Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1986, Side 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986.
7
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Sól ogfjör
í Hreðavatnsskála
Frá Siguqóni Gunnarssyni, frétta-
ritara DV í Borgamesi:
Þeir sem aka norður í land hafa
eflaust veitt því athygli að Pétur
Geirsson veitingamaður er að gera
gagngerar breytingar a Hreða-
vatnsskála i Borgarfirði. Sólstofa
er risin fyrir framan húsið og nýtt
anddyri er komið svo ekki sé talað
um nýjan bensínafgreiðsluskúr þar
sem tíundað er að bensínið hans
Péturs sé aðeins á 27 kr. þó svo
aðrir séu með 28.
Fréttaritari hafði samband við
Pétur og innti hann frétta af þess-
um sólskála. Fram kom að nú í
sumar á að hefja að nýjudans-
leikjahald með tjaldstæðum og
öðru tilheyrandi eins og var hér
forðum og svo allt megi fara vel
fram og aðstaðan sé sem hest var
farið út í að reisa sólskála þennan.
Það má því búast við að það
verði sóWkt sumar og mikið fjör
í Hreðavatnsskála.
Auglýsingaskiltinu stolið
Einhver er sá auglýsingaskiltið
við Hreðavatnsskála, þar sem til-
greint er hið lága bensínverð, hefúr
ekki getað sætt sig við það eða
verið svo hrifinn af því að hann
stal því.
Pétur Geirsson, veitingamaður í
Hreðavatnsskála, vill koma því á
framfæri að hann borgi hverjum
þeim er veitir honum upplýsingar
um skilti þeta 2.500 kr. í fundar-
laun því „það kostar sitt að láta
gera annað eins“.
Bensínverð það sem er í Hreða-
vatnsskála hefúr vakið þó nokkurt
umtal og er bensínverð í Botns-
skála einnig það sama enda rekur
Pétur báða staðins.
Og þó að
fleytan
sé smá
Sigtt um á Brákarsundi
Frá Siguijóni Gunnarssyni, frétta-
ritara DV í Borgamesi:
Það er greinilegt aðsumariðer
komið. Grösin grænka og lömbin
hlaupa um tún og engi.
í Jlorgamesi er ekki nein útgerð
og Borgarfjörðurinn talinn dauður
af fiski, þ.e. öðm en laxi og silungi
er veiðist i ám og vötnum. En þó
ekki sé útgerðin er þó „gert út“ fiá
Borgamesi.
Þó nokkrir Borgnesingar eiga
báta, allt frá hraðskreiðum bátum,
er þjóta áfram fyrir hestöflum, til
tóta er láta veðurguðina um tirað-
ann.
Hillir undir reiðhöll
Áætlað hlutafé var í fyrstu 10 milj-
ónir en var á síðasta aðalfundi í mars
hækkað í 20 miljónir.Þegar hafa safn-
ast 11,1 miljón þannig að ljóst er að
hestamenn verða að herða sig ef tak-
markið 20 miljónir á að nást.
Reiðhöllin verður í Víðidal í Reykja-
vík. Grunnflötur hússins er 3000
fermetrar. Reiðvöllurinn sjálfur verð-
ur 1200 fermetrar eða 20x60 metrar. í
húsinu verður rúmgóð aðstaða í and-
dyri, kaffitería, snyrting, fundaher-
bergi, búningshertórgi, áhalda-
geymsla og aðstaða til að hýsa hross.
Húsið verður hægt að nýta sem reið-
skóla, þjálfunarmiðstöð, fyrir sýningar
við hestamennsku, hestasölu, nám-
skeið, búvörusýningar, bíla- og véla-
sýningar ýmiskonar, vörusýningar.
skemmtanir, tónleika, dansleiki,
fjöldafundi, leiksýningar og flefra.
Valdimar G. Guðmundsson og Gísli
Gíslason sáu um hönnun hússins.
Margir áhugamenn um hestamennsku og reiðhöll mættu til athafnarinnar.
DV-myndir EJ
Áætlaður kostnaður við jarðvegs-
vinnslu á þremur stigum var 8.040.000
krónur en lægsta tilboð var frá Berg-
vík sf. og liljóðaði upp á 4.806.000
krónur. Þvi tilboði var tekið. Miðað
er við að 1. áfanga jarðvegsvinnslu
verði lokið fyrir 1. júlí næstkomandi
en þá verður hafist handa við að slá
upp fyrir sökklum. Stefnt er að því að
húsið verði fokhelt fyrir áramót en í
síðasta lagi vorið 1987. Fyrirhuguð er
Búnaðarsýning í Reiðhöllinni síðla
ársins 1987. Eftir er að semja við ýmis
fyrirtæki um einangrun og klæðningu
hússins. Grindin verður úr límtré og
er líklegt að tiltóði frá Límtré hf. á
Flúðum verði tekið.
í byggingamefnd eru Magnús Sig-
steinsson, Sigurbjöm Bárðarson og
Ágúst Oddsson. Gylfi Geirsson hefur
verið framkvæmdastjóri Reiðhallar hf.
í hálfu starfi frá því i júní 1985.
Bogi Eggertsson frá Laugardælum,
fyrrum formaður hestamannafélagsins
Fáks, tók fyrstu skóflustungu að nýrri
reiðhöll um síðustu helgi. Margir
áhugamenn um reiðhöll vom saman-
komnir í Víðidalnum til að verða vitni
að þessari skóflustungu. Sigurður J.
Líndal, formaður stjómar Reiðhallar
hf., flutti erindi, svo og Jónas Jónsson
búnaðarmálastjóri. Langþráður
draumur margra hestamanna mun
rætast er þessi reiðhöll hefur verið
tekin í gagnið.
Það em liðin 30 ár siðast fyrst var
farið að ræða um reiðhöll á íslandi.
Ekkert varð úr þeim framkvæmdum
þá en árið 1983 var samþykkt tillaga
á Búnaðarþingi um byggingu reið-
hallar. Félagið Reiðhöll hf. var stofnað
formlega 12. janúar 1985 og vom stofn-
endur 23. Þar á meðal voru þessi
félagssamtök: Búnaðarfélag Islands,
Landssamband hestamannafélaga,
Stéttarsamband bænda, Félag tamn-
ingamanna og Félag hrossabænda. I
stjóm vom valdir samkvæmt tilnefn-
ingu Magnús Sigsteinsson frá bænda-
samtökunum, Gísli B. Bjömsson frá
L.H. og er hann varaformaður, Sigurð-
ur J.Líndal frá Félagi hrossabænda
og er hann formaður og Sigurbjöm
Bárðarson frá Fáki. Kosnir af hlut-
höfum á aðalfundi: Ragnheiður Stein-
grímsdóttir, Gunnar Rúnar
Magnússon og Rosemarie Þorleifs-
dóttir.
Bogi Eggertsson tekur fyrstu skóflustunguna að nýrri reiðhöll.
Geðdeildin
í gagnið
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Fyrsta fullbúna geðdeildin utan
Reykjavíkur, ný og glæsileg geðdeild
sjúkrahússins á Akureyri, hefur ve-
rið formlega tekin í notkun.Geð-
deildin er í tengiálmu sjúkrahússins
og hefur til ráðstöfunar 590 fermetra
húsnæði fyrir legu- og göngudeild.
Á deildinni geta dvalið tíu sjúkl-
ingar í sólarhringsvistun. Einnig er
aðstaða fyrir einn sjúkling í dagvist-
un. Sigmundur Sigfússon er yffr-
læknir geðdeildarinnar.
Ragnhildur Helgadóttir heiltnjgðisráðherra og Sigmundur Sigfússon yfir-
læknir þegar geðdeildin á Akureyri var vigð i síðustu viku.
DV-mynd JGH
Setfoss:
Bætt aðstaða á íþróttavellinum
Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara
DV á Selfossi:
Nýlega vom samþykktir í bæjarráði
Selfoss leigusamningar um þau versl-
unarrými sem leigð verða út til
margvíslegs rekstrar í félagsheimilinu.
Einnig lagði bæjarstjóri fyrir bæjarráð
samning um kaup Selfosskaupstaðar
á söluskála Sérleyfisbíla Selfoss hf.,
sem nú em með Tryggvaskála.
Tilgangurinn með kaupum á áður-
greindum söluskála er sá að hann
verði fluttur á íþróttavallarsvæðið við
Engjaveg og Ungmennafélagi Selfoss
falin umsjá hans. En með tilkomu
skálans á íþróttasvæðinu mun skapast
salemisaðstaða fyrir vallargesti auk
mun rýmri og betri aðstöðu fyrir móts-
stjóm og veitingasölu að hálfu
Ungmennafélagsins á svæðinu.
Já, Selfossbær gerir mikið fyrir æsk-
una enda sækjast hjón úr öðrum
byggðarlögum eftir því að komast
þangað með böm sín, þrátt fyrir að
um sé að ræða láglaunasvæði. Einnig
er mikið gert hér fyrir eldri borgarana.
TENNIS!
Mám*keid ad hefjMt!
Börn og ungiingar á daginn
Fullorénir a kvöidin
TENNIS- OG
B ADMINTONFÉL AGIÐ
Gnodarvogi 1 - s. Ö2266