Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987. Viðskipti Hjá bæjarfógetanum í Reykjavík liggur nú krafa um að íbúar einnar af íbúðunum í húsinu Nóatúni 25 verði bomir út en krafan var lögð fram í framhaldi af hæstaréttardómi sem kveðinn var upp í desember á síðasta ári. Tildrög þessa máls em þau að í maímánuði 1982 var fasteignasölunni Gimli falið að selja 5 herbergja íbúð á 2. hæð hússins að Nóatúni 25, þing- lesna eign Bjargar Ámadóttur. I lok júní sama ár gerðu hjónin Anna S. Guðmundsdóttir og Sveinn Ivarsson skriflegt tilboð í eignina að fjárhæð 1.250.000 kr. Björg og maki hennar, Rolant Dahl Christiansen, samþykktu þetta tilboð. Skömmu síðar, sama dag og þau samþykktu tilboðið, frétti Björg af því að Hafliði Guðjónsson hefði sýnt íbúð- inni áhuga og skoðað hana. Hafði hún samband við Hafliða sem lýsti sig reiðubúinn að kaupa íbúðina hærra verði en Anna og Sveinn höfðu boðið. Gerði Hafliði tilboð í íbúðina samdæg- urs. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsfaækur óbund. 8.5-10 Ab.Bb. Lb.Sb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 10-15 Sb 6 mán. uppsögn 11-17.5 Vb 12 mán. uppsögn 12-18.25 Sp.vAI. 18 mán. uppsögn 18-19.75 Bb Avísanareikningar 3-10 Ab Hlaupareikningar 3-7 Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb. Lb.llb.Vb 6 mán. uppsögn 2.5-4 Ab.Úb Innlán með sérkjörum 9-20 Innlán gengistryggð Bandaríkjadalur 5-6 Ab Sterlingspund 9.5-10.5 Ab Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab.lb Danskar krónur 8,5-9,5 Ab.Lb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 16.5-20 Ui Viðskipta vixlar(forv.)(1) kge/21-22 Almenn skuidabréf(2) 17.5-21 Ui Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 17.5-21 Lb Útlán verðtryggð Skuldabréf Að2.5árum 5.75-6.75 Lb Til lengri tima 6.25-6,75 Bb.Lb Utlán til framleiðslu Isl. krónur 15-18.5 Sp SDR 9-8,25 Lb.Úb Bandaríkjadalir 7.5-7,75 Sb.Sp Sterlingspund 12.5-13 Lb.Úb.Vb Vestur-þýsk mörk 5-6.25 Lb.Úb Húsnæðislán 3.5 Lifeyrissjóðslán 5-6.5 Dráttarvextir 27 ViSITÖLUR Lánskjaravísitala feb. 1594 ctig Byggingavisitala 293 stig Húsaleiguvisitala Hækkaói 7,5% l .jan. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 113 kr. Eimskip 300 kr. Flugleiðir 310 kr. Hampiðjan 140 kr. Iðnaðarbankinn 135 kr. Verslunarbankinn 125 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21% ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn Bb = Búnaðarbankinn, Ib=Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb= Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peninga- markaðinn birtast í DV á fimmtudög- um. Húsið að Nóatúni 25 þar sem ibúðin Haft var samband við Önnu og Svein um kvöldið og neituðu þau þá að falla frá tilboði sínu í eignina enda búin að ráðstafa eigin íbúð með sölu. Þann 1. júlí lýsti lögfræðingur Bjargar því yfir að rift væri samþykki á tilboði Önnu og Sveins og þann sama dag var gengið frá kaupsamningi til Hafliða á grundvelli tilboðs hans. Anna og Sveinn fengu síðan hið sam- þykkta tilboð sitt afhent á fasteigna- sölunni þennan dag og með símskeyti fimm dögum seinna mótmæltu þau riftuninni og létu þinglýsa kauptilboði sínu. Þann 14. júlí gerðu þau svo kröfu um að fá íbúðina afhenta í samræmi við ákvæði kauptilboðsins. Afhending fór ekki fram. Gerðu þau þá kröfu til borgarfógeta um að þeim yrði fengin umrædd íbúð til umráða með beinni fógetaaðgerð en þeirri kröfú var hafn- að. Samkomulagstilraunir utan réttar tókust ekki og höfðuðu Anna og Sveinn því mál á hendur Björgu. Héraðsdómur Fyrir héraðsdómi byggðu stefnendur kröfu sína á því að við samþykki kauptilboðs stefndu hefði stofnast bindandi kaupsamningur og var vísað til laga nr. 7/1936. Hafi aðilum verið er. þetta ljóst enda er þetta atriði skýrt tekið fram á hinu prentaða tilboð- seyðublaði. Einnig töldu stefnendur sig hafa borið mikið tjón af því að fá ekki íbúðina afhenta á umsömdum tíma. Kröfðust þau bóta fyrir það. Hafliða var fyrir héraðsdómi stefht til réttargæslu og kemur fram í dómin- um að honum hafi verið kunnugt um fyrra tiiboðið og lýsti hann yfir að yrði það viðurkennt af dómstólum gerði hann enga kröfu á hendur við- semjendum sínum. Stefndu kröfðust sýknu og byggðu mál sitt á því að ekki hefði stofnast bindandi kaupsamningur þar sem samþykki kauptilboðsins hafi verið afturkallað áður en það kom til stefn- anda. Jafnframt byggðu þau mál sitt á því að þau hefðu þegar afhent Haf- liða umrædda eign með óafturkallan- legum hætti og væri því ómögulegt að fullnægja kröfu stefhenda um afsal. Héraðsdómur taldi ekki næg efhi til að taka aðalkröfu stefhenda til greina en hvað varðaði bótagreiðslur komast dómurinn að þeirri niðurstöðu að fall- ast mætti á sjónarmið stefiienda um rétt tii bóta vegna afnotamissis íbúð- arinnar. Voru stefhendum dæmdar bætur að upphæð 35.725 krónur auk vaxta. Hafliði fékk síðan afhent afsal að íbúðinni 4. ágúst 1983 eftir að héraðs- dómur hafði úrskurðað í málinu. Hæstiréttur breytir héraðsdómi Máli þessu var skotið til Hæstaréttar sem dæmdi í því í maí 1985. Komst rétturinn að annarri niðurstöðu en héraðsdómur. Segir í dómi Hæstarétt- ar að Björg og Rolant hafi samþykkt kauptilboð Önnu og Sveins innan til- skilins samþykkisfrests og að sam- þykki þeirra hafi ekki verið afturkall- að réttilega. Því hafi bindandi kaupsamningur komist á. Samkvæmt þessu eiga Anna og Sveinn lögmæta kröfu á að fá afsal fyrir íbúðinni úr höndum Bjargar. Hæstiréttur staðfestir einnig niður- stöðu héraðsdóms um skaðabótakröf- una og segir jafnframt að samkvæmt þessum úrslitum eigi Björg og Rolant að greiða þeim Önnu og Sveini 100.000 krónur í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti. í dómsorði segir að Björg og maki hennar skuli innan 4 vikna frá birt- ingu dóms láta þeim í té afsal fyrir íbúðinni að viðlögðum 1000 króna dagsektum. Tvö sératkvæði í Hæstarétti skiluðu tveir dómarar sératkvæði í þessum dómi. Guðmund- ur Jónsson var sammála niðurstöðu meirihluta dómsins en taldi að krafan um útgáfu afeals til handa Önnu og Sveini væri svo nátengd hagsmunum Hafliða að ekki yrði um hana dæmt án þess að henni yrði að honum beint sem aðila málsins og honum gert skylt að þola dóm í samræmi við hana. Magnús Þ. Torfason skilaði einnig sératkvæði og taldi hann að héraðs- dómur ætti að vera óraskaður um það að Hafliða væri ekki skylt að þola að Björg og Rolant gæfu út afsal til Önnu og Sveins fyrir íbúðinni. í biðstöðu Sem fyrr segir hafa Anna og Sveinn lagt fram kröfu hjá borgarfógeta um að Hafliði og fjölskylda hans verði borin út úr íbúðinni enda hefúr Hæsti- réttur dæmt þeim hana. Er DV hafði samband við lögfræðing Hafliða sagði hann að málið væri nú í biðstöðu. Hann vænti þess að fógeti mundi á næstunni krefja hann um greinargerð í málinu. -FRI Vímet hf. í Borgamesi færir út kvíamar Framleiða milliveggjastoðir úr blikki SiguijánGunnars9on,trédarilariBorgamesi: Vímet hf. í Borgamesi hefur fært út kvíamar og aukið við starfeemi sína. Fyrirtæki þetta hefúr um margra ára skeið framleitt nagla af ýmsum stærðum og gerðum og fyrir nokkrum árum hóf það að framleiða klæðningarefrii með innbrenndum lit til þess að setja utan á hús og reyndar eru möguleikar þess efúis nær óteljandi. Svo vel megi fara þarf töluverða blikksmiðjuvinnu í tengslum við frágang og gerð alk konar „prófila“ við klæðningu þessa Fyrirtækið hefur nú aukið þann þátt verulega með því að kaupa vélar og tæki til þess og ráðið blikksmíða- meistara. Vom tæki þessi keypt af Magnúsi Thorvaldssyni, blikksmið í Borgamesi, en Magnús er á förum til Reykjavíkur. Til viðbótar við þetta hefúr Vírnet hf. keypt framleiðslurétt á milli- veggjastoðum þeim er Magnús hafði hannað og framleitt svo og sorp- kassa sem em einnig Magnúsar. Að auki mun Vímet hf. taka að sér alla alraenna blikksmíðavinnu. Að sögn Páls Guðbjartssonar, for- stjóra Vírneta, em þessi tækjakaup einkum hugsuð til þess að þjóna klæðningarstáls framleiðslunni en til viðbótar aukin starfeemi. Sama íbúðin seld tveimur aðilum Krafá komin um útburð íbúanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.