Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1986, Síða 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986.
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
Konur saxa á
kariaveldið
Konur unnu á í sveitarstjómarkosn-
ingunum. Af 416 kjömum íulltrúum
listanna em 109 konur eða rúmiega
26 prósent. Þetta er aukning frá síð-
ustu kosningum. Þá vom konur 72 af
425 fulltrúum eða um 17 prósent.
Eins og gefur að skilja er hlutur
kvenna á Kvennalistanmn 100 pró-
sent. Hlutfall kvenna er hins vegar
-hæst hjá Alþýðubandalaginu. Þar em
44 karlar og 26 konur eða 37 prósent.
Hjá Sjálfetæðisflokki, Alþýðuflokki og
Framsóknarflokki er hlutur kvenna
sá sami eða um 24 prósent. Samanlagt
hjá öðrum framboðum er hlutur
kvenna rúmlega 20 prósent.
Fulltrúar Alþýðuflokksins em 71 að
tölu. Þar af era karlar 54 og konur
17. Framsóknarflokkurinn er með 79
fulltrúa, 60 karla og 19 konur. Sjálf-
stæðisflokkurinn er með 139 fúlltrúa
og þar af em karlar 105 og konur 34.
Kjömir fulltrúar annarra flokka en
þessara fimm em alls 54 og þar af 43
karlar og 11 konur.
-APH
Gleði og gaman hjá sjálfstæðismönnum í Hafnarfirði þegar úrslita var beðið.
Það er mikill hugur I mönnum hér,“ segir Bima Friðgeirsdóttir.
SjáKstæðismenn aftur í meirihluta á Ólafsfirði:
„Var langþráður
draumur okkar
„Við erum mjög sæl héma þessa
stundina. Þetta var langþráður
draumur okkar,“ sagði Bima Frið-
geirsdóttir, efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins á Ólafefirði, í samtali
við DV í gær.
Flokkurinn vann hreinan meiri-
hluta. Síðustu 12 árin hafa vinstri
flokkamir boðið fram sameiginlega og
haft meirihluta. I yfir 20 ár þar áður
hafði Sjálfstæðisflokkurinn meirihlu-
tann.
„Það er ekkert eitt sem hjálpaði
okkur að ná þessum sigri. Við teljum
að við höfum góða og málefnalega
stefnuskrá. Hér hefúr verið samdrátt-
ur í atvinnulífi og framkvæmdum
bæjarfélagsins. Við leggjum mikla
áherslu á atvinnumálin og viljum
hleypa nýju blóði í þau. Einnig stefn-
um við að auknum hafiiarfram-
kvæmdum. Þá viljum við standa vörð
um þá áætlun sem gerð hefur verið
um göng gegnum Múlann. Einnig
ætlum við okkur að efla íþrótta- og
félagsmál héma,“ sagði Bima.
Nýi meirihlutinn fær tima til að
skipuleggja starfið sem framundan er
því ekki verður skipt um í bæjarstjóm
fyrr en 15. júní.
-aph
I dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari
Það er ekki oft sem stjómmála-
menn em rassskelltir opinberlega.
Og afar, afar sjaldgæft að þeir rass-
skelli sjálfa sig. Nixon Bandarikja-
forseti reyndi á sinum tima að ljúga
sig út úr Watergate-málinu, en var
að lokum fastur í sinni eigin snöm
þegar segulböndin sönnuðu að hann
hafði logið að bandarisku þjóðinni.
Hann fékk sina rassskellingu og fór
frá með skömm.
í kosningabaráttunni í Reykjavik
gerðist það að einn frambjóðend-
anna ætlaði að skrökva sig út úr
vandræðum með sama hætti og Nix-
on. Þetta var össur Þjóðviljaritsfjóri
sem nú tók þátt i sinni fyrstu kosn-
ingabaráttu. Sennilega einnig þeirri
síðustu.
Þessi nýja stjama Alþýðubanda-
lagsins fór mikinn í kosningunum.
Hann ætlaði sér stóran hlut, enda
galvaskur ræðumaður sem tekur
stórt upp í sig. Enn er mönnum í
fersku minni hvemig össur hugðist
hreinsa út gamla gengið af lista Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík.
Siguijón Pétursson fékk að hanga
inni upp á punt, en auðvitað var
honum ýtt til hliðar þegar stóra
stundin rann upp og spila þurfti út
trompunum í sjónvarpinu daginn
I fótspor Nixons
fyrir kosningar. Þá var Siguijóni
sparkað. Og Össur vildi sparka fleir-
um. Á DV-fundinum fræga fór hann
ekki leynt með þá fyrirætlan sina að
skella Davíð og hefja síðan hreinsan-
ir hjá borginni, eins og tiðkast í
sæluríkjunum fyrir austan þegar
skipt er um einræðisherra. Og af því
að þeir hjá Þjóðviljanum og Alþýðu-
bandalaginu em stéttvisir menn og
gera greinarmun á hástétt og Iág-
stétt, finnst ritstjóranum mesta
niðurlægingin fólgin í að vinna í ös-
kunni. Þess vegna tók hann fram
að hann ætlaði að senda æðstu emb-
ættismenn borgarinnar í öskuna.
Verra hlutskipti getur hann ekki
hugsað sér. Hlýtur það að vera fróð-
legt fyrir starfsfólkið i hreinsunar-
deildinni hjá borginni að vita hvaða
augum verkalýðsflokkurinn og al-
þýðuvinimir í Alþýðubandalaginu
líta störfin í öskunni. Þau em sem
sagt það aumkunarverðasta og
ómerkilegasta sem þeir geta hugsað
sér. Þangað skyldu embættismenn-
imir fara þegar öreigaflokkurinn
tæki við.
En eitthvað hefur Össur greyið
fengið bágt fyrir þessi ummæli sín
hjá hinum veraldarvanari í Alþýðu-
bandalaginu og eitthvað hafa þessi
ummæli mælst misjafnlega fyrir
meðal stuðningsmannanna, þvi þeg-
ar kappinn mætti í sjónvarpssal,
daginn fyrfr kosningar, hafði hann
fengið bakþanka. Og af því þeir á
Þjóðviljanum er vanir því að hag-
ræða sannleikanum og snúa honum
við, ef þvi er að skipta, tók hann sig
til eins og Nixon og afneitaði sinum
eigin ummælum. Eða eins og segir á
réttri og sléttri íslensku: hann laug
sig út úr vandræðunum. Aumingja
össur áttaði sig ekki á því að hann
var til á spólu eins og Nixon. Ekki
aðeins höfðu dagblöð skýrt orðrétt
frá hreinsunammmælum ritstjór-
ans, heldur hafði fundinum verið
útvarpað með pompi og prakt og
ekkert undan dregið. Allir vissu hvað
hann hafði sagt og Össur sprakk á
limminu. Rétt eins og Nixon. Hann
var staðinn að verki, berskjaldaður
í lyginni. Andstæðingarnir þurftu
ekki að hafa fyrir því að rassskella
hann. Hann rassskellti sjálfan sig.
Framdi harakiri á staðnum.
Slæmt var að hafa móðgað alla
starfsmenn Reykjavikurborgar.
Verra var að hafa misboðið ösku-
köllunum i hreinsunardeildinni.
Verst var að þora ekki að standa við
eigin orð, en allra, allra verst var þó
að gera ómerkilega tilraun til að
ljúga sig út úr vandræðunum
frammi fyrir alþjóð.
Langflestir frambjóðendur, sem
ekki ná kjöri, falla einfaldlega vegna
þess að aðrir frambjóðendur em
taldir betri. Sumir frambjóðendur
falla vegna þess að aðrir frambjóð-
endur skrökva upp á þá sögum. En
það er hins vegar mun sjaldgæfara
að frambjóðendur felli sjálfa sig og
skrökvi sjálfa sig niður í fallsæti.
Nixon gerði þetta. Hann féll á
lyginni. össur lenti í sömu súpunni.
Báðir verða að sætta sig við pólitiska
útlegð það sem eftir er. Nixon var
að vísu orðinn aldraður maður og
átti því ekki mikla framtíð fyrir sér.
En Össur er rétt að byrja og á því
glæsilega framtíð að baki.
Dagfari