Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Qupperneq 9
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 9 UUönd Utlönd Utíönd UUönd Utiönd GRÆNFRIÐUNGAR HREKJAST BURT UNDAN ÍSNUM Svisslending- iiin ofbýður Gissur Helgason, fréttaritari DV í Zurich: Undanfarna daga hefur kyngt nið- ur gífurlega miklum snjó í Sviss og hafa snjóruðningstæki og hjálpar- sveitir vart haft undan við að hreinsa snjó af vegum þar sem umferð er hvað mest og mikið hefur verið um skriðuföll en sem betur fer lítið um meiriháttar slys. Þúsundir hafa lokast inni i íjalla- þorpum, bæði hér í Sviss, svo og í Austurríki. En það er ekki aðeins hér á hálend- issvæðunum sem gert hefur mikið fannfergi heldur hafa stór svæði í Suður-Frakklandi og á Spáni orðið illa úti enda fremur fátítt að snjói mikið á þeim svæðum. í Róm er aftur á móti allt á floti í vatni eftir gífurlegar rigningar og vatnavexti undanfarna daga. Telur skutlu- slysið vera „\án í óláni” Breskur biskup lét svo ummælt á fundi í lávarðadeild breska þingsins að hið hörmulega slys geimskutlunn- ar gæti reynst „lán í óláni“ ef það yrði til þess að seinka stjörnustríðsá- ætlun Reagans forseta. Hugh Montefiore, biskup af Birm- ingham, sagði þingdeildinni að stjörnustríðsáætlunin væri siðferði- leg afturför því að hún mundi inn- leiða nýjan áhrifavald til jafnvægis- leysis í alþjóðlegum samskiptum. Sagði hann að geimskutlan hefði verið í fyrri geimferðum notuð til hernaðarlegra tilrauna úti í geimn- um og hefði verið ætlað mikilvægt hlutverk við að koma upp geim- varnarkerfinu. Bretar urðu í fyrra fyrsta banda- lagsþjóð Bandaríkjanna sem undir- ritaði samkomulag um samstarf við rannsóknir fyrir stjörnustríðsáætl- unina. Meðal annar hafa menn von- ast til þess að þessi áætlun mundi reka á eftir Rússum að setjast frekar til samninga um takmarkanir kjarn- orkuvopna. Á sykurplantekrunum hafa menn lítið orðið varir úrbótanna sem Marcos hét þeim og gerði á pappírunum. SEXTÁN DREPNIR í KOSN- INGAUNDIRBÚNINGNUM Frá kosningaundirbúningnum á Filippseyjum berast þær fréttir að undir síðustu helgi hafi tveir menn til viðbótar verið drepnir við kosningastarfið. Forsetakosningarnar verða núna 7. febrúar. Borgarstjóri var skotinn til bana, þar sem hann fór á vélhjóli hús úr húsi í Camarines Sur-héraðinu (um 30 km suðaustur af höfuðborginni Manila) til að tala máli Marcosar forseta við kjósendur. - Forsvarsmenn hers- ins telja að skæruliðar kommúnista hafi staðið að verknaðinum. Áður hafði bæjarráðsmaður, stuðningsmaður Marcosar, verið drepinn á leið á útimarkað en enginn hefur minnstu hugmynd um hver þar hefur verið að verki. Alls hafa sextán manns verið drepnir í undirbúningi forsetakosninganna og flestir þeirra úti í dreifbýlinu þar sem ríkir töluverð heift út í stjórn Marcosar meðal jarðnæðislausra en jarðeigendur fylgja honum hins vegar í gegnum þykkt og þunnt. Marcos hefur gert hálfkaraðar tilraunir til þess að bæta kjör verkafólks i landbúnaðinu en þeirra gætir lítið enn. Marcos hefur lofað landsmönnum öðru af tvennu eftir kosningarnar. Ef hann tapi skuli hann sjá til þess að valdaskiptin gangi átakalaust fyrir sig. Ef hann vinni skuli hann endurskoða lögin. Suðurskautsleiðangur Grænfrið- unga er snúinn aftur til Nýja- Sjálands og er hættur við að skila af sér tækjakosti og viðlegubúnaði í bækistöðina á Suðurskautslandinu vegna þess hve hafísinn er þéttur. „Við komumst einfaldlega ekki í gegnum ísinn. Það væri fífldirfska að bjóða skipinu slíkt álag." sagði Peter Wilkinson leiðangursstjóri við fréttamenn Reuters í síma. lega átti að setja upp búðirnar fyrir leiðangurinn sem ber uppi merki samtakanna fyrir baráttu þeirra um að Suðurskautslandið verði friðlýst- ur þjóðgarður heimsins. Þeir i Greenpeacesamtökunum telja að Suðurskautslandinu sé ekki nógu vel borgið i höndum umsjónar- ríkjanna sem bætti til að líta á álfuna sem sína einkaeign. O/iaif lækkaði um dollar ígær Þeir höfðu gert sér vonir um að komast að Ross-eyju til þess að slá þar upp búðum eftir að hafa snúið frá meginlandinu þar sewm upphaf- Leiðangursmenn segjast hafa lært mjög af þessari fýluför og vera stað- ráðnir í að snúa þangað suðureftir aftur að sumri komanda. Olíuverð stendur nú í því lægsta á heimsmarkaðnum sem það hefur komist í sex ár. Er það komið niður Sprengjaíversl- unargötu Sprengja sprakk í verslunarstræt- inu Champs Elysees Boulevard, í miðborg Parísar, í gærkvöldi þegar margt var á ferli og særðust átta manns, þar af þrír alvarlega. Rúður brotnuðu í fjölda húsa, þar á meðal verslununum í Claridge-hóteli. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í öskutunnu en við sprenging- una fór í gang sjálfvirkt slökkvikerfi í verslunargöngunum við Claridge- hótel svo að allt fór á flot, sem gerði björgunarmönnum erfitt um vik við að koma særðum mönnum undir læknishendur. Ekkert liggur fyrir um hverjir hafi komið sprengjunni fyrir. fyrir 17 dollara olíufatið sem hefur ekki gerst síðan 1979. Það lækkaði um dollar í gær á meðan fimm olíuráðherrar í mark- aðsnefnd OPECs komu saman til fundar í Vín en búist er við því að þeir ljúki viðræðum sínum í dag. Til umræðu var hjá þeim sú stefna, sem mörkuð var á OPEC-fundinum í byrjun desember í vetur, að endur- heimta fyrri markaðshlutdeild OPEC, jafnvel þótt olíuverðið færi niður úr öllu valdi á meðan. Fonnaður markaðsnefndarinnar, Grisanti, olíuráðherra Venezúela, sagði í lok fundarins í gær að olíu- framleiðsluríki innan OPECs og utan yrðu að taka höndum saman til þess að viðhalda einhverju jafnvægi á olíumarkaðnum. En auðheyrilega talaði hann ekki fyrir munn allra nefndarmanna og enn síður fyrir öll aðildarríkin þrettán. Sum OPEC-ríkin hafa dælt olíu á markaðinn langt umfram fram- leiðslukvóta sína, eins og þeir hafa verið ákveðnir af OPEC. Síðustu tvo mánuði hefur það sumpart verið gert í viðleitni til þess að beygja olíufi-am- leiðendur utan OPECs til samstarfs um að halda olíuverðinu uppi. - Verðið hefur fallið um þriðjung á meðan. „Við komumst einfaldlega ekki í gegnum ísinn. Það væri fífldirfska að bjóða skipinu slíkt álag,“ segja leiðangursmenn grænfriðunga og hafa snúið við frá Suðurskautslandinu. Köstuðu bensínsprengjum og grjóti í Kwazakale Öeirðalögregla notaði táragas- sprengjur og gúmmíkúlur til að dreifa hundruðum suður-afrískra andófsmanna í þrem héruðum Suð- ur-Afríku í nótt og í morgun. 1 morg- un bárust fregnir af því að einn blökkumaður hefði særst alvarlega í átökunum við öryggissveitimar í Kwazakale, blökkumannabyggðinni við Port Elisabeth, eftir að múgur blökkumanna hafði kastað bensín- sprengjum og grýtt lögreglustöð í byggðinni. Sams konar árásir blökkumanna vom gerðar á lögreglustöðvar í Claremont svertingjabyggðinni við hafnarborgina Durban. Engar fregn- ir hafa borist af íjölda særðra né mannfalli. Talið er að yfir 1100 manns hafi fallið í átökum í Suður-Afríku frá því róstumar í landinu hófust á ný fyrir rúmum tveim árum. Mörg þúsund hafá særst og gífur- legt eignatjón hefur orðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.