Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1986, Blaðsíða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 1986.
7
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
• * * ' '
' T:r'T\§
* '.*..' .W '«y# <<£ > V- , ».v. « •• - .Wa* ‘ ? - < .$**
’*Qk ■“*- >.:<£&
Mikil og góð stemmning var við fjörubálið hjá þeim sólstöðugöngumönnum. Sungið og spilað af hjartans lyst.
DV-mynd PK
Stórkostleg
næturganga
Ólsarar og Hólm-
arar berjast
ekki lengur
„Jú, við sláum Reykjavík auð-
veldlega út. Við eigum þrjú
hundruð ára kaupstaðarafinæli á
næsta ári,“ sagði Guðmundur
Tómasson, fráfarandi bæjarstjóri á
Ólafsvík, í samtali við DV.
Guðmundur lætur nú af störfum
eftir þriggja ára starf og fer af landi
brott í kjölfar konu sinnar sem
aflar sér fi-amhaldsmenntunar í
Svíþjóð. DV ræddi við hann á Ólaf-
svík á dögimum og fékk að vita
það helsta sem hefúr verið að gerj-
ast á Ólafsvík undanfarið.
Félagsheimili fyrir afmælið
„Við eignuðumst eina fúllkomn-
ustu heilsugæslustöð á landinu á
kjörtímabilinu. Það var sett upp
smábátabryggja í vetur fyrir 12-16
báta. Það var klárað að malbika
íbúagötur í bænum og sett slitlag
á hafnargötuna. Verkamannabú-
staður, 7 íbúða blokk, var reistur.
Nefiia má nýjan íþróttavöll og síð-
ast en ekki síst verður félags-
heimilið tilbúið undir tréverk. Það
er verið að klára íbúðir fyrir aldr-
aða, og verða þær teknar í notkun
í næsta mánuði. Þama er um að
ræða sex íbúðir auk þjónusturýmis
og geta verið þar allt að tólf vist-
menn. Það er greinileg þörf fyrir
þær því margar umsóknir bárust"
Ekki dugði Ólsurum að koma sér
upp heilsugæslustöð því verja varð
hana fyrir snjóflóðum. Byggðar
voru miklar girðingar til þess arna.
Guðmundur vísaði á bug sem kvik-
sögum að þær hefðu fokið út í
veður og vind. „Ég held að bygging
þessara girðinga hafi verið þarft
verk. Þær eru rammgerðar og ættu
að halda.“
Ólafevík heldur upp á þijú
hundruð ára kaupstaðarafinæli á
næsta ári. Hún er því þriðjungi
eldri en Reykjavík og raunar er
þéttbýlismyndun þar mun eldri
hvaö sem fyrsta landnámsmannin-
um líður. Eru Ólsarar þegar
byrjaðir að baka tertu með þrjú
hundruð kertum?
„Nei, ætli við gerum það. Það
er ekki farið að skipuleggja af-
mælishátíðina út í ystu æsar en
við vonumst til að geta haldið upp
á afmælið í nýju félagsheimili.“
Saga Ólafevíkur
Ölsarar verða kannski ekki með
flugeldasýningu eins og Reykvík-
ingar heldur minnast þeir afinælis-
ins á varanlegan hátt með útgáfú
sögu Ólafsvíkur sem Gísli Ágúst
Gunnlaugsson hefur skráð. Fyrsta
bindi kemur út á næsta ári.
Ásókn í jökulinn
„Ólafevík er að ná sér á strik f
ferðamálum. Það er mikil ásókn í
jökulinn. Við erum auðvitað með
hótel héma og höfum nú byggt upp
tjaldstæði. Þar er eldunaraðstaða,
hægt að komast í sturtu og snyrt-
ingu. Ég verð að játa að mér finnst
fúrðulegt að enn er til fólk á
landinu sem ekki veit hvar Ólaf-
svík er á landinu."
- Hvemig er það, Guðmundur,
sjáið þið Ólsarar rautt þegar
Hólmarar birtast?
„Nei, það er liðin tíð að Sandar-
ar, Ólsarar og Hólmarar sláist á
böllum vegna þess eins hvar þeir
búa. Rígurinn milli Stykkishólms
og Ólafevíkur er mest í nösunum.
Og eftir að nýi vegurinn undir
Enni komst í gagnið má segja að
Ólafevík, Rif og Hellissandur séu
orðin einn vinnumarkaður. Fólk
býr inni á Hellissandi og vinnur
hér og öfugt.“
Alexander góð auglýsing
- Nú vill þannig til að Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra er
héðan, hagnist þið á því?
„Þú veist að Alexander var bæj-
arstjóri hér og byggði upp þetta
pláss. Hann er okkur hagstæður
og er auðvitað góð auglýsing fyrir
bæinn.“
Guðmundur telur mikla bjartsýni
ríkja f Ólafevík. Ný fyrirtæki hafa
risið á undanfömum árum og
framkvæmdir verið talsvert mikl-
ar. Hann bendir á að sérhæfing
aukist i atvinnulffinu. I sjávarút-
vegi til dæmis er meiri fjölbreytni
en áður. Engu er hent og upp rís
rækjuvinnsla, hausaverksmiðja og
fkrið er að nýta sjaldgæfar fiskteg-
undir sem áður var hent beinustu
leið fyrir borð. „Þetta er kannski
kvótanum að þakka þó flest megi
að honum finna."
Guðmundur segir að ólsarar
hafi verið á fjölbreyttum veiðum á
viðmiðunarárum kvótans. Vegna
þess að veiddur var humar og sfld
fæst ekki kvóti fyrir þorsk nú. Og
hjá sumum var kvótinn búinn í
mars.
ás.
1
„Alexander ráðherra er góð aug-
lýsing fyrir Ólafsvík.“ Guðmundur
Tómasson fyrir framan nýreistar
ibúðir fyrir aldraða.
„Þetta tókst mjög vel, sérstaklega
næturgangan. Það vom allir sammála
um að þetta hefði verið stórkostlegt
og það var reyndar ákveðið að þessi
hópur hittist aftur og endurtæki leik-
inn,“ sagði Einar Egilsson, einn
forsvarsmanna sólstöðugöngunnar,
þegar hann var spurður frétta af
göngunni.
„Við vorum að gera þama alveg
nýjan hlut. Við gengum í sólarhring
og reyndum að fylgja sólinni, það er
að hafa sólina alltaf á móti okkur. Og
við gegnum hring umhverfis byggðar-
lagið, alls þrjátíu og þrjá kílómetra.
Alla gönguna vorum við að fá fólk í
heimsókn til okkar, sem flutti erindi
um eitt og annað. Síðan heimsóttum
við líka ýmsa staði, til dæmis Seðla-
bankann, Árbæjarsafn og gömlu
rafetöðina við Elliðaár, og á þessum
stöðum tók fólk á móti okkur og
fræddi okkur um staðina. Þetta er al-
veg nýtt í gönguferðum og var virki-
lega skemmtilegt."
Við Ægisíðuna, sem var fyrsti
áfangastaður göngumanna, var kveikt
fjörubál, og náðist upp mikil og góð
stemmning þar. Við Örfirisey voru
göngumenn svo mættir við sólaruppr-
ás, sem var klukkan nákvæmlega 2.54.
„Það var svo skýjað að við sáum enga
sól en það gerði ekkert til. Maður fann
birtuna aukast engu að síður,“ sagði
Einar.
Að lokinni skoðunarferð um Viðey
var svo tekið land í Grófinni og fetað
í fótspor Ingólfe Amarsonar. Síðan var
gengið sem leið lá hringinn í kringum
Reykjavík. Inn Laugamestanga og
upp í Elliðarárdal. Við Árbæjarsafn
var haldið upp á sólstöðuminútuna. í
tilefni af því hélt Þór Jakobsson veð-
urfræðingur smápistil um sólina. Og
síðan slepptu göngumenn dúfu.
Síðan var gengið eftir Fossvogs-
dalnum og Öskjuhlíðinni og gangan
enduð fyrir framan háskólann.
Að sögn Einars var fólk að koma
og fara allan tímann, og munu um tvö
hundmð manns hafa tekið þátt í
göngunni i það heila. Undir morgun-
inn var hópurinn þó tekinn að þynnast
og luku göngunni tuttugu og fimm
manns. „Já, við vorum þama nokkur
sem gengum allan tímann. og það er
svo merkilegt að maður fann bara
ekkert fyrir því að vaka svona. Það
er sennilega birtan, og svo náttúrlega
hreyfingin, sem veldur. Og við erum
alveg ákveðin í að gera þetta aftur að
ári liðnu og ná þá sem flestum sveitar-
félögum inn i þetta. Það er líka
ætlunin að fá fleiri þjóðir með. Þór
Jakobsson hefur unnið að þvf undan-
farið að kynna þetta erlendis. Og ég
er handviss um það að næsta ár fáum
við miklu fleiri með okkur," sagði Ein-
ar Egilsson. -VAJ
OPNAÐUR I DAG AÐ
LAUGAVEGI28
Smiðjuvegi 4,
Laugavegi 28,
ísafirði,
Akureyri,
Húsavík,
Neskaupstað.