Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986.
Meiming
Stundargaman
Kór Víðistaðasóknar.
Gleði ríkja skal
Með stjömur í augum.
Höfundur: Andrés Indriöason.
Útgefandi: Mál og menning, 1986.
Nýjasta saga Andrésar Indriða-
sonar segir frá ástarsambandi
tveggja menntaskólakrakka í
Reykjavík. Sagan hefst fyrsta skóla-
daginn í MR þegar Sif, 17 ára, fellur
flöt fyrir súkkulaðigrísnum Amari,
18 ára, en endar á vinslitum um jól,
þrátt fyrir væntanlegan erfingja.
Karlmennskan - kvenleikinn
Bakgmnnur þeirra Amars og Siij-
ar er mjög ólíkur. Sif er fyrirmyndar-
Andrés Indriðason.
unglingur á alla lund, fyrirmyndar-
nemandi og fyrirmyndardóttir í góðu
sambandi við skilningsríka velstæða
foreldra í fínu húsi úti á Nesi. Sif
er myndarleg í höndum, sníður og
saumar á sig tískufatnað, reykir
hvorki né drekkur áfenga drykki og
hefur aldrei verið við karlmann
kennd. Svo virðist sem hún gangi
nú í fyrsta sinn með stjömur í aug-
um. Amar hefur hins vegar lifað
töluvert hátt og verið mikið upp á
kvenhöndina, enda sannkallað
„gellugull", sætur og kraftalegur
með brún augu. En hann er því mið-
ur mestur á velli og í munninum og
kiknar undan minnsta álagi. Hann
er lélegur námsmaður og gefet upp
í skólanum og forðast yfirleitt alla
erfiðleika og ábyrgð. Heimili hans
er óvistleg kjallarahola, mamman
„alki“ og stjúpinn „svitafýla" sem
hefur atvinnu af því að aka leigubíl,
„hvílík fjölskylda“, hugsar Sif á nei-
kvæðu augnabliki. Föður sínum
kynntist Amar ekki fyrr en um ferm-
ingu. Hann býr á Akureyri og þar á
Amar athvarf þegar hann kýs að
flýja veruleika sinn í Reykjavík.
Uppeldi Amars hefur verið í molum.
Samt hefúr lesandi það á tilfinning-
unni að það sé ekki endilega lélegt
uppeldi sem hefur gert Amar að til-
finningalausum eiginhagsmuna-
segg, til þess er of lítið kafað í
fortíðina. Amar er fremur hefð-
bundið tákn karlmennskunnar eins
og Gutti vinur hans og fleiri gæjar.
Sif er a.á.m. líkt og aðrar konur í
sögunni tákn hinna kvenlegu eigin-
leika afþreyingarbókmenntanna.
Hún er dálítið hégómleg, veiklynd,
fómfús, vinnusöm og tilbúin að
fóma öllu fyrir manninn og móður-
hlutverkið.
Ástin er blind
Efrii þessarar sögu er, eins og áðui
segir, ástarsamband Sifjar og goðs-
ins hennar sem að vísu heitir ekki
Þór heldur Amar. Ekkert annað
skiptir máli í sögunni nema sem
baksvið. Sif er sögumaður og rifjar
upp þessa sögu. Auðvitað er það
svo, þegar fyrsta ástin er annars
vegar, að fátt annað skiptir máli.
Þó finnst mér einum of langt gengið
þegar Sif afskrifar samband við bestu
vinkonu sína vegna hins tiltölulega
lausa sambands sem hún hefur við
gæjann, ekki síst vegna þess að út
i gegnum bókina trúir lesandi því
tæpast að Sif elski Amar í raun og
vem nema á þeim stundum sem þau
em saman, til þess skortir frásögnina
meiri dýpt. Sif og Amar em alls
ekki eins trúverðugir unglingar og
t.d. Elías og Eva í bókaþrennu Andr-
ésar sem kom út 1982-84. Aukaper-
sónur em líka fremur klisjukenndar,
konur hégómlegar, illmálgar, kjöft-
ugar en karlar hið sterka ráðandi
afl í lífi þeirra. Strákamir velja sér
stelpur og fara með þær eins og þeim
sýnist. Ást þeirra á gæjunum er al-
gerlega blind, þær falla umsvifalaust
fyrir breiðum herðum og brúnum
augum.
Að sitja í súpunni
Hér að framan hafa komið fram
ýmsir hugmyndalegir veikleikar
þessarar sögu. Styrkur bókarinnar
Bókmenntir
Hildur Hermóösdóttir
er hins vegar nálgunin við Sif og
vanda hennar. Hvemig höfundur
lýsir sveiflunum milli ástar og hat-
urs á Amari, - hvemig hún ásakar
hann og réttlætir til skiptis. Lýsingin
á örlaganóttinni þegar bamið kemur
undir og sjálfeásökun og ótta stúlk-
unnar á eftir er mjög sannfærandi.
Þessu hefði höfundur þó getað fylgt
enn betur eftir með dýpri örvænt-
ingu og togstreitu hjá Sif, - sem
hann hefur í hendi sér því frásögnin
er hennar. Skólastelpa á þessum
aldri hlýtur að lenda í meiri háttar
uppgjöri við sjálfan sig um hvort
hún eigi að eiga bam eða ekki. Sif
virðist aldrei velta alvarlega fyrir sér
hvaða takmörk það muni setja henni
og foreldramir gera lítið til að gera
henni grein fyrir því. Andrés fellur
i sömu gryfju og fleiri óléttuhöfund-
ar, - að láta slysið ske en vinna ekki
nægilega úr eftirmálunum. Það telst
honum samt tvímælalaust til tekna
að hann sýnir ljóslega fram á hvem-
ig stelpan situr alltaf í súpunni. Hún
kemst ekki upp með neitt kæmleysi
eða flangs. Strákurinn getur leikið
sér eins og honum sýnist og hlaupið
svo burt, laus allra mála.
Einföldun
Viðfangsefhi Andrésar er hér sem
oftast áður heimur unglingsins, tölu-
vert einfaldaður eða einskorðaður
við dægurþras, skólasetu og partí.
Hann hefúr litlu bætt við fyrri um-
fjöllunarefni sín nema fært sig örlítið
upp í aldursstiganum og fjallar nú
um fyrstu kynlífereynslu 17 ára
stúlku. Hann hefur líka litlu bætt
við skáldlega tilburði og heldur sig
við einfalt unglingamál og hefð-
bundna frásagnartækni. Því verður
að segjast eins og er að þessi bók
er eins og ást aðalpersónanna, lítið
meira en stundargaman.
H.H.
Gleði ríkja skal.
Hljómplata með söng Kórs Vlðistaöasókn-
ar.
Stjórnandi: Kristín Jóhannesdóttir.
Upptaka: Halldór Víkingsson.
Skuröur: Tape One.
Pressun: Alfa.
Útgefandi: Kór Víðistaðasóknar KVS 001.
Þegar nær dregur aðventu birtast
hinar dæmigerðu jólaplötur, jóla-
söngvar og sálmar og oft ýmislegt
veraldlegt léttmeti í bland. Öllu er
því ætlað að hjálpa til að lyfta brún-
Tónlist
Eyjólfur Melsted
inni ögn í svartasta skammdeginu
og leiðimar til þess jafhmargar og
misjafriar og plötumar sem út koma.
Ein af fyrstu jólaplötunum í ár er
Gleði ríkja skal, með söng Kórs Víði-
staðasóknar í Hafnarfirði.
Sóknin sjálf sem slík er reyndar
ekki gömul og þá ekki kórinn, að-
eins níu ára. Aldur segir hins vegar
lítið um gerð, hæfni og vilja kórs til
að takast á við stærri verkefhi en
þann söng sem þarf til að þjóna
venjulegri hátíðargjörð kirkjunnar.
Vitað er að Kór Víðistaðasóknar
hefúr lagt í stærri verkefni þótt ekki
komi það fram á umræddri plötu.
Hyí ekki stuðning hljóðfæra?
Öðrum megin á plötunni em jóla-
lög en hins vegar létt veraldleg lög.
Platan gegnir þvi tviþættum til-
gangi. Hún sýnir sem sé líka hina
hliðina á kómum, en veraldlegan
söng hefúr kórinn, að mér er tjáð,
stundað með frá upphafi og er það
áreiðanlega til góðs, ekki síst þar
sem með því fást kjörin tækifæri til
að rækta félagsþáttinn og allt kemur
það starfinu í kirkjunni til góða.
Söngur kórsins einkennist af
miklu hæglæti sem kemur meðal
annars fram í þvi að styrkleikabrigði
em yfirleitt harla lítil. Helgast þetta
að hluta, hygg ég, af því að á plöt-
unni syngur kórinn allt á cappella,
en ég þykist þess fullviss að einmitt
kórar af þessu tagi, þar sem meiri-
hluti söngfólksins er lítt eða ekki
skólaður, eigi að nýta sér stuðning
hljóðfæraleiks í söng sínum. Það
getur, ef rétt er að farið, lyft svona
kór upp um nokkur þrep. Söngur án
undirleiks er góður til þjálfunar en
ákveðna fæmi þarf til að geta borið
hann á borð í flutningi svo að gaman
sé að og upp á það stig er Kór Víði-
staðasóknar ekki kominn enn.
Ekkert að þykjast
Platan ber því vitni að kórinn hafi
lagt sig allan fram og unnið sitt verk
af alúð en lyftingin hefði getað orðið
mun meiri ef aðstoðar hljóðfæra
hefði notið við enda hefúr hann þann
stuðning allajafna þar sem orgelið
er annars vegar. Sú hliðin, sem jóla-
lögin em á, er áberandi betri. Þar
kemur bamakór sóknarinnar einnig
við sögu og vitnar það um áhugann
og viljann til að leggja gmnn að
öflugu tónlistarstarfi við kirkjuna í
framtíðinni. í raun hygg ég að kór-
inn hefði komið miklu betur frá því
að syngja eingöngu jólalög inn á
þessa plötu því að sum af veraldlegu
lögunum er á mörkunum að hann
ráði við, að minnsta kosti til að láta
fara inn á plötu. En það að setja þau
þó á plötuna ber vitni heiðarleika.
Þama em menn ekkert að þykjast
og í kómum er góður efniviður inn-
an um. Kröfúmar sem hann gerir til
sjálfe sín hljóta að aukast, ekki síst
ef honum tekst að selja þessa plötu
vel og kaupa fyrir gott orgel í kirkj-
una sína.
Á upptöku Halldórs Víkingssonar
er fyrirmyndarvinna. Einu gildir
hvað hann tekur upp, hann vandar
sitt verk, gerir miklar kröfur til sjálfe
sín og lætur ekki neitt fúsk frá sér
fara.
EM.
Magnús Páls-
son í Gliti
Hjá Gliti hf. hefúr verið starfandi
sérstök listasmiðja síðan 1983. Þar
hafa nokkrir þjóðkunnir listamenn
fengið aðstöðu til að vinna að hugð-
arefnum sínum og getað notfært sér
þá stóm ofna sem Glit hf. hefur yfir
að ráða.
Um þessar mundir er Magnús
Pálsson myndlistarmaður að vinna
að stóm verki fyrir Snælandsskóla
í Kópavogi í listasmiðjunni. Um er
að ræða 12 stórar lágmyndir, 10 úti-
myndir en 2 innimyndir. Verða þær
stærstu allt að 15-20 m2. Er verkið
byggt á ævintýrinu um Karlsson,
Lítinn, Trítil og fuglana. Er búist
við að fyrstu hlutar verksins verði
settir upp í byrjun næsta sumars.
Aðspurður segir Magnús að hann
sé mjög ánægður með aðstöðuna hjá
Gliti hf. Bæði sé alveg einstakt að
hafa húsnæði til að vinna stór verk
í, aðgang að ofnunum og síðast en
ekki síst ómetanlega aðstoð við
tæknilegar framkvæmdir en Daði
Harðarson hefur verið hans sérlegur
aðstoðarmaður. Daði Harðarson
hefur síðastliðið ár unnið við vöm-
þróun og tæknilega aðstoð hjá Gliti
hf.
-AI.