Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1986, Page 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. JUNÍ 1986.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikriingar eru
íyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir. þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. t>á ársfjórðunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggðe í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs Islands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun.
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í|
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfm eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safina lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og áreávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig
en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl.
Miðað er við gmnninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á gmnni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01. -10.06. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJA sérlista iiil iiiiíisifiiiih!
innlAn úverðtryggð SPARISJÚÐSBÆKUR ðhundm .mjtaí, 9,0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán, uppsogn 10.0 10.25 10.0 9.0 1.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán. uppsógn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10,0 12.5 10.0
12mán. uppsögn 14.0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAOUR - LANSRÉTTUR SP,r.s 3-5 min. 13,0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp.Smán. ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
rÉKKARfclKNINGAH Avisanaraikningar 6.0 6.0 2.5 3,0 4,0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3,0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
innlAnverðtryggð SPARIREIKNINGAR 3j, mén. uppugn 1.0 1,0 1,0 1.0 1,0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán. uppsogn 3,5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3,0 3.0 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALOEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 7.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 8.25 7.0 6.25
Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.0 10,0 10.0 11.5 9.5
Vtstur-þýsk morfc 4.0 4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5
Dansfcar krónur 7.5 7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0
útlAn överðtryggð ALMENNIRVtXLAR (foroutir) 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAVfXLAR 3) {lorv.nir) kg. 19.5 kga 19.5 kfl* kge kg. kgo
ALMENNSKULOABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) ka« 20,0 kge 20.0 kge kge kBe kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.Ú 9.0 9,0 9.0 9.0
útlAnverdtryggð SKULDABRÉE AS21/2Sri 4.0 4,0 4.0 4.0 4.0 4.0 4 /) 4.0 4.0
Lengrien21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU sjAneðanmAisd
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur-
þýskum mörkum 6,25%, 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Fréttir Fréttir Fréttir
Horkuárekstur á Hofsvallagotu:
Hentist stjómlaust á Ijósastaur
Hörkuárekstur varð á mótum
Hringbrautar og Hofevallagötu í gær-
morgun er þar skullu saman Volga
og Lada með þeim afleiðingum að
ökumaður Volgunnar missti stjóm á
bifreið sinni sem hentist stjómlaust á
ljósastaur ofarlega á Hofevallagöt-
unni. Brak úr ljósastaumum skall svo
á Volvo sem leið átti hjá og skemmdi
hann.
Tveir vom fluttir á slysadeild en
meiðsli þeirra em ekki talin alvarleg.
Klubbur Listahátiðar:
Gestir lentu á
gömlu dönsunum
Það kostar 1200 krónur i Klúbb Listahátíðar um helgar geta gestir lent á al-
mennum dansleikjum og gömlu dönsunum.
Það fór heldur illa fyrir gestum
Listahátíðar sem ætluðu að njóta
næturinnar í Klúbbi Listahátíðar á
Hótel Borg um helgina. Er gesti har
að garði á laugardagskvöldið var
dansleikur í fullum gangi í húsakynn-
um klúbbsins, diskótek og unglingar
á öllum borðum. Ekki skánaði það á
sunnudagskvöldið því þá lentu gestir
Listahátíðar á gömlu dönsunum.
„Upphaflega var gert ráð fyrir að
Klúbbur Listahátíðar yrði aðeins
starfræktur á virkum dögum. Við æt-
luðum aldrei að hætta dansleikjahaldi
um helgar,“ sagði Sigurður Garðars-
son, hótelstjóri á Borginni. „Heiin-
ríetta og vinkona hennar, sem eiga
víst að vera gestgjafar í klúbbnum,
vildu hins vegar taka helgamar inn í
dæmið en þá lenda gestimir að sjálf-
sögðu á dansleikjum."
Að sögn hótelstjórans snæddi Jacqu-
eline Picasso kvöldverð á Hótel Borg
um helgina en treysti sér ekki í gömlu
dansana. Rithöfundurinn Doris Less-
ing leit einnig inn í Klúbb Listahátíðar
en gerði stuttan stans á dansleiknum.
-EIR
Fjölbvautaskóli Suðumesja
- afmælishátið og skólaslít
Laugardaginn 24. maí sl. fóm fram
í íþróttahúsinu í Keflavík skólaslit og
aihiælishátíð Fjölbrautaskóla Suður-
nesja að viðstöddu margmenni, en
skólinn lauk þá tíunda starfeári sínu.
í ræðu Ingólfe Halldórssonar aðstoð-
arskólameistara kom fram að nemend-
ur hefðu verið 641 á síðustu önn og
skipst milli dagskóla, öldungadeildar,
meistaraskóla og réttindanáms vél-
stjóra. Þá hefði áfram verið starfrækt
starfenám fyrir fólk úr atvinnulífinu
sem og námsflokkar. Hið þróttmikla
starf væri hins vegar búið að sprengja
fyrir löngu utan af sér húsnæði skól-
ans og í vetur hefði verið kennt á átta
stöðum víðs vegar um bæinn.
Skólameistari afhenti prófekírteini.
Að þessu sinni brautskráðust 77 nem-
endur. í hópi nýstúdenta brautskráðist
einn, Yngvi Rafn Yngvason, af fjög-
urra ára flugliðanámsbraut og er hann
fyrsti stúdent hérlendis af þeirri braut.
Fjölmörg verðlaun vom veitt og komu
flest þeirra í hlut Guðrúnar Þum
Kristjánsdóttur nýstúdents. Skólanum
bárust fjölmargar gjafir frá einstak-
lingum, stofnunum og fyrirtækjum,
auk þess sem fyrrverandi nemendur
skólans færðu honum gjöf í tækjasjóð.
Skólameistari er Hjálmar Ámason.
MS
Frá útskrift nemenda.