Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Page 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
19
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Þjóðhagslegar umbætur í þremur liðum:
„Niceland“ - þjóðsöngur og dollari
Þjóðhollur skrifar:
Einhver myndi nú segj a að ekki
væri á það bætandi að koma með
tillögur um úrbætur í þeim þjóðar-
vanda, sem við íslendingar eigum
sífellt við að glíma.
Efnahagsvandi okkar er ávallt efst
á blaði og verður æ umfángsmeiri
með hverju ári sem líður. Og það er
ekki nema eðlilegt því að stjórn-
málamenn hafa engin ráð önnur en
bæta á vandann með því að taka ný
erlend lán til viðbótar þeim sem fyrir
eru.
Það eru ýmiss konar úrræði sem
til eru og sem geta komið að gagni
en á fæst þeirra má minnast vegna
einstæðrar minnimáttarkenndar og
smásálarskapar sem einkennir
stjórnmálamenn og ráðamenn þess-
arar þjóðar, jafnt og flesta lands-
menn.
það gengur t.d. illa að kynna landið
erlendis, með tilliti til sölu á afurð-
um, til að laða að ferðamenn og bjóða
afurðir okkar vegna of hás verðs.
Það er engin einhlít lausn á þessum
málum öllum, en ýmislegt má gera,
og það strax, til að liðka til og eiga
betri aðgang að hinum erlendu
mörkuðum á ýmsum sviðum erlendra
samskipta.
Eitt er það með öðru sem er mikill
þrándur í götu í kynningu landsins
og hefur verið lengi. Það er nafnið
sjálft, ísland. Þetta nafn er hreint
öfugmæli á landinu. Oft 'er líka spurt
hvers vegna við höldum fast í þetta
kalda og fráhrindandi nafn.
Þegar það kemur fyrir að eitthvað
sérstakt eða frábært er bendlað við
land okkar er í gamni sagt erlendis
„Niceland“ í stað Islands. Dæmi um
þetta er frá keppni nýkjörinnar feg-
urðardrottningar okkar.
Og oft hefur verið ýjað að því að
heppilegt væri að skipta um nafn á
landinu. Hvað er t.d. á móti nýjum
nöfnum, eins og þessu að ofan, eða
heitinu „Sögueynni"? -
„The Saga Island“ er oft tekið fram
í bæklingum um ísland þegar mikið
þykir liggja við. Enginn mótmælir
þessari nafngift. Réttnefni og sann-
leikanum samkvæmt. Nafnið laðar
að og er mun hlýlegra en það sem
sem við notum nú. Kannski eru fleiri
hugmyndir um nafnbreytingu. Þetta
hafa margar þjóðir gert, t.d. þær er
hafa nýfengið sjálfstæði líkt og við.
í öðru lagi er nauðsynlegt að skipta
um þjóðsöng og taka upp annað lag
sem er meðfærilegra og léttara, efsvo
Fréttaskotið,
símimisemaldrei sefur
68-78-58
* m *
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
í
[
!
NYTT
umboð
á Islandi,
Skeifunni 8
Sími
68-88-50
★
★
★
★
★
★
t
★
★
★
★
★
1
má segja. Það hefur oftar en ekki
valdið erfiðleikum að leika þjóðsöng
okkar við hátíðleg tækifæri erlendis
og lagið er drepleiðinlegt og ekki við
hæfi semþjóðsöngur.
Þá er það myntin, krónan, sem er
til trafala og þyrfti að kasta henni
fyrir róða sem fýrst. Ekkert af þessu
sem hér er minnst á er slíkt haldreipi
að eftirsjá sé að. Þetta eru umbætur
í þremur liðum sem byrja má að
framkvæma strax.
i .
í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans
á þessu ári hefur stjórn bankans ákveðið að gera
sparifjáreigendum freistandi afmælistilboð:
100 ára afmælisreikningurinn er verðtryggður innlánsreikningur
sem gefur 7,25% ársvexti umfram vísitölu
og er aðeins bundinn í 15 mánuði.
Þetta er tilboð sem allir peningamenn
getamæltmeð. | ««
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
L
>LTENA______
Sólfilmur *
efst i framrúöur með tegundaheitum
t.d. Volvo, Mazda, Jeep. 4x4, og 20 fleiri, einnig skrautfilmur
á bilhúdd.
VARAHLUTAVERSLUNIN
ijttlLMÚLI
II SÍÐUIV1ULA3 |
^^37273
Sendum um allt land.