Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Page 22
22 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1986. Merming Þegar hnígur húm að þorra íslendingar ráðast til atlögu viö þorramat. Ámi Bjömsson - Þorrablót á Islandi. Öm og Öriygur, 1986. „Ég skal minnast á það til gam- ans, að greindur bóndi norðlenzkur fóraðist mjög um þorrablótin við mig sumarið 1881. Honum þótti þau ein- hver óhappavænlegasti viðburður, sem hann hafði heyrt um nýlega, enda er það ekki að furða, því hann hélt, að þau mundu verða vísirinn til þess, að íslendingar köstuðu kristinni trú og færu að trúa á Þór og Óðin.“ Frá þessu segir sá mikli happa- maður íslenskra þjóðfræða Ólafur Davíðsson, í einu rita sinna. Það er nokkuð ljóst, að tilefni þess- ara ummæla hefur verið mikilfeng- legt þorrablót, sem Hið íslenska fomleifafélag hélt í Reykjavík í þorrabyijun árið 1881. Þessi mann- fagnaður var haldinn á Hótel Alexandra, Hafriarstræti 16, sem enn stendur. Þar var allt með fomlegu sniði. Veislusalurinn var tjaldaður fomum tjöldum og skjaldarmerki á veggjum; öndvegissúlur vom reistar og langeldar vom á miðju gólfi; svo var dmkkið full Óðins og signdi Sig- urður Vigfússon, þáverandi for- stöðumaður Fomgripasafrisins (Þjóðminjasaíhs), það geirsoddi; þá var dmkkið full Þórs, en Sigurður Vigfússon „gerði hamar yfir“. Eftir þetta vom dmkkin full og flutt minni annarra Ása og Ásynja o.s.frv. Þetta heíúr fleirum en áðumefnd- um bónda þótt nokkuð pottþéttur heiðindómur, enda mun Eiríkur á Brúnum sá frægi mormónatrúboði eiga við þetta, þegar hann kemst svo að orði, „að þorrablótið sé meira fjandanum til þjónustu en herran- um“, og vísar í því sambandi í bréf Páls postula til Korintumanna. Leynifélag Það var hið svonefhda Leikfélag andans eða Kvöldfélagið, sem það var ofitast kallað, er stóð upphaflega fyrir endurreisn þorrablóta í Reykja- vík, líklega árið 1867. Hér var um að ræða leynifélag, og má furðu gegna, hversu nokkuð víðtæk starf- semi þessa fór leynt í svo lítilli bæjarholu, sem Reykjavík var á þessari tíð. Arftaki þess félags var Stúdentafélag Reykjavíkur, en óljóst virðist, hvemig skiptum var háttað. Fyrsta opinbera þorrablótið, sem hér var haldið, er áðumefht blót fom- leifafélagsins, en opinber þorrablót lögðust niður í Reykjavík 1887 og hófust ekki aftur fyrr en mörgum áratugum síðar. Þá var rómantíkin komin á undanhald og þessi mann- fagnaður hefur ekki átt við þá, sem aðhylltust raunsæisstefiiuna. Það, sem nú hefur verið rakið, kemur fram í bók eftir Áma Bjöms- son þjóðháttafræðing. Bókin, sem er nýlega komin út, nefhist Þorrablót á Islandi og greinir þar frá upphafi og þróun þorrablóta og ýmsu öðm, sem þeim tengist. Um þorrablót í heiðni er nánast ekkert vitað, og ýmsar kenningar em um það - höfundur nefhir fimm - hvaða merking felist í orðinu þorri. Hvað sem því líður er ljóst að mati höfundar, að þorri er brátt orðinn einhvers konar vemdarvættur eða veðurguð, þegar á hann er minnst á annan veg en sem heiti á tilteknum mánuði. Þar sem heimildir em til um þorra- dýrkun snemma á 18. öld eins og síðar kemur að, má ætla, að hún hafi haldist með einhveijum hætti alla tíð frá heiðni. Töluvert er til af kveðskap um þorra frá 17. og 18. öld, og er þorri þar persónugerður. Það er þó ekki alltaf á sama hátt, stundum er honum lýst sem stór- brotnum og ábúðarmiklum garpi en stundum sem umkomulitlum tötra- manni; stundum er hann harður og illur viðureignar, en stundum leiðin- legur og heimtufrekur. í allskemmti- legu kvæði eftir aflraunaklerkinn séra Snorra á Húsafelli er Þorra lýst svo, að hann sé „einn rubbungur mikiir. Óslitið frá heiðni Nýlega er komið í leitimar bréf, sem sá miklu lærdómsmaður séra Jón Halldórsson í Hítardal ritaði Áma Magnússyni haustið eftir brunann mikla í Kaupmannahöfn árið 1728. Þar segir bréfritari, að ein- faldur almúgi iðki soddan fávisku að bjóða Þorra og Góu velkomin svo sem lýst er í bréfinu, en hann kvað sig ekki vita til að skynsamara fólk leggi þann hégómaskap í venju. Þessi frásögn rennir vissum stoð- um undir þær frásagnir, sem er að finna t.d. í Þjóðsögum Jóns Áma- sonar um, hvemig þorra sé fagnað, þótt ýmislegt í þeim sé í sjálfu sér nokkuð vafasamt. En tilvist þessara sagna um og eftir 19. öld bendir til, að þá hafi enn eimt eftir af dýrkun þorra. Ef það er rétt, og þá með hlið- Bókmermtir Páll Líndal sjón af endurvakningu þorrablóta í Reykjavík ekki seinna en 1867, má því halda fram, að þorra-tilstandið hafi haldist hér óslitið frá heiðni. í kaupstöðum lögðust þorrablót næstum af í byijun þessarar aldar, og vom ekki endurvakin þar fyrr en upp úr 1950 eins og áður er sagt. Þar átti mestan hlut að máli hið góðfræga veitingahús Naust eins og alkunna er. Þorrablót „sveitó“? Ámi segir, að engu sé líkara en þorrablótin hafi þegar kom fram yfir aldamót, þótt dálítið „sveitó" í vax- andi kaupstöðum, þar sem erlendar nýjungar bæði í sambandi við mat- aræði og skemmtanahald hafi fangað hugann. Þetta þekki ég sjálf- ur mjög vel. Mér hefúr alltaf verið þetta tilstand kringum þorra tölu- vert framandi. Þorraveðrin hafa lítið komið við okkur, sem fædd erum og uppalin í „ofnhitanum" í Reykjavík, ogsá svo- nefndi „þorramatur" er okkur sumum ekkert sérstakt áhugaefni. Hið eina, sem ég minnist frá bemsku og snertir þorra er kvæði Kristjáns Fjallaskálds „Nú er frost á Fróni“ og sú hrelling, sem fylgdi fyrsta þorradegi, bóndadegi, sem hann var kallaður; en hún var sú að fá baunir og saltkjöt, sem ég kunni þá ekki að meta. Afleiðing þessa alls er sú, að allt þorratalið, verkar á mig, sem hálfgerð tímaskekkja. Mér kemur helst í hug í þessu sam- bandi sú hreyfing, sem hér hófst skömmu fyrir Alþingishátíðina 1930, að nú skyldu íslenskir karlmenn leggja af jakkaföt og aðra slíka út- lenda tísku en taka í þess stað upp einhvers konar fommannabúning, skv. fyrirmyndum, sem gerðar vom. Þetta datt þó allt niður. Þetta breytir því ekki, að mér þótti mjög ánægjulegt að lesa þessa bók Áma, og það er vissulega tikhlökk- unarefhi, að hann skuli vera að vinna að riti um hátíðisdaga íslend- inga. Þama er safnað saman geysimikl- um fróðleik um þorrablót fyrr og síðar, og efast ég um, að miklu verði hægt að auka við. Þetta er skrifað í hressilegum stíl, oft með smávegis útúrdúrum, sem em til skemmtunar. Kveðskapur um þorra Mikill fengur er að því að fá þama á einn stað allmarga formála fyrir minnum, t.d. Marteinsminni, Krists- minni o.s.frv. Þetta em einskonar staðlaðar tækifærisræður, segir Ámi; Þær vom fluttar í veislum, þegar drukkin var skál til heiðurs guðlegri eða mannlegri persónu eða við upphaf eða endi samkvæmis. Þá er i bókinni töluvert af ýmiss konar kveðskap um þorra, og þá nefiii ég sérstaklega þorrablótsvísur frá seinni hluta 19. aldar og byijun þessarar. Þar hafa ýmsir lagt til mála. Frá þorrablótinu 1867 (eða 1863) er kvæði eftir Matthías Joc- humsson, þá em nokkur kvæði t.d. eftir Bjöm M. Ólsen, Jón Ólafsson, Hannes Hafstein og Einar Hjörleifs- son (Kvaran). Þessi kvæði em nú að mestu gleymd, en vera má, að útkoma þessarar bókar verði til að blása í þau lífsanda. Manni koma í hug ummælin, sem Ólafur Davíðsson skráði og minnst er á hér í upphafi, þegar maður rekst á þessar línur í einu þorrablótskvæðinu: „Vér hæðum ekki helga trú, þó höldum blót.. Það er góð hugmynd að láta þorra- blótsvísum fylgja nótur þeirra lagboða, sem vitað er um. Sigurður Rúnar Jónsson tónlistarmaður hefur annast þá nótnaskrift. Hér er yfir- leitt um að ræða skandinavisk lög frá öldinni, sem leið. Þótt þau hafi þá verið alkunn og vinsæl, em flest þeirra gleymd nú, nema þá helst Bellmanslögin, sem verða vonandi lífeeig. Það má vel vera, að þessi kynning veki áhuga á hinum gleymdu lögum svo að þau vakni til lífe. Efni og andríki Ekki get ég á mér setið að minnast í þessu sambandi á, að farið er dálít- ið hörðum höndum um sænska lagasmiðinn Bemhard Cmsell. Hann er kallaður Bemdt og ættar- nafnið er ýmist ritað Crussel eða Crussell, en ekkert af þessu er rétt. Þetta er hins vegar algert hégóma- mál; það dregur ekki úr gildi þessar- argóðubókar,þóttáþaðséminnst. * Sigurður Valur Sigurðsson hefur teiknað kort og myndir i bókina. Ekki kann ég alveg að meta þau handverk. Ég tel varla vafa á því, að allir þeir, sem hafa áhuga á íslenskum þjóðfræðum, kunni vel að meta þessa bók. Og ekki er ég í vafa um, að þeir, sem hafa veg og vanda af þorra- blótum í framtíðinni, muni sækja í hana efni og andríki. Beðið eftir jólunum Ekki á morgun, ekkl hlnn... Höfundur: Ragnheiöur Gestsdóttir. Útgefandi: Mál og menning 1986. ' Út er komin hjá Máli og menningu falleg pappírskilja sem inniheldur leið- beiningar um jólaföndur og annan jólaunUirbúning ásamt dálitlum fróð- leik og fleiru sem styttir stundir meðan beðið er eftir jólunum. Þessu er fléttað saman við sögu af tveimur systkinum, Atla sex ára og Ingu níu ára, sem handhafi bókarinnar fær að fylgjast með við jólaundirbún- ing frá 1.-24. desember. Hvem dag taka þau systkinin sér eitthvert ákveðið verkefni fyrir hendur, oft með pabba eða mömmu, afa eða ömmu sem leiðbeina þeim. Þau fást við pappírs- föndur, kökubakstur, tilbúning á jólagjöfum og mætti svo lengi telja. Efiiið sem notað er er af ýmsum toga en á það sameiginlegt að vera auð- Bamabækur Hildur Hermóðsdóttir fengið og kosta lítið, jafhvel ekkert eins og femur utan af mjólk, efhisaf- gangar úr körfu ömmu eða snjórinn utan við húsvegginn. Öllu þessu fylgja greinargóðar leio- beiningar og teikningar sem lýsa vel verkefhunum. (Eini gallinn við teikn- ingamar finnst mér að bömin em full stórvaxin miðað við aldur en það skiptir auðvitað litlu máli hér.) Hver dagur á sína opnu í bókinni, á ann- arri síðunni er texti en á hinni mynd. Mörg þessi verkefni em vel þekkt, önnur ekki. En góðar leiðbeiningar em alltaf í fullu gildi og hefúr raunar bráðvantað þar sem hægt er að grípa til þeirra á íslensku á einum stað. Þessi bók kemur áreiðanlega í góðar þarfir ekki síst þar sem er lítill tími fyrir bömin eða þar sem menn vilja skipuleggja hin dýrmæta tímá fyrir jólin dálítið betur. Það er líka upplagt fyrir ömmur og afa að luma á svona bók niðri í skúffu. HH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.