Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986. Sljóminál Ný umferðariög fyrir Alþingi: Ökuljós skylda 8 mánuði á ári Ökumenn bifreiða verða skyldaðir til að nota ökuljós allan sólarhring- inn í átta mánuði á ári, á tímabilinu frá 1. september til 30. apríl, sam- kvæmt stjómarfrumvarpi til um- ferðarlaga sem Alþingi hefur til meðferðar. Umferðarlagafrumvarpið hefur legið íyrir þinginu á síðustu tveim þingum en ekki hlotið afgreiðslu. Ne&id, sem vann að endurskoðun frumvarpsins fyrir þetta þing, hefur lagt til allmargar breytingar. Auk áðumeftids ákvæðis um ljósatíma em helstu breytingar frá gildandi umferðarlögum þessar: Borga fyrir lögregiuaðstoð Heimild er til að setja reglur um greiðslu kostnaðar vegna lögreglu- aðstoðar. Akvæði er beint gegn þeim sem með hægum akstri tefja akstur ann- arra. Ekki má valda ónæði með ónauð- synlegum akstri í námunda við íbúðarhús. Víkja má frá ákvæðum um fébóta- ábyrgð og vátryggingu í reglum um aksturskeppnir. Aka má á allt að 80 km hraða á klst. á vegum með bundnu slitlagi utan þéttbýlis. Reglur um ökuhraða stórra fólks- bifreiða, vömbifreiða og dráttarbif- reiða em rýmkaðar. Ökuhraði vélsleða á opinberum vegi er takmarkaður við 30 km á klst. Ökumanni er bannað að neyta áfengis í 6 klst. eftir að akstri lauk hafi hann ástæðu til að ætla að opin- ber rannsókn verði hafin vegna akstursins. Bensínafgreiðslumenn hindri ölvunarakstur Bensínafgreiðslumenn, veitinga- menn og þjónar em sérstaklega skyldaðir til að hindra ölvunarakst- ur ef þeir vita eða hafa ástæðu til að ætla að ölvaður maður ætli að stjóma ökutæki. Nýmæli er um vinstri beygju hjól- reiðamanns. Hjólreiðamaður, sem nálgast vegamót og ætlar að beygja til vinstri, má vera áfram hægra megin á vegi. Skal hann fara beint áfram yfir vegamótin og beygja þá fyrst, þegar það er unnt án óþæginda fyrir aðra umferð. Ákvæði er um 9 ára lágmarksaldur bams til að mega hjóla á akbraut og 17 ára lágmarksaldur til að reiða bam. Ekki þurfi að endurnýja öku- skírteini fyrr en við sjötugt Lagt er til að bráðabirgðaskírteini til byijenda gildi í 2 ár í stað 1 árs. Fullnaðarskírteini verði að jafnaði gefið út til 70 ára aldurs. Er talið forsvaranlegt umferðaröryggis vegna að draga þannig úr skrif- finnsku. Lágmarksaldur við akstur dráttar- véla við landbúnaðarstörf verði 14 ára. Aldursmark til útgáfú ökuskír- teina til aksturs léttra bifhjóla og vélsleða verði 16 ár. Heimild er til að fela verkstæðum almenna skoðun eða tiltekna þætti skoðunar. Setja má reglur um heimild ann- arra en lögreglu til að stjóma umferð. Loks má neftia ákvæði um rýmkun bótaábyrgðar og hækkun vátrygg- ingafjárhæða. Ákvæði um lögboðna eigin áhættu em felld niður. -KMU Hússtjórnarskólar verði nútímalegri Tvö þingmál liggja fyrir Alþingi um hússtjómarskóla, bæði frá framsókn- armönnum. Magdalena Sigurðardóttir flytur ásamt Stefáni Valgeirssyni og Ólafi Þ. Þórðarsyni þingsályktunartil- lögu um almenna heimilisfræðslu. Þá leggur Þórarinn Siguijónsson fyrir- spum fyrir menntamálaráðherra um hver stefha hans sé í málinu. Tillaga Magdalenu, Stefáns og Ólafs hljóðar svo: „Alþingi ályktar að fela mennta- málaráðherra að kanna með hvaða hætti best verði staðið að almennri heimilisfræðslu í landinu. Kannað verði meðal annars hvemig að slíkri fræðslu sé staðið annars staðar á Norðurlöndum. Ráðherra geri tillögu um endur- skipulagða starfsemi hússtjómarskól- anna og heimilisfræðslu í landinu og leggi hana fyrir Alþingi." I greinargerð segjast þingmennimir sjá að sannarlega sé þörf fyrir hús- stjómarskólana í þjóðfélaginu. Laga verði starfsemi þeirra að nútíma lifn- aðarháttum og þörfum. -KMU „Það er verið að taka mynd af okkur, nafni,“ sagði Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra við Matthías Bjarnason viðskipta- og samgönguráðherra, sem var að giugga i bók Helga Magnússonar endurskoðanda um Hafskips- málið. Framtíð Útvegsbankans eftir gjaldþrot Hafskips er einmitt mikið til umræðu meðal stjórnmálamanna þessa dagana. DV-mynd GVA Vesturiand: Prófkjör krata um næstu helgi Prófkjör Alþýðuflokksins i Vestur- landskjördæmi fyrir næstu alþingis- kosningar verður haldið sunnudaginn 23. nóvember næstkomandi. Frambjóðendur í prófkjörinu em þessir: Eiður Guðnason alþingismað- ur, Reykjavík, Guðmundur Vésteins- son framkvæmdastjóri, Akranesi, Málfríður H. Ríkharðsdóttir kennari, Akranesi, og Sveinn G. Hálfdánarson innheimtustjóri, Borgamesi. Þátttökurétt í prófkjörinu eiga allir stuðningsmenn Álþýðuflokksins sem em 18 ára og eldri og búsettir em í kjördæminu. Kosningin verður bind- andi fyrir 2 efstu sætin. -ój Þingfundur í 7 mínútur Þingfundir vom með styttra móti á Alþingi í gær. Fundur neðri deildar stóð yfir í sjö mínútur. Fundur efri deildar stóð yfir í 30 mínútur. Aðeins eitt þingmál kom til umræðu í hvorri þingdeild. í neðri deild mælti Jón Magnússon varaþingmaður fyrir frumvarpi um breytingu á aðfararlög- um. í efri deild sögðu þeir Skúli Alexandersson og Haraldur Ólafsson álit sitt á frumvarpi alþýðuflokks- manna um breytingu á kosningalögum þess efnis að kjósendur ráði sjálffr röð frambjóðenda á ffamboðslista. -KMU í dag mælir Dagfari Fjölmiðlar hafa skyndilega upp- götvað að sums staðar í útlöndum er vömverð lægra en á íslandi. Þetta hefur almenningur í landinu vitað áratugum saman þótt verðmunur hafi að sjálfsögðu verið misjafnlega mikill milli ára eða árabila. Nú þyrp- ast fjölmiðlamenn til Keflavíkur og heimta að fá að mynda ofan í töskur farþega sem em að koma frá Glas- gow en tollverðir bmgðust við hart og neituðu að vinna undir flass- glömpum myndavélanna. Lái þeim hver sem vill. Hingað til hefur það veri talið einkamál tollvarða og við- komandi farþega ef nokkrar auka- skyrtur slæðast með í farangri eða einni viskíflösku ofaukið. En hin nýja valdastétt á Islandi, fjölmiðla- stéttin, heimtar að fá að stunda rannsóknir og yfirheyrslur yfir sam- borgurum hvar sem er og hvenær sem er. En þetta með kaupgleði íslendinga þá þeir em á ferð í útlöndum er eng- in ný bóla, síður en svo. Það þótti nú ekki ónýtt á sínum tíma að sigla með Gullfossi til Edinborgar og versla þar upp á líf og dauða meðan skipið fór til Kaupmannahafnar og skipa svo vamingnum um borð þeg- ar komið var aftur við í Edinborg á heimleið. En þá var nú vömúrval hér á landi ansi dapurt miðað við það sem nú er. Það sem gerir annan hvem íslend- ing að smyglara í dag þá hann kemur frá útlöndum er auðvitað þessi sjö þúsund kall sem er víst hámarks- verðmæti þess sem koma má með inn í landið. Maður sem kaupir sér van- daða skó og jakka í London en hendir gömlu dmslunum er orðinn smyglari þegar hann kemur heim á nýju skónum og í jakkanum. Hvaða heilvita maður færi að gefa sig frarn við tollinn og segjast vera íklæddur of miklum verðmætum miðað við íslenska tollalöggjöf? Hver sem reyndi slíkt yrði umsvifalaust sendur í geðrannsókn og eins víst að hælis- vist fylgdi á eftir. Hins vegar má líka milli vera í slíku tilfelli og þess þeg- ar ungar konur em allt í einu orðnar átta bama mæður þegar þær gefa skýringar í tollinum á gífurlegum fatabirgðum í farangrinum, svo ekki sé minnst á það þegar smákaupmenn reyna að smygla söluvöm inn í landið sem persónulegum farangri. En þetta með sjö þúsund kallinn er greinileg vísbending þess að viðkom- andi embættismenn í ráðuneytunum fylgjast ekki með tímanum og hélt maður þó að þeir væm ekkert ofeæl- ir af sínum launum. Auðvitað er það ekki bara á ís- landi sem fólk reynir. að diýgja tekjumar með því að kaupa ódýrt utan heimalandsins. Þetta er bara þægilegra, til dæmis á meginlandinu, þar sem nægir að skella sér upp í bílinn og aka til næstu borgar hand- an landamæranna ef vömverð er lægra þar. Og úr því innkaup í Bret- landi ber á góma þá var það frægt fyrir allnokkrum árum, þegar pimdið stóð hvað lægst, að Norðmenn þyrptust til Bretlands á skipum og keyptu heilu búslóðimar. Hvað ætli Kiddi Pé og félagar segðu ef menn fæm að koma með hjónarúm og fata- skápa í farteskinu frá Glasgow? Annars er kaupgleði landans ekki bundin við stuttar skemmtiferðir á haustin til Glasgow. Hvar sem landinn fer í sumarfrí er eftir því tekið hvað menn em fljótir að taka krítarkortið upp úr buddunum. Sagt er að sums staðar á meginlandi Ev- rópu séu kaupmehn hættir að tala um ísland heldur nefni það Vísa- land, enda svo ósköp þægilegt að þurfa ekki að sjá eftir neinum seðl- um heldur bara láta renna plastkort- inu gegnum vél og þá er allt klappað og klárt - eða þannig. Hins vegar hafa fjölmiðlasnilling- amir enn ekki uppgötvað þá þjóð- hættulegu iðju utanbæjarfólks að streyma til Reykjavíkur í verslunar- erindum í stað þess að versla við kaupfélagið heima. Þetta hefur vald- ið samvinnuversluninni óbætanlegu tjóni og spuming hvort ekki eigi að taka upp nokkurs konar tollskoðun á Reykjavíkurflugvelli þegar sveita- fólkið er að þyrpast til síns' heima úr helgarferðunum. Einnig þyrfti þá að koma upp nokkurs konar tollhliði á Ártúnshöfða svo þeir akandi slyppu ekki ótollaðir með feng sinn. Nú er það matsatriði hve mikil verð- mæti fólkið má hafa með sér úr Reykjavík í formi vamings en þar mætti til dæmis miða við tvöfaldan Keflavíkurskammt. Þar með mundu kaupfélögin verða fljót að rétta úr kútnum. Dagfari. Fjölmiðlafár í tollinum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.