Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Síða 22
22
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986.
Iþróttir
Teiturfrá Oster
til Skövde AIK?
- sem aðalþjálfarí og leikmaður
•Ragnar Margeirsson.
Þjálfari
Waterschei
rekinn
Kristján Bemtaurg, DV, Belgíu:
„Ég vona að þetta virki sem vít-
amínsprauta á leikmenn liðsins,"
sagði Ragnar Margeirsson, leik-
maður Waterschei, eftir að Emst
Kíinnecjke hafði verið ráðinn
þjálfari félagsins í stað Deraeye
sem var rekinn frá Waterschei í
gær. Kúnnecjke er ekki ókunnug-
ur í Waterschei. Hann var þjálfari
félagsins þegar Lárus Guðmunds-
son lék með því og undir hans
stjóm varð félagið bikarmeistari.
„Það hlaut að koma að þessu
enda hefur það legið iengi í loftinu
að Deraeye yrði látinn fara. Nú
er kominn þjálfari sem leikmenn
bera virðingu fyrir og kemur til
með að láta leikmenn liðsins vinna
saman í leikjum,“ sagði Ragnar.
-SOS
Fjórtán marka
sigur Víkings
Víkingur sigraði Ármann með
14 marka mun í fyrstu deild
kvenna í handbolta í gærkvöldi.
Víkingstúlkumar byrjuðu leikinn
vel og eftir um það bil sjö mín.
leik vom þær fimm mörkum yfir
og staðan í hálfleik 17-9 fyrir Vik-
ing. í seinni hálfleik héldu þær
áfrarn aó auka við forskot sitt jafnt
og þétt og lokatölur urðu 30-16.
Lítið er hægt að segja um leik
Ármannsstúlknanna, þar ræður
meðalmennskan ríkjum, helst að
Ellen standi upp úr en hún skoraði
helming marka Ármanns. Lið Vík-
ings er jafht og skemmtilega
leikandi og eiga þær örugglega
eftir að blanda sér í toppbaráttuna
ef fram heldur sem horfir.
Mörk Ármanns skoruðu Ellen
8/2, Margrét, Elísabet og Guðbjörg
2 hver, Halla og Bryndís 1 hvor.
Mörk Víkings. Eiríka 9/2, Svava
6/1, Sigurrós og Rannveig 4 hver,
Valdís 3, Jóna 2 og Vilborg og
Margrét 1 hvor. -BD
Staðan
Eftir fjórar umferðir í 1. deild
kvenna í handknattleik er staða
liðanna mjög jöfh og allt getur
gerst. FH, Stjaman og Fram eru
á toppnum með 6 stig. Valur, KR
og Víkingur fylgja fast á eftir með
4 stig. ÍBV og Ármann sitja á
botninum, Ármann með 2 stig og
ÍBV með ekkert.
Næstu leikir í deiidinni eru:
Fram - Ármann á fostudags-
kvöld, Stjarnan - FH á laugardag
kl.14 og má búast við hörkuleik
milli þessara jöfnu liða. ÍBV sæk-
ir síðan KR heim á mánudags-
kvöldið. -BD
Allt bendir til þess að Teitur Þórð-
arson, knattspymumaður frá
Akranesi, sem nú æfir og leikur með
1. deildar liðinu Öster í Svíþjóð, sé
að yfirgefa félagið og færa sig um
set í Svíþjóð.
Teitur hefur gengið tilboð um að
vera með kunnu félagi þar næsta
sumar. Er það Skövde AIK sem vill
fá hann til sín. Hefur honum boðist
staða sem aðalþjálfari liðsins og
einnig mun hann leika með því.
Þetta kemur fram í sænska blaðinu
Dagens Nyheter nú í vikunni. Þar
er haft eftir Stig Svensson, sem kall-
aður hefur verið „Herra Öster“, enda
stjómar hann því félagi með kjafti
og klóm, að Öster hafi ekki efiii á
því að missa Teit til Skövde AIK.
Teitur kom aftur til Öster í fyrra
eftir að hafa leikið um tíma í Frákkl-
andi. Dvöl hans hjá Öster hefur verið
heldur snubbótt að þessu sinni. Hef-
ur hann átt við meiðsli að stríða í
sumar og lítið sem ekkert getað leik-
ið með liðinu.
-klp
► Teitur Þórðarson.
Sigi Held sá
ekki mörk skor
uð í Leipzig
- þar sem A-Þjóðverjar og Frakkar gerðu jafntefli
Sigi Held, landsliðsþjálfari íslands í
knattspymu, sá ekki mörk skomð í Leip-
zig í gærkvöldi þar sem A-Þjóðverjar og
Frakkar gerðu jafhtefli, 0-0, í Evrópu-
keppni landsfiða. 52 þús. áhorfendur sáu
Frakka eiga fleiri hættuleg tækifæri í
leiknum sem fór fram í grenjandi rign-
ingu. Michel Platini sýndi lítið enda í
strangri gæslu Jorge Stuebnek.
Undir lok leiksins gerðu A-Þjóðverjar
örvæntingarfulla tilraun til að gera út
um leikinn en þeim tókst ekki að knýja
fram sigur. „Það var enginn sigurvegari
hér. Ef einhver fór með sigur vom það
Rússar. Þeir em nú efetir í riðlinum,"
sagði Bemd Stange, þjálfari A-Þjóðverja.
Rússar hafa fimm stig eftir þrjá leiki,
A-Þjóðveijar fjögur, Islendingar tvö,
Frakkar tvö og síðan koma Norðmenn
með eitt sig eftir tvo leiki. -SOS
SandytilFH?
FH-ingar em nú á höttum eftir skoskum þjálfara fyrir 1. deildar lið sitt
í knattspymu til að taka við hlutverki Inga Bjamar Albertssonar sem
er farinn til Vals. FH-ingar hafa haft Sandy Jardine, fyrrum leikmann
Glasgow Rangers, undir smásjánni. Jardine, sem lék með skoska landslið-
inu á árum áður, var lengi orðaður við Aberdeen. Þar sem Ian Porterfield
hefúr verið ráðinn „stjóri“ Aberdeen er Jardine (sjá mynd til vinstri) nú
á lausu og getur svo farið að harrn taki við FH-liðinu. -SOS
Pfaff bjargaði Belgíu
mönnum ffá tapi
- í jaffiteflisleik, 1-1, gegn Búlgaríu í Brussel
•Sigi Held, landsliðsþjálfari íslands.
Kristján Bembuig, DV, Belgíu:
Markvörðurinn snjalli, Jean Marie
Pfaff, fór á kostum í marki Belgíu-
manna sem máttu hrósa happi að tapa
ekki fyrir Búlgaríumönnum í Brússel
þar sem þeir mættust í Evrópukeppni
landsliða í gærkvöldi. Pfaff varði hvað
eftir annað mjög vel og eitt sinn meist-
aralega frá Nasko Sirakov, leikmann-
inum sem mörg fræg félög í Evrópu
hafa augastað á. Þá var Sirakov
óheppinn að skora ekki í fyrri hálf-
leiknum - skaut þá yfir mark Belgíu
af átta metra færi eftir að hafa verið
á auðum sjó.
„Búlgaríumenn léku mjög vel og
voru óheppnir að leggja ekki Belgíu-
menn að velli. Það er greinilegt að
þeir verða erfiðir - eru í mikilli fram-
•Jean Marie Pfaff, markvörður Belg-
fu.
för,“ sagði Andy Roxburgh, landsliðs-
þjálfari Skotlands, sem var meðal
áhorfenda á Heysel.
Það var rigning á meðan leikurinn
fórt fram og voru Búlgarar betri á
þungum vellinum. Það voru Belgíu-
menn sem voru á undan til að skora.
Pierre Jarssen, leikmaður Anderlecht,
skoraði markið á 48. minútu. Það var
svo varamaðurinn Latchezar Taneu
sem náði að jafna, 1-1, á 62. mínútu.
Eftir það sóttu Búlgarar en Pfaff kom
i veg fyrir að þeir færu með sigur frá
Brússel.
22.780 áhorfendur sáu leikinn. Belg-
ía og Skotland eru nú efet í sjöunda
riðli EM með fjögur stig eftir þijá
leiki. írland og Búlgaiía hafa tvö stig
eftir tvo leiki og Lúxemborg ekkert
eftir tvo leiki. -SOS
Pólski múrinn
var sterkur í
Amsterdam
Pólveijar náðu að veijast
áhlaupum Hollendinga í Amster-
dam í gærkvöldi og tryggja sér
jafhtefli, 0-0. 60 þús. áhorfendur
sáu þá Ruud Gullit og Marco van
Basten eiga í miklum erfiðleikum
með að komast í gegnum sterkan
vamarmúr Pólveija þar sem þeir
Wdowczyk og Roman Wojcicki,
sem leikur með Hamburger SV,
vom eins og klettar. Wojcicki átti
stórleik - fór á kostum.
Pólveijar og Hollendingar em
með þijú stig eftir tvo leiki í fimmta
riðli EM. Grikkir em með tvö,
Ungverjar og Kýpurbúar ekkert.
Ungveijar hafa leikið tvo leiki en
Kýpurbúar hafa enn ekki klteðst
knattspymuskónum í EM. „SOS