Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Qupperneq 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
11
Viðtalið
Meira ævintýri
en margt annað
Sigmar Sigurðsson, forstöðumaður
farmiðasöludeilclar Flugleiða
„Við erum rétt að koma okkur
fyrir í hreiðrinu eftir sjö ára dvöld
erlendis. Ég vann í sjö ár hjá Car-
golux og við bjuggum fyrst í tvö
ár í Lúxemborg og síðan fimm ár í
Hong Kong,“ sagði Sigmar Sig-
urðsson, forstöðumaður farmsölu-
deildar Flugleiða. Sigmar er að
koma aftur til starfa hjá Flugleið-
um. Hann hóf störf þar eða reyndar
hjá Loftleiðum fyrir sameiningu
1972 í farmsöludeild.
í Hong Kong var hann fram-
kvæmdastjóri Asíu- og Kyrrahafs-
svæðisins fyrir Cargolux.
Sigmar er Suðumesjamaður,
fæddur og uppalinn í Keflavík.
Á unglingsárum tóku skátastörf
mikinn tíma og vinna að æskulýðs-
málum. Hann var um tíma fram-
kvæmdastjóri og erindreki fyrir
Bandalag íslenskra skáta.
Órói í Hong Kong
„Það sem aðallega situr eftir í
huganum vegna starfa minna í
Hong Kong eru kynni af Austur-
landabúum, bæði í viðskiptum og
sem einstaklingum. Mikil ólga var
í Hong Kong á þeim tíma sem mest
var rætt um að afhenda Kínverjum
Hong Kong. Mikill órói var ríkj-
andi og margir ruku í burtu með
fjármuni og fyrirtæki. Málin eru
komin í betra horf nú. Persónulega
fannst mér ánægjulegt að vera
þama. Og það er meira ævintýri
en margt annað að dvelja svo fjarri
heimahögum og fá einhverja al-
þjóðareynslu," segir Sigmar. En
fjölskyldan ákvað að tími væri
kominn til að halda heim og nýtt
starf bauðst hér heima.
Eiginkona Sigmars er Edda
Hjálmarsdóttir. Bömin em tvö, 13
og 15 ára gömul.
Viðmælandi okkar kvaðst stunda
sund í tómstundum og hafa stund-
að tennis í Austurlöndum. Sigmar
Sigurðsson lauk verslunarskóla-
prófi í Bretlandi.
-ÞG
Sigmar Sigurðsson, forstöðumaður farmsöludeildar Flugleiða.
DV-mynd PK.
Þarftu að se/ja bíl? .
Vantar þig bíi?
SMÁ-AUGLÝSING í DV
GETUR LEYST VANDANN.
SMÁAUGLÝSINGADEILD -
ÞVERHOLT111 - SÍMI27022.
Bílar til sölu
M f i 1 X Feröafólk athugiö!
HmQI I AVfl Notaleg gisting í
HVIvi I vi V hjarta borgarinnar
Skólavöröixstíg 13A. Sími 62-17-39.
p--------Stór----------■*
■ skó-útsala ■
Margs konar skófatnaður
Stóra skóútsalan, Hverfisgötu 89.
HAPPDRÆTTISBÍLL TIL SÖLU
Höfum til sölu nýjan, ókeyrðan Subaru Justy, árg.
1986, fjórhjóladrifinn, hvítan að lit og 5 dyra. Láns-
kjör að hluta gegn góðu veði eða staðgreiðsluaf-
sláttur.
Bíllinn er til sölu og sýnis hjá Ingvari Helgasyni,
sími 33560.
Ennfremur veitir Byggðaverk hf. upplýsingar, sími
54959.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Yfirsjúkraþjálfari óskast við Kópavogshæli. Um-
sóknir er greini menntun og fyrri störf sendist stjórn-
arnefnd ríkisspítala fyrir 3. mars.
Upplýsingar veitir yfirlæknir Kópavogshælis í síma
41500.
Aðstoðardeildarstjóri við bæklunar- og barnaskurð-
lækningar óskast á skurðstofu Landspítalans.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Landspítalans
í síma 29000.
Starfsmaður óskast í býtibúr á dagheimili ríkisspítala
við Vífilsstaði. Um rúmlega hálft starf er að ræða.
Upplýsingar gefur forstöðumaður dagheimilisins í
síma 42800.
Starfsfólk óskast til vinnu við þvottahús ríkisspítal-
anna, Tunguhálsi 2. Boðið er upp á akstur til og frá
vinnustaðað Hlemmi.
Upplýsingar veitir forstöðumaður þvottahúss í síma
671677.
Starfsfólk óskasttil ræstinga og í býtibúrá Landspít-
ala í fullt starf og í hlutastarf.
Upplýsingar veita ræstingastjórar Landspítalans í
síma 29000.
Starfsfólk óskast til vinnu á deildum Kópavogs-
hælis. Vaktavinna.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Kópavogs-
hælis í síma 41500.
Starfsfólk óskast til ræstinga við Kópavogshæli.
Hlutastarf eða fulltstarf.
Upplýsingar veitir ræstingastjóri í síma 41500.
Aðstoðarmaður óskast í hálft starf eftir hádegi við
vinnustofur Kópavogshælis.
Upplýsingar veitir forstöðumaður Kópavogshælis í
síma 41500.
Reykjavik, 3. febrúar 1986.