Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Blaðsíða 32
68*78 58
Ritstjóm-Augl
i27022
Hafir þú ábendingu eða vitn-
eskjn nm frétt - hringdn þá í
sima 687858.
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað i DT,
greiðast 1.000 krónnr.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri vikn greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Tið töknm við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1986
Ekiðá65ára mann
_ 65 ára maður varð fyrir bifreið á
bileppsvegi í gær. Maðurinn var að
fara yfir gangbraut þegar ekið var á
hann. Bílstjóri bifreiðarinnar gerði
tilraun til að koma í veg fyrir slys.
Bifreiðin fór upp á eyju og hafnaði
þar á ljósastaur eins og sést hér á
myndinni. Maðurinn var fluttur á
Slysadeild. Kann var með áverka á
höfði en ekki í lífshættu.
Annar eldri maður varð fyrir bif-
reið á gatnamótum Hringbrautar og
Furumels. Maðurinn slasaðist ekki
mikið. - SOS/DV-mynd:S
Sigurður L Guðmunds-
son borgarfulltrúi:
Engin kæra
„Nei, ég hef ekki lagt fram beiðni
um rannsókn á prófkjörinu. Það er
rétt, að ég hafði um það orð að
ákveða mig í gærkvöldi um hvort ég
legði fram slíka beiðni. En þetta
hefur dregist og ætli það dragist ekki
að minnsta kosti einnig út daginn í
dag,“ sagði Sigurður E. Guðmunds-
son, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins,
í morgun.
Eftir prófkjör flokksins um helgina
gerði Sigurður harkalegar athuga-
"semdir um afskipti flokksforystunn-
ar, um bandalag mótframbjóðenda
og um að notaðar hefðu verið ný-
smurðar kosningavélar einstaklinga
í prófkjöri sjálfstæðismanna. Sam-
kvæmt traustum heimildum DV er
eins víst að Sigurður láti málið niður
falla vegna þess hve prófkjörsreglur
Alþýðuflokksins séu óljósar og máls-
atvik sömuleiðis. HERB
T
RAUSTIR
MENN
25050
senDiBíLPSTöÐin
LOKI
' Er ekki rétl að parkera spari-
bauknum og fá sér einrr
amriskan og átta gata?
Ríkisstjómin
krafin svara
Ríkisstjómin hefur lofað aðilum
vinnumarkaðarins skriflegu svari
um til hvaða aðgerða hún er tilbúin
að grípa í verðlagsmálum til að
halda verðbólgunni niðri. Fjallað
verður um þessar aðgerðir á ríkis-
stjómarfundi í dag og búist við að
svar liggi fyrir á miðvikudag eða
fimmtudag.
Fulltrúar Alþýðusambandsins,
Vinnuveitendasambandsins og
Vinnumálasambandsins funduðu
með fulltrúum ríkisstjómarinnar í.
gær. Þar kom fram jákvæður vilji
af hálfu ríkisstjómarinnar til að
halda gengi stöðugu, endurskoða
verðlag opinberrar þjónustu og
endurskoða skatta- og vaxtamál.
Alþýðusambandið hefur lagt
fram ákveðnar hugmyndir um
aðgerðir í efnahagsmálum. Lagt er
til að ekki komi til frekari hækk-
ana á opinberri þjónustu á árinu,
dregnar verði til baka hækkanir
sem ákveðnar vom í ársbyrjun,
fyrirframgreiðslur skatta verði
lækkaðar, skattvísitalan verði lag-
færð og útsvör lækkuð. Þá er lagt
til að gripið verði til aðgerða til
að lækka vexti. Einnig að greiðslu-
kortanotendur beri kostnað af slík-
um viðskiptum. Þá er varpað fram
þeirri hugmynd að beita tímabund-
inni verðstöðvun i 6 til 9 mánuði.
Ekki er samkomulag milli ASÍ,
VSÍ og VSM um þessar leiðir. Hins
vegar em aðilar sammála um að
ekki verði komist lengra í samn-
ingamálum nema að svör ríkis-
stjómarinnar liggi fyrir um aðhald
í verðlagsmálum.
„Við viljum reyna til þrautar að
ná kaupmættinum upp án þess að
þurfa að fara í gegnum verðbólgu-
hringinn aftur. Við komumst ekki
lengra áfram í samningamálunum
nema að fá fram vilja ríkisstjórnar-
innar til að halda verðlagi niðri,“
sagði Ásmundur Stefánsson, forseti
ASl, í gær.
-APH
Fundur samningsaðila meö oddvltum rikisstjórnarinnar i gær. Karl Steinar Guðnason, Guðmundur
J. Guðmundsson og Vfglundur Þorsteinsson ræða við Þorstein Pálsson fjármálaráðherra.
DV-mynd GVA
ISAFJARÐARKENNARAR
SEGJA NÆR ALUR UPP
eru að þrýsta á Kennarasambandið
Kennarar i Grunnskóla Isafiarð-
ar riðu á vaðið í nýjum kjaraslag
kennara þegar þeir lögðu flestir inn
uppsagnarbréf á föstudag. 38 af 42
kennurum skólans, þar á meðal
skólastjórinn, segja upp með
þriggja mánaða fyrirvara. Upp-
sagnimar taka því gildi 1. maí.
Menntamálaráðherra hefúr heim-
ild til þess að fresta gildistöku
þeirra um þrjá mánuði og þar með
fram yfir skólalok á þessum vetri.
„Við verðum að ýta með þessum
hætti á Kennarasamband Islands
og viðsemjendur okkar hjá ríkis-
og fjármálaráðherra
valdinu. Til þess fór KÍ úr Banda-
lagi starfsmanna ríkis og bæja að
ná betri árangri. Ef sú barátta hefst
ekki núna töpum við heilu ári úr
og þá er til lítils unnið,“ segir Jón
Baldvin Hannesson skólastjóri. I
haust tókst eftir mikið bardús að
fylla í flestar lausar kennarastöður
en í 14 af 18 stöðum fengust aðeins
réttindalausir kennarar.
„Eftir þriggja ára háskólanám fá
byijendur í kennslu 24.347 krónur
á mánuði. Það er að vísu 1.500
krónum meira en sá fær sem byrjar
án réttinda. En með þetta fyrir
augunum þykir okkur það út i hött
að Kennarasambandið eyði allri
orku sinni í einhverja 5% hækkun
til þess að ná kennurum í Hinu
íslenska kennarafélagi. Það er út
af fyrir sig gott og gilt markmið en
miklu meira þarf til að koma svo
að nokkurt vit sé í kjarabaráttu
okkar,“ segir Jón Baldvin.
Einhver hreyfing er á kennurum
annars staðar en á ísafirði. Ekki
munu þó hafa komið fram álíka
hópuppsagnir í öðrum skólum
ennþá.
HERB
Tvær peninga-
sendingar til
Frankfurt
horfnar
— sendingamar vom
að upphæð 1,2 milljj.
Tvær peningasendingar Búnaðar-
banka Islands til V-Þýskalands að
upphæð samtals 1,2 milljónir ís-
lenskra króna í v-þýskum mörkum
eru horfnar. Gjaldeyririnn var send-
ur í seðlum og tryggðum ábyrgðar-
pósti til banka í Frankfurt 21. októb-
er og 28. nóvember. Staðfestingar um
móttöku komu ekki frá bönkunum í
Frankfurt en peningarnir voru send-
ir í gegnum sama pósthúsið í Ham-
borg.
Póstur og sími í Reykjavík segir
að peningamir hafi verið sendir úr
landi. Spumingin er þá hvort pen-
ingarnir hafi farið rétta leið frá póst-
húsinu í Hamborg. Það er verið að
vinna við rannsókn málsins og er
hugsanlegt að Rannsóknarlögregla
ríkisins leiti til Interpol vegna máls-
ins.
Ábyrgðarsendingamar vom
tryggðar hjá Bmnabótafélagi ís-
, lands. -SOS
Framsóknarmenn í
Kópavogi með f orval
Völdu sex
Á fundi framsóknarmanna í Kópa-
vogi í gærkvöld fór fram eins konar
forval frambjóðenda í prófkjör vegna
bæjarstjómarkosninganna í vor.
Þau sex sem fengu flest atkvæði em
Guðrún Einarsdóttir, Skúli Sigur-
grímsson, Elín Jóhannsdóttir, Einar
Bollason, Ragnar Snorri Magnússon
1 og Guðlaugur Guðmundsson.
Framsóknarflokkurinn hefur nú
tvo bæjarfulltrúa, Skúla og Ragnar
Snorra. Sá síðamefndi gefur ekki
kost á sér í prófkjörið þrátt fyrir
fylgið í gærkvöldi. -HERB
Þrjár stúlkur
handteknar
Þijár stúlkur, 13-14 ára, vom
handteknar í nótt í versluninni Stans
við Kaplaskjólsveg þar sem þær
höfðu brotist inn. Þegar lögreglan
kom á staðinn vom stúlkumar búnar
að leggja hald á sígarettur og sæl-
gæti. Við yfirheyrslu játuðu stúlk-
umar að hafa áður brotist inn í
verslunina. Það var 30. janúar.
Stúlkumar vom fluttar á upptöku-
heimili eftir yfirheyrslur í nótt. -SOS
Ráðherra
ógildir
ráðningar
Ný og betri staða er komin upp '
deilu flugumferðarstjóra og flug-
málastjóra eftir að Matthías Bjama-
son samgönguráðherra ákvað á
föstudag að ógilda ráðningu vakt-
stjóra.
Félag flugumferðarstjóra sakaði
Pétur Einarsson um að ráða „gæð-
inga“ sína í tvær vaktstjórastöður.
Ráðherrann hyggst auglýsa stöðum-
ar fiórar og ráða í þær sjálfur.
Kröfú sinni um afturköllun áminn-
ingarbréfa hafa flugumferðarstjórar
ekki fengið framgengt. Ráðherrann
kveðst hins vegar reiðubúinn að
skoða hvert tilfelli. -KMU