Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Síða 13
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
13
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
7 ^
Til höfuðs
Karíusi
og Baktusi
í dag, þriðjudaginn 4. febrúar, er
tannverndardagur þar sem lögð er
áhersla á fræðslu um tennur og tann-
vernd. Á límmiðum sem úthlutað er
í öllum grunnskólum landsins, og
eiga að límast á skólabækur nem-
enda, er fólk minnt á að viðhalda
tönnum sínum svo hægt sé að halda
þeim ævilangt. „Eigin tennur eiga
að endast - varist eftirlíkingar“.
Mikil áhersla er lögð á góða og
reglulega hreinsun tannanna, hæði
með bursta og með tannstönglum og
tannþræði. Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið hefður gefið út
bækling í samvinnu við tannlækna-
deild Hl og Tannlæknafélag íslands
þar sem leiðbeiningar í máli og
myndum eru um hvernig best sé að
haga hirðingu tannanna.
Annað atriði, sem mikið er gagn-
rýnt í umræðunni um tannvemd, er
át milli mála og sífellt nart sem stuðl-
ar að því að tennur skemmast meira
en ella. Sýklaskánin sem myndast á
tönnunum breytir sykrinum í fæð-
unni í sýrur sem leysa glerunginn
upp og smám saman myndast holur.
Félag aðstoðarfólks tannlækna kynnti tannhirðu, fæðuval og neysluvenjur í Hagkaupi, Miklagarði, Víði og Vörumark-
aðinum sl. föstudag og laugardag. A myndinni eru Linda Ágústsdóttir, Bryndís Björnsdóttir og Auður Franklín að
kynna tannvernd í Hagkaup í Skeifunni. Mynd PK
Hafið tilbúið:
'/Vafn - heimilisfang - síma - nafnnúmer -kortnúmer'
og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.
Sýnið nú fyrirhyggju og burstið
tennurnar, eða eins og tannvemdar-
fólk segir: „Eigin tennur eiga að
endast - varist eftirlíkingar“.
-S.Konn.
Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður
færð á kortið.
Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar
og ganga frá öllu í sama símtali.
Hámark kortaúttektar í síma er kr. 2.050,-
SYKURKLUKKA 1
sýnir reglulega mat-
málstíma þarsem lítill
sykur er í fæð- ...
unni og því lítil V h,.
hætta á tann-
skemmdum.
morgunverður
kvöldmatur
/
hádegismatur
síðdegiskaffi
mjólkurglas og
smábiti
S YKURKL UKKA 2.
Svona lítur dæmið hins
vegar út, þegar oft er
verið að fá sér citthvað
sætt.
*
morgunverður ©
kvöldmatur
hádegismatur
Meðfylgjandi myndir af sykurklukk-
um sýna vel hvað við er átt.
í leiðbeiningum er sælgætisgrísum
bent á að reyna að takmarka sykurát
sitt við ákveðinn dag vikunnar og
bursta þá vel á eftir.