Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1986, Síða 44
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1986
FRÍÐA FULBRIGHT
Marcy Manes með Fulbright-barnið á Fæðingarheimili Reykjavikur. DV-mynd GVA,
„Við ætlum að reyna að finna
fallegt, íslenskt nafh á hana,“
sagði Marcy Manes, móðir fyrsta
Fulbright-bamsins sem fæðist á
Islandi.
Fulbright-bam?
Þannig er mál með vexti að síð-
astliðinn miðvikudag eignaðist
Marcy Manes lítið stúlkubam á
Fæðingarheimili Reykjavíkur.
Faðirinn, Christopher Manes, er
styrkþegi hjá Fulbright stofnun-
inni og leggur stund á nám í
fomíslensku við Háskóla ís-
lands. Á meðan á fæðingunni
stóð, eða svo gott sem, hélt ís-
lenska Fulbright-nefndin 200.
fund sinn hér á landi en hún
hefur verið starfandi í 30 ár.
Meðal þeirra sem tóku á móti
baminu var Ingigerður Guð-
bjömsdóttir hjúkmnamemi,
eiginkona Róbert Berman, fram-
kvæmdastjóra Fulbright stofn-
unarinnar.
Fulbright stofnunin styrkir ís-
lendinga til náms í Bandaríkjun-
um og tekur á móti bandarískum
styrkþegum sem hyggja á nám
hérlendis.
„Það var dásamlegt að eiga
harnið héma á Islandi; læknis-
umönnunin sem ég hef fengið er
á heimsmælikvarða," sagði
Marcy og; bamið rak upp öskur
eins og lítill víkingur.
Ef til vill verður stúlkan skírð
Fríða Fulbright?
-EIR'
Kosið um áfengi
íGarðabæ
Vegna (jölda tilmæla og áskorana
um að fram fari koaningar um
áfengisútsöfu í Garðabæ hefur
bæjarstjórn Garðabæjar samþykkt
að fram fari kosningar um hvort
heimila eigi áfengisútsölu í bænum.
Kjönfagur verður 22. febrúar 1986
og kosningarétt hafa allir Garð-
bæingar sem á kjördegi hafa náð
2o ára aidri. Kosið var um opnun
útsölu ÁTVR í bænum 1982 og var
opnun hafnað með naumum meiri-
hluta þá. Bæjarbúar í Garðabæ eru
nú 892 og hefur þeim fjölgað um
17.35% frá árinu 1981. Utankjör-
staöakosning fer fram á bæjarskrif-
stofu Garðabæjar frá 10. febrúar
1986 á venjulegum opnunartima
skrifstofunnar. MS
7
RAUSTIR
MENN
25050
sznDiBiLnsTöÐin
LOKI
Bara aö hún veröi ekki
full-bright meö aldrinum.
Rangri olíutegund
dælt í Reykiafoss
„Það hefðu getað orðið skemmdir á
vélum skipsins ef olían hefði verið
notuð. Sem betur fer gerðist það
ekki. Þetta er leiðinlegt óhapp sem
raskar þó ekki áætlun skipsins,“
sagði Þórður Sverrisson hjá Eim-
skip. Það var unnið við það í gær í
Horsens í Danmörku að dæla olíu
upp úr olíutönkun Reykjafoss en hún
var mun þykkari heldur en skipið
brennir.
Mistök áttu sér stað í Helsingborg
í Svíþjóð, þar sem Reykjafoss tók
olíu á fimmtudaginn. Rangri tegund
af olíu var dælt um borð. Um talsvert
magn var að ræða. Mistökin upp-
götvuðust ekki fyrr en tveimur tím-
um eftir að Reykjafoss fór frá Hels-
ingborg. Þau komu í ljós þegar fyrir-
tækið, sem Eimskip verslar við,
framkvæmdi gæðakönnun á olíunni.
Fyrirtækið lét skipstjórann á
Reykjafossi strax vita. Það var ekki
talin ástæða til að snúa skipinu við.
Það hélt til Horsens. I gær var unnið
við að dæla olíunni upp úr tönkum
skipsins, jafnhliða því að lestaðar
voru vörur. Reykjafoss fer frá Hors-
ens til Moss í Noregi og er væntan-
legur til Reykjavikur í næstu viku.
-sos
Veitingahús ganga kaupum og sölum:
Nýir eigendur
að Kvosinni
El Sombrero verður kínverskur staður
„Við munum ekki gera stórbreyt-
ingar til að byija með. Það er
ýmislegt á prjónunum hjá okkur,“
sagði Guðmundur Sigurhansson
framreiðslumaður sem ásamt fé-
laga 8Ínum, Vigni Guðmundssyni,
hefur fest kaup á veitingastaðnum
Kvosinni og Sælkeranum. Þeir fé-
lagar hafa leigt Kvosina og rekið
sl. tvö ár.
Eins og hefur komið fram í DV
þá eru margir matsölustaðir í
Reykjavík til sölu og nú á næstu
dögum eru fyrirsjáanleg eigenda-
skipti á nokkrum stöðum.
E1 Sombrero er til sölu. Á mánu-
daginn verður væntanlega gengið
frá kaupum á staðnum sem verður
kínverskur matsölustaður. Það eru
eigendur Mandarín í Kópavogi og
Einar óskarsson og kona hans,
Anna Peggy Friðriksdóttir, sem
ætla að stofha nýtt hlutafélag og
kaupa staðinn. Einar og Anna hafa
rekið Sælkerann.
Eigandi E1 Sombrero ætlar að
snúa sér alfarið að pizzuframleiðslu
til sölu til verslana.
Hellirinn er til sölu. Nú í vikunni
stefndi allt í að nýr eigandi tæki
við en upp úr samningum slitnaði.
Fógetinn hefur verið til sölu og
helmingur hlutabréfa Lækjar-
brekkuertilsölu.
Fleiri staðir hafa verið nefiidir.
Það er því ljóst að miklar hræring-
ar eru í veitingahúsabransanum.
-sos
DV-mynd GVA.
Þrenn prófkjör fara
fram nú um helglna.
Alþýöuflokkurinn f
Reykjavfk heldur próf-
kjör og sömuleiöis Al-
þýöuflokkurinn í Hafn-
arfiröi. Pá lýkur forvall
Alþýöubandalagsíns f
Reykjavfk f kvöld. Sva-
var Gestsson, formaöur
Alþýöubandalagsins,
grelölr hér atkvæöi.
Sjá „Hörkulegustu átök
frá Tónabfósfundl“ á
bls4—5.