Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Page 6
6
MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1986.
Stjómmál
Foival Alþýðubandalagsins í Reykjavík:
Asmundur i þriðja sæti
en Þröstur lenti í sjötta
Svavar Gestsson lenti í fyrsta sæti í
forvali Alþýðubandalagsins sem
fram fór um helgina. Svavar fékk
um sjötíu prósent atkvæða í fyrsta
sætið og yfir ru'utíu og þrjú prósent
samtals. Guðrún Helgadóttir al-
þingismaður lenti í öðru sæti og,
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, í
því þriðja.
891 greiddi atkvæði í forvalinu,
auðir seðlar og ógildir voru 32. Á
kjörskrá voru 1454. Úrslit urðu sem
hér segir:
Svavar Gestsson fékk 603 atkvæði í
fyrsta sætið og 803 alls; Guðrún
Helgadóttir fékk 428 atkvæði í 1.-2.
sæti og 714 alls; Ásmundur Stefans-
son fékk 357 atkvæði í 1.-3. sæti og
562 alls; Álfheiður Ingadótir fékk 458
atkvæði í 1.-4. sætið og samtals 701
atkvæði. Olga Guðrún Ámadóttir
fékk 422 atkvæði í 1.-5. sætið og
samtals 635; Þröstur Ólafsson hlaut
393 atkvæði í 1.-6. sætið og alls 431;
Og Guðni Jóhannsson hlaut 433 at-
kvæði í fyrsta til sjöunda sætið.
Almennt voru þeir Alþýðubanda-
lagsmenn sem DV ræddi við í
gærkvöldi á því að sigurvegaramir
í þessu forvali væm þær Alfhildur
Ingadóttir og Olga Guðrún Áma-
dóttir, sem lentu í fjórða og fimmta
sæti listans. Þessi góða kosning Olgu
Guðrúnar kom flestum á óvart en
menn höfðu átt von á að Álfheiður
lenti ofarlega þó ekki hefði verið
búist við að hún veitti Ásmundi svo
harða keppni sem raun bar vitni. Á
þeim munaði aðeins rúmum fjörutíu
atkvæðum í þriðja sætið.
Þá kom útkoma Þrastar Ólafsson-
ar, framkvæmdastjóra Dagsbrúnar,
verulega á óvart en hann lenti í
sjötta sæti. Reyndar munar ekki
nema fjörutíu atkvæðum á Þresti og
Guðna í fimmta sætið.
Þegar borið er saman heildarat-
kvæðamagn lendir Þröstur í sjöunda
sæti og Ásmundur Stefánsson í því
fimmta, hann hrapar niður fyrir þær
stöllur Álfheiði og Olgu Guðrúnu.
Ekki eru menn á eitt sáttir um
hvemig túlka beri þessa niðurstöðu.
Ýmsir telja þetta áfall fyrir verka-
lýðsarm flokksins og að úrslitin
komi til með að veikja hann vem-
lega. Aðrir telja þessi úrslit ekki
þýða að flokksmenn séu óánægðir
með verkalýðsarminn heldur endur-
spegli þau fyrst og fremst vilja
manna til að auka hlut kvenna.
-VAJ
Kosið i forvali Alþýðubandalagsins I Reykjavík. Kosningu lauk klukkan sjö
í gær. Alls kusu tæplega nlu hundruð manns eða 61,3%. DV mynd KAE
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbund. 8-9 Ab.Bb, Lb.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsógn 9-10,5 Ab
6 mán. uppsögn 1015 Ib
12 mán. uppsögn 11-15,75 Sp
Spamaður - Lánsréttur
Sparað i 3-5 mán. 9-13 Ab
Sp. i6mán. ogm. 9-13 Ab
Ávís^nareikningar 3-9 Ab
Hlaupareikningar 3-7 Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2,5-4 Úb
Innlán með sérkjörum 8,9-17
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-8,5 Sb
Sterlingspund 9-10,5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3,5-4 Ab
Oanskar krónur 7,5-9.5 Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán áverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 15,29-16. 25 Úb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/19,5
Almenn skuldabréf(2) 19-17 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Klaupareikningar(yfirdr.) 19-18 Lb
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að 2.5 árum 9-8,75 Lb
Til lengri tima 9-6,75 Bb.Lb.Úb
Útlán til framleiðslu
ísl. krónur 15-18,5 Vb.Sp
SDR 8-8,25 Allir nemalb
Bandaríkjadalir 7,5-7.75 Allir nema Bb.lb
Sterlingspund 12,79-13 Allir nema Ib
Vestur-þýsk mörk 6.5 Allir nema Ib
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóöslán 5
Dráttarvextir 27
vlsrröLUR
Lánskjaravisitala 1517 stig
Byggingavisitala 281 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 9% 1. okt.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 111 kr.
Eimskip 228 kr.
Flugleiðir 180 kr.
Hampiðjan 131 kr.
Iðnaðarbankinn 128 kr.
Verslunarbankinn 98 kr.
'l) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbankinn reiknar þó vexti
af viðskiptavíxlum miðað við 19,5% árs-
vexti. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til
uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á
verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í
Alþýðubanka og Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb=Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Ob = Útvegsbank-
inn, Vb = V erslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðimir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtudög-
um.
Asmundur Stefánsson:
Mikill
stuðningur
við mín störf
innan verka-
lýðshreyf-
ingarinnar
„Mér sýnist þessi úrslit gefa sig-
urstranglegan lLsta og ég get ekki
annað en verið ánægður með
það'.“ sagði Ásmundur Stefánsson,
fofseti ASÍ, um niðurstöðuna í for-
vali Alþýðubandalagsins.
- Þú stefhdir á annað sætið, eru
þessi úrslit þér ekki vonbrigði?
„Það skiptir í sjálfu sé ekki meg-
inmáli hvort ég er í öðru eða þriðja
sæti. Það bendir allt til þess að
þriðji maður á lista Alþýðubanda-
lagsins sé öruggur inn. Það er
meginmálið að maður úr verka-
lýðsarminum komist á þing.“
- Sýna ekki þessi úrslit stuðning
við afstöðu Guðrúnar Helgadóttur
og fleiri í kjaramálum og þá um
leið óánægju með stefnu þína til
dæmis í samningamálum?
„Það tel ég fjarri lagi. Það hefúr
verið ríkjandi skoðun innan
flokksins að auka beri hlut kvenna
og þessi úrslit endurspegla það.
Ég bendi á góða kosningu Álf-
heiðar Ingadóttur, sem er senni-
lega ótvíræðasti sigurvegari
forvalsins."
- Þú telur þessi úrslit ekki veikja
verkalýðsarm flokksins?
„Ég get engan vegin fallist á þá
skoðun. Úrslitin sýna eindreginn
stuðning við mína stefriu og störf
innan verkalýðshreyfingarinnar.
Guðrún er ekki kosin vegna sinnar
stefnu í verkalýðsmálum. Hún er
kosin vegna sinna starfa á þingi
sem eru fyrst og fremst að öðrum
málum. Verkalýðsmál hafa ekki
verið hennar meginstarfssvið.
Þessi úrsht endurspegla fyrst og
fremst vilja flokksmanna til þess
að styrkja stöðu kvenna,“ sagði
Ásmundur Stefánsson.
-VAJ
Svavar Gestsson:
Mjög góður listi
„Það sem ég vil leggja sérstaka
áherslu á er að með þessum úrslitum
fáum við góðan framboðslista, líkleg-
an til árangurs í alþingiskosningunum
í vor,“ sagði Svavar Gestsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, í samtali við
DV þegar úrslit í forvali Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík lágu fyrir.
„Við sem höfúm verið þingmenn
flokksins í þessu kjördæmi fáum þama
góða kosningu."
- Veikir þessi mikli stuðningur, sem
Guðrún Helgadóttir fær í fyrsta sætið,
þig ekki sem formann?
„Ég er mjög ánægður með mín úr-
slit. Ég fæ þama yfir níutíu prósent
atkvæða. Ég tel þvert á móti þessi
úrslit styrkja okkur bæði mjög mikið.
Síðan er það mjög ánægjulegt að Ás-
mundur Stefánsson, forseti Alþýðu-
sambandsins, skuli með þessum hætti
komast í þingsæti flokksins."
- Sýna þessi úrslit ekki veika stöðu
verkalýðsarms Alþýðubandalagsins?
„Vandinn er sá að það em tveir
menn úr verkalýðsarminum sem
keppa um tiltekið sæti og niðurstaðan
er þess vegna sú að Ásmundur er í
þriðja sæti. Skýringin er sem sagt fyrst
og fremst sú að það em tveir menn
en ekki einn sem þama keppa.
Síðan er auðvitað hluti skýringar-
inna að við tvö sem erum í efstu
sætunum erum þingmenn flokksins og
njótum ákveðinna forréttinda, ef það
má orða það svo.“
- Þú lítur ekki þannig á að flokks-
menn séu að lýsa yfir stuðningi við
stefnu Guðrúnar Helgadóttur í kjara-
málum og hafna stefnu verkalýðs-
armsins?
„Nei, flokkurinn hefur skýra stefúu
í þeim málum og það er ekki verið að
taka stefúu eins fram yfir stefúu ann-
ars.
Þetta er samstæður og sterkur hópur
sem er þama á ferðinni. Þama em
tvær ungar konur sem skipa baráttu-
sæti flokksins. Álfheiður fær mjög
glæsilega kosningu og Olga Guðrún
einnig. 1 heild sýnist mér að listinn sé
mjög góður eins og hann hefúr rað-
Guðrún Helgadottir:
Boðar nýjar áherslur í flokknum
„Ég er auðvitað ákaflega ánægð
með að flokkurinn minn hafi staðfest
mína afstöðu til ýmissa mála sem hef-
ur ekki endilega verið samhljóða
afstöðu annarra í þingflokknum. Ég
er þakklát fyrir það,“ sagði Guðrún
Helgadóttir alþingismaður um niður-
stöðu forvals Alþýðubandalagsins.
„Ég tel að með þessu forvali hafi
verið brotið blað í sögu flokkins með
því að nú varð það afsannað að ein-
hverjir ættu rétt á einhverjum ákveðn-
um sætum."
- Nú greiddir þú atkvæði gegn febrú-
arsamningunum á þingi. Em flokks-
menn þínir að lýsa yfir stuðningi við
þá stefiiu?
„Já, ég tel að þessi úrslit séu stuðn-
ingur við þá stefúu og einnig stefúu
mína í bankamálum sem ég hélt að
gæti orðið mér að falli. Ég held að
þessi úrslit hljóti að bjóða upp á nýjar
áherslur hjá flokknum, ekki síst í
verkalýðsmálum. Við hljótum að
hlusta á það sem flokksmenn segja og
breyta í samræmi við það.“
- Veikja þessi úrslit verkalýðsarm
flokksins?
„I Alþýðubandalaginu er enginn
verkalýðsarmur. 1 Alþýðubandalaginu
em bara góðir sósíalistar og þeir em
allir verkalýðssinnar. Annars er það
rannsóknarefni hverjir hafa oftast
rætt kjaramál á þingi, svokallaður
verkalýðsarmur eða einhveijir aðrir.
Ég tel að þetta forval hafi jarðað þessa
skiptingu í verkalýðsarm og aðra.“
- Þú færð mjög mörg atkvæði í fyrsta
sætið, veikir það ekki stöðu formanns-
ins?
„Nei, það held ég ekki. Ég held að
mínir stuðningsmenn hafi aðeins verið
að tryggja mér annað sætið en ekki
að lýsa vantrausti á Svavar Gestsson.
Ég er mjög ánægð með þennan lista.
Það er óendanlega gleðilegt að sjá
tvær nýjar konur í ábyrgum sætum.
Það var mjög gaman að sjá þennan
óvænta sigur Olgu Guðrúnar.
Ég held að þessi listi sé betri en
nokkur kjömefúd hefði getað sett
saman. Og ég efast ekki um að þessi
listi á eftir að valda skjálfta í herbúð-
um annarra flokka."
- Þú átt ekki von á að kjömefúd geri
breytingar á þessum lista?
„Það væri algjörlega fráleitt. Þess-
um lista verður ekki breytt," sagði
Guðrún Helgadóttir.
-VAJ
Álfheiður Ingadóttir:
MJög
ánægð
„Ég er mjög ánægð með þennan
lista. Ég sé í hendi mér að þetta er
sigurstranglegur listi fyrir Alþýðu-
bandalagið. Hann hefur mjög breiða
og góða skírskotun," sagði Álfheiður
Ingadóttir um niðurstöðu forvalsins.
Áttir þú von á þessari útkomu hjá þér
sjálfri? „Ég veit ekki alveg hveiju ég
á að svara þessu. Ég er mjög ánægð
með þann stuðning sem ég fékk. Eg
lít á þetta sem stuðning við mín verk,
bæði innan flokksins og utan.
- Er uppröðun listans eins og þú hefð-
ir helst kosið?
„Ég kýs ekki röð. Félagar í Al-
þýðubandalaginu hafa kveðið upp
sinn úrskurð og ég tel þetta góðan
lista. Þetta em allt saman traustir
talsmenn okkar hreyfingar. Gott og
vinnusamt fólk og það er það sem þarf.
Og nú þegar forvalinu er lokið þá
munum við snúa bökum saman gegn
sameiginlegum óvini sem er þessi rík-
isstjóm sem nú stjómar.
-VAJ
Þröstur Olafsson:
Ekki sigur-
stranglegur
listi
„Ég er náttúrlega ekki mjög hress,
það er alveg ljóst. Ég hef orðið fyrir
miklum vonbrigðum,“ sagði Þröstur
Ólafsson, framkvæmdastjóri Dags-
brúnar, en harrn lenti í sjötta sæti í
forvali Alþýðubandalagsins. Hann
hafði lýst því yfir að hann stefndi á
annað sætið.
„Á þessu em eflaust margar skýring-
ar. Ég hef verið víða í viðkvæmum
störfum og fólk sennilega litið á það
sem ástæðu til að kjósa mig ekki. Ég
get ekki útskýrt þetta nema með þess-
um tölum.“
- Nú hefúr þú verið hlynntur ríkis-
stjómarsamstarfi með Sjálfstæðis-
flokknum. Gefa þessi úrslit ekki til
kynna að alþýðubandalagsmenn séu
að hafha þeim hugmyndum?
„Það held ég ekki. Ég hef ekkert
frekar verið talsmaður þess en Ás-
mundur svo það getur varla verið
ástæðan.
En eflaust hefur margt af því sem
ég hef lagt fram farið fyrir bijóstið á
fólki og það þess vegna hafnað mér.
Það er ekkert annað að gera en taka
því.“
- Þú hefúr verið kallaður arkitekt
febrúarsamninganna og innan Al-
þýðubandalagsins hefur verið óá-
nægja með þá samninga. Gæti það
verið skýringin á þinni útkomu?
„Það getur vel verið að fólk sé að
láta í ljós óánægju. Ég hef verið fram-
arlega í mörgum umdeildum málum,
bæði hjá Ragnari Amalds í fjármála-
ráðuneytinu og þessum samningum.
Eflaust er fólk að segja sitt álit á þessu.
En ég bendi líka á það að ég var
eini maðurinn í þessu forvali sem fékk
á mig mótframboð. Jóhannes Gunn-
arsson bauð sig fram eingöngu til að
fella mig og hann náði sínu fram.“
- Hvemig líst þér á þennan lista að
öðm leyti?
„Þetta er engin endanleg uppröðun.
Þetta er ekki bindandi fyrir kjömefiid-
ina.“
- Áttu von á því að það verði gerðar
einhveijar breytingar?
„Já, ég á von á því.“
- Hvers konar breytingar?
„Því get ég ekki svarað. Það kemur
í ljós. Þetta er bara mín tilfinning að
þetta sé ekki endanleg uppröðun."
- Hvers vegna telur þú að uppröðun-
inni verði breytt?
„Þetta er ekki listi sem menn fara
með í kosningar. Hann er ekki sigur-
stranglegur," sagði Þröstur Ólafsson.
-VAJ