Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Blaðsíða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
7
Atvinnumál
Atvinnumál
Atvinnumál
Litið inn í Landssmiðjuna:
Eitt ár í eigu starfsmanna
og uppsveifla í rekstrinum
„Reksturinn gekk vel á síðast-
liðnu ári og Landssmiðjan skilaði
hagnaði. Þegar við starfsmennimir
tókum við rekstrinum af ríkinu um
áramót 1984/1985 stefndum við að
30% veltuaukningu. Því markmiði
náðum við. Galdurinn er aðallega
fólginn í góðri samvinnu og mikilli
hagræðingu í öllum rekstri," sagði
Þorleifur Markússon, stjómarfor-
maður Landssmiðjunnar, er blaða-
mann bar að garði
Landssmiðjan var í eigu ríkisins
til byrjunar ársins 1985. Síðan þá
hafa starfsmennirnir sjálfir rekið
smiðjuna. Af 66 starfsmönnum, sem
nú starfa hjá fyrirtækinu, á 21 hlut
í því. Hluthafarnir eru allir virkir
starfsmenn Landssmiðjunnar.
Fimm þeirra mynda aðalstjóm fyr-
irtækisins.
„Iðnaðarráðuneytið átti hug-
myndina að því að starfsmenn
keyptu fyrirtækið, Það var á þeim
tíma sem sala á ríkisfyrirtækjum
var í algleymingi. 50-60 starfsmenn
vildu vera með í upphafi en síðan
fækkaði í hópnum og eftir varð 21.
Allir eru þeir eigendur enn í dag.
Hlutfé nemur um 4 milljónum
króna en heildarverðið er um 20
milljónir.
Við endurskipulögðum alla starf-
semina, komum af stað tölvukerfi
og hagræddum rekstrinum til
muna. Öll yfirbygging og skrif-
stofuhald hefur minnkað. Einnig
höfum við lagt meiri áherslu á
verslunina sem nú er flutt í Árm-
úla. Þar hefur almenningur betra
tækifæri til þess að nálgast það sem
við erum að framleiða," sagði
Þorleifur.
og skápa og fleira, þótt aðaláhersl-
an sé lögð á innréttingar i birðar-
geymslur.
„Það eru svo margir sem gleyma
Landssmiðjunni og hennar fram-
leiðslu. Við erum að reyna að
auglýsa meira en áður var gert,“
sagði Þorleifur stjórnarformaður.
Samheldnin er okkar styrkur
„Starfsfólkið hefur lagt sig mjög
UMSJON:
KATRÍN BALDURSDÓTTIR
Framleitt allt frá heimilishill-
um í stórar verksmiðjuvélar
Hjá Landssmiðjunni er fyrst og
fremst verið að framleiða vélar
fyrir fiskimjölsverksmiðjur, eins og
er einungis fyrir þær innlendu.
Ætlunin er þó að færa út kvíarnar
og gera tilboð erlendis sem nú
þegar er í undirbúningi.
Einnig er veitt þjónusta við alls
konar loftverkfæri, loftpressur
o.s.frv. Nú einnig er hægt að fá
þarna ýmislegt til heiniilis, hillur
fram. Það hefur reyndar alltaf gert
það í þau 30 ár sem ég hef starfað
hérria. Sama þótt ríkið hafi verið
húsbóndinn," sagði Guðmundur
Finnbjörnsson, sölustjóri Land-
ssmiðjunnar.
„Breytingin er þó áhugaverð, það
er ekki leiðinlegra að vera sjálfur
eigandi. Það er ýmislegt að gerast
hjá okkur við erum að taka upp
ný viðfangsefni, fyrirtækið má ekki
úreldast,“ sagði Guðmundur.
„Við renndum auðvitað blint í
sjóinn þegar við tókum við. Við
vissum ekki hvernig þetta mundi
fara. En við treystum á guð og
lukkuna og þetta tókst. Og sam-
heldnin er fyrst og fremst okkar
styrkur. í upphafi héldum við að
samstarfið gæti orðið þrándur í
götu, en á öllu þessu ári hafa engar
alvarlegar deilur komið upp,“ sagði
Guðmundur.
Við borgum alltaf okkar skuld-
ir
„Ég er sáttur við þessa eigna-
breytingu. Maður er alltaf að reyna
að gera sitt besta og hefur alltaf
gert öll þessi 30 ár sem maður hefur
unnið hér. Það er þó meira gaman
að vinna við sitt eigið fyrirtæki.
En barnið okkar er ungt og við
erum peningalitlir, við viljum ekki
taka meiri lán, það er dýrt. En við
eigum örugglega meiri útistand-
andi skuldir en við sjálíúr skuldum.
Við stöndum alltaf í skilum.
Mér fannst rétt af okkur að
kaupa Landssmiðjuna úr því sem
komið var. Það stóð jafnvel til að
ríkið legði fyrirtækið niður. Ég hef
starfað hjá fyrirtækinu siðan ég fór
að búa og hef taugar til þess. Mér
líst vel á framtíðina hjá fyrirtæk-
inu undir okkar stjórn.“ sagði
Finnbogi Jónsson sem vinnur við
plötusmíðar, nýsmíðar og alls
konar viðgerðir. Hans hlutafé í
fyrirtækinu er 230 þúsund. „Sumir
eiga minna og aðrir meira," sagði
Finnbogi.
Engin kona hluthafi
„Þetta er dæmigert karlafyrir-
tæki," sagði Fannev Úlfljótsdóttir,
sem vinnur við bókhald fyrirtækis-
ins, er hún var spurð hvers vegna
engin kona ætti í fyrirtækinu.
„Maður átti ekki peninga til að
leggja í þetta. Enginn verður ríkur
á því að vinna hjá ríkinu í 30 ár.“
sagði Kristjana Sveinsdóttir sem
vinnur á teiknistofunni.
„Breytingin var ágæt en starfs-
fólki á skrifstofunni var fækkað
um helming. Það var erfitt að sjá
á eftir vinnufélögunum sem sumir
urðu að fara þótt þeir vildu vera
áfram,“ sagði Guðbjörg Péturs-
dóttir sem unnið hefur hjá Land-
ssmiðjunni í níu ár.
„Samheldnin er okkar styrkur,“ sögðu stafsmennimir Guðmundur Finnbjömsson sölustjóri og Þorleifur Markússon
stjórnarformaður sem báðir eiga í Landssmiðjunni, sem hefur verið í eigu starfsmanna í eitt ár og gengið vel.
Finnbogi Jónsson starfsmaður í Landssmiðjunni í 30 ár og einn af núver-
andi eigendum. Hér er hann að slípa stál.
„Þetta er dæmigert karlafyrirtæki," sögðu þær Fanney Ulfljótsdóttir, Inga Hjartardóttir, Kristjana Sveinsdóttir og
Guðbjörg Pétursdóttir er DV hitti þær fyrir á kaffistofu Landssmiðjunnar. Af 66 starfsmönnum em 7 konur sem
vinna hjá fyrirtækinu.