Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Page 8
8 DV. ÞRIÐ JUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 Versta vetrar- veður i Evrópu Á fyrsta degi Indlandsheimsóknar páfa söfnuðust þúsundir hindúa saman í höfuðborginni Nýju Delhi og mótmæltu komu hans. í borginni Kalkútta og Norðurríkjunum hefur lítið farið fyrir mótmælaaðgerðum gegn páfa, þar hafa hundruð þúsunda safnast saman og fagnað Jóhannesi Páli páfa. Hundruð þúsunda við messu páfa í Ranchi Jóhannes Páll páfi annar heimsótti Maríu Teresu, nunnuna er barist hefur gegn örbirgð í fátækrahverfum Kalkútta síðastliðin fjörutíu ár. Páfi virtist auðsjáanlega snortinn yfir heimsókninni til Maríu Teresu og þeirri fátækt og þeim skorti er fyrir augu hans bar í þessari ind- versku stórborg. I Kalkútta minnti páfinn þróaðri ríki veraldar á skyldu þeirra gagn- vart fátækum og mannmörgum ríkj- um þriðja heimsins og skoraði á þau að draga úr fjárframlögum til her- mála og auka í stað þess þróunar- hjálp. í borginni Ranchi, annarri stærstu borg hins fjölmenna og fátæka Bihar ríkis, söfnuðust yfir 400 þúsund manns saman og heyrðu páfann afneita atvinnuleysi og iágum laun- um. Jóhannes Páll flýgur í dag til norð- urhluta Indlands þar sem höfð verð- ur sex stunda viðkoma í ríkjunum Assam og Meghalaya, sem eru þekktust fyrir mikla terækt, en held- ur síðan aftur til Kalkútta í kvöld. Páfi syngur í dag messu á golfvelli í bænum Shillong í Assam, sem ligg- ur í afskekktu fjallahéraði umluktu Kínverska alþýðulýðveldinu, Burma og Bangladesh, og hefur löngum Undarlegt bankarán Frá Ketilbirni Tryggvasyni, frétta- ritara DV í Vestur-Berlín: Undarlegur atburður átti sér stað í bænum Blieskastel hér í Vestur- Þýskalandi nýverið. Maður einn, sem nýlokið hafði við að opna banka- bók í bankaútibúi þar í bæ, dró skyndilega upp byssu og heimtaði peninga af gjaldkera bankans. Eftir að vera kominn með góða fúlgu í hendumar hafði maðurinn sig á brott. Lögreglan kom stuttu síðar á stað- inn og átti ekkil neinum vandræðum með að hafa upp á ræníngjanum. Ástæðan var einföld, hann hafði gefið upp rétt nafn og heimilisfang við opnun bankabókarinnar! Útibússtjóri bankans lét síðar láta hafa það eftir sér í viðtali að ekkert annað hefði vantað upp á vitleysuna en að ræninginn hefði lagt ránsféð strax inn á nýju bókina sína. verið kunnur fyrir strangtrúaða kaþólikka. Ferðalagið til Indlands er 29. opin- bera heimsókn páfans í útlöndum frá því hann tók við embætti. Versta vetrarveður gekk yfir meg- inlandið um helgina en mesta veður- hæðin gekk niður aftur í gær þótt fjöldi bæja í Frakklandi, Spáni, Austurríki og á Italíu væri vegasam- bandslaus vegna ófærðar. - Alls hafa 29 manns farist í þessu veðri, sem stóð nokkra daga, þar af sautján til sjós. í suðurhluta Frakklands, þar sem síma- og rafmagnslínur slitnuðu í ofsaroki og stórhríð, urðu herþyrlur að flytja hjálpargögn til þorpa við landamæri Spánar þar sem allt hafði fennt í kaf og ekkert varð komist landveginn vegna ófærðar. Þar ríkti hálfgildings neyðarástand í þrjá daga og 110 þúsund heimili eru enn rafmagnslaus. Spánarmegin við Pyreneafjöll eru um 100 bæir einangraðir vegna ófærðar og snjóþyngsla. La Jun- queraskarðið er lokað en það er aðalfjallvegurinn úr Katalóníu til Frakklands. I Austurríki voru yfir 800 manns innifennt í skíðadvalarstöðum og þar hefur verið mikil snjóflóðahætta. Á Ítalíu var mikil fannkoma nyrst í landinu en úrhellisrigningar þegar sunnar dró og hvorutveggja svo að til vandræða horfði. í Róm hafa til dæmis ekki komið aðrar eins rign- ingar í 86 ár og höfðu menn áhyggjur af því hve vatnið stóð hátt í ánni Tiber. í Sviss tepptist vegasamband sums staðar og rafmagnslaust varð á stöku stað. Sums staðar, eins og í Ticino- héraði, flúði fólk heimili sín vegna snjóflóðahættu. Mikið kuldakast hefur gengið yfir Evrópu að undanförnu. Snjóstorm- ur í Norður-Evrópu og mikil úr- koma og slydda í Suður-Evrópu. Mestu fangaskipti eftir stríð á Glienecke-brúnni Ásgeir Eggertsson, fréttaritari DV í Múnchen: Um leið og Bandarísk yfirvöld staðfesta að mestu njósnaraskipti eftirstríðsáranna muni nú fara fram þegja embættismenn í Bonn. Ríkis- stjórn Vestur-Þýskalands vildi, eins og málum var háttað, ekki taka af- stöðu til málsins. Hins vegar er það haft eftir örugg- um bandarískum heimildum í Was- hington að fangaskiptin muni fara fram þann 11. febrúar næstkomandi á Glienecke brúnni er liggur á milli Austur og Vestur-Berlínar. Kona andófsmannsins Andrei Shcharansky, er fluttist frá Sovét- ríkjurium árið 1974, mun nú bíða manns síns einhvers staðar í Vestur- Þýskalandi. Auk sovéska andófsmannsins verða þrír eða fjórir bandarískir njósnarar leystir úr haldi en nýjustu fréttir herma að enn hafi ekki náðst endanlega samkomulag um hverjir það verða. Fyrrverandi starfsmaður vestur- þýska vamarmálaráðuneytisins, Erwin Lutze, mun vera einn af þeim vestrænu föngum er leystir verða úr haldi og komast mun austur fyrir jámtjald. Hann ljóstraði upp um olíu- m Joseph P. Kennedy annar, sonur Roberts F. Kennedy, fyrrum öldungadeildarþingmanns og forsetaframbjóð- anda, hefur nýverið gefið kost á sér í framboð til bandarísku fulltrúadeildarinnar. Kjördæmið er í heimaríkinu Massachussetts. Brátt losnar staða fulltrúadeildarþingmanns í ríkinu eftir Thomas Ó Neil, forseta fulltrúadeild- arinnar, er verið hefur á þingi í 33 ár. Með Kennedy á myndinni er kona hans Sheila og synirnir Matthew og Joseph. leiðsluáætlanir Atlantshafsbanda- lagsins á sínum tíma og var dæmdur í tólf ára fangelsi í Vestur-Þýska- landi árið 1976. Umfangsmestu njósnaraskipti sem farið hafa fram hingað til áttu sér stað í júnímánuði í fyrra. Þá voru 25 starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar leystir úr haldi gegn fjórum njósnurum austan- tjaldsríkja er sátu í haldi í Banda- ríkjunum. Grunadauda- sveitirum El Salvadormorð Illa útleikin lík fjögurra íbúa bæj- arins San Jorge fundust í gær í út- jaðri höfuðborgar E1 Salvador, San Salvador. Höfðu fjórmenningarnir auðsjáan- lega verið teknir af lífi eftir harðar pyntingar. Minnir aðkoman á handbragð hinna illræmdu dauðasveita í E1 Salvador er tekið hafa hundruð manna af lífi án dóms og laga. Bóndi einn, er slapp undan morð- ingjunum á síðustu mínútu, segir óþekkta byssumenn hafa ráðist inn í San Jorge á laugardag og dregið á brott með sér fjórmenningana er síðar fundust my rtir. Enn hafa engin samtök lýst ábyrgð á hendur sér fyrir morðin en yfirvöld hafa gefið í skyn að dauðasveitir hægri manna beri ábyrgð á illverk- unum. Síðastliðinn sunnudag fundust lík þriggja ungra manna skammt frá San Salvador. Voru hendur þeirra bundnar fyrir aftan bak og höfðu morðingjamir skorið höfuðið af fórnarlömbunum. Utlönd UUönd Uttönd UUönd Uttönd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.