Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1986, Blaðsíða 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1986.
Andlát
Smári Ferdinandsson flugstjóri lést
af slysförum 5. apríl sl. Hann var
fæddur 28. júní 1951, sonur hjónanna
Ernu Matthíasdóttur og Ferdinands
Söbecks Guðmundssonar. Smári
lærði flug og starfaði síðustu árin
hjá Flugfélaginu Erni á ísafirði. Eft-
irlifandi. unnusta hans er Gríma
Huld Blængsdóttir. Útför Smára
verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju
í dag kl. 13.30.
Gróa Pálsdóttir, Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund, andaðist í Landa-
kotsspítla 13. apríl.
Ingibjörg M. Snorradóttir lést á
Hrafnistu í Hafnarfirði þann 13.
apríl. Utförin verður gerð frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði fimmtudag-
inn 17. apríl kl. 15.
Margrét Árnádóttir, Skeggjagötu 21,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 16. apríl kl. 15.
Sigrún Rögnvaldsdóttir, Hagamel 20.
lést miðvikudaginn 2. apríl. Jarðar-
förin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Hallbjörn Jónsson pípulagninga-
meistari, Barónsstíg 25, lést þann 11.
- apríl. Jarðarförin auglýst síðar.
Jón H. Árnason frá Steinnýjarstöð-
um er látinn.
Ólafía Sigríður Þorsteinsdóttir,
Hringbraut 111, Reykjavík, sem lést
5. apríl, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík miðvikudag-
inn 16. apríl kl. 15.
Sigríður Ólafsdóttir, Narfakoti,
Njarðvík, verður jarðsungin frá Inn-
ri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn
19. apríl kl. 13.30.
Útför Jóns Þorsteinssonar, Norður-
braut 33, Hafnarfirði, fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
16. apríl kl. 15.
Dr.med. Sigurður Sigurðsson, fyrr-
verandi landlæknir, sem lést þann
5. apríl sl., verður jarðsunginn frá
' Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
þriðjudag 15. apríl kl. 13.30.
Áslaug Árnardóttir, Álfheimum 13,
Reykjavík, sem lést 7. apríl, verður
jarðsungin frá Áskirkju í dag, þriðju-
dag, kl. 15.
Útför Magnúsar Sigurjónssonar úr-
smiðs fer fram frá Neskirkju mið-
vikudaginn 16. apríl kl. 13.30.
Tónlist
Háskólatónleikar
Áttundu of? síðustu háskólatónleik-
arnir á vormisseri 1986 verða haldnir
í Norræna húsinu miðvikudaginn 16.
apríl. Carmel Russill sellóleikari og
^ Stephen J. Yates píanóleikari flytja
sónötu ópus 102 nr. 1 í C-dúr eftir
Beethoven og þrjú lög fyrir selló og
píanó eftir Stephen Yates. Tónleik-
arnir heíjast kl. 12.30 og standa í um
hálftíma.
Tónleikar í apríl 1986
Miðvikud. 16. apríl,
Norræna húsið kl. 12.30:
Háskólatónleikar,
Carmel Russill, selló, Stephen Yates,
píanó.
Fimmtud. 17. apríl,
Háskólabíó kl. 20.30:
Sinfóníuhljómsveit íslands, stj. Páll
P. Pálsson, einsöngv. Ellen Lang,
- sópran. Verk eftir Pál P. Pálsson og
Sibelius.
Laugard. 19. apríl,
Austurbæjarbíó kl. 14.30:
Tónlistarfélagið,
Ellen Lang, sópran,
William Huckaby, píanó.
Norræna húsið kl. 16.00:
Schubert-tónleikar, Anna Málfríður
Sigurðardóttir og Martin Berkofsky,
fiórhent pianó..
Afmæli
60 ára afmæli á í dag, þriðjudaginn
15. apríl, Einar Jóhannesson bryti,
Nýbýlavegi 76 í Kópavogi. Hann
hefur starfað á sjónum um langt ára-
bil. Hann er staddur erlendis.
Fundir
Foreldra- og vinafélag Kópa-
vogshælis
Aðalfundur verður haldinn í matsal
Kópavogshælis í dag, þriðjudag 15.
apríl, kl. 20.30.
Stofnfundur félags áhuga-
manna um bókmenntir
verður nk. föstudag, 18. apríl. Félag-
inu er ætlað að standa fyrir regluleg-
um bókmenntafyrirlestrum hér á
landi og fá til þess innlenda sem er-
lenda fyrirlesara. Er von þeirra sem
að fundinum standa að félagið geti
eflt bókmenntaumræðu á landinu
með því að kynna það sem best og
nýjast er að gerast á vettvangi bók-
mennta og bókmenntafræði utan
lands sem innan. Stofnfundurinn
verður haldinn í Árnagarði, hugvís-
indahúsi Háskóla íslands, stofu 308,
og hefst kl. 17.
Utvarp_____________Sjónvarp
Adotf Erlingsson nemi
Niðurgreidd vandamál
Ég byrjaði gærkvöldið á því að
sleppa því að horfa á barnatímann,
en sérfræðingur heimilisins i þeim
dagskrárlið tjáði mér að hann hefði
verið með betra móti. Ekkert endur-
sýnt, sagði hún. Fréttum missti ég
hins vegar ekki af frekar en venju-
lega, Páll og Edda taka sig sérlega
vel út á skerminum um leið og þau
dæla hasarfréttum i mannskapinn,
virðast heldur betur ætla að fylgja
eftir fréttastefnu Ingva Hrafns.
Heldur var nú samt gengið langt í
fréttinni af utanlandsferð yfirokrar-
ans, fremur vafasöm fréttamennska
það.
Eftir hressilega kynnt poppkom,
þar sem meistara Dylan og Stones
brá íyrir, var komið að hápunkti
kvöldsins, íþróttum. Að vísu eru
mánudagsþættimir svo stuttir að
þeir mættu lieita sýnishorn af
íþróttum. Að jafnaði er þetta eitt-
hvert besta efnið í sjónvarpinu.
Bjami Fel. stendur sig virkilega
vel, klikkar ekki á því að reyna að
ná í stórviðburði til að sýna.
Bandaríski tívolídjassinn var
virkilega skemmtilegur, létt og góð
sveifla sem féll í kramið hjá undir-
rituðum.
Leikritið fær hins vegar ekki
sömu einkunn. Við höfum nóg af
eigin vandamálum hér á landi og
þurfum ekki að flytja þau inn í nafni
norrænnar samvinnu, alveg merki-
legt hvað Svíar em ákafir í að flytja
út sín vandamál til okkar. Skyldu
framleiðendumir fá útflutnings-
bætur?
Hið íslenska sjóréttarfélag
Fræðslufundur í hinu íslenska sjó-
réttarfélagi verður haldinn miðviku-
daginn 16. apríl 1986 kl. 17 í stofu
203 (2. hæð) í Lögbergi, húsi laga-
deildar Háskólans. Fundarefni:
Landhelgisgæsla á íslandi. hlutverk
hennar og réttarstefna. Frummæl-
andi: Jón Magnússon, löfífræðinpur
LandhelRÍspfæslunnar. Að loknu
framsöguerindi verða almennar um-
ræður. Félagsmenn or aðrir áhuga-
menn um málefni Landhelgisgæsl-
unnar eru hvattir til að fjölmenría.
Aðalfundur Útivistar verður haldinn
að Hótel Esju, 2. hæð, fimmtudaginn
17 apríl kl. 20. Venjuleg aðalfundar-
störf. Aðeins skuldlausir félagar fá
aðgang. Árgjald 1985 má greiða við
inngang. Reikningar liggja frammi á
skrifst. Lækjarg. 6a., sími/símsvari:
14606. Sjáumst.
Tilkynningar
Fyrirtestur um námshópa fyrir
aldraða
Frú Ulla Brita Gregersen iðjuþjálfí,
frá Vjborg á Jótlandi, heldur fyrir-
lestur um námshópa fyrir aldraða í
boði Félagseldri borgara í Reykjavík
og nágrenni, Iðjuþjálfarafélags ís-
lands og Öldrunarfræðifélags íslands
í Norræna húsinu í dag, þriðjudag-
inn 15. apríl, kl. 17. Frú Gregersen
hefur undanfarin 10 ár haft umsjón
með námshópum fyrir aldraða í Dan-
mörku og hefur nú viðdvöl í Reykja-
vík eftir fyrirlestrarferð í Bandaríkj-
unum. Fyrirlesturinn verður fluttur
á ensku en Ingibjörg S. Ásgeirsdótt-
ir. iðjuþjálfi á Borgarspítalanum,
verður kynnir og stýrir umræðum á
eftir.
Breiðfirðingafélagið
Vorfagnaður verður haldinn laugar-
daginn 19. apríl í Domus Medica og
hefst hann kl. 21.
Samtök kvenna á vinnumark-
aðinum
fagna frumkvæði Bolvíkinga í ný-
gerðum kjarasamningum. Isinn
hefur verið brotinn í Bolungarvík.
Nú er lag fyrir verkalýðshreyfinguna
að fylgja fast á eftir og knýja fram
lífvænleg laun.
Háskólafyrirlestur
John V. Hagopian, prófessor í ensk-
um og almennum bókmenntum við
New York State University í Bingh-
hampton í Bandaríkjunum, flytur
opinberan fyrirlestur í boði heim-
spekideildar Háskóla íslands mið-
vikudaginn 16. apríl 1986 kl. 20.30 í
stofu 101 í Odda, hinu nýja hugvís-
indahúsi háskólans. Fyrirlesturinn
nefnist: The love Ethic of William
Faulkner og verður íluttur á ensku.
Prófessor Hagopian ér þekktur
fræðimaður á sínu sviði og hefur
gefið út þrjár bækur, Inside i og
Inside II, sem fjalla um amerískar
bókmenntir og nútímabókmenntir í
Bretlandi og bók um ameríska rit-
höfundinn J.F. Powers. Auk þess
hefur birst eftir hann fjöldi greina í
bókmenntatímaritum. Fyrirlestur-
inn er öllum opinn.
Saga mannkyns
Ritröð AB, 7. bindi
Bókakúbbur Almenna bókafélagsins
hefur nú sent frá sér 7. bindið í 15
binda verkinu Sögu mannkyns.
Þetta bindi er eftir Niels Steens-
gaard, prófessor við Kaupmanna-
hafnarháskóla, og fjallar um
tímabilið 1350 1500. Þýðandinn er
Lýður Björnsson sagnfræðingur.
Þetta bindi ber undirtitilinn Hin víða
veröld.
P»etta bindi tekur yfir sama tímabil
og 6. bindið eða því sem næst. í 6.
bindinu var aðaláherslan lögð á Ev-
rópu en þetta bindi fjallar nær
eingöngu um aðrar heimsálfur,
menningarsvæði Asíu, svo sem Kína,
Japan, Miðausturlönd og Indland,
um Afríku og um Aztekaríkið og
Inkaríkið í Ameríku fyrir landafund-
ina. Um þessi efni hefur hingað til
verið mjög lítið ritað á íslensku og
er því efni þessa bindis mikil nýjung
fyrir okkur og raunar Norður-
landaþjóðirnar allar.
Einnig tekur þetta bindi fyrir sam-
eiginleg vandamál alls heimsins á
þessum tíma og þær lausnir sem
mótuðu mannlífið aldirnar fyrir
landafundina, þegar Evrópa var frá
sjónarmiði menningar engu framar
öðrum menningarsvæðum heimsins
nema síður væri, en réð þó yfir
betri skipakosti og meiri siglinga-
tækni en aðrir hlutar heimsins.
Myndir eru með sama sniði og í
fyrri bindum gífurlegur fjársjóður
vandaðra sögulegra mynda frá öllum
heimshornum.
Bókin er 272 bls. að stærð. Hún er
sett og filmutekin í Prentsmiðjunni
Odda en prentuð í Belgíu.
Fyrirlestur
um Bjornsterne Bjornson og Jón Sig-
urðsson í Norræna húsinu.
Miðvikudaginn 16. april kl. 20.30held-
ur dr.phil. Per Amdam fyrirlestur í
Norræna húsinu þar sem hann tekur
fyrir áhugavert efni, samband
Bjornsterne Bjornsons og Jóns Sig-
urðssonar forseta. Fyrirlésturinn
nefnir hann „Islandsk politikk
norsk poesi“ og kemur þar inn á efni
sem ekki hefur verið fjallað um áð-
ur, þ.e. kynni Jóns Sigurðssonar og
Bjornsterne Bjornsons sem hófust
um 1870 og urðu þeir vinir og sam-
herjar um skeið. Þau kynni höfðu
verulega þýðingu fyrir afstöðu
Bjornsons til samnorrænna mála.
Per Amdam hefur haldið marga fyr-
irlestra um Bjornson og þykir flytja
mál sitt á lifandi og skemmtilegan
máta.
Sunnudaginn 20. apríl kl. 16.00
verður dagskrá í Norræna húsinu
sem nefnist „Bjornson í ljóðum, lit-
um og tónum“. Per Amdam talar um
ljóðmæli Bjornsons og sýnir lit-
skyggnur frá heimabyggð skáldsins,
Raumsdal.
Sigríður Ella Magnúsdóttir óperu-
söngkona syngur lög við ljóð Bjorn-
sons og Jónas Ingimundarson leikur
undir.
Tónleikar í Garðabæ
Þriðjudaginn 15. apríl halda Blás-
arakvintett Reykjavíkur ásamt Gísla
Magnússyni píanóleikara tónleika í
Kirkjuhvoli í Garðabæ. Á efnisskrá
eru: Sex bagatellur eftir György Li-
geti, Kvintett í Es-dúr fyrir blásara
og píanó KV. 452 eftir Mozart og
Blásarakvintett eftir Jean Francaix.
Blásarakvintett Reykjavíkur
skipa: Bernharður Wilkinson, flauta;
Daði Kolbeinsson, óbó; Einar Jó-
hannesson, klarinett; Joseph Ogni-
bene, horn, og Hafsteinn
Guðmundsson, fagott.
Kvintettinn hefur skipað sér fastan
sess í tónlistarlífinu síðan hann var
stofnaður 1981. Meðlimir hans leika
allir með Sinfóníuhljómsveit íslands
og íjórir þeirra eru kennarar við
Tónlistarskóla Garðabæjar. Þeir
hafa haldið íjölda tónleika bæði á
íslandi og í Evrópu við góðan orðs-
tír. Efnisskrá þeirra er mjög fjöl-
breytt, allt frá klassískum verkum
til nútíma verka, sem sum hver hafa
verið samin sérstaklega fyrir þá.
Gísli Magnússon píanóleikari hef-
ur haldið íjölda einleikstónleika og
verið einleikari með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Hann hefur verið
kennari við Tónlistarskóla Garða-
bæjar frá 1970 og er nú skólastjóri
skólans.
Tónleikarnir eru á vegum Tónlist-
arskóla Garðabæjar og rennur allur
ágóði af þeim í Listasjóð tónlistar-
skólans.
Tónleikarnir á þriðjudag hefjast
kl. 20.30.
Prentarinn
Samtök bókagerðarmanna hafa um
langan tíma gefið út blaðið Prentar-
ann en það hóf göngu sína árið 1910.
Árið 1980 var útliti blaðsins breytt
enda tók Félag bókagerðarmanna þá
við útgáfu þess úr höndum Hins ís-
lenzka prentarafélags, sem var lagt
niður við stofnun FBM ásamt Gra-
fiska sveinafélaginu og Bókhindara-
félagi íslands.
Nú er 1. tölublað Prentarans árið
1986 komið út og meðal efnis í blað-
inu eru greinar um útlit bóka og
bókaútgáfu, þá er þar fjallað um iðn-
fræðslumál bókagerðarmanna. Grein
er um „flexó“prentun sem er prent-
aðferð í örum vexti. Stefán Ög-
mundsson skrifar um launamál. I
leiðara fjallar ritstjórinn, Magnús
Einar Sigurðsson, um nýgerða kjara-
samninga.
Prentarinn kemur út að meðaltali
sex sinnum á ári og er honum dreift
til félagsmanna og seldur þeim sem
áhuga hafa á.
Hjá Sagnfræðistofnun Háskóla Is-
lands er komið út 15. hindi í Ritsafni
stofnunarinnar. Það er liókin Islensk
sagnfræði frá miðri 19. öld til miðrar
20. aldar eftir dr. Inga Sigurðsson
lektor. Þetta er fyrsta yfirlitsritið
sem kemur út um sagnlræðiiðkun
söguþjóðarinnar og er jöfnum hönd-
um ætlað til háskólakennslu og
fróðleiks handa almenningi. í bók-
inni er stutt yfirlit yfir sagnaritun
Islendinga fyrir miðja 19. öld. Síðan
eru færð rök að því að viðfangsefni
bókarinnar megi skipta niður á þrjú
skeið, 1850 90, 1890 1920 og 1920 50,
og eru megineinkenni hvers skeiðs
fyrir sig rakin. Þá er fjallað sérstak-
lega um félagslegt baksvið söguiðk-
unar, alþýðlega sagnaritun og
heimildaútgáfu. Einnig er rætt um
söguspeki í ritum Islendinga og
helstu hugmyndastefnur sem þar
birtast, rómantík, þjóðernishyggju,
frjálslyndisstefnu, sögulega efnis-
hyggju og fleiri. Loks er kafii um
sögukennslu.
Islensk sagnfræði er 130 bls. bók
með mörgum myndum, prentuð í ísa-
foldarprentsmiðju. Sögufélag hefur
söluumboð fyrir Ritsafn Sagnfræði-
stofnunar og má enn fá þar fiest bindi
safnsins.