Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1986. Fréttir Sprengifrétt DV: Dagsbmnarsamþykktin var gerð vegna samkomulagsins I þeirri miklu umræðu sem átt heíur sér stað um frétt DV um drög að sam- komulagi, sem búið var að gera í byijun þeirrar samningalotu er nú stendur yfir, hefiir eitt mikilvægasta atriðið gleymst. Þetta atriði er sam- þykkt stjómar Dagsbrúnar sl. mið- vikudag þar sem segir: „Miðað við þá stöðu, sem samninga- viðræðurnar eru komnar í, vill stjóm- in taka fram að hvorki VMSl né ASÍ heíúr umboð til að gera samning fyrir hönd Dagsbrúnar. Stjóm félagsins mun sjálf leiða samningaviðræðumar fyrir hönd félagsins í samráði við hina ýmsu starfshópa þess . . .“ I hvaða stöðu voru samningamir komnir eftir aðeins tveggja daga' við- ræður? Þetta er mergurinn málsins. Það lágu fyrir munnleg drög að sam- komulagi sem Dagsbrúnarstjómin, öll sem einn, gat ekki unað við. Það vom nákvæmlega þessi drög sem DV skýrði frá. Þessi munnlegu drög að samkomu- lagi vom orðin til áður en formanna- fundur ASÍ var haldinn sunnudaginn 23. nóvember sl. Honum lauk síðla dags og þá strax vom samningavið- ræður ákveðnar næsta dag, mánudag- inn 24. nóvember. Þá fúndaði efhahagsmálanefhdin. Að loknum þeim fundi sagði Þórar- inn V. Þórarinsson að hann væri tilbúinn til að semja um vemlegar bætur handa þeim lægstlaunuðu en vildi ekki að launauppbætumar 1. desember fæm yfir alla línuna. Hann sagðist ekki vilja launabæta launa- skriðið. Hann sagðist vilja samninga til eins árs. Eiginlegar samningaviðræður hófust i húsi VSÍ á þriðjudeginum og þar var unnið samkvæmt þeim drögum að samkomulagi er í frétt DV var skýrt frá. Það var ekki fyrr en Dagsbrún hótaði að draga sig útúr samningunum sl. miðvikudag að blaðinu var snúið við Guðmundur J. sagði í samtali við DV mánudaginn 24. nóv. að það væri vissulega komin upp ný staða í samn- ingamálunum, nokkuð sem menn sáu ekki fyrir, eins og hann komst að orði. Leið Dagsbrúnar hefði verið hafnað og því myndi Dagsbrún kalla saman stjómarfund. Eiginlegur samningafundur hófst svo þriðjudaginn 25. nóvember. Allan þriðjudaginn var verið að vinna að málunum á þeim nótum sem segir frá í DV-fréttinni. Ósamkomulag var mik- ið í samninganefhdinni og fóm margir samninganefhdarmenn ekkert leynt með það. Karl Steinar, varaformaður VMSÍ, sagði að menn þyrftu að fara í andaglas til að vita hug hver ann- ars. Ragna Bergmann, formaður Framsóknar, yfirgaf fundinn og sagði um leið og hún gekk út: Ég kem ekki aftur í dag, ég ætla að leyfa þeim að rífast þama áfram. Fundi lauk tiltölu- lega snemma þann dag og boðað var til fundar kl. 14 næsta dag, miðviku- daginn 26. nóv. Þennan miðvikudag er stjóm Dags- brúnar kölluð til fundar kl. 11 fyrir hádegi og þar var þessi einstaka álykt- un samþykkt. Hún var svo birt opinberlega kl. 18 sama dag þegar ljóst var að engin breyting varð á hug- myndum æðstu manna um drög að samkomulagi. Þegar ályktunin var afhent frétta- mönnum og hún borin undir Ásmund Stefánsson og Þórarin V. Þórarinsson kom hún þeim algerlega í opna skjöldu og þeir vissu fyrst ekki sitt ijúkandi ráð eins og sagt er. Samningafúndi var slitið skömmu síðar og um kvöldið náðist samkomulag um að brejda far- vegi samningsmálanna og því sat Guðmundur J. áfram í samninga- nefhdiimi en gekk ekki út eins og ályktað hafði verið í stjóm Dags- brúnar. I öllu því fjaðrafoki, sem frétt DV hefúr valdið, hafa allir fjölmiðlar da- tekið við yfirlýsingum frá samningsu- al424aðilum án þess að spyija neins varðandi ályktun Dagsbrúnar sem skýrir allt þetta mál að fúllu, hvað sem forráðamenn ASÍ og VSÍ segja. -S.dór Ólympíuskákmótið í Dubai: Jafntefli við Ungverja - ísland í einu af efsbi sætunum lyrir síðustu umferð Eftir að hafa hrapað niður eftir töflunni við tapið stóra gegn Eng- lendingum vora okkar menn komnir á efsta borð á ný í 12. umferð og tefldu þá við Bandaríkjamenn sem hafa átt miklu láni að fagna í síðari hluta mótsins. Sumir hafa e.t.v. gert sér vonir um að við næðum að leggja Kanann að velli enda virðast ís- lensku stórmeistaramir jafnan eiga alls kostar við sterkustu meistarana vestanhafs. Þessar vonir rættust þó ekki og ísland tapaði sinni annarri viðureign á mótinu: Helgi-Seirawan 'A-'/i Jóhann-Christiansen 0-1 Jón L.-Kavalek 'A-'A Guðmundur-Dlugy 0-1 Það var greinilegt að Bandaríkja- menn tefldu stíft upp á að halda jöfhu með svörtu en reyna að vinna með hvítu mönnunum. Segja má að okkar menn hafi gengið beint í þessa einföldu „gildru". Helgi tók skjótt jafhteflisboði Seirawans, Jón L. þrá- aðist við nokkra lengur, en tók jafntefli eftir rúma 20 leiki. Þá sátu þeir Jóhann og Guðmundur eftir með heldur lakari stöður á svart og reyndu að veijast. Jóharrn stóð lengst af höllum fæti, tókst að kom- ast út í hróksendatafl sem gaf jafnteflismöguleika, en lék óná- kvæmt og tapaði. Guðmundur lét drottningu sína fyrir tvo hróka, sem oft era hagstæð skipti, en hrókar hans höfðu lítið svigrúm meðan drottning Dlugys olli miklum usla í svörtu stöðunni. Báðir gáfiost þeir upp eflir rúma 50 leiki. Af öðrum viðureignum í 12. umferð er það að segja að Englendingar unnu Rúm- ena 2,5-1,5 en Rússum tókst loks að ná góðum sigri eftir slakt gengi und- anfarið og unnu Spánveija 3,5-0,5. Þá unnu Brasilíumenn Vestur-Þjóð- veija óvænt 3,5-0,5 og skutustvið það upp töflima. Ungveijar og Tékk- ar gerðu jafnt. Fyrir næstsiðustu umferð era Bandaríkjamenn efetir með 34 v., 2.-3. England og Sovétrík- in 33, 4. Ungverjaland 30,5, 5. Brasilía 30, en Island er skammt undan, í 8.-11. sæti, með 28,5 vinn- inga. Varlega teflt í 13. umferð Það er óhætt að segja að tauga- spennan i skáksalnum í Dubai hafi verið þrúgandi við upphaf 13. og næstsíðustu umferðar. Hún virtist hafa þau áhrif á taflmennskuna að menn þorðu ekki að taka áhættu og hölluðu sér að þeirri speki að betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi. Þijár sveitir beijast um gullið og var loftið rafinagnað á efetu borðum. Is- lendingar tefldu við Ungveija og greinilegt að hvorugir vildu hætta á tap. Úrslitin urðu því þessi: Helgi-Ribli 'A-Vi Jóhann-Sax 14- 'A Jón L.-Pinter 'A-'A Margeir-Adoijan 14-14 Viðureignin hafði aðeins staðið nokkrar mínútur þegar fyrsta jafii- teflisjarmið kom frá Ungveijum; Ribli á 1. borði. Þegar Helgi leitaði ráða hjá Kristjáni liðsstjóra gerðist sá einkennilegi atburður að skák- stjóri kom aðvífandi og skipaði þeim að mæla á ensku fremur en tungu norrænna manna. Er þess nú vel gætt á mótinu að skákmenn ræði ekki stöðuna eða fái hugmyndir um leiki hjá „kapteinum" sveitanna eftir að kærumál af þvi tagi kom upp milli Englendinga og Spánveija. Vildi skákstjórinn geta skilið það sem þeim Helga og Kristjáni fór á milli. Hann hefúr væntanlega vitað hvað „don’t take the draw“ þýðir, nefnilega að áfram skuli haldið. Það urðu þó bara örfáir leikir í viðbót þar til Helgi sjálfúr stakk upp á skiptum hlut og skömmu síðar þvingaði Adoijan Margeir til að þrá- leika. 1-1 eftir aðeins 40 mjnútur. Skák Áskeli Örn Kárason Skömmu síðar bauð liðsstjóri Ung- verjanna jafritefli í þeim tveimur skákum sem eftir voru og var sæst á það. „Við erum hæstánægðir með þessi úrslit," sagði dr. Kristján Guð- mundsson liðsstjóri. „Það var takmarkið að halda okkar hlut því að við erum nú búnir með allar sterkustu sveitimar og ættum að eiga möguleika á sigri í síðustu umferðinni. Nú er allt undir henni komið.“ Eins og komið hefur fram setti íslenska sveitin sér það tak- mark fyrir mótið að verða í hópi 10 efstu þjóða og era nú góðar líkur á að það takist og þokkalegir mögu- leikar á að 6. sætið náist, en það myndi þýða að ísland ynni sér sæti í heimsmeistaramótinu á næsta ári þar sem stórveldin í skákheiminum eigast við. Þrjár sveitir í forystu Onnur helstu úrslit í 13. umferð urðu þessi: Bandaríkin-Brasilía 2,5-1,5 Sovétríkin-Italía 3-1 England-Tékkóslóvakía 2,5-1,5 Búlgaría-Rúmenía 2,5-0,5 + bið. Frakkland-Spánn 1,5-1,5 + bið. Austurríki-Júgóslavía 1,5-1,5 + bið. Pólland-Chile 3-0 + bið. I taugatitringnum á toppnum var samið um mörg jafntefli, en Sovét- mönnum tókst að saxa á forskot Bandaríkjamanna og skilur nú að- eins hálfúr vinningur risana tvo. Staðan fyrir síðustu umferðina sem tefld er í dag: 1. Bandaríkin 36,5 2. Sovétríkin 36 3. England 35,5 4. Ungveijaland 32,5 5. Búlgaría 32 + bið 6. Brasilía 31,5 7. -9. Kúba, Frakkland, Pólland 31 + bið 10.-13. ísland, Tékkóslóvakía, Spánn, Perú 30,5 Þegar þetta er ritað er staðan ekki að fúllu ljós vegna biðskáka en við leyfum okkur að fullyrða að ef okkar menn ná 3-1 sigri í síðustu umferð- inni ætti 6.-8. sæti að vera raun- hæfur möguleiki. Kostnaðarsamt verkefni Áður hefur verið minnst á glæsi- leika þessa mótshalds og er greini- legt að ekkert hefur verið til sparað af hálfu heimamanna. Þó er vert að geta þess að ekki era allir jafn- múraðir og arabamir. Með þátttöku í þessu móti hefur Skáksamband Is- lands tekið á sig þungan skulda- bagga enda fjárhagurinn ekki traustur fyrir og fastar tekjur engar. Sambandið hefúr gefið út vandað og fróðlegt blað í tilefni af mótinu og hyggst með tekjum af auglýsingum í því reyna að afla nokkurs fjár upp í þennan kostnað. Þá hefur SÍS og Soffanías Cecilsson í Grundarfirði heitið vænum fúlgum á skákmenn- ina. Vonandi fyrirfinnast fleiri slíkir stórhuga stuðningsmenn, ekki veitir af eigi þessi frægðarfor til Dubai að standa undir sér. Vonandi finnast góðir leikir í þessari stöðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.