Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1986, Page 29
DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
29
STAÐA STARFSMANNS
MÓTA-, DÓMARA- OG AGANEFNDAR KSÍ
I boöi Zi staða starfsmanns móta-, dómara- og
aganefndar KSl sem er laus nú þegar. KSÍ leitar að
starfsmanni sem hefur áhuga á að vinna fjölbreytt
starf sem felur í sér mikil samskipti við fólk og krefst
þess að viðkomandi sé úrræðagóður, rökfastur og
hafi hæfileika til þess að leysa vandamál sem upp
kunna að koma í mótahaldi sambandsins. I boði
er skapandi starf sem býður upp á ákvarðanatöku,
nokkuð frjálsan vinnutíma og laun í samræmi við
hæfileika. Umsóknum skal skilað til skrifstofu KSl,
Iþróttamiðstöðinni, Laugardal, Reykjavík, í síðasta
lagi 7. febrúar næstkomandi.
ALÞJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF.
LÁGMÚLI5 - REYKJAVÍK
- tilkynnir nýtt
símanúmer:
681644
Norrænir verkefnastyrkir
til æskulýðsmála
Norræna æskulýðsnefndin hefur ákveðið að veita
takmarkaða styrki til svæðisbundins samstarfs
meðal æskufólks á Norðurlöndum.
Styrkirverða veittirtil:
- staðbundinna æskulýðsverkefna,
- samstarfs á ákveðnu svæði, einkum á vestursvæð-
inu (Island, Færeyjar og Grænland) og á Norður-
kollusvæðinu (Nordkalotten),
- æskulýðsstarfsemi sem ekki hefur getað notið
þeirra styrkja sem boðnir hafa verið til þessa af
norrænu nefndinni.
Æskulýðsfélög eða hópar í einstökum bæjar- eða
sveitarfélögum, sem hafa hug á norrænu samstarfi,
geta sótt um styrkina.
Umsóknum skal fylgja stutt lýsing á samstarfinu,
ásamt fjárhagsáætlun um verkefnið.
Einnig skal tekið fram hvort samstarfið sé styrkt af
öðrum aðilum.
Engin sérstök umsóknareyðublöð eru um styrki
þessa.
Umsóknarfrestur um styrkina rennur út 1. mars 1986
og skulu umsóknir sendast beint til:
Nordisk Ungdomskomité,
Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbede,
Snaregade 10,
1205 Köbenhavn K,
Danmark.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta i
Grettisgötu 94, þingl. eign Ástriðar Eyjólfsdóttur, fer fram eftir kröfu Gísla
Gíslasonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudag 6. febrúar 1986 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Orrahólum 7, þingl. eign Sigurðar E. Svein-
björnssonar og Heiðu B. Scheving, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands-
bankans og Iðnaðarbanka Islands á eigninni sjálfri fimmtudag 6. febrúar
1986 kl. 15.30.
____________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Sandkorn
Sandkorn
Snarráður
Keflvíkingur
Hann bjargaði sér snyrti-
lega fyrir horn, Keflvíking-
urinn sem vildi taka video-
myndir i útlandinu um jól-
in.
Að sögn Víkurfrétta fór
hann ásamt kór Keflavík-
urkirkju til Landsins helga
um hátiðarnar. Ætlaði
hann að taka tónleika kórs-
ins upp á myndband. Eftir
nokkra leit fann hann
ákjósanlegan stað til töku
myndarinnar. En þá viku
sér að honum verðir sem
vildu reka hann frá.
Keflvíkingurinn dó ekki
ráðalaus heldur ávarpaði
verðina með myndugleik:
„I am from Víkurfréttir
television, Keflavík, Ice-
land.“
Var þá ekki að sökum að
spyrja, allir ruku upp til
handa og fóta til að hjálpa
honum við ætlunarverkið.
Og því voru tónleikarnir
filmaðir með pomp pg
prakt.
Aulabanda-
lagið
Mikil reiði ríkti meðal al-
þýðubandalagsmanna á
þorrablóti sem þeir héldu á
iaugardagskvöldið. Þá
hafði verið fyrirhugað að
birta tölur úr nýafstöðnu
prófkjöri flokksins fyrir
borgarstj órnarkosningar.
Því var það að fólk
streymdi á þorrablótið til
að hlýða á boðskapinn.
En tölurnar voru ekki
lesnar upp eins og gert
hafði verið ráð fyrir. Mönn-
um fór því að leiðast þófið.
Endaði með því að Mörður
Ámasom stökk í hljóðnem-
ann og krafðist þess að
úrslitin yrðu gerð kunn.
Þessu var ekki ansað. Fleiri
létu í ljós óánægju sína, þar
Mörður Árnason var einn
þeirra fjölmörgu sem
þreyttust á að biða eftir
kosningatölum Alþýðu-
bandalagsins.
á meðal einn frambjóðenda
sem fannst þetta fyrir-
komulag svo fáránlegt að
hann talaði um „aula-
bandalagið".
En enda þótt hvini í nös-
unum á þorrablótsgestum
voru tölurnar ekki lesnar
upp fyrr en um íjögurleytið
um nóttina. Þá voru flestir
farnir heim. Þykir fullvist
að forráðamenn flokksins
hafi ekki þorað að lesa upp
hin óvæntu úrslit af ótta við
óeirðir meðal veislugesta.
Reiðugögn og
óreiðugögn
Hin ýmsu hugtök varðandi
tölvur og tölvuvinnslu hafa
þvælst nokkuð fyrir fólki.
Hefur mikið verið á sig lagt
til að snúa þeim yfir á ís-
lensku, með misjöfnum
árangri.
En hvað sem því öllu líður
þá ritaði Sigrún Helgadótt-
ir, reiknifræðingur og for-
maður orðanefndar
Skýrslutæknifélags ís-
lands, á dögunum efnis-
mikla grein um tölvu- og
gagnavinnsluorð í Tölvu-
mál. Þar fiallaði hún meðal
annars um fyrirbæri sem
hún nefndi reiðugögn og
óreiðugögn:
„... Einnig er talað um
„on-line data“. Þá er átt við
gögn, tiltæk á seguldiski
sem er á tölvutengdri stöð.
Þau mætti kalla reiðugögn.
„Off-line data“ mætti þá
e.t. v. kalla óreiðugögn. Þau
eru t.d. geymd á diskling-
Liklega er barist við óreiðu-
gögn á þessari ágætu mynd
sem tekin var traustataki í
SKÝRR-fréttum.
um og segulböndum inni í
skáp og eru ekki til reiðu.
Ennfremur er oft mesta
óreiða á disklinga- og segul-
bandasafni ýmissa tölvu-
notenda."
Og þá hafið þið það!
Grimmd hjá
Gjaldheimt-
unni
Þeir geta verið býsna
grimmir hjá Gjaldheimt-
unni ef menn borga ekki
skuldir sinar, jafnvel þótt
litlar séu.
Af einu fórnardýri frétt-
um við sem hafði lent í
vanskilum við báknið og
ekki greitt skatta sína fyrir
tilskilinn tima. í fyllingu
tímans knúðu lögtaks-
menn dyra hjá skuldaran-
um. Skrifuðu þeir niður
forláta trésmiðavél sem
þeirfundu i fórum hans.
Til þess að bjarga því sem
bjargað varð skokkaði
maðurinn niður í Gjald-
% i' 1
• >
J
Þeir vildu sínar sextán
krónur hjá Gjaldheimt-
unni, ella yrði lögtakið gert
að veruleika
heimtu og greiddi skuld
sina. Hélt hann að málinu
væri þar með lokið. En svo
var aldeilis ekki því nú fékk
hann kröfu upp á skuld sem
nam heilum 16 krónum.
Með fyrri reynslu í huga
hringdi hann strax í Gjald-
heimtuna og spurði hvort
kröfunni um lögtak yrði
enn haldið til streitu. Var
honum sagt að svo væri.
Ekki kunnum vér þessa
sögu öllu lengri en gera má
ráð fyrir að sextán krón-
urnar hafi verið greiddar til
að forðast frekari aðgerðir.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Kvikmyndir
Kvikm
Austurbæjarbíó — Æsileg eftirför
★★
Spennumynd
fyrir ökuþóra
Nýsjálensk. Argerð 1985. Leikstjóri:
Bruce Morrison sem er einnig höfundur
handrits ásamt James Koutz og Henry
Fownes. Myndataka: Kevin Hayward.
Tónlist: Stephen McCurdy. Aðalhlutverk:
Clifl Robertson, Leif Garrett og Lisa
Harrow.
Kvikmyndaáhugamenn hafa fylgst
með skemmtilegri þróun sem hefur
átt sér stað í kvikmyndagerð í
Eyjaálfu. Þar hefur fjöldinn allur
af athyglisverðum myndum verið
gerður á undanförnum árum og
hafa gæði þeirra vakið verðskul-
daða athygli.
Aðal þessara mynda hefur verið
góð og frískleg leikstjórn og vel
unnin handrit. Með þetta tvennt
að vopni hefur þeim Eyjaálfu-
mönnum tekist að skáka hinu
ameríska fjármálaveldi í kvik-
myndagerð. En svar Hollywood við
þessu var einfaldlega að kaupa
bestu leikstjórana til sín.
Ekki veit ég hvort Bruce Morri-
son, leikstjóri þessarar myndar,
verður keyptur á stundinni, trúlega
verður hann fyrst að sanna sig
betur sem leikstjóri þó hann vinni
þessa lipurlega.
Æsileg eftirför er ein af hinum
svokölluðu road- myndum sem svo
mikið hefur verið gert af í Hollywo-
od um dagana þó framleiðsla þeirra
hafi dregist saman á síðustu árum.
Aðalhlutverkið leikur þá vanalega
mörg hundruð hestafla amerískt
tryllitæki. Hér er það bleikur Trans
Am sem er í aðalhlutverki og er
ekki annað að sjá en að hann skili
sínu hlutverki.
Hér sést aðalleikarinn, bleikur Trans Am, á glæsilegu flugi en glæfraatriði
myndarinnar eru vel úr garði gerð.
Cliff Robertson leikur hér aldinn
ökuþór sem má muna sinn fífil
fegurri. Hann vinnur við áhættuat-
riði og hefur sem vélvirkja ungan
bróðurson sinn (Leif Garrett). Þeir
bera ekki mikið úr bítum og taka
því fegins hendi þegar kona ein
biður þá um að skutla sér bæjarleið
og greiðir vel fyrir þá þjónustu.
Reynist farangur hennar innihalda
einhvers konar eyðniveiru sem hún
ætlar að forða úr höndum Ný -
sjálenskra hernaðaryfirvalda sem
samkvæmt myndinni eru herská í
meira lagi. Ætlar hún að koma
veirunni í hendur CIA sem virðist
vera betur treystandi fyrir henni.
Fjallar myndin síðan um æsilegan
eltingarleik um Ný- sjálenska vegi.
Það er oft gaman að fylgjast með
bílaeltingarleiknum sem er aðal-
uppistaða myndarinnar. Er hann
fagmannlega unninn og gefur bestu
Hollywood framleiðslu ekkert eftir.
Það er hins vegar i handrits-
gerðinni sem hlutirnir hafa farið
úrskeiðis. Það er ekki nóg með að
efnisþráðurinn sé afskaplega
ófrumlegur heldur er hann einnig
bamalegur. Og þegar kemur að því
að fólk þarf að tala saman eru
samtölin ósköp hjárænuleg.
Það er leikarinn gamalkunni
Clift Robertson sem fer með aðal-
hlutverkið og kemur hann vel út
með sínu þreytta „sjarmör" yfir-
bragði. Svona menn bregðast aldr-
ei. Um frammistöðu annarra er það
helst að segja að enginn þeirra
vinnur leiksigur.
Sigurður Már Jónsson
★ ★ ★ ★ Frábær ★ ★ ★ Góð ★ ★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit