Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Síða 7
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986.
7
Atviimumál
ísegg sækir um 60-70 milljóna
króna lán úr framleiðnisjóði
„Ég get ekki sagt til um hvemig
þessi lánsumsókn verður afgreidd en
niðurstaða ætti að liggja fyrir í þessum
mánuði. Það er margt sem við þurfum
að skoða í þessu sambandi. Þar sem
svona lánsumsókn er trúnaðarmál get
ég ekki skýrt frá því hvað það er sem
við erum að skoða í þessu sambandi,"
sagði Jóhannes Torfason, formaður
framleiðnisjóðs landbúnaðarins.
Eggjasamsteypan ísegg hefur sótt um
60-70 milljón króna lán til sjóðsins í
því augnamiði að kaupa Holtabúið
sem mun vera stærsta eggjabú lands-
ins.
„Það er rétt að ég hef mælt með því
við stjóm framleiðnisjóðs að íseggi
verði veitt þetta lán. Mér þykir skipu-
lag á þessum málum vera í molum og
er svartsýnn á framtíðina ef ekkert
verður að gert. Ég óttast að það verð-
stríð, sem nú geisar, verði til þess að
smærri framleiðendur gefist upp og
eggjaframleiðslan færist yfir á fárra
hendur,“ sagði Hákon Sigurgrímsson,
framkvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda, í samtali við DV.
Eggjaframleiðendur, sem standa ut-
an íseggssamsteypunnar, óttast
margir að kaupi ísegg Holtabúið muni
þeir ráða yfir meira en 50% framleiðsl-
unnar og i krafti meirihluta í fram-
leiðsluráði muni þeir heimta kvóta á
framleiðsluna en slíkt kvótakerfi muni
gera út af við alla þá sem standa utan
samsteypunnar. Aðrir halda því fram
að margir, sem í upphafi tóku þátt í
íseggssamsteypunni, séu að yfirgefa
hana og því muni ísegg ekki ná meiri-
hluta með því að kaupa Holtabúið sem
sumir segja að hafi gefið upp meiri
eggjaframleiðslu en það í raun hafi
verið með. f því sambandi hafi verið
blandað saman eggja- og kjúklinga-
framleiðslunni.
Þessir sömu aðilar segja að ef ísegg
nái meirihluta í framleiðsluráði eggja-
framleiðenda muni það þýða mikla
verðhækkun á eggjum og síðan kvóta
sem leiði til einokunar Iseggsmanna.
-S.dór
Stórólfsvallabúið við Hvolsvöll er meðal þeirra graskögglaverksmiðja sem
ríkissjóður býður til sölu.
Ríkiö leitar tilboða
í graskögglaverksmiðjur
Fjármálaráðuneytið hefur auglýst
þrjár graskögglaverksmiðjur til sölu.
Frestur til að skila inn tilboðum er til
15. janúar 1987.
Þetta eru graskögglaverksmiðjumar
að Flatey á Mýrum í Austur-Skafta-
fellssýslu, Fóðuriðjan í Saurbæ í
Dölum og Stórólfsvallabúið i Rangár-
vallasýslu.
Fjórða graskögglaverksmiðjan,
Vallhólmur í Skagafirði, sem er eign
ríkisins að þrem fjórðu, verður einnig
seld hæstbjóðanda á næstunni. Það
fyrirtæki er til gjalþrotaskipta, eins
og DV hefur áður skýrt frá.
Graskögglaverksmiðjan Fóður og
fræ í Gunnarsholti, sem alfarið er í
eigu ríkisins, er hins vegar ekki á sölu-
listanum.
„Menn vilja ekki slíta hana frá starf-
semi Landgræðslunnar í Gunnars-
holti. En það er ekki búið að taka
ákvörðun um framtíð þeirrar verk-
smiðju," sagði Sigurður Þórðarson,
skrifstofustjóri í fj ármálaráðuney tinu.
Hætt er við að ríkissjóður fái lítið
fyrir þær miklu fiárfestingar sem liggja
í graskögglaiðnaðinum. Þessi grein
hefur átt við mikla fiárhagsörðugleika
að etja undanfarin ár. Ástæðan er of-
framleiðsla. Birgðir hafa hlaðist upp.
Verksmiðjumar geta framleitt þrefalt
meira magn en talið er að markaður-
inn hafi þörf fyrir.
Til marks um hversu verðlitlar verk-
smiðjumar em má geta þess að
síðastliðið vor var gerður kaupsamn-
ingur, að vísu með fyrirvara, við
Kaupfélag Skagfirðinga um Vall-
hólmsverksmiðjuna, sem er nýjasta og
stærsta verksmiðjan, fyrir 12,5 millj-
ónir króna.
-KMU
Viðbjóðumykkuraðkomaogsjá Sýningin er opin frá kl. 9 til 18.
bestu og fallegustu hljómtækin,
hátalarana og sjónvörpin sem
fást á íslandi.
Tækin frá Bang & Olufsen.
Kynnum nýjustu hátalarara,
þeir eiga engann sinn líka
- Beovox PENTA -
Bang&Olufsen
VIÐTÖKUM VEL Á MÓTIÞÉR
MEÐ ÍSLENSKUM TEXTA. m»vndbanoheioub t(.
TEFLl
Síðumúla 23, 108 Reykjavik
S 91-68 62 50 / 68 80 80