Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1986, Page 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986.
17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986.
• Maradona, fyrirliði Argentínumanna, sýndi (rábæran leik í fyrsta leik þeirra
í Mexikó. Argentínumenn unnu S-Kóreu, 3-1, en harka S-Kóreumanna vakti
mikla athygli. Hér á myndinni sést hvar einn S-Kóreumannanna brýtur illa á
Maradona. Hann lét það þó ekki setja sig út af laginu og lagði upp öll þrjú
mörk Argentínumanna. Vekur þetta vonir um að nú fái knattspyrnuaödáendur
loksins að njóta snilli Maradona fyrir alvöru. Simamynd/Reuter
Maradona
var frábær
- Argentína - Suður-Kórea, 3-1
„Það kom okkur á óvart hvað S-
Kóreumenn spiluðu gróft. Við vissum
það eitt um þá að þeir væru fljótir. Það
var mikil barátta hjá þeim og sigurinn
var síður en svo auðsóttur," sagði Di-
ego Maradona, fyrirliði Argentínu-
manna, eftir leik þeirra við
S-Kóreumenn í gærkvöldi. Argentínu-
menn sýndu að þeir eru til alls líklegir
í heimsmeistarakeppninni en sigur
þeirra var nokkuð öruggur. S-Kóreu-
menn, sem margir töldu að gætu
komið á óvart í keppninni, höfðu litið
í sterkt lið Argentínu að segja. Þeir
komu þó á óvart fyrir hörku sina í
leiknum en þeir voru sérstaklega að-
gangsharðir við Maradona.
Það vakti athygli í upphafi leiksins
að í argentínska liðið vantaði Daniel
Passarella en hann fékk magakveisu
rétt fyrir leik og gat því ekki verið með.
Argentína náði forystunni strax á
6. mínútu þegar Jorge Valdano, sem
leikur með Real Madrid, skoraði eftir
aukaspymu hjá Maradona. Vamar-
maðurinn Oscar Ruggeri skoraði
síðan annað mark Argentínumanna á
18. mínútu þegar hann skallaði knött-
inn í netið eftir aðra aukaspymu hjá
Maradona. Þriðja markið kom síðan
á 2. minútu seinni hálfleiks þegar
Valdano skoraði sitt annað mark. Og
ennþá einu sinni var það Maradona
sem átti heiðurinn af markinu.
S-Kóreumenn sóttu síðan heldur
Hjóluðu 8000
Kanadískt par, þau Maggie Davies
og Mike Emoff, lagði það á sig að hjóla
frá Vancouver í Kanada til Mexíkó
til að fylgjast með kanadíska liðinu.
Þau lögðu af stað í þennan mikla hjól-
meira síðustu 20 mínútumar og upp-
skáru mark þegar fyrirliði þeirra, Park
Chang-Sun, skoraði á 72. mínútu.
S-Kóreumenn aðgangsharðir
við Maradona
Eins og áður sagði vakti harka S-
Kóreumanna mikla athygli en þeir
vom sérstaklega duglegir við að brjóta
á Maradona. Hann var þó ákveðinn í
því að láta ekki skapið hlaupa með
sig í gönur eins og í síðustu heims-
meistarakeppni. Hann hélt ró sinni
út allan leikinn og lék frábærlega. „Ég
var hissa á því hvað S-Kóreumennim-
ir vom harðir og þá sérstaklega við
Maradona. Hann gerði þó það eina
rétta og kvartaði aldrei," sagði Carlos
Bilardo, þjálfari Argentínu, eftir leik-
inn.
„Markið, sem Valdano skoraði strax
á 6. mínútu, setti okkur út af laginu.
Ef við hefðum haldið hreinu fyrstu 30
mínútumar hefði allt getað gerst. Við
hefðum átt að „dekka“ betur og þá
sérstaklega hefðum við átt að hafa
betri gætur á Maradona," sagði Kim
Jung-Nam, þjálfari S-Kóreumanna.
Áhorfendur vom 62 þúsund og var
Enzo Bearzot, þjálfari ítala, meðal
-þeirra. Honum fannst mikið til um
frammistöðu þeirra Valdano og Mara-
dona og taldi að það yrði erfitt að
stöðva þá.
-SMJ
km til Mexíkó
reiðatúr, sem er um 8 þúsund km, í
júní í fyrra.
Eftir keppnina ætla þau Maggi og
Mike að hjóla niður á syðsta odda
Ameríku. -SMJ
abooo86
Robson leikur
gegn Portúgal
- einnig Gaiy Lineker
Enski landsliðseinvaldurinn,
Bobby Robson, tilkynnti lið sitt gegn
Portúgal í kvöld seint í gærkvöldi.
„Sterkasta lið Englands í dag,“ sagði
hann þegar byijunarliðið var gefið
upp. Bryan Robson fyrirliði verður
með og hefúr náð sér af meiðslunum '
sem þjakað hafa hann síðustu tvær
vikumar. Einnig Gary Lineker og
verður hann með létt hlífðarband
um úlnliðinn. Dómari leiksins mun
athuga það klukkustund áður en
leikurinn,;hefst og er talið ömggt að
hann samþykki hlifina. Þá valdi Rob-
son Gary Stevens, Everton, hægri
bakvörð í stað Viv Anderson sem
leikið hefur í stöðunni að undan-
fömu.
Enska liðið verður þannig skipað.
Peter Shilton, Gary Stevens, Terry
Fenwick, Terry Butcher, Kenny
Sansom, Glenn Hoddle, Ray Wilkins,
Bryan Robson, Gary Lineker, Mark
Hateley og Chris Waddle.
Bobby Robson vildi hins vegar ekki.»
gefa upp varamennina fimm. Nöfii
þein-a verða gefin upp siðar í dag.
-hsim
Allir sterk-
ustu leika með
Nú þykir næsta víst að þeir Carlos
Manuel og Femando Gomes muni
leika með á móti Englendingum í
dag. Báðir leikmennimir hafa verið
meiddir og var lengi vel talið að
þeir yrðu ekki með í keppninni.
Carlos Manuel skoraði markið
sem fleytti Portúgölum í úrslita-
keppnina. Hann er mjög mikilvægur
fyrir miðjuspil Portúgala. -SMJ
„Ekkert hægt
að gera“
- segir dómari FIFA
„Hvað FIFA áhrærir er ekkert
hægt að gera. FIFA hefur enga
ástæðu til að kanna málið frekar þar
sem ákvörðun dómarans er
óhnekkjanleg,“ sagði dómarinn
kunni, Thomas Wharton, í Guad-
alajara í gær. Hann var eftirlits-
dómari FIFA á leik Brasiliu og
Spánar þar í borg á sunnudag. „Sjón-
varpsmyndir hafa ekki gildi hvað
lögin snertir og eru langt frá þvi að
vera áreiðanlegar," sagði Wharton
eiuifremur.
Sláarskot Spánveija (Michel) gegn
Brasiliu var helsta umræðuefnið á
HM í gær. Sjónvarpsmyndir hafa
sýnt, svo ekki verður um villst, að
knötturinn var allur fyrir innan
marklínu. Það er staðreynd en ekk-
■ ert verður gert í málinu, Spánveijar
verða að bíta í það súra epU að dóm-
ara og línuverði yfirsást þetta atriði
í ieiknum. Rétt á eftir skoraði svo
Socrates eina mark leiksins fyrir
BrasiUu. Að hann hafi verið rang-
stæður, þegar Careca spymti knett-
inum í þverslá marks Spánar, hefúr
algjörlega verið visað á bug. Ástr-
alski dómarinn, Chris Bambridge,
sem dæmdi leikinn, vildi ekki ræða
við fréttamenn. -hsim
Havlik ráðinn til Dukla Prag j
Tékkinn, Havlik, sem undanfarin ár hefur
þjólfað HK í handboltanum er farinn af landi
brott. Hann hefur gert þriggja ára samning
við tékkneska stórUðið Dukla Prag. Óráðið
er hver tekur við þjálfarastöðunni hjá HK
en Havlik er að reyna að útvega þeim Jar-
uslav Papiemik, 30 ára Tékka, sem gerði
garðinn frægan með tékkneska landsliðinu.
Hann þjálfaði 1. deildar liðið Kovicha sl.
vetur. -SK
M
*>* t p
',,w
• Ungverski markvörðurinn, Peter Disztl, varð að hirða knöttinn sex sinnum úr marki sinu i gær í leiknum við Sovétmenn. A myndinni hér að ofan skorar
Pavel Yakovenko fyrsta mark leiksins. Knötturinn er rétt kominn inn fyrir marklínuna neðst í hægra hominu. Símamynd/Reuter
„Ég skrifaði undir hjá Fram i dag og
hlakka mikið til að leika með liðinu í 1.
deildinni næsta vetur,“ sagði línumað-
urinn snjalli, Birgir Sigurðsson, í samtali
við DV í gærkvöldi.
Birgir er einn allra snjallasti línumað-
ur landsins í handknattleik og hefur
skorað mjög mikið af mörkum fyrir
Þrótt. Hann mun styrkja Fram-liðið
mjög mikið en ekki hefur verið afburða-
snjall línumaður í liðinu síðan Björgvin
Björgvinsson lék með liðinu.
Jens er hættur
Það er greinilegt að miklar breytingar
verða á Framliðinu fyrir næsta keppnis-
tímabil. Nýr þjálfari, Daninn Per
Skárup, og jafrivel er von á fleiri Þrótt-
urum yfir í Fram. Jens Einarsson,
markvörður liðsins, og þjálfari á siðasta
keppnistímabili, hefur ákveðið að hætta
í Fram og hefur hann sent inn opin fé-
lagaskipti til HSÍ.
-SK
• Birgir Sigurösson i Frambúningnum ásamt Brynjari Stefánssyni, stjómarmanni
í handknattleiksdeild Fram, eftir undirritun félagaskiptanna. DV-mynd S
Þróttarar hættir
Þróttarar hafa ákveðið að tefla ekki
fram meistaraflokksliði í handknattleik
á næsta keppnistímabili. Þetta var
ákveðið fyrir nokkrum dögum og kemur
ekki svo ýkja mikið á óvart þar sem
rekstur handknattleiksdeildar félagsins
hefúr gengið illa á undanfömum árum.
Þegar hafa tveir kunnir leikmenn
Þróttar skipt um félag, Birgir Sigurðs-
son og Guðmundur A. Jónsson mark-
vörður sem gekk til liðs við Breiðablik.
Reikna má með frekari félagaskiptum
Þróttara á næstunni.
-SK
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Danir fa
konurnar
til sín
„Við erum komnir hingað til að
leika knattspyrnu og allt annað er
númer tvö,“ sagði Morten Olsen,
fyrlrliði danska landsliðsins í knatt-
spymu i gærkvöldi, en í dag koma
eiginkonur og kærustar dönsku
landsliðsmannanna til IVÍexikó.
Dönsku leikmennimir tóku á-
kvörðun þjálfara sins, Sepp Pion-
teks, mjög vel en hann gaf grænt ljós
á að eiginkonur og kæmstur leik-
manna mættu koma til Mexíkó.
Ekki fá þó leikmenn að umgangast
elskumar sinar að vild og verða þar
nokkrar hömlur á. Piontek sagði í
gær að koma kvenfólksins til Mexíkó
myndi öragglega hafa góð áhrif á
danska liðið.
Erfiðleikar
hjá Belgum?
Mexíkanar gera sér vonir um að
aðstæðumar eigi eftir að aðstoða þá
við að sigra Belgíumenn í dag. Þeir
vona að hitinn á hádegi, þunna loft-
ið og mengunin verði tólfti maðurinn
í liði þeirra. Víst er að þetta getur
reynst erfitt fyrir Belga sem koma
fiá einu lægsta landi Evrópu.
Mexíkanar hafa aldrei gert stóra
hluti í heimsmeistarakeppninni. Lið
þeirra hefiir undirbúið sig í þrjú ór
og leikið um 70 leiki á þeim tíma.
Þar af eru 46 landsleikir en þeir
hafa aðeins tapað sex þeirra.
-SMJ
Valdano sá
eini með tvö
Argentínumaðurinn, Jorge Vald-
ano, er nú einn markahæstur í
heimsmeistarakeppninni í Mexikó.
Valdano skoraði tvö mörk í gær-
kvöldi þegar Argentina vann Suður-
Kóreu, 3-1. Nokkrir leikmenn hafa
skorað eitt mark en þeir era: Alto-
belli, Ítalíu, Jean-Pierre Papin,
Frakklandi, Sirakov, Búlgaríu, Socr-
ates, Brasiliu, Rugerri, Argentínu,
Yakovenko, Sovétríkjunum, Alein-
ikov, Sovétríkjunum, Belenov (víti),
Sovétríkjunum, Yaremchuk, Sovét-
ríkjunum, Rodionov, Sovétríkjunum
og Park Chang-Sun frá Suður-
Kóreu. -SK
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Birgir í Fram
- Jens Einarsson hættur
Vujovic 1
Vals?!
- Valsmenn hafa áhugai
„Við höfiim ekki enn gengið endanlega
frá ráðningu þjálfara fyrir næsta keppn-
istímabil en eram með ýmislegt í gangi.
Ég vil hvorki játa því né neita að við
höfum talað við Júgóslavann Vujovic.
En við höfum áhuga á að fá hann til
okkar sem þjálfara og leikmann ef hann
er reiðubúinn til að koma til okkar,“
sagði Finnbogi Kristjánsson, formaður
handknattleiksdeildar Vals, í samtali við
DV í gærkvöldi.
Samkvæmt heimildum DV hafa Vals-
menn mikinn áhuga á að fá hinn
heimsþekkta Vujovic til liðs við sig en
einnig hafa þeir verið að leita fyrir sér
í Tékkóslóvakíu. Vujovic er einn fræg-
asti og besti handknattleiksmaður heims
og var einn aðalmaðurinn í heimsmeist-
araliði Júgóslava í síðustu heimsmeist-
arakeppni í Sviss.
Samkvæmt heimildum DV er öruggt keppnistímabili og mun Vujovic vera
að Valsmenn verða með erlendan þjálf- efstur á óskalistanum hjá Valsmönnum.
ara og jafhframt leikmann á næsta -SK
-sagði Lobanovsky, þjáHari Sovét, eftir stórsigur á Ungverjum á HM
„Það er mjög erfitt að ná sér á strik
eftir að hafa fengið á sig tvö mörk á
fyrstu fimm mínútum leiksins. Þó við
höfúm fengið á okkur sex mörk er ég
bjartsýnn á leikina gegn Frakklandi
og Kanada og það þó leikmenn mính-
séu langt niðri núna,“ sagði Gyorgy
Mezey, þjálfari ungverska HM-liðsins,
eftir að það hafði steinlegið fyrir Sovét-
ríkjunum, 6-0, í C-riðli í Irapuato í gær
og þjálfarinn bætti við að ekkert hefði
heppnast hjá leikmönnum sínum i
leiknum. Þessi úrslit komu veralega á
óvart. Búist var við jöfnum leik og
ungverska liðið af mörgum talið hafa
góða möguleika á HM eftir að hafa
sigrað léttilega í Evrópuriðli sínum.
En það fór á aðra leið. Sovéska liðið
sýndi snilldartaka í gær og verður -
eftir þessi úrslit - talið meðal sigur-
stranglegustu liða á HM.
„Leikurinn varð mjög auðveldur fyr-
ir okkur eftir tvö mörk svo snemma
leiks og eftir þau áttu Ungverjar enga
möguleika. Ég vona að Kanadamenn
og Frakkar þaffiaéð leikinn,“ sagði
Valeri LobfÉW|$í:y, þjálfari sovéai^.
liðsins, eftir leikinn en Kanada og
Frakkland eru í sama riðh.
Lobanovsky, sem einnig er þjálfari
Evrópumeistara Dynamo Kiev, ber
greinilega mikið traust til leikmanna
felagsliðs síns því hann stillti upp átta
leikmönnum frá Dynamo í byrjunar-
liði sínu í gær. Þó ekki þeim frægasta,
Oleg Blokhin. Og Dynamo-leikmenn-
imir, sem léku svo snilldarlega á
dögunum í úrslitaleiknúm við Atletico
Madrid í Evrópukeppni bikarhafa,
brugðust honum ekki því strax á
þriðju mín. skoraði Pavel Yakovenko
eftir aukaspymu. Tveimur mín. síðar
sendi Sergei Aleinikov þrumufleyg af
25 metra færi í markið. Ungverski
markvörðurinn Peter Disztl náði ekki
að hreyfa sig.
Úrslit voru raunverulega ráðin en
þrátt fyrir þunga sókn sovéskra tókst
Ungverjum að standast átökin í 20
mínútur. Þá var Igor Belanov felldur
‘ irtnan vítateigs. Víti, sem hann skor-
aði sjálfur úr. 3-0 í hálfleik og í síðari
hálfleiknum skoraði sovéska liðið þrjú
mörk til viðbótar. Fyrst Ivan Yaremc-
huk á 66. mín. Þá sjálfsmark Laszlo
Dajka á 74. mín., þegar hann reyndi
að verjast Yaremchuk. Sjötta markið
skoraði svo Rodionov á 80. mín. og
einhver óvæntustu úrslit á HM síðari
ára voru staðreynd.
Sovésku leikmennimir, í hvítum
, búningi að þessu sinni, léku ofl frá-
bærlega vel. Einkum þeir Belanov og
Yakovenko. Sá síðamefhdi hafði að-
eins leikið einn landsleik fyrir HM.
Markvörðurinn frægi, Rinat Dasayev,
sem af mörgum var talinn besti mark-
vörðurinn á HM 1982, þurfti aðeins
að veija eitt erfitt skot í leiknum.
Tókst það vel en á sunnudag var hann
fimm klukkustundir á sjúkrahúsi
vegna matareitrunar. Liðin voru
þannig skipuð:
Sovétríkin. Dasayev, Bessonov,
Kuznetzov, Larionov, Demyanenko,
Yaremchuk, Yakovenko (Yevtus-
henko 73. mín), Aleinikov, Rats,
Belanov ( Rodionov 70. mín), og Za-
varov.
Ungverjaland. Disztl, Sallai, Roth
(Burcsa 13. mín), Garaba, Kardos,
Kiprich, Nagy, Detari, Peter (Dajka
63. mín), Esterhazy og Bognar.
Áhorfendur 16.500. hsim
Igor Belanov skorar þriðja mark Sovétmanna úr vítaspyrnu af miklu öryggi
gegn Ungverjum í gær. Peter Disztl markvörður kemur engum vömum við.
Símamynd/Reuter
Pólverjar voru
í hættu í
hitapottinum
Jafntefli við Marokkó, (M)
„Ég hef trú á að okkur geti tekist
vel upp á HM og þýðingarmesti leikur
okkar verður við Portúgal. Ég er á-
nægður með jafnteflið við jafhfrægt lið
og Pólland. Það mun gefa okkur byr
undir báða vængi,“ sagði Jose Farea,
þjálfari Marokkó, eftir leikinn við Pól-
land.
Léttir og liprir Marokkómenn tóku
Pólveija í kennslustund framan af
HM-leik liðanna í „hitapottinum" í
Monterry uppi við landamæri Banda-
ríkjanna í aðeins 522 metra hæð í
gærkvöldi. Marokkómenn nýttu þó
ekki færi sín og leiknum lauk með
markalausu jafhtefli, 0-0. Aðeins
Boniek lék af eðlilegri getu í hði Pól-
lands - bronsliðinu fró HM 1982.
Eftir því sem leið á leiktímann náðu
Pólveijar betri tökum á leiknum án
þess þó að skapa verulega hættu við
mark Marokkó. Boniek ógnaði þó tví-
vegis með sterkum einleik frá miðj-
unni að vítateignum. í bæði skiptin
var brotið á honum en aukaspymum-
ar rétt utan vítateigs gáfu enga
uppskeru. Leikurinn i heild var lítil
skemmtun fyrir þá fau áhorfendur,
sem fylgdust með honum. Greinilegt
að nokkur örvænting greip um sig
meðal pólsku leikmannanna loka-
kaflann þegar þeim tókst ekki að
skora. Litlu munaði þó á 84. mín. Ur-
ban átti stangarskot.
Áhorfendur voru nær allir ó bandi
Marokkó og framan af leiknum réð
Marokkó ferðinni gegn mjög einhæfu
- stöðluðu - liði Póllands. En Ma-
rokkó átti engan skotmann í liði sínu
og hinn lipri samleikur rann oftast út
í sandinn. Færi gáfúst þó en vom ekki
nýtt. Pólveijar fengu sárafá færi,
Buncol þó það besta í leiknum. Spymti
knettinum framhjá í upplögðu færi.
Leikurinn í heild mikil vonbrigði fyrir
Pólveija - hinn auðveldi sigur, sem
allir höfðu reiknað með gegn Mar-
okkó, vannst ekki. Lið Póllands var
þannig skipað. Mlynarczyk, Ostrow-
ski, Wojcicki, Majewski, Matysik,
Kubicki, Komomicki (Przybys), Bunc-
ol, Smolarek, Boniek og Dziekanowski
(Urban).
í liði Marokkó voru þessir leik-
menn. Zaki, Labd, Lemris, Biaz,
Bouyahyaoui, Dolmy, Haddaoui,
Bouderbala, Krimau Merry, Timo-
uni og Moustapha Merry. -hsím
„Vona að Kanadamenn og
Frakkar hafi séð leikinn”