Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Side 10
10 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987. Útlönd Kvíða skálmold eftir handtöku kókaínbarónsins Carlos Enrique Lehder Rivas (37 ára), handtekinn af lögreglunni í Kólombíu og framseldur bandarískum yfirvöldum vegna kókainheild- SÖIu. Símamynd Reuter Miklar áhyggjur hafa nú vaknað í Kólombíu eftir handtöku kókaín- barónsins, Carlos Lehder Rivas, sem framseldur var bandarískum yfir- völdum í síðustu viku, en menn kvíða því að kókaínbófamir muni ganga berserksgang til hefrida fyrir þennan foringja þeirra. Yfirvöldunum tókst með samein- uðu átaki lögreglu og herliðs að koma höndum yfir Rivas á bónda- býli einu í norðausturhluta landsins, en þurfti þó áður að heyja skot- bardaga við fjórtán manna lífvörð kókaínbarónsins. Nær samdægurs var hann sendur í pósti með flugvél til Flórída þar sem yfirvöld eru van- ari öðruvísi bögglum sem innihalda fremur hvitt hveitilíkt duft. Lehder Rivas er talinn vera einn af æðstráðendum í „Medellin-klíkunni", sem er kókaíndreifihringur, einskonar heildsala sem aðsetur hefur í Kólombíu. Það er talið að um 80% alls kókaíns á eiturlyfjamarkaðnum í Bandaríkj- unum hafi farið um hendur „Medellin-klíkunnar". Lehder, sem er af þýskum ættum, er sagð- ur þriðji valdamesti kókaín-bófinn í Kólombíu, næstur á eftir þeim Pablo Escobar og Ochoa-klíkunni. Bandarísk yfirvöld hafa viljað hafa hendur í hári honum síðan 1981. Foringjar í her eða lögreglu var- ast að láta nafhgreina sig í fjöl- miðlum í vangaveltum sínum um að glæpalýðurinn kunni að fara hamförum eftir handtöku Lehders. Svo mikill er óttinn við flugumenn glæpalýðsins. Enda hafa kókaín- barónamir sýnt það margsinnis að þeir svífast einskis og jafnvel valdamenn eru ekki óhultir fyrir morðingjum þeirra. Af þeim sök- um hafa embættismenn nú eftir handtöku Lehders mikinn and- vara á sér og hefur vörður verið efldur um dómara og lögreglu- stjóra. Embættismenn í fíkniefha- eftirliti Bandaríkjanna þykja ekki heldur óhultir og jafnt þar hefur lögregl- an viðbúnað og vara á sér út af hugsanlegum hefhdarað- gerðum kókaínmafíunnar. Síðan 1979 hefur ríkt hálfgild- ings stríðsástand í viðureigninni við kókaínmafíuna sem reyndi bæði lagaleiðir og yfirlýsingar með tilheyrandi hótunum til þess að mótmæla framsalssamningum er stjóm Kólombíu gerði við Bandaríkin. Skálmöld hófst þar sem meðal annarra dómsmálaráð- herra Kólombíu, Rodrigo Lara Bonilla, var myrtur í apríl 1984. En morð á dómurum, lögreglu- stjórum og lögregluforingjum hertu einvörðungu á ásetningi Belisario Betancur, forseta Kólombíu, um að stríða gegn kókaínmafíunni. Lýsti hann gildi- stöku framsalssamningsins daginn eftir morðið á dómsmálaráðher- ranum. ^ desember síðasta var myrtur I framkvæmdastjóri E1 I Espectador, eins virtasta I blaðsins í Kólombíu. Arftaka ■ Bonilla í dómsmálaráðherra- stólnum, Enrique Parejo Gonza- les, þótti ekki óhætt í Kólombíu og var hann settur sendiherra lands síns austantjalds í Ungverj- alandi. En jafnvel þar var hann ekki óhultur því að honum var sýnt banatilræði og særður alvar- lega skotsárum þar sem hann var á götu í Búdapest 13. janúar. Lehder Rivas bíða þungar sakir í Flórída. Hann er ákærður fyrir eiturlyfja- smygl, eiturlyfjafram- leiðslu og hlutdeild í samsærum sem leiddu til morða á tveim uppljóstrurum lögreglunn- ar. 1 fyrra var hann tilnefhdur í ákærum með ásamt níu mönnum öðrum fyrir eiturlyíjabrask mönn- um öðrum fyrir eiturlyfjabrask þar sem velt hafði verið 58 smálestum af kókaíni inn á Bandaríkjamark- að á fimm árum. Það er í söluverð- mæti á svartamarkaðnum um tíu milljarðar dollara. I striði yfirvalda Kólombíu við kokainframleiðendur og eiturlyfjabraskara hefur blóðið óspart litað storð og frekar hefur sýnst sem glæpalýðurinn hafi haft yfirhöndina. Hér eru óeinkennisklæddir lögreglumenn að bjarga særðum félaga sínum undan skothríð bófa. Símamynd Reuter Komu Kólumbusar minnst I Dóminíkanska lýðveldinu eru menn famir að láta hendur standa fram úr ermum til þess að halda upp á komu Kólumbusar þangað fyrir fimm hundruð árum. Allt árið 1992 verður þess minnst að Santo Dom- ingo varð fyrsta evrópska nýlendan í Ameríku. Þegar er farið að snyrta byggingar frá nýlendutímanum og skipuð hefur verið nefiid sem sjá á um skipulagn- ingu hátíðahaldanna. Hápunktur þeirra verður sigling þriggja skipa frá Spáni og eru þau eftirlíking þeirra sem voru í för Kólumbusar í fyrstu ferð hans til Ameríku. Hispaniola Þegar Kólumbus sigldi f vestur frá Evrópu til Indlands til þess að sanna að jörðin væri kringlótt kom hann til Ameríku í október 1492 til þess svæðis sem nú er hluti Bahamaeyja. Flestir sagnfræðingar telja að hann hafi siglt áfram og séð Kúbu síðar í sama mánuði. Hann hafi þó orðið hnfiiastur af eyjunni sem hann kom að í desember sama ár. hmfæddir nefhdu þá eyju Quisqueya (Móður allra landa) en Kólumbus gaf henni heitið La Espanola (Spönsku eyj- I dómkirkjunni í Santo Domingo í Dóminíkanska lýðveldinu er talið að jarðneskar leifar Kólumbusar séu. Þangað kom hann árið 1492 og þeg- ar er farið að undirbúa afmælishátið í tilefni þess að 1992 eru fimm hundruð ár liðin frá komu hans þangað. una). Eyja þessi liggur á milli Kúbu og Puerto Rico og er nafri hennar nú ritað Hispaniola. Tvö ríki skipta henni á milli sín, Haiti og Dóminík- anska lýðveldið. Miöpunkturinn Þar settist Kólumbus að ásamt syni sínum, Diego, og síðar komu þangað spænskir hermenn, prestar og kaupsýslumenn. í Santo Domingo var meðal annars reist fyrsta dóm- kirkja Bandaríkjanna, fyrsti háskól- inn og fyrsta bókasafiiið. Borgin verður því miðpunktur af- mælishátíðarinnar þó svo að önnur lönd taki þátt í henni. Meðal þeirra er Itah'a, föðurland landkönnuðar- ins, Spánn og önnur lönd í Ameríku sem hann heimsótti. Viðskiptum verður einnig fléttað inn í hátíðahöldin en þau voru ein aðalástæðan fyrir fyrstu ferð Kól- umbusar. Búist er við að Spánn og lönd Suður-Ameríku undirriti nýjan viðskiptasamning upp á sjö hundruð og fimmtíu milljónir dollara. Lágt verð á sykri á undanfömum árum hefur komið illa niður á efria- hag í Dóminíkanska lýðveldinu þar sem aðalútflutningsvaran er sykur. Vonast yfirvöld nú til þess að eyjan Hispaniola komist í annað skipti á fimm hundruð árum á landakortið og að ferðamannastraumur verði aðaltekjulindin. Tveir heimar I Santo Domingo hefur margt varðveist frá nýlendutímanum og mætast þar tveir heimar. íbúamir em kynblendingar, komnir af Spán- verjum, indíánum og blökkumönn- um - þrælum Spánverjanna. Sjálfur varð Kólumbus afar hrifinn af eyjunni og þó að skoðanimar séu skiptar þá álíta flestir sagnfræðingar að jarðneskar leifar hans séu í dóm- kirkjunni í Santo Domingo þar sem hann hafði beðið um að verða graf- inn þar. Aðeins nokkur hundmð metra þaðan er hið svokallaða Kól- umbusarhús sem sonur hans, Diego, byggði árið 1510. Hefur það verið gert upp og er nú safii. hmandyra má sjá spænsk húsgögn hans, gólf- teppi og skrautmuni. I sömu götu er safii með munum frá nýlendu- tímanum og er þar meðal annars kort sem talið er að Kólumbus hafi teiknað af eyjunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.