit Rafns Kristjánssonar 105
3.-4. Sveit Baldurs Bjartmaresonar 105
5. Sveit Bergs Ingimundareonar 99
Næsta þriðjudag heldur keppnin
áfram.
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga, Rvk.
Spilaður var eins kvölds tvímenn-
ingur sl. þriðjudag með þátttöku 34
para. Úrslit urðu sem hér segir:
A)
Hrannar Erlingsson-
Matthias Þorvaldsson 215
Baldur Ásgeireson-
Magnús Halldórsson 206
Lárus Hermannsson-
Sigmar Jónsson 188
Elísabet Jónsdóttir^
Leifur Jóhannesson 174
B)
Júlíus Sigurjónsson Ólafur Týr Guðjónsson 138
Guðrún Hinriksdóttir- Haukur Hannesson 125
Hulda Hjálmarsdóttir- Þórarinn Andrewsson 121
Erlendur Björgvinsson- Sævar Amgrímsson 114
C) Ármann J. Lárusson- Ólfur Lárusson 145
Jörundur Þórðareon- Sveinn Þorvaldsson 115
Helga Sveinsdóttir- Ragnar Hjálmarsson 115
Bemódus Kristinsson- Þórður Björnsson 108
Á þriðjudaginn kemur hefst svo
aðaltvímenningskeppni deildarinnar
sem er barometerkeppni (fyrirfram
gefin spil). Þegar eru 26 pör skráð
til leiks en enn er hægt að bæta við
pönun. Tekið er við skráningu hjá
Ólafi Lárussyni, s. 16538, um helgina
eða Sigmari Jónssyni, s. 35271.
Spilað er í Drangey, Síðumúla 35,
og eru ný andlit velkomin meðan
húsrúm leyfir. Keppnisstjóri er Ólaf-
ur Lárusson.
Reykjavíkurmótið i
sveitakeppni
Eftir 20 umferðir af 23 í undan-
rásum Reykjavíkurmótsins í sveita-
keppni, þar sem 6 efstu sveitimar
komast í úrslit, er staðan þessi:
1. Sveit Samvinnuferða/Landsýnar 399
2. Sveit Delta 396
3. Sveit Úrvals 385
4. Sveit Páls Valdimarssonar 362
5. Sveit Stefáns Pálssonar 361
6. Sveit Kristjáns Blöndal 359
7. Sveit Hermanns Lárussonar 346
8. Sveit Jóns Hjaltasonar 345
9. Sveit Sigurjóns Tryggvasonar 310
10. Sveit Sig. B. Þorateinssonar 309
11. Sveit Magnúsar Torfasonar 308
12. Sveit Sigmundar Stefánssonar 303
12 efstu sveitimar komast í ísland-
smótið í sveitakeppni. Á morgun
Bridge
Stefán Guðjohnsen
(sunnudag) lýkur undankeppninni
og hefst spilamennska kl. 10 árdegis.
Spilað er í Hreyfilshúsinu.
Úrslitakeppnin verður svo um aðra
helgi í Gerðubergi, Breiðholti.
Opið stórmót á Húsavík
Þriðja og síðasta opna stórmótið á
Húsavík, á vegum Samvinnuferða/
Landsýnar og Bridgesambands ís-
lands, verður haldið helgina 15.-16.
febrúar nk. Fyrirkomulag verður
með sama sniði og tvö hin fyrri, þ.e.
Mitchell-tölvuútreiknaður tvímenn-
ingur með 90 spilum (30 í lotu), tvær
umferðir á laugardegi og ein umferð
á sunnudegi. ðlafur Lámsson mun
annast stjómun að þessu sinni en
Vigfús Pálsson tölvuvinnslu.
Eftir tvö fyrri mótin em efstu pör
þessi:
1. Magnús Torfason-
Guðmundur Pétursson 30,04 stig
2. JakobKristinsson-
Júlíus Sigurjónsson 29,89 stig
3. Þórarinn Sigþórsson-
Þorlákur Jónsson 29,27 stig
4. Hörður Blöndal-
Grettir Frímannsson 23,15 stig
5. Kristján Blöndal-
Jónas P. Erlingsson 28,85 stig
6. Sigfús Þórðareon-
Vilhjálmur Þ. Pálsson 27,43 stig
Næstu spilarar em (sumir með eitt
mót að baki) Sigfús Öm Ámason
Rúnar Magnússon, Birgir Þorvalds-
son, Jóhann Jónsson, Páll Pálsson,
Frímann Frímannsson, Pétur Skarp-
héðinsson og Þóra Sigmundsdóttir.
Tveir bestu árangrar af þremur
gilda til heildarverðlauna sem em
sem hér segir:
1. verðlaun: Ferðaúttekt í leiguflugi
S.L. að upphæð kr. 60.000 auk pen-
ingaverðlauna að upphæð kr. 50.000.
2. verðlaun: Ferðaúttekt í leiguflugi
S.L. að upphæð kr. 30.000 auk pen-
ingaverðlauna að upphæð kr. 25.000.
3. verðlaun: Ferðaúttekt í leiguflugi
S.L. að upphæð kr. 20.000 auk pen-
ingaverðlauna að upphæð kr. 15.000.
4. verðlaun: Ferðaúttekt í leiguflugi
5. L. að upphæð kr. 15.000 auk pen-
ingaverðlauna að upphæð kr. 10.000.
5. verðlaun: Ferðaúttekt í leiguflugi
S.L. að upphæð kr. 15.000 auk pen-
ingaverðlauna að unphæð kr. 5.000.
Nauðungaruppboð annað og síðara sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirt- ingablaðsins 1985 á eigninni Laufbrekku 23, hluta, þingl. eign Magnúsar Valdimarssonar og Elínar Þorbjarnardóttur, fer fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs og Jóns Þóroddssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 4. febrúar 1986 kl. 10.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Vestur
▲ 54
<7 KG764
0 106
+ D872