Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Page 33
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986. 33 Birna og Ólöf hvila lúin bein og undir skónum þeirra má sjá plöturnar sem eru settar undir steppskó. Fyrst eru aðeins settar plötur undir að traman en þegar þær verða búnar að iæra meira fá þær plötur undir hælana. DV-mynd Brynjar Gautí Halldór B. Þórðarson er hér til hægri í He-man-dansinum sem honum finnst svo skemmtilegur. Stelpurnar lifa sig greinilega líka inn í dansinn. DV-mynd Brynjar Gauti He-man og fugladans vinsælir Krakkamir á bamanámskeiðinu hjá Dansnýjung Kollu vom komnir inn í sal þegar blaðamann bar þar að garði sl. laugardag. Þeir notuðu tímann þar til kennarinn kom og hoppuðu og skoppuðu um gólfið. Þegar við báðum þá um stutt spjall var það auðfengið og settust þeir stilltir og prúðir í eitt hom salarins. Sá fyrsti sem varð fyrir svörum var Halldór B. Þórðarson en hann er 5 ára gamall og sagði hann að sér fynd- ist He-man-dansinn skemmtilegastur. Undir það tók Hörður Sturluson, 4 ára, og sagði hann jafnframt að honum fyndist voða gaman í dansskólanum. Sigrún Stefánsdóttir, sem er 5 ára gömul, var ekki sammála strákunum og sagði að fugladansinn væri miklu skemmtilegri. Hún sagðist stundum dansa heima í stofú sem hún hefði ekki gert áður en hún fór í dansskól- ann. Sú yngsta í hópnum er aðeins tveggja og hálfe árs og heitir hún María Erla Bogadóttir, en yngsti strákurinn þennan dag var Sigmar Freyr Jónsson en hann er þriggja ára. Foreldrar þeirra sögðu okkur að þau hefðu bæði mjög gaman af danstímun- um og biðu spennt eftir hverjum tíma. Krakkamir voru sammála um það að dansinn væri voða skemmtilegur, þó svo þeir væru ekki allir sammála um hvaða dans væri skemmtilegast að dansa. En nú var tíminn að byrja og krakk- amir vildu fara að komast út á gólfið. Fyrst vom gerðar upphitunaræfingar, alls kyns létt hopp og einfaldar æfing- ar. Síðan var komið að He-man-dans- inum og þá fóm allir í hring og léku He-man-kalla. Þar næst var það fugla- dansinn og þá var rétt eins og salurinn væri fullur af litlum ungum svo mikil var innlifunin. Á þessu námskeiði em böm á aldrin- um 4 til 6 ára og sagði Kolbrún að þeim væm kennd létt spor og ýmis hopp, en aðalatriðið væri að finna taktinn hjá hverju þeirra. Síðast í tím- unum hjá þeim er síðan oftast farið í einhverja leiki. Hún sagði að kennslan miðaðist hverju sinni við stemmn- inguna hjá krökkunum en það væri vitanlega ekki hægt að halda uppi jafnstífri kennslu og hjá eldri nemend- um. -SJ Dægradvöl Olöf, Berglind og Birna einbeittar á svip að æfa stepp. DV-mynd Brynjar Gauti Flestir velja lakk- skó í steppið 1 Dansskóla Hermanns Ragnars Stefánssonar er m.a. boðið upp á nám- skeið í steppdansi fyrir nemendur á aldrinum 8 ára og upp úr. Við hittum þrjár stelpur, þær Unni Berglindi Guð- mundsdóttur, Bimu Málfn'ði Guð- mundsdóttur og Ólöfú Guðbjörgu Söebech, sem em að læra stepp. Þær stöllur vom að undirbúa sig fyrir tím- ann og vom komnar í steppskóna sína. Þær vom allar í lakkskóm og sögðust þær ekki vita hvers vegna flestir veldu lakkskó í steppið, það bara væri svo- leiðis. Undir steppskónum em sérstak- ar plötur til að steppið heyrist þegar dansaramir sýna listir sínar. Unnur Berglind er að verða 9 ára og sagði hún að sér fyndist steppið voða skemmtilegt og þegar hún var spurð um hvað henni þætti skemmti- legast stóð ekki á svarinu: „Hávað- inn.“ Hún er líka í jassdansi og samkvæmisdönsum og sagði hún að sér fyndist steppið ekki svo mjög frá- bmgðið öðrum dansi þvi hreyfingam- ar væm næstum því eins. Bima Málfríður er 11 ára og þetta er fyrsti veturinn hennar í steppdans- inum. Hún sagðist æfa sig svolítið heima i stofu en þetta væri dálítið hávaðasamt þannig að hún yrði helst að æfa sig þegar hún væri ein heima. Bima er líka að læra jassdans og sam- kvæmisdansa og þegar við spurðum hana hvað henni þætti skemmtilegast af þessu þrennu gat hún ekki gert upp á milli en tók það fram að steppið væri svolíitið erfitt. Ólöf G. Söebech er 8 ára gömul og sagðist hún stundum æfa sig á gangin- um í blokkinni þar sem hún á heima. Hún sagðist bara loka hurðinni og þá heyrði enginn í henni. Ólöf er eins og vinkonur hennar líka að læra sam- kvæmisdansa og síðan er hún í ballett annars staðar. Við spurðum þær hvort ekki væri meira af stelpum í dansi en strákum og sögðu þær að það væri sko ekkert vandamál, það væri nóg af þeim. SJ Ungir og áhugasamir dansarar á barnanámskeiðinu hjá Dansnýjung Kollu. Litla stúlkan i miðjunnu heitir Maria Erla Bogadóttir en hún er yngsti nemandinn á námskeiðinu aðeins tveggja og hálfs. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.