Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Síða 9
MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1986.
9
Utlönd
Flokksbræður
Reagans
vilja rannsókn
á íran-málinu
Robert Dole, leiðtogi þingflokks
repúblíkana í öldungadeildinni, hvatti
i gær Reagan forseta til þess að kalla
þing saman að nýju og setja á laggim-
ar nefnd líka þeirri, sem á sínum tíma
rannsakaði Watergate-málið, til þess
að rannsaka að þessu sinni vopnasöl-
una til íran.
Annar þingmannaleiðtogi, Richard
Lugar, hvatti til meiri mannaskipta í
stjóminni og Hvíta húsinu.
Reagan er væntanlegur í dag frá
Kalifomíu til Washington, þar sem
vopnasölumálið heíúr kraumað, en
það þykir versta hneykslið sem upp
hefúr komið í forsetatíð hans. Það
hefúr komið fram að hann hafi sjálfur
veitt heimild til þess að með leynd
yrði samið um vopnasendingar til fr-
anstjómar á meðan utanríkisráðherra
hans hefur síðari hluta ársins verið á
þönum að telja bandamenn á að taka
fyrir öll viðskipti við íranstjóm. Reag-
an áréttaði um helgina að hann teldi
enn að það heíði verið rétt ákvörðun
hjá sér.
Umdeildur skyldu-
sparnaður í Noregi
fóH Vilhjálmssan, DV, Osló:
Minnihlutastjórn norska Verka-
mannaflokksins mun leggja fram
tillögu um skylduspamað á næstunni.
Að sögn Gunnars Berge ijármálaráð-
herra er ætlunin að taka eitt prósent
af tekjum launþega í skyldusparnað.
Enn er ekki ákveðið hversu háa vexti
skylduspamaðurinn á að bera né í hve
langan tíma þessi ráðstöfun á að gilda.
Skylduspamaðurinn á að draga úr
einkarekstri í Noregi og samtímis að
bæta stöðu ríkiskassans.
Þessi tillaga Verkamannaflokksins
mætir víða andstöðu. Gagmýnendur
halda því fram að réttara sé að hvetja
fólk til þess að spara af frjálsum vilja.
Búist er við að tillaga ríkisstjómar-
innar verði samþykkt með stuðningi
milliflokkanna á stórþinginu.
TVÖ FRÁBÆR FRÁ
AIWA
Á SÉRSTÖKU
JÓLATILBOÐSVERÐI
CS-W 220
Verð áður kr. JL4^68ör~
Tilboðsverð kr. 9.990,- stgr.
.Útvarp: LW-MW-FM stereo.
Magnari: 20 músíkvött.
Tvöfaldur upptökuhraði
milli segulbandstækja.
Auto laudness.
Viðstöðulaus
afspilun (Deckl Deck2)
Til í svörtu, silfurlitu og rauðu.
CA- 25
Verð áður kr.Jl4?660--
Tilboðsverð kr. 12.990,- stgr.
Útvarp: LW-MW-FM stereo.
Magnari: 32 músíkvött.
5 banda tónjafnari.
Lausir hátalarar.
Innstunga fyrir plötuspilara.
Auto laudness.
Til í svörtu, silfurlitu og rauðu.
r
n
D
í\aa io
Ármúla 38, símar 31133 og 83177,
og Garðatorgi 1, Garðabæ, sími 656611
AIWA
LOKSINS Á ÍSLANDI
«esana8
HVANNBERGSBRÆÐUR
LAUGAVEGI 71, S. 13604
S. 84750 & 78501
MlLANÓ
LAUGAVEGI 20, S. 10655
HALLÓ, KRAKKAR!
NÚ ERU ÞEIR KOMNIR NÝJU
KÚ REKA-KU LDASTÍGVÉUN,
ÞAU ERU MEIRIHÁTTAR
SJÁUMST.